Morgunblaðið - 10.11.1971, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.11.1971, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1971 3 Átökin í Framsóknarflokknum harðna: „Árás á utanríkisráðhr. og stjórnarstefnuna“ — segir Jón Skaftason 11111 samþykkt SUF — FUF í Keflavík mótmælir SUF 1ÓN Skaftason, alþtn.. full- yrðir, að samþykkt stjórnar SUF, sem Morgunblaðið skýrði frá í gær, vegna um- mæla hans á fundi í Kefla- vík fvrir skömmu, sé í raun árás á Einar Ágústsson, utan- rikisráðherra. „Hún verður því í reynd að skoðast fyrst og fremst sem árás á utan- rfkisráðherra og j>á stjórnar- stefnu, sem hann ætlar að framfylgja f þessu máli,“ segir Jón Skaftason í yfirlýs- ingu, sem Tíminn hirti í gær vegna samþykktar SUF. i Samþykkt stjórnar SUF hefur hleypt af stað hörðum deilum meðal ungra Fram- sóknarmanna. Þannig hefur Félag ungra Framsóknar- rnanna í Keflavík tekið upp vörn fyrir Jón Skaftason og birt yfirlýsingu, þar sem lýst er yfir fullu írausti á þing- manninum. Hér fer á eftir yfirlýsing Jóns Skaftasonar og sam- þykkt FUF í Keflavík. VFIRUÝSING JÓNS SKAFTASONAR „Fyrir nokkrum árum var það velþekkt baráttuaðferð Rússa að húðskamma Albani, þegar þeir vildu ná sér niðri á Kínverjum! Mér datt þessi bardagaaðferð í hug, er ég las furðulega sam- þykkt frá stjóm SUF, er birtist í Timanum sl. sunnudag undir fyrirsögninni „Stöndum með stefnu flokksins". 1 samþykkt þessari er ég vitt- ur fyrir ummæli, er ég viðhafði i ræðu í Keflavík sunnudaginn 31. okt. sl. og notuð stór orð um svo svívirðilegt athæfi. Ég á að hafa svikið stefnu flokksins og styðji ekki við bak- ið á utanríkisráðherra o.fi. o.fl. Nú vill svo vel til, að utanrik- isráðherra, Einar Ágústsson, lýsti stefnu sinni, og þá um leið rikisstjómarinnar, tdl þessa máls á fundi Samtaka um vestræna samvinnu á Hótei Sögu sl. þriðju- dag, eða tveimur dögum eftir Keflavíkurfundinn. Samkvæmt frétt í Tímanum sl. miðvikudag, og ennfremur í leiðara Timains frá sl. laugardegi á hann m.a. að hafa sagt „að engin ákvörðun yrði tekin um brottflutning varn- arliðsins frá Keflavíkurflugvelli, fyrr en ítarleg könnun hefði far- ið fram á þessum máhun“. Enn- fremur „að fyrst, er niðurstöður þeirrar könnunar lægju fyrir, og fyrr ekki, myndi verða tekin ákvörðun um það, hvort varnar- liðið skyldi hverfa úr landi eða ekki“. Þetta er nákvæmlega sama skoðunin og ég setti fram á Keflavíkurfundinum, þar sem Einar Ágústsson var viðstaddur. Þetta vissu stjómarmeðlimir SUF, er þeir gerðu samþykkt sina. Hún verður því í reynd að skoðast, fyrst og fremst, sem árás á utanríkisráðherra og þá stjórnarstefnu, sem hann ætlar að framfylgja í þessu máli, sem ég hefi ekki heyrt eða séð neina stjómarstuðningsmenn mótmæla, utan þeirra stjórnarmeðlima SUF, er að þessari fáránlegu samþykkt stóðu. Vonandi átta hinir vigreifu stjómarmeðiimir SUF sig á því vindhöggi, sem þeir háfa greitt og ,Manda með stefnu flokksins og rókisstjórnariMnar“ í málinu hér eftir. Jón Skaftason.“ ÁLYKTUN FUF I KEFLAVÍK „Stjómarfundur FUF 1 Kefla- vik, haldinn mánudaginn 8. nóv- ember, mótmælir eindregið per- sónulegum aðdróttunum í garð Jóns Skaftasonar á SUF-sdðu Timans 7. nóvember sL Stjóm félagsins telur, að Jón Skaftason hafi fyllilega staðið sem málsvari Framsóknarflokksins og haldið sig innan málefnasamnings rík- isst j ómarinnar. Stjóm félagsins ber fullt traust til Jóns Skaftasonar sem þingmanns Suðumesjamanna. Stjórn FUF, Keflavik.“ Gyðingar gripnir Moskvu, 9. nóvember. AP. SOVÉZKIR landamæraverðir handtóku í nótt fimm sovézkar Gyðingafjölskyldur rétt áður en þær ætluðu yfir ungversku landamærin áleiðis til Austur- ríkis, enda þótt Gyðingarnir hefðu lögleg skilríki. Samkvæmt áreiðanlegum heim ildum fengu fjölskyldurnar ný- lega leyfi sovézkra yfirvalda til þess að fara úr landi og voru á leið frá Moskvu til Vínar. Þrjár fjölskyldumar vom frá Khar- kov í Úkrainu og tvger frg. Kiev. Handtaka þeirra er talin eins- dæmi. ELEKTRONISKAR REIKNIVÉLAR Með eða án stimpils Með eðo án geymsluverks Margföldunarstuðull (Konstant) Alveg hl/óðlausar Svara á sekúndubrofi Léttar og þœgilegar TÍU MISMUNANDI TEGUNDIB MONROE ffi KOMIÐ - SJÁID - SANNFÆRIZT SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. «1 HVERFiSGÖTU 33 ^ ^ M V LUI IvJVJV/ ■ VJ OO SfMI 20560 — PÓSTHÓLF 377 STAKSTEIÍVAR Dýrt að lifa í Noregi! Þessa spaklegu frétt mátti lesa í Tímanum, málgagni fjármála- ráðherra, á sunnudaginn, sama dag og ráðherrann lýsti yfir hækkun á verði áfengis og tóbaks: ,J)ýrt liefur verið að lifa í Noregi fram til þessa, en nú segja Norðmenn, að það sé orðið enn dýrara. Ástæðan er sú, að búið er að hækka vínið. Að vísu á það ekki við um allar tegimdir, heldur á þessi liækkun aðeins við létt vín. Þó svo að hækkun- in sé ekki mjög mikil, þá finnst Norðmönnum hún nóg, en hækk- unin nemur svo kringum 30 kr. á flösku.“ Þrjátíu krónur eru talsvert fé, en hvers eiga íslend- ingar að gjalda, þegar verð á al- gengum víntegundum hækkar á annað liundrað krónur! Skrýtnar röksemdir Almenningur á bágt með að skilja röksemdafærslu fjármál.i- ráðherra fyrir verðhækkun á áfengi og tóbaki. I fyrsta lagi segir ráðherrann, að innkaups- verð hafi hækkað svo mikið, að nauðsynlegt sé að sú hækkun komi fram. En allir yita, að inn- kaupsverð, er smávægilegt brot af útsöluverði áfengis. Þá segir ráðherrann, að þessi liækkun hafi verið nauðsynleg tU þess að draga úr drykkjuskap og er það góðra gjalda vert, en í sömu andránni kveðst hann þurfa á meiri tekjum að halda. Þær fær hann náttúrlega ekki af þessari tekjulind nema drykkjuskapur sé „viðunandi"! t röksemda- færslu Halidórs E. Sigurðssonar fyrir þessari verðhækkun er þvf lítið samræmi og heiðarlegra hefði verið fyrir ráðherrann að segja eins og er, að hann hafi nú brýna þörf fyrir meiri pen- inga í ríkissjóð — því að greiðslu hallinn verði fyrirsjáanlega erf- iður viðureignar. Ágreiningur um Slippstöðina? í Verkamanninum á Akureyrl 29. okt. sl. er rætt um fjárhags- örðugleika Slippstöðvarinnar á Akureyri. Þar er m. a. gefið í skyn, að innan rikisstjómarinnar sé ágreiningur um það, hvort gerðar skuli ráðstafanir til áfram haldandi rekstrar Slippstöðvar- innar og bent á það í því sam- bandi, að allur október hefur lið ið, án þess að til aðgerða hafi komið, en hinn 1. okt. sl. skilaði stjórnskipuð nefnd, er gerði út- tekt á fjárhagsstöðu fyrirtækis- ins, áliti. f Verkamanninum seg- ir m. a.: „Þetta mánaðar aðgerðarleysi liefur orsakað að sögusagnir hafa komizt á kreik um ágreining innan ríkisstjórnarinnar um það hvort bjarga ætti Slippstöð'innl frá gjaldþroti, sem er að flestra áliti óumflýjanlegt, ef ekki kem- ur til skjótra aðgerða frá hendi ríkisvaldsins. Varla er hugsan- iegt að hemill hafi verið settur á aðgerðir af heimamönnum, því að svo miklu hlutverki gegnir þetta fyrirtæki i atvinnumálum bæjarins, að það væri nær ó- skiljanleg skammsýni ef ein- hverjir ráðamenn bæjarfélags- ins tefðu sjálfsagðar og eðlileg* ar aðgerðir í málinu. Það er því álit okkar hér á Verkamanninum að nauðsynlegt sé. að skýrsla 5 manna nefndar- innar sé birt opinberlega ásamt greinargerð frá ríkisst jórninnf, svo allur almenningur geti kynntj sér málið.“ -v

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.