Morgunblaðið - 10.11.1971, Side 17

Morgunblaðið - 10.11.1971, Side 17
MORGUNB.LA.DIf>, MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1971 17 BÓKMENNTIR - LISTIR BOKMENNTIR - LISTIR BÓKMENNTIR - LISTIR Jóhann Hjálmarsson "| skrifar 11 m J Bi 0] K1 M [] E1 N n N 1 □ [] R Gamaldags skáldsaga Sigrurd Hoel: ÆTTARSVERÐIÐ Þýðandi: Arnheiður Sigurðardóttir. Almenna bókafélagið. Reykjavík 1971 ÆTTARSVERÐIÐ er langdregin saga, enginn skemmtilestur. Hún lýsir norskri sveit á öndverðri nítjándu öld, hefst á Þelamörk, en gerist mestmegnis í Rauma- riki. Söguhetja bókarinnar, Há- varður Geirmundsson, er œttað ur frá Þelamörk og að sögn kom in af fornum riddara. Það er gam aldags andrúmsloft rótgróinnar hjátrúar, sem lesandinn kynnist í Ættarsverðinu, en nýr tími trú- arlegrar og verklegrar vakning ar er að hefja göngu sína. Sagan sveiflast á milli dular þjóðkvæð is og kröfu um þátttöku í dags- ins önn. Hávarður, afbragð ann- arra manna, á í strangri innri baráttu; á hann að standa við loforð, sem hann hefur gefið æsku unnustu sinni, eða á hann að gefa sig á vald þess lífs, sem umlykur hann með freistandi fyrirheitum? En þegar hann að lokum bregst heiti sínu og hains bíður nýtt líf í framandi umhverfi, hefur hann út á íslensku b#3tið allar brýr að baki sér, er hann í rauninni ekki nema hálf ur maður. Ættarsverðið (Arvestálet) er fyrri hluti sögulegs skáldverks, síðari hlutinn nefnist Vítahringur (Trollringen). Sigurd Hoel er þekktastur sem höfundur sál- fræðilegra samtimaskáldsagna með pólitísku ívafi. En Ættar- sverðið og Vítahriingur skera sig úr öðrum skáldverkum á rithöf unarferli hans, eru glögg dæmi um viðfangseíni, sem hver rit- höfundur á bágt með að snið- ganga; í þessum bókum er fjallað um þann jarðveg, sem Hoel er sjálfur sprottinn úr: bernsku- slóðir hans, þjóðernislegan upp- runa. Ættarsverðið kom út i Noregi árið 1941. Sagan kom á óvart vegna þess hve fjarlæg hún virt ist vandamálum tímans þrátt fyr ir það að höfundurinn ætlaði henni táknræna merkingu. En í áttina að Álfstað, sem verður framtíðárheimili hans, er lýst af ævintýralegu hugarflugi. Hið sí það, sem mesta furðu vaktl var endurtekna þjóðkvæði, sem á að lýsa því hvernig mönnum eru bú in örlög, hve vamarlausir þeir eru þrátt fyrir styrkleika sinn að höfundurinn hét Sigurd Hoel. Þess ber samt að gæta, ajð Sig- urd Hoel sendi Ættarsverðið frá sér á fyrstu árum þýsks hernáms í Nonegi. Nasistar litu bókina hornauga og Sigurd Hoel varð að flýja til Svíþjóðar. Þegar Ættarsverðið kemur nú og glæsibrag, er aftur á móti of- notað. Hin hæga frásögn sögunn ar lifnar ekki hót við þennan kveðskap. Líklega hefur þó höf- undinum fundist nauðsynlegt að gera hlut kvæðisins svo stórain til að leggja enn þyngri áherslu á þátt örlagatrúarinnar • í fari forfeðra sinna. útgáfa Ættarsverðsins á ís- lensku minnir enn einu sinni á tilviljunarkennt val útgefenda á þýddum skáldsögum. En vera má að Ættarsverðið eignist sína les- endur hér á landi. Orðstir Sig- urds Hoels er hugsamleg trygg- ing þess. Sigurd Hoel í ágætri þýðingu Amheiðar Sigurðardóttur er hún orðin nokkuð fyrnd. Hinn marg- máli og skrautlegi stíll bókarinn ar er í mótsögn við nútímalega sagnagerð. í fljótu bnagði mætti halda að Sigurd Hoel hafi verið rómantískur mærðarsmiður af algengri tegund, en sé bók- in lesin af alúð, þættir hennar skoðaðir i samhengi, er ljóst að vandvirkur rit- höfundur heldur á pennanum. Hið kyrrláta yfirborð sögunnar er stundum heillandi í nákvæm- um lýsingum á veðri og um- hverfi og þeim öflum, sem blunda í hugum fólks. Margar ljóslifandi manngerðir eru kallað ar fram á söj^isviðið: auk Há- varðs sjálfs, húsbóndi hans, presturinn Pétur Lárentius Thur mann, kona hans og dætur, hesta prangarinn Bruflaten, hin óham ingjusama Tóný, ekkjan Rann veig og þannig mætti lengi telja. Ferð Hávarðar gegnum skóginn Mynd nr. 19: „Endurminning“. I Bogasalnum: Sýning Karls Kvarans FYRIR tveim árum hélt Karl Kvaran sýningu á verkum sínum í Bogasal Þjóðminjasafnsms, og nú er hann þar aiftur kominn með nýjar myndir, sem orðið hafa tii á þeim tíma, seim ldðinn er síðan. Það vill svo ein- kennilega til, að nákvæmlega sama tala listaverka er á þess- ari sýningu Karls og þeirri fyrri. Tuttugu og sex gouaohe- myndir, allar undir gleri, sama efni og hann hefur unnið í um langt árabil. Þessi sýning Karls er mjög vönduð, og ef til vill enn sterkari og áhrifaríkari en sú er ég hef nefnt hér að ofan. Heildarsvipur þessara verka er óaðfinnanlega heil’l og sannfærandi. Hvert ein- asta verk valið af mikilli ná- kvæmni og vandvirkni. Karl Kvaran er samur við sig og læt- ur ekki glepjast af umróti tím- anna. Hann heldur enn vinnu- brögðum sínum innan þröngra takmarka, bæði í lit og formi, en einibeitir sér sem áður að full- komnun í verkum sínum af öll- um kröftum. Hann er ekki í vandræðum með viðfangsefni, og ég er ekki frá því, að þessi sýn- ing Karls sé miikilu fjölbreyttari í eðli Sínu en síðasta sýning hans. Það svið, sem Kari Kvaran markar starfskröftum sínum, virðist svo þröngt við fyrstu sýn, að það verður að hafa fulla að- gát að því sem er að gerast, og getur jafnvel verið erfitt að koma auga á, hverjar breytingar hafa átt sér stað í list hans að undanfömu. Það verður þvi að skoða þessi verk sérstaklega vel og komast að kjarna þeirra. Gera sér grein fyrir eðli þeirra og hvernig listamaður hugsar. Skilja tjáningarformið og vera Erlendur Jónsson 1 skrifar um J 0] K1 M [] s: N N rrl n [] R GEÐFLÆKJUR Guðjón Albertsson: ÓSKÖP. 105 bls. Alm. bókaf. 1971. Heiti þessarar bókar sýnist fremur vandræðalegt. 1 mæltu máli mun orðið (ósköp) tíðast haft til áherzlu, en þarna á það sennilegast að merkja: ill örlög. Og er að visu réttnefni. Þetta er sögð fyrsta skáld- saga höfundar, og er lítll hætta að manni gleymist það við lest- urinn. Að sönnu er skylt að við- urkenna, að Guðjón Albertsson skrifar hvorki viðvaningslega né olipurlega. Aðferðinni sjáilfri — að setja saman skáldsögu — veldur hann auðveldlega. Orða- val hans er fullþokkalegt, setn ingaskipun í sæmilegasta lagi, og samhengið er hreimt ekki að- finnsluvert. Og sjáift söguefnið — það gæti verið laklegar val- ið. Hvers er þá vant? Ef til vill er ekki jafnauðvelt að svara því. Tilfinnanlegast hygg ég vera, að söguna skortir Fif og spennu. Ég hef ekki hugmynd urn vinnubrögð höfundarins, en ræð það af stíl hans og — fram- setning yfirhöfuð, að hann sé vandvirkur. En þegar mað- ur vandar sig, vill oft fara svo, að hann vandar mest það, sem hann óttast, að sér mistakist helzt, en gætir þá síður hins, sem hann telur vandaminna. Af- leiðingin blasir við i þess- ari skáldsögu: ungum höfundi vex formið i augum, hann ræðst á það, leggur sig fram, nær sæmi legum árangri, en missir um leið sjónar á aðalatriðinu, efninu, sög unni sjálfri. Því vitaskuld á form ekki að vera annað en umbúðir. En þar eð umbúðirnar eru það, sem fyrst blasir við aug um, kann svo að virðast við fyrstu sýn, sem þær séu aðalatr- iðið. Þrátt fyrir augljósa viðleitni eru Ósköp daufleg og dauðaleg saga, og má vera, að yrkisefn- ið stuðli að þvi meir en efni standa til, því hér er sumsé á ferðinni saga um dauða: dauður hlutur, Ijósmynd, verðúr uftgum manni ofurvald, r hrollvekja. Sjálfur deyr hann svo við að bjarga myridinni úr eldsvoða, en eldinn hafði hann sjálfur kveikt. Við getum kallað þetta sál- fræðilega sögu til að skipa henni einhvers staðar í flokk. Uppeld- isvandamál eru þarna ofarlega á baugi. Og víst er frumorsök vandans sígilt viðfangsefni: van metakennd eins manns sakir sí- fellds samanburðar við annan mann. Ennfremur mun ekki fá- tíð sú uppeldisaðferð, sem lýst er í sögunni, að unglingur sé ávallt látinn vera sekur, „alltaf að brjóta eitthvað af sér“ og þar af leiðandi ofurseldur náð og miskunn foreldra sinna. En flest hangir þama i lausu lofti. Ungi maðurinn lætur ljós- mynd af látnum bróður draga sig niður, smækka sig og ein- angra og að lokum eyðileggja Mf sitt, svo hann á ekki nema um eitt að velja, dauðann. Þetta gæti verið handhægt tákn í sögu af mannlegum örlög- um, en reyindar — aðeins tákn. En þarna er táknið gert að meg- inatriði, allt snýst um það sjálft: ímugust, sem ein Ijósmynd vek- ur með manni. Sé lesandanum ætlað að lesa út úr þessu tákni eitthvað annað og meira en í þvi sjálfu felst, þá hefur eitthvað glatazt á leiðinni, eitthvað far- ið forgörðum. Geðflækjum söguhetjunnar er lýst í samræmi við það. „. . . aumkunarverð tauga hrúga þjökuð sjúku imundunar- afli og andstyggilegum geð- flækjum. 1 einu orði sagt: við- bjóður. Og þó svona smábeinött- ur og sætur. Þó svona mikill fermingardrengur inni sér — svo óspilltur og sárasaklaus inn við beinið." Setjum dæmið svo upp, að þetta sé bara almenn sjúkra- saga, dæmi um einbera sinnis- veiki. Þá er hún sem slík alltof teng. Margendurteknar útlistan ir á geðflækjum söguhetjunnar geta vart þjónað öðrum tilgangi en draga söguna á langinn, teygja hana, svo hún verði efni I sérstaka bók (sem í þessu til- felli má ekki minni vera, losar hundrað síður og fremur litið á hverri). Guðjón Aibertsson er ritfær höfundur, og raunar gæti hon- um virzt fátt til vanbúnaðar að semja góða skáldsögu. En hæfi- leikar hans hafa ekki orðið honum tii brautargengis í þess- ari fyrstu iotu. I vandvirkni sinni við að búa til álitlegar um- búðir hefur honum láðst að rækta það, sem innart í þeim skyldi vera. móttækilegur fyrir þann heiim, sem þannig birtist áhorfanda. Þetta á raunar við um ÖH góð listaverk. Engum blöðum er um það að fletta, að Karl Kvaran hefur náð gífurlegum árangri í list sinsni, og sýnist mér, að með þessum verkum hafi hanin farið nokikuð inn á nýjar brautir, frá þvi er hanm sýndi siðast. Bn við skulum muna það, að tvö ár eru ekki langur timi í starfi málara. Karl Kvaran er enginn byrjandi í myndlist, og hann er óvenju þroskaður og margreyndiur mál- ari, sem veit vel, hvað hann er að gera, og það sést sannariega á þessari sýningu. Fyrir tveim árum reit ég utm sýningu þá, er Karl Kvaran hélt þá, og sagði þá álit mitt á iist Karis. Það væri hlægilegt að endurtaka þau skrif hér, en ég tel það, er ég þá sagði, eiga fuill- komlega við þau verk, er Karl sýnir nú í Bogasalnum. Það mætti auðvitað einhverju við bæta, en ég heild, að það sé óþarfi. Það fer ekki milli mála, að ég er mjög hrifinn af þeim verkum, er Karl Kvaran hefur valið til sýningar að sinni og hann má sannarlega vera ánægður með þann árangur, sem vinnubix>gð hans og sjálfsagi hefur skapað. Þessi verk Karls Kvarans eru í eðli sínu þannig, að það hvarfllar ósjálfrátt að manni, hvorl þessi myndgerð kalli ek’ki á enn stæroi og veigameiri verk en þarna eru til sýnis. Það er nú einu Sinni svo með sterk, einföld og litrSlk listaverk, að það er eins og þau þurfi visst svigrúm til að njóta sin til fulls, og oft verður ein- mitt sá stíll, er Karl Kvaran not- ar, sterkari og áhrifameiri eftir því sem myndflöturinn gefur honum meira svigrúm, og sú viðkvæma og einfaida lína, sem svo mjög er áberandi í þessum verkum Karls, ætti að njóta sín enn betur í stærri fleti. Það væri óneitanlega mikill viðburður, e.£ maður ætti von á að sjá eitthvað af þessum verkum Karls Kvar- ans í stóru formati, eins og lista- menn stundum komast að orði. Þessi sýning Karls Kvarans er stórmerkilegur viðburður í lista- lífi Reykjavíkur, sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Þeir, sem stundum eru að þvaðra um að þessi tegund listar sé bú- in að ganga sér til húðar, munu komast að öðrum sannleik eftir viðkynningu af þessum verkum, ef þeir eru þá ekki svo fordóma- fullir í vanþekkingu sinni, að sjón þeirra og skynjun sé gengin fyrir stapa. Góð listaverk enu engin tizkufyrirbæri og eiga sér hljómgrunn á öllum ttonum, S. hváða fonmi sem er. ^ Valtýr Pétuissoa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.