Morgunblaðið - 10.11.1971, Síða 19
MORGUNBLAÐH), MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1971
19
Gjafirnar afhentar.
Akranes:
Veglegar gjafir
til sjúkrahússins
Akranesi, 29. október.
KIWANISKLtJBBURINN Þyrill
á Akranesi afhenti í dagf sjúkra-
húsi Akraness veglegar gjafir;
samtals að verðmæti um 200 þús
nnd krónnr.
Gjafirnar voru fyrirburðakassi
og sérstaklega útbúið sjúkrarúm
fyrir hjartasjúklinga. Fyrirburða
kassi er ætlaður börnum, sem
fæðast fyrir tímann, og er hann
upphitaður með rafmagni og út-
búinn ýmsum öryggisbúnaði; m.
a. súrefnisgjafa.
Rækjuvinnsla
að hefjast
DJÚPAVOGI 3. nóvember. —
Rælkjuvinnsla er nú að hefj-
ast hér á Djúpavogi, og hef ur
þegar verið landað nokkru af
rækju. 1 sumar voru keyptar
tiil sitaðarins velar til að vinna
rækj'una og hefur þeim verið
komið fyrir í húsi, sem gerðar
höfðu verið noklkrar breyting-
ar á vegna þessarar starf-
semi.
Seinni hluta vetrar í fyrra
var byrjað að vinna rækju í
fyrsta slkipti á Djúpavogi, og
var hún þá unnin í frystihús-
imu á staðnum. Þá voru ekki
til vélar til vinnslunnar og
varð því að handvinna ræikj-
una, sem þá barst á land.
Fjórir bátar verða gerðir
út á rækjuveiðar frá Djúpa-
vogi i vetur.
— Unnur.
Athugasemd vegna leiðara-
skrifa Þjóðviljans
- frá Samstarfsnefnd
bifreiðatryggingafélaga
Trygginigafélög hafa verið
gagnrýnd fyrir ýmislegt, en í
leiðara Þjóðviljans i gœr kast-
aði þó tóifunum. Má ætla að
flestum, sem hann lásu eða á
hlýddu í morgunútvarpi hafi
blöskrað, svo furðuleg og ósvlf-
in var sú atlaga, sem félögunu'm
var gerð fyrir framlag þeirra til
úrbóta í uimferðarmáílium. Niður-
staða Ieiðarahöfundar var sú, að
hér réði „gróðasjónarmiðið“ og
taldi hann það viðurstyggilegt
athæfi að hafa öryggismál mann
eskjunnar að féþúfu eigenda
hlutafélaga.
Hvaða annarlegar hvatir
liggja að baki slílkum skrifum,
er torvelt að gera sér grein fyr-
ir. Er það skoðun höfundar, að
öll starfsemi í þágu örygigismála
sé viðurstyggileg, ef einhver
hagnaður kynni að renna til eig
enda fyrirtækja, eins og t.d.
þeirra sem framleiða björgunar
báta, öryggisbelti og hjálma o.s.
frv., eða stunda rannsóknarstörf
eða nær viðurstyggðin einnig tii
þeirra, sem laun taka fyrir störf
að öryggismálum ?
Niðurstaða höfundar verður
einnig þeim mun furðulegri, þeg
ar lesin eru lokaorð hans, þar
sem hann segir ekki einn ein
asta mann hafa heimild tii að
skjóta sér undan ábyrgð í þess-
um efnuim og telur, að aknenning
ur muni ekki sjá eftir f jármagni,
sem varið er til þessara mála.
Ef til vil telur hann ekki trygg-
ingamenn til manna.
Annars virðist leiðari þessi
skrifaður £if vægast sagt mik-
illi vanþekkingu, þar sem höf-
undi virðist al'Is ókunmugt um,
að oplnberir aðilar hafi haft for
göngu um samstarf meðal aðila
sem vinna að umferðarmálum. 1
ársbyrjun 1969 gaf dómsmála
ráðuneytið út reglugerð um um-
ferðarmállaráð, en það skipa full'
trúar frá hinuim. ýmsu aðilum,
sem að umferðarmálum hafa
starfað.
BifreiðatryggLngafélögin hafa
hingað til verið gagnrýnd
á stundum fyrir, að þau legðu
ekki nóg af mörkum tii bættrar
umferðarmennimgar. Afkoma bif
reiðatryigginga hefur einnig ver
ið vægast sagt rnjög slæm und
anfarin ár eins og margoft hefur
verið rakið í fréttum. Hins veg-
ar haf a félögin lagt töiluvert af
mörkum i þessu sambandi og
munu væntanlega gera í fram-
tíðinni. Vissulega varðar það
hagsmuni félaganna miklu, ef
bæta má öryggi i umferð og
fækka umferðarslysum og
óhöppum, en fyrst og fremst er
um hagsmuni bifreiðaeigenda
að ræða, þar sem iðgjöld þau
sem þeir þurfa að igreiða mótast
fyrst og frernst áf tjónbótum fé-
laganna, þeim mun minni bætur
þeim mun lægri iðgjöld. Hitt er
ekfci minna um vert, að slys
verða aldrei bætt með fé, og fá-
um mun vera sú staðreynd ljós-
ari en tryggingamönnum.
Tryggingafélög hafa haft for-
göngu um tjónavamir á fleiri
sviðum en umferðarmálum. Nær
tækt er að benda á, að tryigg-
ingafélög hafa stiuðlað mjög að
auknurn brunavörnum og sam
kvæmt lögum um brunavamir
og brunamái frá 1969 er trygg
inigafélögum gert að greiða
brunamálastofnuninni 1,25% af
brúttóiðgjaldatekjum vegna
brunatrygginga. Þessi háttur er
einnig aigengur erlendis og til
fróðleiks má skjóta því inn, að
fyrstu slökkviilið í Bretlandi
voru rekin af brunatrygginga-
féiögurn.
1 raun er um það að ræða,
hvort tryggingafélög eigi ein-
vörðungu að greiða fébætur
vegna tjóna eða hvort þau eigi
að leggja eitthvað af mörfcum tiil
þess að koma í veg fyrir tjón
og á þann hátt draga úr tjón-
bótum. Félögin hafa álitið það
engu síður mikilvægt að vinna
að tjónvörnum og telja hags-
munum tryggingartaka þannig
betur borgið. Á hinn bóginn
hlýtur alitaf að vera matsatriðí,
hversu miklu fé skuli varið tLI
sliks og hvernig samstarfi við
aðra aðila skuli farið.
JOHNS - MAWILLE
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrunina
með álpappírnum, enda eitt
bezta einangrunarefnið og
jafnframt það langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4" J-M
glerull og 3" frauðplasteinangr-
un og fáið auk þess álpappír
með. Jafnvel flugfragt borgai
sig. Sendum um land allt —
Jón Loitsson hf.
ÞETTA GERÐIST í
SEPTEMBER 1971
VEÐUR OG FÆRÐ
Vegir aftur færir eftir mesta áfelli
er menn muna á Hólsfjöllum (4).
Ágústmánuöur þurr og fremur
kaldur (7).
10. sept. heitasti dagur sumarsins,
I Reykjavik, 18 stig (12).
Loftmengun I Reykjavík nær tvö-
faldast meö meginlandsloftinu (14).
Fjallvegir á Austfjörðum teppast
vegna snjóa (21).
tTGEROIN
Lakari afli togara en á sama tíma
1 fyrra (1).
102 erlend veiöiskip viö landiö um
mánaöamótin (1).
Aldrei meiri þorskafli á Þórshöfn
(2).
Grindvíkingur kemur meö rúml. 200
tunnur sildar til söltunar á Djúpa-
vogi úr Breiðamerkurdýpi (4).
516 hvalir hafa veiðzt það sem af
er vertíöinni (11).
Fiskblokkin hefur hækkaö um 4
cent í Bandaríkjunum á árinu (14).
FramleiÖsla stöövuö á „Rússlands-
fiski“ (15).
Góður sumarafli Eyjabáta (16).
Hækkandi verö á saltfiski á eriend
um markaöi (16).
Bátaaflinn 36 þúsund lestum minni
en á sama tíma I fyrra (17).
20% verðfall á rækju (18).
Sild söltuð I Reykjavík (18).
Takmarkanir á rækjuveiði viö
Djúp (22).
95 erlend fiskiskip við Island (23).
Tilraunir geröar með nýja gerö tog
hlera (24).
Ekki grundvöllur fyrir hörpudiska
vinnslu i Reykjavlk (30).
FR A M KVÆMDIR
Einar Sigurösson, útgerðarmaður,
lætur smíöa þrjá báta á Akureyri (3)
Miklar byggingaframkvæmdir á
Húsavik (5).
Heilsuhæli fyrirhugaö i Reykja-
hlíð viö Mývatn (7).
ÍBR kaupir Reykjanes 1 Grlmsnesi
þar sem reist veröur æfingamiðstöð
fyrir íþróttamenn (10).
Björn Pálsson fær nýja flugvél af
geröinni Piper Geronimo (12).
Eimskip kemur upp vörumiöstöð I
New York (12).
Loftleiöir kaupa DC-8-63 þotu (14)
Bjarkarás, dagheimili fyrir vangef
in börn langt komiö í byggingu (15))
Nýrri vatnsveitu aö ljúka á Suöur
eyri (16).
Miklar framkvæmdir á ÓlafsfirÖi
(16).
Skóladagheimili fyrír smálbúöa-
hverfi I Reykjavik tekur til starfa I
október (16).
15 stórar brýr i smíðum I sumar
(17).
Bygging nýs borgarbókasafns í
undirbúningi (18).
Hagkvæm virkjunarskilyrði 1 Jök-
ulsá eystri I SkagafirÖi (18).
Landsvirkjun ákveöur 150 MW stór
virkjun I Sigöldu (19).
Nýtt sláturhús tekur til starfa I
Húsavlk (21).
Búrfellsvirkjun stækkar um eina
vél (21).
FæÖingarheimili Reykjavíkurborg-
ar stækkaö (21).
Orkustofnun gerir áætlun um gerð
raflínu um Sprengisand tii Noröur-
lands (23).
Bílainnflutningurinn liðlega fjór-
faldaðist 1970 (29).
Ekkert lát á alframleiðslunni I
Straumsvik þrátt fyrir sölutregöu á
áli (30).
MENN OG MALEFNI
Forseti Islands, dr. Kristján Eld-
járn, viö fornleifarannsóknir I Papey
(1, 8).
24 Islendingar viö tækniaöstoð I
þróunarlöndum (2).
Ung Islenzk stúlka, Svana Friðriks
dóttir, hlýtur Nansensverðlaun Flótta
mannastofnunarinnar (4).
Euk Heum Yun, aðstoöarutanríkis
ráðherra Suður-Kóreu, í heimsókn
hér (4).
Ólafur Jóhannesson, forsætisráö-
herra situr ráöherrafund I Helsinki
um Norðurlandaráðsmálefni og Einar
Ágústsson, utanrikisráðherra, situr
fund utanríkisráöherra Norðurlanda
i Kaupmannahöfn (4).
Sigríöur Magnúsdóttir hlýtur 1.
verðlaun 1 ljóðasöngkeppni 1 Gent I
Belgíu (5).
Ivar H. Jónsson, lögfræöingur, sett
ur skrifstofustjóri ÞjóÖleikhússins (7
Adda Bára Sigfúsdóttir, ráöin aö-
stoöarmaöur heilbrigöis- og trygging
armálaráöherra (7).
Björn Ólafsson, fiöluleikari, leikur
meö I „Sinfóníuhljómsveit heimsins“
'(8).
Arnljótur Björnsson settur prófess
or viö lagadeild Háskóla Islands (8).
Lúövlk Jósefsson skipaöur aöal-
fulltrúi Islands í bankaráði Alþjóöa
bankans (8).
Jónas Jónsson, ráöunautur, ráðinn
aöstoöarmaöur landbúnaðarráðherra
(8).
Magnús Már Lárusson, háskólarekt
or, kjörinn heiöursdoktor viö guö-
fræöideild Háskóla íslands (9).
Jónas Pálsson, sálfræðingur, sett
ur skólastjóri Æfinga- og tilrauna-
skóla Kennaraskólans (15).
Þrjár brezkar popp-hljómsveitir
leika hér (21).
Einari Sæmundsen reistur bauta-
steinn i Heiömörk (21).
Aage Rothenborg gefur 50 þúsund
krónur til þjóðfræöilegrar heimildar
kvikmyndar hér (21).
Sr. Þórir Stephensen ráðinn aö-
stoöarprestur sr. Jóns Auðuns (21).
Knútur Bruun stofnar uppboðsfyr
irtæki (26).
Ejnar Gerhardsen og Tage Erland
er á umræðufundi hér (26).
Geir Hallgrímsson flytur ræöu á
þingmannafundi NATO (28).
Stjórnmálamenn frá Afríku í heim
sókn (29).
Fulltrúar Reykjavíkurborgar fara
tii Moskva (30).
FÉLAGSMÁL
Fjölmenn Bahá’I-ráðstefna haldin I
Reykjavik (1, 3).
HerferÖ gegn ölvun viö akstur (2).
..íslenzkur fatnaður“, 7. kaupstefna
F.I.I. haldin (3).
Landhelgisnefnd Alþingis kemur
saman til fundar (3).
Nær þriðjungur þjóöarinnar I skóla
n.k. vetur (9).
Kennarasamböndin á Noröurlönd-
um halda stjórnarfund sinn hér (10)
Fundur Alþjóöasambands lögreglu
manna haldinn hér (15).
Páll Gíslason, læknir, kosinn skáta-
höföingi (15).
Fyrsti fiskvinnsluskólinn hefst I
haust (15).
Neytendasamtökin skipa borgara-
réttindanefnd (16).
Læknaþing haldiö I Reykjavlk (16)
33. IÖnþing Islendinga haldiö i Rvik
(17).
Björn Tryggvason kosinn formaður
RauÖa kross Islands (17).
Hjörleifur Guttormsson endurkjör
inn formaður Náttúruverndarsam-
taka Austurlands (17).
Fundur um skýrslu OECD um vis
indamál á Islandi (21).
Ásdís Sveinsdóttir kjörin formaöur
Sambands austfirzkra kvenna (23).
Unnin vinnuvika styttri hér en á
öðrum Norðurlöndum (24).
Yfir 3000 nemendur I menntaskól
unum í vetur (26).
Húsmæðraskóli Akureyrar tekur til
starfa meö breyttu sniöi (29).
Þrir segja sig úr stjórn Fél. Isl.
bifreiöaeigenda (29).
Sveinn Guömundsson, SeyÖisfirði,
kosinn formaður Kjördæmisráðs
Sjálfstæöisflokksins I Austurlands-
kjördæmi (30).
BÓKMENNTIR OG LISTIR
Fimm Islenzk leikrit á dagskrá
hjá Þjóöleikhúsinu á nýbyrjuðu leik
ári (1).
Hallsteinn Sigurðsson. myndhöggv
ari .heldur sýningu (3).
Félag Islenzkra myndlistarmanna
heldur haustsýningu (4).
Steingrímur Sigurösson heldur mál
verkasýningu (7).
Robert Arnfinnsson leikur titlihlut
verkiö I Zorba i leikhúsi 1 Lúbeck (7,
10).
Sigríður Björnsdóttir og Bat Yosef
halda málverkasýningu (10).
Siguröur örlygsson heldur mál-
verkasýningu (11).
Leikfélag Reykjavikur frumsýnir
,,Plóg og stjörnur*4 eftir Sean O’Cas-
ey (12).
Hringur Jóhannesson heldur mál-
verkasýningu (14).
I.eikfélag Reykjavíkur sýnir 4—5
íslenzk leikrit á leikárinu ^15).
Ashkenazy, Barenboim og Zuker-
man á tónleikum Sinfóníuhljómsveit
arinnar 1 desember (18).
Ingi Hrafn Hauksson heldur mál
verkasýningu (21).
Guörún Jónsdóttir (Blaka) heldur
málverkasýningu (21).
Jörg Demus, pianóleikari, leikur
með Sinfóníuhljómsveitinni (23).
Grafiksýning frá 22 löndum i Norr
æna húsinu (25).
Ragnheiður Jónsdóttir Ream held
ur málverkasýningu (26).
Árni Kristjánsson og Björn ólafs-
son halda tónleika á vegum Tónlistar
félagsins (28).
NÝJAR BÆKUR
„Fundin ljóð“, ljóðabók eftir Pál
Ólafsson (3).
Einar Benediktsson, líf hans og
list, eftir dr. Sigurð Nordal (14).
Séra Magnús Grímsson og þjóðsög
urnar, eftir dr. Sigurð Nordal (14).
Ný fuglabók, Stóra fuglabók Fjölva
(18).
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Tvö smábörn á Seltjarnarnesi
smitast af berklum (3).
16 ára piltur bíöur bana i Reykja
vík eftir árekstur viö vélskóflu (8)
Vopnfirðingar finna 68 kindur dauð
ar i fönn (9).
Ingvar Haraldsson. 45 ára, lézt I
húsbruna á Vopnafirði (14).
17 ára piltur fellur af vinnupalll
l 16 metra hæð og slasast sáralítið
(16).
Heybruni að Sandi í Kjós og Lltlu
Sandvík í Flóa (17).
Halldór Ingimarsson, skipstjóri, 6G
Ara blður bana í bílslysi (18).
Sjómaður drukknar á Eyjaflröi, er
trillubátur sekkur (18)
Tjónið ekki undir milljón krónuta
vegna fjárskaðanna i Vopnafirði (28)
ÍÞRÓTTIR
Fram vann síðari leik sinn vid
Möltu-liöið Hibernians l Evrópu-
keppni bikarmeistara meö 2:0 (2).