Morgunblaðið - 25.11.1971, Qupperneq 31
1
I
MORGUN®LAÆ>IÐ. FIMMTUDAGUR 25. NÓVBMBER 1971
31
ÍSÍSn'D'MEÉlIDB^oig'UíiWaás/ns
Gísli Ha Ildorsson, forseti ÍSÍ, flytur ræðu sína.
Metaðsókn að sund-
stöðum og íþróttasölum
Grósku í íþróttalífinu lýst á formannafundi ÍSÍ
Forniannafnndur l.S.f. var
lialdinn urn s.l. lielgi að Hótel
lyoffleiðiim. Fnndinn sóttu auk
stjórnar samlrandsins, formenn
17 Héraðssainbanda og 10 sér-
sambanda. Gestir fundarins
voru: Þorsteinn Einarsson,
iþróttafiilltrúi ríkisins, Stefán
Kristjánsson iþróttafulltrúi
Reykjavíkur og Reynir Karls-
son, Æskulýðsfulltrúi ríkisins.
RÆflA FORSETA f.S.f.
Gisli Halldörsson forseti l.S.l.
setti fundinn með ræðu, þar sem
hann gaf yfirlit yfir framvindu
ýmissa mála frá síðasta for-
mannafundi, en þeir eru ha'ldnir
á 2ja ára fresti.
Hann lýsti ánægju sinni með
tilkomu Trimm-herferðarinnar í
kjölfar Iþróttahátíðarinnar á sl.
ári. Kvað forseti l.S.Í. Trimm-
starfsemina hafa fengið mjög já
kvæðar undirtektir, bæði hjá al-
menningi og stjórnarvöldum.
Gísli Halldórsson kvað stjórn
l.S.f. vera með í undirbúningi
stofnun grunnskóla og nám-
skeiðastarfsemi, ,þar sem sér-
stök áherzla yrði lögð á að und
irbúa iþróttaleiðtoga til sinna
þýðingarmiklu starfa. Skiptu
íþróttaleiðtogar nú þúsund-
um víðs vegar um landið og væri
augljós nauðsyn þess að þeir
fongju haldgóða undirstöðu-
menntun og fræðslu um hin marg
víslegu verkefni er þeim væri
ætlað að inna af höndum. Loks
ræddi forseti l.S.f. ítarlega um
fjármál iþróttahreyfingarinn
ar. Hann minnti á hversu vel
heffii tekizr til um sítarfsem.i Get-
rauna. Þær væru íþróttastarf-
seminni mikil lyftistöng og fyr-
irtækið nyrti vaxandi trausts og
álits meðal.allra landsmanna.
Jafnframt ræddi hann um sam
Skipti við opinbera aðila á fjár-
málasviðinu. Um það mál sagði
forseti Í.S.Í. m.a.
Stjórn Í.S.Í. vinnur markvisst
að því afi fá aukin fjárframlög
frá rikisvaldinu og sveitarfélög
um. Enda þótt okkur finn-
ist stundum ganga hægt, verður
eigi annað sagt en að vaxandi
skilningur og velvilji sé fyrir
hendi hjá opinberum aðil-
um. Hefur hinn aukni stuðning-
ur þróazt jafnt og þétt
á undanförnum árum og vil ég
sérstaklega minnast á hækkun
til íþróttasjóðs sbr. frumvarp til
fjárlaga fyrir árifi 1972.
Við fögnum þessum vaxandi
skiiningi og metum og þökkum
hina auknu aðstoð.
GETRAUNIR
Gunnlaugur J. Briem gjald-
keri Í.S.Í. og Stjórnarformaður
Getrauna gaf yfirlit yfir starf-
semina á s.l. ári. Á miðju ári
1970 var undirritaður nýr samn
ingur um rekstur Getrauna með
aðild Iþróttanefndar ríkisins,
Í.S.Í. U.M.F.Í., K.S.l og I.B.R.
L.á fyrir fundinum prentuð
skýrsla með ítarlegum töluleg-
um uppilýsin,gum, sem sýnir fram
á sívaxandi starfsemi Sagði
stjórnarformaður Getrauna, að
við sölu getraunaseðlanna störf
uðu hundruð sjálfboðaliða um
land allt. Loks kvaðst hann
vilja geta sérstaklega um vel-
vilja og skilning af hálfiu íþrótta
fulltrúa rikisins, Þorsteins Ein-
arssonar, i garð hinnar frjálsu
íþróttastarfsemi, við uppbygg
ingu og mótun Getraunastarf-
seminnar.
LEIDTOGANÁMSKEIH —
SUMARBtTÐIR
Hannes Þ. Sigurðsson og Sig-
urður Magnússon fluttu erindi
um Leiðtoganámskeið og starf-
semi sumarbúða. (íþróttamið-
stöðvar).
Kom fram í erindum þeirra að
um allan heim í starfsemi hinn-
ar frjálsu íþróttahreyfingar
væri gert sífellt meira og meira
að því að undirbúa íþróttaleið-
toga til starfa. íþróttahreyfing-
in yrði að sinna fleiri verkefn-
um en þeim, sem mæld yrðu í
sentimetrum og sekúndum.
Uppeldislega hliðin i starfsemi
íþróttahreyfingarinnar væri stöð
ugt að verða nauðsynlegri og
þýðingarmeiri. Á tímum upp-
lausnar, óróa og agaleysis, þar
sem hvers kyns mannlegar
dyggðir ættu í vök að verjast,
væri hlutverk íþróttahreyfingar
innar sérstaklega mikilvægt.
Fræðslu- og félagsmálastarfsem-
inni þyrfti þvi að sýna sérstaka
ræktarsemi. Samfélagið þyrfti
Svvo sannarlega á þvi að haída
og iþrót.tahreyfingin fjölmenn-
asta æskulýðshreyfingin í land-
inu, gæti lagt þessum málum aí-
ar mikið lið.
TRIMMIfl
Sigurður Magnússon gaf yfir-
lit yfir margvíslega útgáfu- og
kynningarstarfsemi, sem Í.S.l.
hefði ráðiBt í til að auka áhu.ga
og skilning alls almennings á
nauðsyn hæfilegrar hreyfingar
pg útivistar.
Það var upplýst á fundinum,
afi ótviræður árangur hefði orð-
ið af Trimm-herferðinni og raark
visst mundi unnið áfram að þess-
um málum. Var m.a. upplýst að
aðsókn að sundstöðum hefði
stórlega auikizt, eftirspum ef>tir
iþróttasölum væri meiri en
nokkru sinni fyrr og ekki hægt
að sinna nærri öllum beiðnum,
þátttaka í skipulögðum ferðalög
um ag gönguferðum hefði verið
í hámarki á s.l. sumri og hvar
vetna mætti sjá merki þess, að
útivisit og hreyfing ætti meiri
hljómgrunn hjá öllum almenn-
ingi en áður þekktist.
NEFNDARSTÖRF
F,h. á sunnudag var fundin-
um skipt upp í umræðuihópa þar
sem rætt var nánar um hina
ýmsu þætti. í greinargerðum um
ræðuhópanna kom fram mikil
samstaða um þau meginmálefni,
sem áður hafði verið fjaliað um
í einstökum framsöguerind-
um. Lýstu ráðstefnufulltrúar sig
samþykka í öllum aðalatrið-
um stefnumörkun stjórnar Í.S.Í.
og töldu að vel væri að fram-
kvæmdum staðið.
Fundurinn lagði lika áherzlu
á, að þegar á næsta ári yrði haf-
izt handa uim framkvæmd leið-
toganámskeiða og yrði í
þeim efnum haft náið samstarf
við íþróttafulltrúa, æskulýðs-
fulltrúa og U.M.F.Í. Sömuleiðis
kamu fram um það ákveðnar
ábendingar, að Í.S.Í. beitti áhrif
um sínum til þess, að frœðsluyf-
irvöldin í landinu tækju félags-
málafræðslu inn í starfsemi skól
anna sem fastan kennsluþátt.
Reynir Karlsson, nýráðinn
æskulýðsfulltrúi ríkisins iýsti
ánængju sini yfir hversu lS.1.
legði mikla áherzlu á að auka
og bæta hið félagslega starf og
kvaðst vilja í starfi sínu stuðla
að samræmdu átaki þeirra ýmsu
félagasamtaka, er ynnu að úr-
lausn þessara verkefna.
ÞORSTEINN EINARSSON,
HEIflRAflUR
1 lok formannafundarins var
efnt til kvöldverðar til heiðurs
Þorsteini Einarssyni íþróttafull
trúa og konu hans. Þorsteinn
Einarsson er sextugur um þess-
ar mundir og á s.l. vori haifði
hann gegnt starfi íþrótta-
fulltrúa i 30 ár.
Við þetta tækifæri voru Þor-
steini og konu hans frú Ásdisi
Jesdóttur fluttar margar ham-
ingjuóskir, ýmist i óbundnu eða
bundnu máli og færðar gjafir.
Kom greinilega fram í máli
allra, hversu feikilega mikið og
Innláns-
deild
yfirtekin
SAMKOMULAG varð um það
fýrr á þessu ári að Samvinnu-
bankinn yfirtæki Innlánsdeild
Kaupfélags Stöðfirðinga, en Sam
vinnubankinn hefur allt frá ár-
inu 1964 starfrækt umboðsskrif-
stofu á Stöðvarfirði.
Hefur nú verið gengið frá
millifærslu Innlánsdeildarinnar
til bankans og námu innistæð-
ur í henni tæpum 8 millj. kr. við
yfirtökuna.
Forstöðumaður umboðsskrif-
stofu Samvinnubankans á Stöðv
arfirði er Friðgeir Þorsteinsson,
fyrrum oddviti, Árbæ.
(Fréttatilkynning frá Sam-
vinnubankanum).
— Innrás
Framhald af bls. 1
hafi leitt til þess að skriðdrekar
Indverja hafi gert það engu að
síður. Viðurkenndi talsmaður ind-
versku stjórnarinnar þetta í dag,
en vildi ebki segja nánar hve
langt inn í Pakistan skriðdrek-
arnir voru sendir. „Ég get ekki
gefið það upp í metrum eða fet-
um,“ sagði talsmaðurinn, „en
eitt get ég sagt ykkur. Þetta get-
ur gerzt á ný.“
Aðspurður hvað við væri átt
með þvi að indverskum hermönn
um væri nú heimilt að fara yfir
landamærin inn í Austur-Paki-
stan í varnarskyni, svaraði tals-
maður ríkisstjórnarinnar I dag
að foringjum í hernum hefði ver-
ið tilkynnt að þeim væri heim-
ilt að senda sveitir yfir landamær
in, ef ráðizt væri á varðstöðvar
Indverja. Aðspurður hve háttsett
ur viðkomamdi foringi þyrfti að
vera til að geta tekið ákvörðun
um árás yfir landamærin, svar-
aði talsmaðurinn: „Jafnvel ó-
breyttur hermaður — ef hann
er einn á ferð — getur tekið
þessa ákvörðun ef skotið er á
hann yfir landamærin."
Fátt hefur frétzt frá Pakistan
i dag um átökin, en þó var skýrt
frá þvi að foringjar úr hernum,
sem verið hafa í leyfum, hafi
verið kvaddir til herþjónustu.
Einnig hefur verið lýst yfir út-
göngubanni í Dacca, höfuðborg
Austur-Pakistan frá klukkan
17,30 í dag. í gær var lýst hern-
aðarástandi í landinu.
Viða að hafa borizt áskoranir
til ríkisstjórna Indlands og Pak-
istans um að reyna að leysa deii-
una á friðsamlegan hátt og koma
í veg fyrir styrjöld, meðal ann-
ars frá stjórnum Frakklands,
Bandarikjanna, Sovétrikjanna og
Malaysíu. Þá hafa verið kannað-
ir möguleikar á að flytja erlenda
borgara burt frá Austur-Paki-
stan, meðal annars hafa 35 starfs
menn Sameinuðu þjóðanna ver-
ið fluttir þaðan vegna ástands-
ins.
óeigingjarnt starf Þorsteimn
hefði innt af höndum, þar væri
aldrei spurt um tíma eða
greiðslu, heldur miðað við það
eitt að leiða góð málefni fram til
sigurs.
Hið frjálsa íþrótta- og
ungmennafélagsstarf ætti ótrauð
an og öruggan liðsmann þar sem
Þorsteinn Einarsson, íþróttafull
trúi væri annars vegar.
Að lokum þakkaði íþróttafull
trúi allan sóma og velvild,
er þeim hjónum voru sýnd.
Greindi hann frá ýmsum atvik-
um úr löngum og ánægjulegum
samskiptum sínum við iþrótta-
og ungmennaflélögin i landinu
og lét m.a. svo ummælt, „að það
stæði enginn einn, sem ætti for-
ystumenn þessara samtaka að
vinum og samstarfsmönnum."
— Laxastrul (
Frainhald af bls. 1
ári um 250 milljónum norsJcra
króna (um 3,2 milljarðar íi»L
króna), en innflutningur Dana.
um 150 milljónum króna (um 1,8
milljarðar islenzkra króna). t:
Því er haldið fram í Banda-i
ríkjunum að laxinn, sem Dainir
og Norðmenn veiða á hafinu út
af ströndum Grænlands, korni úr
ám i Bandaríkjunum og Kanada.
Fylgir það sögunni að þessar út-
hafsveiðar gangi mjög á lax-
stofininn, og að margar ár í
Norður-Amerúlku séu að verða
fiisiklausar.
Þinignetfndin bandariska hefur
undanfama þrjá daga hlustað á
frambuið vitna um áhrif lax-
veiðanna. Eina röddin, sem þar
heyrðist mæla gegn frumvarp-
inu, var fulltrúi dansk-bainda-
ríska verzl'unarráðsins í New
York, Irving Usen. Sagði hann
meðal annars að innflutnings-
bann kæmi harðast miður á
bandarískum neytendum, en
danskir fiskiimenn gætu selt afla
sinn á öðrum mörkuðum.
— Rhodesia
Framhald af bls. 1
in'gurrnn verður lagður fyrir
brezka þingið á morgun, fdmmtu-
dag. Þó þykir fullvíst, að i stað
viðurkenningar á sjálfstæði
landsins fallist stjóm Rhodesíu
á að veita blöikkumönnum aukin
stjórnmála- og afnahagsfríðlindi.
Sem stendur fara hvitir menn
með öll völd í Rhodesáu, þótt þeir
séu aðeins um 229 þúsund, en
blökkumenn 4,8 mittjónir.
Ekki er sennilegt að nýi samn-
ingurinn veiti blökkumönnum
strax aukin völd í landimu. Haft
er etftir fulltrúum, sem tóku þátt
í samnmgunum að reiknað sé
með að hvítir menn fari áfram
með völdin næsta aldarf jórðung.
Hins vegar heitir brezka stjórn-
in fjái’hagslegum stuðningi til
að búa blökkumenn undir meiri
áhrií, meðal annars með aukinni
menntun.
Sir Alec Douglas-Home heldur
heimleiðis frá Salisbury i dag, og
er væntanlegur til London
snemma i fyrramálið. Má búast
við að hann mæti harðri gagn-
rýni í brezka þinginu, þegar
málið verður tekið þar fyrir á
morgun.
Þótt brezka stjómin hafi fagn-
að samningnum, eru ekki allir
jafn ánægðir. Þannig segir
brezki þingmaðurinn Humphrey
Berkeley — sem sagði sig úr
Ihaldsflokknum vegna kynþátta-
mála og gekk i Verkamanna-
flokkinn —- að málstaður þess
illa hafi sigrað. Hann sagði, að
leitt væri til þess að vita að
framabraut Sir Alecs hafi hafizt
með smánarsamningunum í
Múnchen, og að henni ljúki með
smánarsamningunum í Salis-
bury. Sir Alec var einkarltari
Neville Chamberlains, forsætis-
ráðherra, árið 1938, þegar Cham-
berlain undirritaði samninginn
við Adolf Hitler í Múnchen og
afhenti þar með nasistum Sudet-
enlandið í Tékkóslóvakíu.
Þegar Sir Alec og fylgdarlið
hans gengu af fundinutm með
Ian Smith í morgun eftir að
hafa undirritað samninginn, voru
blaðamenn þar fyrir til að spyrj-
ast fynir um árangurinn. Að-
spurður hvað gerðist ef samning-
urinn yrði fettdur við þjóðarat-
kvæðagreiðsluna í Rhodesíu,
svaraði einn brezku fulltrúanna:
„Fyrir aUa muni, aðeins eitt í
einu. Við vorum að komast yfir
eina hindrunina." Einn blaða-
mannanna spurði Smifih hvermg
hann héldi að hvitir Rhodesíu-
búar tækju samningnum. „Þeir
verða ánægðdr," svaraði Smith.
En hvað þá með blökkumenn i
Rhodesdu? „Blökikuimen okkar
eru ánægðastir aUra blökku
manna," svaraði þá forsætisráð-
herrann. Aðspurður um eigið
álit á samningnum svaraði Smith
að hann væri harðánægður. Og
þegar loks forsætisráðherrann
var spurður um hvenær vænta
mætrti meirihlutastjórnar í land-
inu, svaraði Smith: „Við höfutn
nú þegar ábyrga meirihluta-
stjórn."