Morgunblaðið - 28.11.1971, Side 23

Morgunblaðið - 28.11.1971, Side 23
M3VÖK ,8£ .H'LID MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1971 23 Þorvaldur hóf þá stórf hjá Mjólkursamsölunni, vann hann þar allt tii 1960, að hann hóf störf hjá Áfegisverzlun rikisins (síðar Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins). Þar starfaði hann svo dð seigja til hinzta dags. Eins og áður er getið átti Þorvaldur oft og tíðum við van- heilsu að stríða. — Skuggi henn- ar hvildi á stundum yfir heim- ilinu og þá ekki sízt honum sjálf- um. Mér er kunnugt um, að sið- asta áratuginn gekk hann ekki heill til skógar — en mættí til vinnu sinnar engu að síður, hug- urinn bar hann hálfa leið. Hér í Reykjavik bjó frú Sól- veig manni sánum og bömum fagurt heimiii, fjölmargt frænd- fólk þeirra hjóna, svo og vinir og kunningjar mættu þar ein- stakri gestrisni — þá fyrst naut Þorvaldur sin er hann var gest- gjafi, seztur við orgelið og íbúð- in ómaði af söng gesta og heima- fólks. Kimnigáfu og frásagnar- hæfileika hafði Þorvaldur í rík- um mæli, en það sem mér er nú við leiðarlok minnisstæðast í fari hans er hjartahlýja sú, sem hann var gæddur. Á yfirborðinu gat hann verið kaldur á köflum, en imdir sló gott hjarta. Ég sá Þorvald síðast í fjöl- mennum vinahóp 23. október sl. Ekki datt mér þá í hug að það yrðu okkar síðustu samfundir, svo varð raun á. Fjölskylda mín og ég sendum ástvimun hans öllum innilegustu samúðarkveðjur á kveðjustund. Jón Kjartansson. Guðrún Benediktsdóttir Hugheilar þakkir til bama, tendabauna og bamabama fyrir ógleymanlega kvöld- stund 18. þ. m. og allra ann- arra, sem heiðmðu okkur með heimsóknum, góðum gjöfum og hlýjum óskum. Biðjum ykkur öllum Guðs blessunar. Lifið heil. Sigríður Jónsdóttir og Július Guðniundsson, Klapparstig 13. Á MORGUN, mánudaginn 29. nóvember, verður gerð frá Dóm- kirkjunni í Reykjavik útför Guðrúnar Benediktsdóttur, en hún andaðist á EUi- og hjúkrun- aTthjðimiiiIlinu Grsumd aðfarajnðtlt hiiris 23. þjm. á 97. aldunsiáni. Guðrún var fædd að Vestra- Iragerði á Stokkseyri 20. júlí 1875, dóttir hjónanna Benedikts Benediktssonar og konu hans, Elínar Sæmundsdóttur. Var Benedikt faðir Guðrúnar einn £if kunnustu formönnum á Stokks- eyri á sinni tíð, annálaður atorku maður, djarfur og harðduglegur sægarpur, en þó gætinn og at- hugull, enda virtur að verðleik- um af hásetum sínum sem og öðr um, er þekktu hann bézt. Bjuggu þau hjón jafnan vel, voru veitul, vel metin og vinmörg og famað- ist flest farsællega. Börn þeirra, sem tíl fullorðinsára komust, voru auk Guðrúnar, sem var elzt, Guðný, kona Jóns bónda og formanns Jónssonar, sem lengi bjó í Vestra-íragerði og Sæmimd- ur, sjómaður og verkamaður, sem búsettur var í Baldurshaga á Stokkseyri um aldarfjórðungs skeið, en síðar í Vestmannaeyj- um. Eru þau systkin nú öll lát- in. Guðrún óist upp hjá foreldrum sinum og vandist ung allri algengri vinnu, sem ungum stúlkum var skylt að inna af hendi á þeim timum, inn- an húss og utan. Hún var hraust og þrekmikil tíl sálar og líkama eins og hún átti kyn til og lá því ekki á liði sínu. Árið 1897 giftist hún Helga HaUdórssyni, sem ættaður var úr Ytrihrepp og Flóa. Bjuggu þau á Stokks- eyri í nokkur ár, og stundaði Helgi sjómennsku og búsíkap. Þeim hjónum varð fimm barna auðið. Eru þrjú þeirra látin, þau Þórunn, Benedikt og Halldóra. Á lifi eru tveir synir þeirra hjóna, Maríuis, símstjóri á Aikur- eyri, og Halldór, fyrrum fulltrúi ritsLmastjórans í Reykjavík. Guðrún og Helgi fluttust til Reykjavíkur árið 1919. Starfaði Helgi þar lengst af að smiðum, Allir húsbyggjendur nota milliveggjaplöturnar frá okkur. JIS JÓN LOFTSSON HF Hringbraut 121 @ 10-600 Tilkynning frá Iðnlánasjóði Umsóknum um lán úr Iðnlánasjóði verður veitt móttaka frá 1. desember 1971 til 10. janúar 1972, í Iðnaðarbanka íslands h.f. og útibúum hans á Akureyri og í Hafnarfirði. Lánsumsóknir skulu vera á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á sömu stöðum. Þess skal gætt, að í umsókn komi fram allar umbeðnar upplýsingar og að önnur þau gögn, sem óskað er eftir, fylgi umsókninni. Samþykktar lánabeiðnir þarf eigi að endur- nýja og eigi heldur lánabeiðnir, sem liggja fyrir óafgreiddar. Reykjavík, 25. nóvember 1971. STJÓRN IÐNLÁNASJÓÐS. Aðstoðorstúlka óskost á TANNLÆKNASTOFU í Miðbænum. Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkf. „Aðstoðarstúlka — 727", þar til hanrt andaðist 1928. Bjó Guðrún eftir það með bömum sinum og tveimur barnabörnum, sem ólust upp þar á heimilinu, unz hún fluttist á Elli- og hjúkr- unarheimilið Grund, þar sem hún dvaldist þrjú síðustu ævi- árin. Guðrún Benediktsdóttir var vel gerð kona og vönduð til orðs og æðis. Þrek hennar og sálar- styrkur var mikill, enda þurftí hún oft á þeim góðu eiginleik- um að halda, Hún fór ekki var- hluta af erfiðleikum lífsins. Sorgir og andstreymi sóttu hana heim. En boðar harma og mót- lætis brotnuðu á hennar breiðu herðum eins og holskeflurnar á skerjunum fram undan bernsku- byggð hennar. Hún stækkaði við hverja raun og lét ekki erfið- leikana buga sig. En hún naut lika hinna björtu hliða tilverunn- ar. Hún átti miklu barnaláni að fagna og fjölskyldan var ein- staklega samhent og einhuga, Langri og viðburðaríkri ævi isstenzknair aliþýðukonu er lokið. Lifsfley Guðrúnar Benedikts- dóttur hefur leyst landfestar og lagt á eilifðarhafið, sem okkur öllum er fyrirbúið að halda á fyrr eða síðar. Skammdegi vetr- arins hylur nú bemskuströnd hennar, þar sem hún forðum óx úr grasi og átti sínar vonir og þrár á vormorgni lifsins. Útsær- inn mikli og voldugi, sem löng- um var svo ríkur þáttur í lífi forfeðra hennar, svarrar enn sem fyrr þunga sigursöngva sína við klettótta ströndina fram undan æskuheimili hennar. Það á vel við, þegar Guðrún er kvödd hinztu kveðju, að sami særinn, sem forðum vakti hana unga á hverjum morgni, syngi hana nú einnig í ró að leiðarlokum. Þorvaldur Sæmundsson. i ^Sólai M skam pfpii mdeg inu # KANARIEYJAR v.vr ■ ^ Kynningarhpöld í Skiphól sunnudaginn 28. nóvember kl. 21.00. Með myndum, hljómlist og frásögmim, kynnum við eyjar hins eilífa vors í Suður- Atlantshafi. Hljómsveitin ÁSAR leikur. — Dans til kl. 1. FLUGFÉLAG ÍSLANDS . Vinnuveitendasamband íslands heldur almennan sambandsfund að Garðastræti 41 nk. mánudag, þann 29. þessa mánaðar, kluklcan 16.00. FUNDAREFNI: Verkbannsaðgerðir samtakanna í yfirstandandi kjaradeilu. Skorað er á félagsmenn að mæta vel og stundvíslega. Vinnuveitendasamband íslands. Stólstigor EINFALDIR TVÖFALDIR ÞREFALDIR Fyrirliggjandi Stærðir: 2,75—9,75 m. verkfœri & járnvörur h.f. Smiðjuveg 7, Kópavogi Sími: 43101.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.