Morgunblaðið - 04.12.1971, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. DESEMÐER 1971
=Í1
11
■Uz
Oxford í nóvember.
1 síðasta saumaklúbbi minum, áður
en ég hélt utan I haust, var komið inn
á umræðuefni, sem áreiðanlega er tals-
vert rætt í öðrum saumaklúbbum og
kvennasamkomum, en það er, hvenær
byrja tíðir hjá stúlkum? Kennarar í
hópnum, sem fylgjast með þessu í sín-
um skólum, sögðu, að aldurinn væri
stöðugt að færast niður og virtist nokk-
uð algengt að stúlkur byrjuðu 10 tdl 11
ára og allt niður í 9 ára. Kom þetta
hinum á óvart, og við spurðum, hvar
þetta ætlaði að enda — en gátum auð-
vitað engin svör gefið. Við minntumst
þess frá skólaárunum, að þær, sem
byrjuðu fyrst, voru oft þær stærstu og
feitustu — þær „þroskuðust“ fyrst,
fengu brjóst o.s.frv, En var það nokkur
skýring?
Nokkrum dögum eftír að ég kom hing-
að rakst ég á athyglisvert greinarkom
í visindadálki „Times". Þar er sagt frá
rannsóknum, sem tveir vísindamenn við
Harvard-háskóla hafa tmnið að um all-
langt skeið, til að reyna að komast að
því hvað ræður því, hvenær tíðir byrja.
Nú kann að vera að frá þessu hafi ver-
ið sagt í Islenzkum blöðum, en í þvi falli
að svo sé ekki, ætla ég að rekja það
helzta hér:
Það er líffræðileg staðreynd að stúlk-
ur 1 Vestur-Evrópu og Bandarikjunum
verða nú kynþroska fyrr en áður. Meðal-
aldurinn hefur færzt niður um þrjá til
fjóra mánuði á hverjum táu árum það
sem af er þessari öld, og hafa komið
fram margar kenningar um, hvað þessu
valdi — allt frá betri fæðu til áhrifa
rafmagnsljóss á aukna líkamsþjálfun
yfir vetrarmánuðina.
Vísindamennimir tveir, dr. Frisch og
dr. Revelle, hafa komið með þá kenningu
að tíðir byrji, þegar stúikan hefur náð
um 48 kilóa þyngd (með eðlilegu frá-
viki). Þeir hafa árlega skráð þyngd og
hæð á 181 stúlku, frá fæðingu til 18 ára
aldurs. Stúlkumar urðu kynþroska allt
frá 10 ára aldri upp í 16 ára, en meðal
aldurinn var 12,9 ár, En þrátt fyrir
þennan aldursmun, var þyngdarmunur-
inn lítill sem enginn. Hafa dr. Frisch og
dr. Revelle í þessu sambandi bent á, að
tilraunir á dýrum hafa sýnt, að þyngd
hefur meira að segja en árafjöldi að
þvi er varðar kynþroska, og þeir koma
með þá tilgátu, að þegar stúUcur nái
ákveðinni þyngd, verði efnabreytingar í
líkamanum, sem valdi nægilegri aukn-
ingu á framleiðslu ákveðinna hormóna
til að blæðingar geti hafizt.
Evrópskar þyngdarskýrslur styðja
framangreinda tilgátu, því frá þvl fyrir
stríð hefur meðalþyngd stúlkna aukizt
þannig, að 11 ára stúlka nú vegur svip-
að og 12 ára stúlka gerði fyrir stríð.
Samkvæmt þvi, sem að framan er sagt,
hefur aldurinn færzt niður um 3—4
mánuði á hverjum áratug, svo á þeim
þremur áratugum, sem tiðnir eru frá
stríðsbyrjun, ætti aldurinn að hafa færzt
niður um 9—12 mánuði.
Úr því farið er að tala um þyngd, þá
er skýrt frá því í nýútkomnu hefti
læknaritsins „British Medical Journal",
að rannsóknir sýni, að börnum, sem nær-
ast á móðurmjólk, þótt ekki sé nema
fyrst eftir fæðingu, sé siður hætt við
offitu en bömum, sem fá kúamjólk og
„gervimat“. Sú fita, er böm, sem fái
kúamjólk og aðra fæðu, safni utan á
sig, haldist oft fram eftir aldri og geti
orðið erfið viðureignar. Þá sé börnum,
sem ekki fái móðurmjólk, hættara við
sjúkdómum síðar meir, vegna áhrifa
hinna framandi efna í kúamjólk og ann-
arri fæðu, sem óeðlileg sé imgbömum.
— Einnig er þess getið í þessu sam-
bandi, að kúamjólk innihaldi þrisvar
sinnum meira salt en móðurmjólkin og
illa verfkuð þurrmjólk geti innihaldið
enn meira salt og valdi þetta saltmagn
auknu álagi á nýru ungbamsins.
★
Snúum okkur aftur að kynþroskaaldr
inum og því, sem í kjölfar hans kemur.
Jafnframt þvi að kynþroskaaldur hef-
ur færzt niður, hefur meðalaldur mæðra
lækkað og mæðrum um og rétt ofan við
fermingu fjölgar sföðugt. Hvað á að
gera til að spoma við þessari þróun,
og hvað á að gera til að koma í veg
fyrir offjölgun manhkyns? Þetta eru
tvær af hinum stóru spumingum nú-
tímans. Við aukna kynlífsfræðslu, bætt-
ar getnaðarvamir og aukna notkun
þeirra, eru bundnar vonir og þvi er
mikíu fé og tíma eytt í að reyna að
fínna öruggar vamir og mikið um máiin
skrifað. Maður hefur á tilfinningunni
að getnaðarvamir séu nýlegt fyrirbæri
og spyr, hvemig fólk hafi farið að áð-
ur. En nú ætti ekki að vera þörf á að
spyrja lengur, þvt saga getnaðarvarn-
anna hefur verið rituð og gefin út mynd-
skreytt og kom á markaðinn í Bret-
landi 1. nóvember sL
1 þessari bók, sem skrifuð er af hug-
rakkri konu að nafni Shirley Green,
kemur í ljós, að saga getnaðarvarnanna
er Ifldega jafn gömul sögu mannkyns,
og skráðar heimildir eru til um þær aft-
ur fyrir tímatal okkar. 1 bókinni er að
finna furðulegar og um leið spaugilegar
lýsingar á þvi, hvað fólk hefur tekið
til bragðs, Hefur þvi til dæmis víða ver-
ið trúað, að með þvi að draga djúpt
andann eftir samfarir, hósta, hnerra eða
hlaupa imkvæmlega níu skref aftur á
bak gæti konan komið í veg fyrir frjóvg-
un. Ekki ætia ég að rekja þessa sögu
hér frekar, því ég hef ekki þrek til þess
að standa í ritdeilum við sjálfskipaða
velsæmisverði íslenzku þjóðarinnar. Þó
er ekM hægt að sleppa því, sem sagt er
um viljastyrk íslenzku konunnar. Vitn-
ar bókarhöfundur í Bandaríkjamann,
sem skrtfaði um málin á 19. öldinni og
segir hann frá þvi, að á Islandi „haf!
sumar konur þann sveigjanleika og
þann styrk í vöðvakerfinu, að þær geti
með viljastyrk komið í veg fyrir frjóvg-
wn“, — Það væri betur, ef enn væri
hægt að segja þetta íslenzku kvenþjóð
ireni til hróss.
Þórdis Árnadóttir.
Þorbjörg, Eyborg, Hringur, Vilhjálmur, Hildur. (Ljósm.: Sv. Þ.)
Smámunasýning SUM
GALERIE SÚM opnar smáhluta
(miniature) sýningu laugardag-
inn 4. desember M. 4 e.h.
Þátttakenduir eru Atli Heimir
Sveinsson, Arnar Herbertsson,
Guðbergur Bergsson, Hreinn
Friðfinnsson, Jón Gunnar Áma-
son, Kristján Guðmundsson,
Magnús Tómasson, Sigurður Guð
mundsson, Tryggvi Ólafsson, Vil
hjálmur Bergsson, Þórður Ben.
Sveinsson. Eru alli meðlimir í
SÚM. Sem gestir sýna: Eyborg
Guðmundsdóttiir, Gylifi Gíslason,
Hildur Hákonardóttir, Hrmgur
Jóhannesson, Magnús Pálsson og
Þobjörg Höskuldsdóttir.
Er þetta fyrsta samsýning
þessa eðlis, að sögn SÚM manna
og er enginn hlutur á henni yfir
30 fersentimetrar að staerð. Er
þetta sölusýning, sem þeir félag-
ar ætla aimenningi til að nota sér
til jólainnkaupa, og er verði stillt
í hóf að þeirra sögn, eða frá 3000
til 6000 krónur.
Verður sýningin opin til jóla,
frá kl. 16—22 daglega.
Basar Kvenfélags
Laugarnessóknar
LAUGARNESKIRKJAN er
fyrsta kirkjan, sem byggð er hér
í Reykjavík innan þjóðkirkju-
safnaðar eftir skiptingu Dóm-
kirkjusóknar árið 1940.
Það eru nú 30 ár síðan að bygg-
ing hennar hófst, en hún hafði
verið teiknuð af þáverandi
húsameistara ríkisins, Guðjóni
heitnium Samúelssyni, áður en
stríðið hófst, og „stríðsgróðinn"
svonefndi fór að segja hér til sín.
Því var allt nokkuð skorið við
nögl, nema kirkjusalurinn sjálf-
ur, vegna þáveraudi efnahags-
ástands í landinu. Þessi vand-
búnaður háir okkuir nú, aðallega
með tilliti til féiagsstarfsemi
safnaðarins. Þar höfum við ekki
öðru að tjalda en litlum kjallaim-
sal, sem kom eiginlega upp í
hendur okkar af tilviljun, vegna
þess hvernig grunnurinn reynd-
ist, þegar hann var grafinn. Og
á þeim dögum var ekM enn kom-
ið til greina svo fjölþætt félaga-
starf innan borgarsafnaðanna,
sem nú er orðið.
Síðan hafa hinar nýju kirkjur
risið og safnaðarheimili með-
fylgjandi, er mjög hafa eflt þar
alla safnaðarstarfsemi. En kven-
félagið okkar, sem er orðið 30
ára og bræðrafélagið og æsku-
lýðsfélagið hafa aðeins haft
þennan fyrrnefnda litla sal, sem
löngu er orðinn ófullnægjandi,
Því er það nú takmark og
áhugamál allra safnaðarfélag-
anna að koma upp hæfilega stóru
safnaðarheimili á kirkjulóðinni
sjálfri í stíl við kirkjuna svo að
hvort tveggja fari vel saiman. Og
basar Kvenfélagsins, sem hald-
inn verður í Laugamesskólanum
kl. 3 á sunnudaginn er einn áfang
inn að þessu marki, því aliluir
ágóðinn rennur óskiptur til hins
væntanlega safnaðarheimilis. Og
hvet ég nú bæði sóknarbúa og
alla velunnara saiflnaðararins að
styðja konumar í aðdáunarverðu
sjálfboðastarfi þeirra,
Garðar Svavarsson.
Basar Kvenfélags
Grensássóknar
MÉR finnst einhvem veginn
komið svo, að aðventan og basar-
ar heyri mæta vel saman. Þegar
aðventan nálgast og jólaundir-
búningurinn fer í hönd, skýtur
ojj snyrtistofa
Ástu BaMvinsdóttor Kópavogi
HRAUNTUNGU 85 — SiMI 40609.
Tyrknesk böð
IWIegrunaimudd
Partanudd
Húðhreinsun
Handsnyrtiinig
Fótsnyrting
Augnabirúnalítanir
Kvöldsnyrting
Viijum sérstakíega vekja athygií á 10
tima megrunartímum með mæling-
um.
Opið til klukkan 10 á kvðídin.
Bílastæði — Símí 40609.
Skýrsluvélavinna
Stórt fyrirtæki óskar að ráða „operator".
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Morgunblaðinu fyrir 9. desember,
merkt: .Trúnaðarmál — 611".
Kjötverzlun óskar
eftir að ráða vanan algreiðslumann og af-
greiðslustúlku strax.
Tilboð sendist auglýsingadeild Morgunblaðs-
ins, merkt: „Strax — 510“.
upp kollimrm þetta sérstæða fyr-
irbæri. Konur, sem setið hafa
vikum og mánuðum saman við
hannyrðir og annan umdirbúning,
sýna nú árangur vinnu sinnar,
ekM til þess að auðga sjálfar
sig, heldur er ágóðanum jafnaít
varið til einhverra þeirra mann-
úðar- og liknarmála, sem þær
láta sér annt um. Á þenman hátt
hefur á liðnum árum verið aflað
ótrúlega miMls fjár, sem varið
hefur verið til hagsbóta fyrir
land og lýð.
Sumum kann stundum að
finnast, að verið sé að bera í
bakkaf ullan læMnn að mæla með
eimum basarnum enn. Ég er sámt
alveg óhræddur við það að þessu
simni. Ég þekki mæta vel þamn
áhuga og þá fórnfýsi, sem marg-
ar konur hafa lagt fram við und-
irbúninginn, og þær eiga það
meira en skilið að við sýmum
þeim í verki, að við metum fram-
lag þeirra og fómfýsi.
Tilefni þesisara lína er að vekja
Franih. & bls. 13