Morgunblaðið - 12.01.1972, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. 'JANÚAR 1972
21
Clinu En-lai.
— Spádómar
Framh. af bls. 14
mikið gefið á sviði ritlistar og
orðsins listar yfirleitt, og getur
vel snúið sér að henni á nýjan
leik. Hann mun enn skrifa marg
ar góðar bækur um heimspeki
fremur en barnauppeldi.
XXX
George Wallace, fylkisstjóri,
veldur einhverjum óróa, en það
á ekki fyrir honum að liggja að
verða forseti Bandaríkjanna.
XXX
Páll páfi mun berjast fyrir
heimsfriði, og verður hann
áhriíamikill. Því miður munu ó-
vinir hans ráðast grimmdarlega
á hann fyrir verk hans. Páfinn
fer óvænt i ferðalög 1972, og
verður að gæta hans vel. Hann
mun aldrei verða hlynntur fóst-
ureyðingum, eða leggja blessun
siína ytfir lög, sem heimila lraþ-
ólskum prestum að ganga i hjóna
band.
XXX
Fidel Castro fer margar ferð-
ir frá Kúbu 1972 og 1973 til að
auka veg sinn og virðingu á al-
þjóðlegum vettvangi. Þetta kem
ur til af þeim sökum, eins og ég
hef spáð undanfarin ár, að nyt-
semi hans fyrir kúbanska komm
únista er hjá liðin, og bróðir
hans, Raoul Castro, er maðurinn,
sem Rússar vinna reyndar með.
1 svipinn er Raoul mjög valda-
mikill, og verður það, þar til
einnig hann hefur verið gjör-
nýttur af þeim.
XXX
Lyndon B. Johnson, fyrrver-
andi Bandarikjaforseti, hefur
sterk stjórnmálaáhrif á kom-
andi ári, einkum þó í júli. Bók,
sem kemur út seint í júlí, ásakar
hann að ósekju fyrir margt, sem
hann hefur þurft að vinna sem
eftirmaður fyrirrennara sinna.
Á einum stað í bókinni er birt
atriði, sem kemur háttsettum
dómara í vandræði.
XXX
Hugh Hefner blaðaútgefandi
er umvafinn dýrðarljóma. Hann
er sáiarlega næmur maður, og
mjög óvenjulega þolinmóður við
aðra, og er svo mikili hæfileika-
maður, að óvenjulegt þykir.
Hann hefur mikinn áhuga á
stjórnmálum og 1973 byrj-
ar hann að starfa að stjórnmál-
um i Ohicago. Hann verður einn
ig eitthvað tengdur rikisstjóm
Bandaríkjanna á árinu 1973, þó
ekki endilega kosinn í neina
virðingarstöðu, en hann mun
hljóta merka viðurkenningu
1973. Yfir honum vofir í svipinn
málaþras, en hann vinnur málið.
Alveg á næstunni fer hann í
ferðalag, einnig til útlanda.
Mér sýnist, að tímaritin hans
hafi á síðustu tveimur árum hrap
að eitthvað í flokki, og ekki náð
því marki, sem hann hafði sett
þeim, en hann bætir úr þessu,
og nær þeim aftur á það stig,
sem þeitn er samboðið.
Hefner skrifar bók um heim-
spekileg efni, og notfærir sér
þar ágæta hæfileika sína til vis
indalegra íhugana, en þessari
bók lýkur hann ekki fyrr en
1978. En eftirköst einhvers efn-
is, sem birzt hefur í blöðum hans
1977—78 þjaka hann talsvert á
þessu tímabili.
Hann auðgast mikið, og fast-
eignir hans verða ævintýralegar.
Hann giftist, og hann verður
heppinn í ástum eða félagsskap.
Aðeins ein aðvörun: Hann ætti
að gæta sjónarinnar vel.
HNEYKSLI
Á næstu sex mánuðum sé ég
fyrir mér hneyksli i ferða- og
innflytjendamálum. Fórnarlömb-
in verða m.a. framkvæmdastjóri
stórs háskóla, þrír demókratar,
sem vilja komast í framboð i for
setakosningunum. Ráðamenn
deilda heilbrigðis-, menntamála-
og velferðarráðuneytisins og
tryggingarstofnunarinnar, fólk
úr vegabréfadeildinni, verkalýðs
leiðtogar, opinberir starfsmenn
og þar með taldir þingmenn.
Allir verða mjög flæktir i mál
ið. Þegar flett verður ofan af
þessu hneyksli, verður það svo
mikið tilfinningamál og hefur
svo víðtæk áhrif, að ekki verð-
ur unnt að upplýsa öll smáat-
riði. Þetta verður ekki hættu-
legt fyrir þjóðina eða þá, sem
saklausir eru.
Öldungadeildarþingmaður frá
Suðurríkjunum og þingmaður
fyrir Miðvesturrikin eiga frum-
kvæðið að þvi að stemma stigu
fyrir innflæði ólöglegra borgara
og andstæðinga. Sömuleiðis verð
ur flett ofan af tilraunum til að
gera þennan innflutning sakleys
islegan, alit að því löglegan, og
kemur þetta i veg fyrir stórfelld
lögbrot i framtíðinni.
ENDURHÆFING
FYRRVERANDI HERMANNA
Nýlega skrifaði Bob Consid-
ine blaðamaður um Victor Berg-
eron (Trader Vic) og þá bar-
áttuherferð, sem hann er að
hrinda í framkvæmd til að end-
urbæta hersjúkrahúsin og end-
urhæfa fyrrverandi hermenn, og
hvað hann er dreginn á asnaeyr-
unum í Hvíta húsinu, einkum af
einum ráðgjafanna þar.
Ég sé, að Trader Vic fær
ekkert svar frá Haldemann, held
ur frá sjálfum forsetanum.
Innan skamms verður gagn-
gerð breyting á byggingaráætl-
unum spitalanna fyrir fyrrver-
andi hermenn, og eins á þeirri
nákvæmu umönnun, sem þessir
menn þurfa á að halda, en fá
ek’ '.
Nixon forseti hleypir skrið-
unni af stað. Frumvarpið verður
borið upp af öldungadeildarþing
manni, og samþykkt af Banda-
rikjaþingi. Forsetinn hefur lengi
haft miklar áhyggjur af ólestri
þeim, sem þessi málefni hafa ver
ið í, og því tómiæti, sem málefn-
um fyrrverandi hermanna hefur
verið sýnt. Fyrrverandi hermenn
hafa ekki átt betra ár en 1972,
og er þetta aðeins upphafið.
L/EKNINGAR
Á KRABBAMEINI
Næstu stórfréttir í lækning-
um verða varðandi baráttuna
við krabbamein. Vísindamenn
finna að lokum, hvernig frumu-
kjarninn í mannslíkamanum, upp
runi nlls lífs titrar til að lengja
lífið og þegar hann titrar ekki
rétt, í samræmi við aðrar likams
frumur, skapast sú veiki, sem
krabbameinið er. En þegar búið
er að hemja hann og ná honum
aftur í takt við hinar frumurn-
ar á heilbrigðan hátt, verður
lækning við krabbameini örugg.
Þessi uppgötvun- er alveg á
næstu grösum.
SUDL'R-AMERÍKA
Fyrir mörgum árum spáði ég
því, að Chiie fengi kommúnista-
forseta. Chile verður undiroik-
að af kommúnisma enn um hríð,
og bandarískar eignir verða
gerðar upptækar þar i landi, á
sama hátt og varð á Kúbu.
Þetta sama ástand breiðist ört út
til Argentínu.
•IARDSK.IÁLFTAR
Þeir verða fleiri, bæði minni
og meiriháttar, en ég óska ekki
eftir að láta uppi að sinni stað
eða stund, vegna þess að það
myndi skapa óþarfa kvíða.
TÍMARIT
Vegna hagsveiflna 1972, verð-
ur útgáfu nokkurra timarita
hætt. Life heldur áfram göngu
sinni, en sjónvarpið ógnar og
ögrar þessarri tegund tímarita,
og ágerist það i framtíðinni.
SOVÉZK VOPN
Ef Nixon fer til Rússlands,
verður hann að vera reiðubúinn
að ræða eftirfarandi mál: 1) tii-
raunir með Cosmos gervihnetti,
sem nota á til aðgerða gegn
gervihnöttum. Gervihnetti vopn
aða gereyðingarvopnum. 2)Eld-
flaugar, sem draga á milli heims
álfa og nú er verið að koma fyr
ir í 10 neðanjarðarbyrgjum og
3) tilraunir með segulgervihnetti
til aðgerða gegn pólaris kafbát-
um Bandaríkjanna.
Við lesum mikið um rannsókn
ir og aðgerðir Sovétmanna í
heimshöfunum, i lofti og í geimn
um. Lið þeirra á landi er
miklu betur vopnað en okk-
ar. Þessir yfirburðir verða upp-
lýstir af áhyggjufullum þing-
mönnum okkar á árinu 1972, og
verður þá ekki dregið úr því,
hvar við erum á vegi staddir í
samanburði við þá.
KÓREA
Er stríðið i Indókína dvínar,
byrja Rússar aftur að kynda
undir í Norður-Kóreu. Þeir eru
ákveðnir í því að hafa ofan af
fyrir okkur i hernaði í Austur-
löndum fjær fram til 1975, en
þá álita þeir tíma til kominn að
setja Bandaríkjunum úrslita-
kosti.
HÆSTIRÉTTLR
Ég hef áður spáð því, að Nix-
on forseti skipaði fimm hæsta-
réttardómara. Hann er þegar
búinn að skipa fjóra. Hann skip
ar einn til viðbótar á árinu 1972.
ÆSIÍAN
Kommúnur, hippar, pólitiskir
og róttækir hernaðarsinnar láta
minna á sér bera, og reyndar
fækkar þeim. Mótmælagöngur
verða færri. Meiri skilningur
vaknar, vegna þess að fólkið
snýst til trúar. Þetta mjókkar
aftur bilið milli kynslóðanna, ep
þetta gerist ekki á einum degi.
Unga fólkið snýr sér að vísind
um og menningu i stað þeirrar
niðuriægingar, sem það hefur
verið i.
GLÆPL R OG REFSING
Ég sé ekki að neitt dragi úr
glæpsamlegu athæfi eða ofbeidi
á næstunni. Enn stöndum við
augliti til auglitis við kynþátta-
óeirðir. Það verður að minnka
eiturlyfjaneyzlu til að koma í
veg fyrir glæpi, en ég get ekki
séð votta fyrir þessu fyrr en
1975. Ég sé heldur engin upp-
þot í fangelsum 1972. Einhverj-
ir örðugleikar verða i nokkrum
fangelsum, en ekkert líkt Att-
ica.
PENINGAR
Verðbólgan verður ekki alger
lega stöðvuð 1972. Það tekur
sinn tíma fyrir Nixon forseta að
sigrast á óheilbrigðri framvindu
fjármála á undanförnum árum.
Gengisfeliing Bandarikjadoll-
ars breytir ekki verðgildinu í
kauphöllinni. Þegar gengisfell-
ingin er fullkomnuð, stigur gengi
verðbréfa í næstu þrjár vikur,
en kemst síðan aftur í sitt rétta
horf.
KÍNA
Chou En-lai, reynir að fá að-
stoð Bandaríkjanna hjá Nixon
forseta til að iðnvæða land sitt
tii að standast nútímakröfur.
Þetta er gert i þeim tilgangi að
þeir megi standast samkeppni
Sovétríkjanna og Bandaríkj
anna sem heimsvelda.
Rússar líta iðnvæðingu Kína
óhýrum augum, þvi að það seink
ar þeim í að gereyða Bandarikj
unum um a.m.k. eina öld.
í stað vina okkar frá Formósu
í S.Þ., sé ég mann, sem mér finnst
alltaf vera nátengdur bakterí-
um. 1 hvert skipti, sem ég ein-
beiti mér að fyrirliða kínversku
sendinefndarinnar, sé ég l’yrir
mér bakteríustríð, fals, niður-
lægingu, pyndingar og hungurs-
neyð, sem beint er gegn hjálp-
arvana fólki.
Þetta er sami maðurinn, sem
ég sé fyrir mér sem hugsuðirm
að Pavhov-meðferðin'ni á banda-
riskum föngum i Kóreustriðinu.
Hann mun nú gera tilraunir
til þess að niðurlægja þjóðina
alla frá „musteri" eða bækistöðv
um hér á okkar ei'gin fósturjörð.
Ef geislanir mínar og útreikn
ingar eru rétt, sé ég að nálægt
70 kínverskir herforingjar hafa
verið deyddir frá febrúar fram
i október árið 1971. Ég finn farg
kínverskra herdeilda, dauða
tveggja kínverskra varnarmála-
manna, og morð kínversks fram
ámanns i hermálum.
Lin Piao er farinn. Hann hvarf
í eldslysi. Mao Tse tung er far-
inn frá völdum, og skiptir ekki
lengur máli í Rauða Kína. Chou
En-lai, sem er hlynntur Sovét-
ríkjunum er valdið, sem máþ
skiptir i Kína í dag.
AMERÍKA
Það er undirstöðu- og höfúð-
atriði fyrir Bandarikjamenn að
standa saman. Það eru til hópaf
manna, sem neita að viðuríkenna,
að Nixon forseti hafi aukið sam
stöðu okkar. Ég sé fyrir mér
fleiri og fleiri, sem berja sér í
vaxandi mæli og hafa minnk-
andi áhuga fyrir einingu og
starfi í þágu mannkynsins.
Hagur Bandarikjanna minnk-
ar vegna þess, að fólkið stend-
ur ekki saman. Þetta bindur
enda á tveggja flokka kerfið
okkar i stjórnmálum innan fárra
ára. Þar sem ég sé engar sýnir
tortimist fól'kið!
(Jeane Dixon verður miklu
nákvæmari í spádómunum á
miðju ári varðandi forsetakosn-
ingarnar 7. nóvember).
Skriistofustúlko óskust
Stúlka þjálfuð í enskum bréfaskriftum getur fengið atvinnu
sem fyrst.
Þaer, sem hafa áhuga, sendi tilboð á afgreíðslu Morgunblaðs-
ins, merkt: „Vélritun — 2570".
íbúð óskast
2ja til 3ja herbergja íbúð óskast á leigu fyrir starfsmann fyrir-
tækisins. Upplýsingar i skrifstofunni i síma 25870.
KRISTJÁN SIGGEIRSS'ÍN HF„ LAUGAVEGI 13.
Gróðrarstöð til sölu
Miðsvæðis í Borgarfirði er vel rekin gróðrarstöð til sölu.
Stærð. 5 ha ræktað erfðafestuland. 4 sekúndulítrar af heitu
vatni ásamt 1125 fm gróðurhúsum í góðu ástandi og vinnu-
skúr. íbúðarhús um 100 fm, hæð og ris.
Umrædd gróðrarstöð yrði fyrst tilbúin til afhendingar í lok nóv-
ember á þessu ári.
Tfiboð, merkt: ,,5567" leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 19.
janúar nk. Áskilinn er réttur til þess að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Fósturheimili
Óskum að ráða nokkur fósturheimili fyrir öryrkja um lerigri eða
skemmri tíma.
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar,
sími 25500
Hluthafi óskast
Hluthafi óskast í fyrirtæki, sem verzlar með aukahluti og vara-
hluti til bifreiða. Þarf að geta lagt fram um 500 þús. kr. Hálfs-
dagsvinna æskileg, en þó ekki skilyrði. Fyrirtækið hefur mjög
góð umboð og góða möguleika.
Þeir, er hafa áhuga, leggi inn tiiboð á afgreiðslu Morgunblaðs-
ins fyrir föstudagskvöld, merkt: „Áhugi — 653".
Hjartanlega þökkum við börnum okkar, tengdabörnum. barna-
börnum, systkinum og öllum öðrum vinum og vandamönnum,
heimsóknir, stórgjafir, heillaskeyti og alla aðra vinsemd í tilefni
45 ára hjúskaparafmælis og 70 ára afmæiis okkar þ. 14. maí
og 22. nóvember. — Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur heilla-
ríkt nýtt ár.
Rebekka Pálsdóttir,
Jóhannes Einarsson,
Bæjum.