Morgunblaðið - 20.02.1972, Page 3
MOKGUNBI,A»lÐ, SUN'NUDAGUR 20. FERRÚAR 1972 3
Jóhann Hafstein á fundi Norðurlandaráðs
nm landhelgismálið:
LÍFSHAGSMUNIR
OKKAR ERU í VEÐI
Óréttlátt að tengja þessi
áform samkomulagi við EBE
KÉR FER á eftir ræffa Jó-
hamns Hafstein í almennu
stjóriimálaumraeffumim á
fundi Norffurlandaráðs i
Melsingfors:
Heroa forseti.
Leyfið mér í upphafi máls
míns að þakka fyrir það, sem
ég tel veglegan vott norrænn
ar samvinnu.
Mér veittist sá heiður á
liðnu vori, þann 21. apríl 1971,
&ö standa á ströndinni m.eð
löndum mínum, yngri og
eldri, að veita viðtöku tveim
bókum, sem komu af hafi í
fríðu föruneyti frá Dam-
mörku. Eimhveir kynni að
seigja, að þetta sé mál okkar
Dana og íslendinga einna.
Þar með væri samnorrænn
andi horfinn úr þessairi at-
höfn, en það teldi ég ramgt.
Damir íærðu okkur íslemd-
itngum Konungsbók Eddu-
kvæða og Flateyjarbók og siíð
ar munu fylgja íslenzk hand-
rit, sem geymd hiaía verið í
Danmörku. Á þessari stundu
var gróðunsettur nýr andi sam
skipta þjóða, eigi aðeins nor-
rænma samdkipta, heldur
þeirra samskipta aimemnt,
sem öðrum mættu vera til
fyrirmyndar.
Seint er bróðurlegt veg-
lymdi ofþakkað, og því hefi
ég leyft mér að minnast þessa
nú á þessum vettvamgi.
-- XXX ----
Ég vik nú að öðru, sem hiýt
ur að vera okkur öllum efst í
hug, en er minni hlýju um-
vafið. Hvert hlutverk biður
okkar á næstunmi i efnahags-
legum samokiptum okkar i
miili og við aðrar Bvrópuþjóð
ir?
Ég leyfi mér að mótmæla
geðlausum hugmyndum
manna, sem halda því fram,
að ef Damir og Norðmenn
kjósi að gerast meðiimir Efna
hagsbandalags Evrópu, þá
þýði það sundrun norrænnar
samvinnu.
Sjáifir viljum við ísiendimg
ar ná samkomulagi við Efna-
hagsbandalagið í einu formi
eða öðiru, emda þótt við höfum
ek'ki farið dult með, að með
öiiu sé útilokað, að við getum
óskað eftir fullri aðild að þvi.
Saima máli gegnir að sínu
leyti um Svía og Finna.
Að minum dómi eru tilraun
ir til vaxandi Evrópusam-
starfs toall nýs tima. Mér er
ljóst að bezt færi á því, að
slíkt byggðist á hægfama þró
uin. Með því eru meiri lákur
á því, að komizt verði hjá vixl
sporum.
íslemdtagar nútímans hafa
rofið aldalanga einamgrun i
samskiptum við aðrar þjóðir.
Á lýðveldistímahilinu, eftir
heimsstyrjöldina, höfum við
óhikað tekið þátt í margþættu
alþjóðlegu samstarfi.
Ég hefi litið svo á, að sá
möguleiki, að Danir og Norð-
menn gerist aðilar að Efna-
hagsbandalagi Evrópu, knýi
okkur Norðurlandaþjóðimar
til sérstakra efnahagsaðgerða,
sem er-u mægjanlega róttækar
til þess að morrænt samstarf
bíði ekki hnekki. Ef til vill
ætti að endurskoða Nordek-
hugmyndin-a.
Jéhann Hafstein
Á íyrsta fundi forsætisráð-
herra Norðurlamda eftir að
®tefnt kynni aff aðild Dana og
Norðmanma að EBE, en fumd
urinn var haldinn i Þránd-
heimi síðla sumars 1970, —
kcwn mjög ákveðið fram það
sjónarmið, að rétt væri að
hefjast handa til þess að vera
viðbúnir þvi, sem verða vildi,
ef tvö Norðurföndin yrðu að-
ilar að EBE og EFTA saxn-
stiairfið kynni þá að breytast
verulega, eða líða umdir lok.
Ég tei, að það hafi verið
mjög mikilvægt fyrir okkur
ísiendiinga að gera-st aðilar að
Fríverzlunarbandalaginu ei-gi
síðar en naun va,rð á. Við höf-
twn byggt viðræður okkar við
Efnahagsbandalagið i megin-
atriðoim á þvi a ð igeta náð til-
svarandi samkomuiagi og
inmam EFTA.
Ég tel mjög óréttlátt að
temgja áform íslemdinga i
landhelgismálinu við hugsan-
legt samkomuliag við Efnar-
hagshandaiagið. Ákvarðanir
íslendinga varðandi stækkun
fiskveiðlögsögunnar byggjast
á lífshagsmunum hinnar litlu
eyþjóðar í myrztu höfum. Ég
hefi litið svo á, að engin mis-
skilningur hafi rikt um al-
gjöra sérstöðu varðandi fisk-
veiðilögsögu íslendinga, sem
byggja aila afkomu sína á
fiskveiðum og þar af leiðandi
vemdun fiskistofna við stremd
ur landsins í hafimu yfir iand-
grunninu. Ég veit að þið skiij
ið okkur fyllilega hér, á hin-
um norræna vettvangi.
Við höfum nú á síðastliðmu
ári styrkt aðstöðu okkar inn-
an Norðurlandaráðs með mýj-
um samþykktum um ráðherra
nefndina, nýrri menningair-
málasamþykkt og ráðningu
mýs framkvæmdaistjóra með
skrifstofu í Stokkhóimi.
Við skulum kviðalausir
mæta nýjum viðhorfum. Við
erum efldir að aukinni
reymslu norræns samstairfs,
sterkara skipulaigi innan Norð
urlandaráðs og ég vil leyfa
mér að efast ekki um, að næg
ur vilji sé fyrir hendi til þess
að hlú að þeim gróðri sam-
norræns hugarfars sem vaxið
hefir á liðnum árum með
margháttuðum áramgri til
góðs fyrir okkur öll.
Vilja láta
lækka gengi
pundsins
London, 15. febr. AP.
HÓPUR brezkra hagfræffipró-
fessora viff Cambridge háskóla
sagffi í dag aff 15% lækkun á
gengi sterlingspundsins væri
Bauffsynleg til aff tryggja
efnahag Bretlands.
Prófessorairnir segja að
15% gengisfelling svo og
skattaiækkanir muni hafa í
för með sér stórminnkað at-
vinnuleysi og tryggja 4.5%
stöðuga árle-ga fnamleiðslu-
auknimgu. Þetta segja þeir að
verði að gerast fyrir ársiok
1973.
HÁDEGISVERÐ-
ARFUNDUR
verður haldinn
þriðjudaginn 22/2
í Leikhúskjall-
aranum.
Umræðuefni:
ALÞJÓÐA GJALD-
EYRISMÁL.
Dr. Jóhannes
Nordal.
fJUNIOR CHAMBER
I REYKJAViK
EMMA
Ilarnafataverzlun,
Skólavörðustíg 5.
Sængurgjafir.
Ungbarnafatnaður,
mikið úrval.
Loðtóðraðir drengjalrakkar
2—8 ara.
S.ðar, loðfóðraðar telpnaúlpur
2—8 ára.
Vatteraðar gallabuxur.
Pollabuxur.
Sokkabuxur. allar slærðir.
Skírnarkjólar.
Póstsendum.
Kaupmannahöfn
London
SUNNA
GEFUR YÐUR MEIRA
FYRIR PENINGANA
Lægstu fargjöld á öllum flug-
leiðum. Fljótar staðfestingar á
hótelpöntunum- og flugferð-
una með beinu fjarritunarsam
bandi (telex) beint við útlönd.
IT-Ferðir. Einstaklingsferðir á
hópferðakjörum með áætlun-
arfiugi. Ótrúlega ódýrar utan-
landsferðir með leiguflugi.
kr. 14.900 Flugferðir, hótel kr. 13.600,— Flugferðir, gisting
og tvær máltíðir i heila viku. og morgunv. í heila viku.
Kynnið ykkur hin einstæðu og hagkvæmu ferðakjör SUNNU. Mikill
fjöldi annarra vetrarferða. Einstaklingsferðir á hópferðakjörum. Lang
stærsta ferðaúrval á íslandi er auðvitað hjá stærstu ferðaskrifstof-
unni. — DÆMI: ítalíuferðir 10 dagar kr. 14.900,— Austurríki 10 dag-
ar 16.400,— Mallorka 12 dagar kr. 17.600,— Costa del Sol 12 dagax frá
kr. 17.600,—
Kanaríeyjar beint frá Keflavik hálfsmánaðarlega frá kr. 17.800,— (Kanaríeyjaferðir með viðkomu í
London eða Kaupmannahöfn i hverri viku). Leikhúsferðir til London og Kaupmannahafnar. Ferðir
á sýningar og ráðstefnur i mörgum löndum. Kaupsýslu- og skemmtiferðir til Tokyo og Hong
Kong á svo lágu verði að menn hafa efni á að taka eiginkonuna meö.
Fjölskyldufargjöld til Norðurlanda og Bretlands. Egyptalandsferðir fyrir sama verð og Spánarferðir.
Kyrmið ykkur ferðalögin hjá SUNNU, áður em þér ákveðið ferð,
það borgar sig.