Morgunblaðið - 20.02.1972, Page 25
MORGUNBt.A.ÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. FEJBRÚAR 1972
25
— Það stendur hér í blað
imu, að ekkja með níu börn
hafi giifzt ekkjumanni með
sjö börn.
— Það er ekki giifting. Það
er samruni.
k
Tommi: Ég sá Bjössa fara
svoleiðis með konuna sína í
'gær, að ég myndi ekki bjóða
hundinum minium upp á slíka
meðferð.
Jakob: Hvað er að heyra.
ÍHvað gierði hann?
Tommi: Kyssti hana.
★
— Veiztu hvað er orðið af
morgunsloppnium minum, ég
finn hann hvergi.
— Nei, en ég sá mölfiugu
fljúga þyngslalega út úr
klaíðaskápmum rétt áðan.
★
— Þessar buxur eru aliveg
mátulegar á þig, sagði gömul
góðhjörtuð kona við betlar-
ann. — Þú þarft aðeins að
láta bæta þær svolítið.
— Það er allt í himnalagi,
sagði betlarinn. —‘ Ég kem
bara aftur eftir hálftíma.
★
— Ég heyrðí einihvem há-
vaða í nótt og fór fram úr
rúiminu til að gá hvað um
væri að vera. Þá sá ég karl-
mannsfót ikoma undan rúm-
imu.
— Guð hjálpi mér! Var það
þjófur?
— Niei, það var maðurinn
minn, hann heyrðí hávaðann
lika.
★
Maður nökku.r góðglaður
hringdi til kunnimgja síns:
— Halló—hik—halló.
— Haliló, vars varað.
— Halló.
— Halió.
— Aha, sagði maðurinn —
bvaða ógurlega bengmái er
þetta í símamuim.
•k
María litla fór í heiimsókn
til ömmu sinnar, sem bjó i
sveit. Hún hafði aldrei koim-
ið þangað áður, en gekk nú út
og þar rakst hún á 'hanann,
sem hún ’hafði aldrei séð fyrr.
Hún virðir hann fyrir sér
drykklamga stuind, en hleypur
síðan inn til ömrmunnar og
hrópar:
— Amima, amma, ein hæn-
an er farin að blóimstra.
Ég er með verk í þessari tönn!
Fiski-
þing
FISKIÞING kcmur saman i 31.
skipti á mánudaginn, 21. febr.
Hefur það um alllangt árabil ver-
ið haldið annað hvert ár, en
fyrsta Fiskiþing var sett 30. júní
1913. Þingið situr að þessu sinni
tuttugu og einn fulltrúi fiski-
deildanna, sem eru víða um land
ið.
Á Fiskiþingum eru jafrnan
rædd ýtarlega öll helzu mál sem
smerta sjávarútveginn í landinu,
og fjallað um ástand og horfur
almennt í útveginum. Fyrir Fiski
þingi nú liggja um 20 málaflokk-
ar og sumir yfirgripsmiklir.
Fjallað verður um verðlags- og
tryggingamál, fiskveiðilögsöguna,
skipuiagsmál Fiskifélagsins, rann
sóknir í þágu sjávarútvegsins,
öryg.gismál, fiskirækt og eldi
sjávarfiska, friðun tiltekinna
fiskimiða,, fólksfæð og vinnuafls
skort í sjávarútveginum, fræðslu
mál sjómannastéttarinnar, eink-
um í sambandi við þreytta skipa-
gerð í sókninni, og i samræmi
við það aukin útgáfa bóka- og
bæklinga.
Lömb
finnast
á f jalli
Björk, Mývatnssveit, 17. febr.
FYRIR nokkrum dögum, þegar
verið var að ssðkja hesta frá
Grænavatni i Mývatnssveit, sem
gengið hafa það sem af er vetri
í svokölluðum Sellöndium, fund-
ust þá tvö löm'b við Selið, en þau
höfðu ekki heimzt af fjalli síð-
astliðið haust. Eigandi þessara
lamba er Árni Halldórsson, bóndi
í Garði. Lömbin eru sögð líta vel
út, enda voru nægilegir. hagar
þar sem þau fundust. Talið er
sennilegt að beit ha.fi ekki skort,
þar sem þau hafa gengið í vetur.
Hér er blíðskaparveðiur í dag,
suðvestan gola, bjart og hlýtt.
Aðfaranótt miðvikudags fór
frostið hæst hér í Mývatnssveit
í 25 stig. Er það langhæsta frost,
sem hér hefur komið í vet ur.
— Kristján.
sct. TEMPLARAHÖLLIN sct.
FÉLAGSVISTIN í kvöld kl. 9; stundvíslega.
3ja kvölda spilakeppni. Heildarverðlaun
krónur 10.000.
Góð kvöldverðlaun. Aðgöngumiðasalan frá
kl. 8:30. — Sími 20010.
HUOmSUEIT * « .« iVii1 'II1 imn— I U# # 1
OLflFS SflUKS s u-míí I
SUflflHILDUR maiH
Hriiturinn, 21. marz — 19, apríl.
Fjármálin eru óvenju áhættusöm. Ýruis öfl eru að verki, sem
fáir vita um.
Nautið, 20. april — 20. maL
Samkeppiiin er alltaf að harðna, og: hreytir um stefuu »g mynd.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júnL
Fú verður að vera við þvi búiiiii að viima óvenju erfitt verk f
dag.
Krabbinn, 21. júní — 22. júli.
Nú liffgur mikið við að vera dálítið smekklegrur.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Pú verður að vinna að sanieiniugu fjöl*kyldunnar umfram allt.
Mærin, 23. ág:úst — 22. septembcr.
Þú ert í betri aðHtöðu núna, og: mátt lireyfa þigr meira.
Vogin, 23. september — 22. október.
Hvað grerist, er þú færð loksins tækifa*rið, og: kanut ekki að
hagnýta þér það.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Það er eitt að segjast geta unnið verkin, og annað að standa við
þau orð.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Það sem þú heyrir kann að vera magnað. en láttu ekkert fara
lengra.
Steingeilln, 22. desenilæt — 19. jsnúar
Þú finnur leið til frama eins og þín var von og visa, og þú hef
ur engu að tapa.
Vatnslærinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Samgöuguleiðirnar eru þér hrein ögrun og þú ferð þínu fram.
Flskarnir, 19. felirúar — 20. marz.
Fjölskyldumálin eru mjög raunhæf þessa dugana, og þú verður
að finna einhver úrræði.
SkagfirÖingafélagið í Reykjavík
Skagfiröingamótiö 1972
verður haldið að Hótel Sögu föstudaginu 25. febrúar, og hefst
kl. 19.00 með sameiginlegu borðhaldi.
Heiðursgestir samkomunnar verða hjónin frú Ólína Björnsdóttir
og Guðjón Sigurðsson, bakarameistari.
Dagskrá verður sem hér segir:
ir Mótið sett.
★ Indriði G. Þorsteinsson flytur minni Skagafjarðar.
ÍT Skagfirzka söngsveitin syngur undir stjóm frú
Snæbjargar Snæbjarnardóttur, við undirleik frú
Sigríðar Auðuns.
ÍT Ómar Ragnarsson.
■fr ?????????
ÍT Veizlustjóri séra Gunnar Gíslason alþingismaður.
Aðgöngumiðar verða seldir í anddyri Súlnasal, Hótel Sögu,
þriðjudaginn 22. febrúar kl. 16—18.
Borð verða tekin frá gegn fratnvísun aðgöngumiða á sama tíma.
Verði eitthvað af aðgöngumiðunum eftir, verða þeir seldir í
Vörðunni h/f., Grettisgötu 2 (sími 19031) miðvikudaginn
23. febrúar,
■jr Athugið að þar sem þetta er 35 ára afniælishátíð félagsins
og vel tii hennar vandað eru Skagfirðingar beðnir að fjöl-
menna og taka með sér gesti.
STJÓRNIN.