Morgunblaðið - 27.02.1972, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1972
TVITUG
.STIILKA
OSKAST.
1 þýðingu Huldu Valtýsdóítur.
unnusta hennar og án vitund-
ar stjúpmóður hennar?“
„Hjákona? Sagðirðu það? Þú
ert ágætur. Og ég múta henni
ekki. Gilbert heíur gott af svo
litlu mótlæti. Og hvað slj úp-
móðurina áhrærir, þá sér Penny
ekkert athugavert við það.“
„Henni ætti að finnast það at-
hugavert og þú átt ekki að ala
hið gagnstæða upp í henni.“
„Hér eru greinilega fleiri en
einn siðgæðisvörður á ferðinni.
Annars meinti ég það ekki þann
ig. Og mér er sama, hvort þær
eru vinir eða fjandmenn. Ég
segi það satt. Cg Penny er vís
til að verða vingjarnlegri í henn
ar garð á eftir. En sleppum
þvi. Ég haga mér auðvitað eins
og hver annar skíthæfll, og er
það sennilega líka, en mig lang
ar ekki til að vera það. Ég er
bara yfir mig ástfanginn af hnát
unni og þú getur ekki ímynd-
að þér, hvað það hefur mikil
áhrif á mig. Ég hlakka til hvers
dags sem upp rennur og vinnu-
gleðin er tvöföld á við það sem
hún hefur verið í mörg ár. Að
visu þarf stundum að sýna
þessu unga fólki umburðarlyndi
og þölinmæði, vegna þess að það
er svo óreynt, á í innri baráttu
og hefur önnur sjónarmið. En
gamalmenni eins og ég á lika
skilið að fá að njóta lífsins. Við
þurfúm á því að halda. Við, sem
þurfum að fara að horfast í
augu við dauðann og eilina.
Þér er engin vorkunn . . . á
miðjum aldri . . . Það er bezta
skeiðið, það veit sá sem allt veit.
Jæja, sleppum því. Hvað seg-
irðu um K 481?“
„1 E flat?“
„Já. Komdu.“
Við gengum aftur inn í setu
stofuna. Ruth og Kristófer
stóðu á fætur og fóru út, um
leið og við komurn inn. Penny
sat ein eftir. Hún var búin með
konfektið en sat enn með bók-
ina. Við Roy bjástruðum við
hljóðfærin og nóturnar og hóf-
um síðan Mozart-samleikinn.
Þegar smáhlé varð á pianóleikn
um, sá ég að hún hafði ekki
flett síðu í bókinni síðan við
byrjuðum. Kvenfólk hefur yfir-
leitt ekki áhuga á músík nema
þær stundi þá sjálfar hljóðfæra
leik. Það kom mér þvi aiveg á
óvart, að Penny væri undir
niðri músíkunnandi. Það var
mér svo mikið undrunarefni, að
ég fipaðist næstum í triilunni
sem kom á eftir. Ég náði mér
þó aftur á strik og tökst prýði-
Lega það sem eftir var af kafl-
anum, þótt ég segi sjálfur frá.
„Fjári gott hjá ökkur,“ sagði
Roy. „Þú stóðst þig vel. Þú
hlýtur að vera í góðri þjálf-
un.“
„Þú lika.“
„Jæja, feginn er ég ef þess
sjást merki. Ég hef æft mikið
siðustu mánuðina. Það kemur til
af því ég er svo . . . uh . . . full-
ur af lífsþrótti.“
„Ertu að undirbúa hljóm-
leika?“
Þar hitti ég í mark, en hann
var allur á ve.rði. „Eiginlega
ekki. Bara mér tii ánægju. Þó
gæti verið að ég tælki þátt í
hljómleikum fyrir góðgerðarfé-
lag í haust, en það er óráðið.
Ég veit ekkert, hvar ég verð
þá.“
Penny fletti blaði í bókinni.
Hann leit til hennar.
„Heyrðu, Penny, hlustaðu
nú vel á næsta kafla. Hann er
alveg framúrskarandi og ætti
að vera þekktari. Hann er stutt
ur.“
Ekkert hefði dugað betur til
að flæma hana út úr stofunni.
Hún tautaði eitthvað um að
hún þyrfti að hjálpa Kitty á
leiðinni til dyranna og það
fannst mér heldur vsemin afsök
un.
„Jæja“, sagði Roy, þegar
hún var farin. „Ekkert má.
Það er eins og það sé ómögulegt
að nálgast þessa telpu.“
„Tekst Gilbert það ekki?“
„Ætli það ekki. Svona
stundum. En hún verður ekkert
auðveldari í sarnbúð fyrir því.
Þó er víst ekki hægt að álasa
henni."
„Nú, hvers vegna ekki?“
„Eins og þjóðfélagið er allt
orðið. Engin tækifæri fyrir vel
gefið fólk með sköpunarþrá eða
. . . ég veit auðvitað að þér
finnst það algerlega óumbætan-
legt. ..“
„Mér finnst ekkert um það."
„Einmitt. Eigum við að
halda áfram?"
Okkur tókst ek'ki eins vel
upp í hæga kaflanum, aðallega
vegna þess að nú fór ég aftur
að hugsa um greiðann, úr því
Penny var farin út. Forvitnin
sagði já, eins og venjulega. Við
tilhugsunina um það, hvað þetta
yrði aldeilis hryllilegt kvöld,
hrópaði eitthvað innra með
mér: nei. Framkoma Pennyar
styúkti lika þetta nei. Þegar við
vorum hálfnaðir með kaflann
og Kitty kom inn, tók ég loka-
ákvörðunina: nei.
Kitty gekk hljóðlega inn,
gætti þess að trufla okkur ekki
og tók upp saumadót. Við luk-
um kaflanum nokkurn vegirin
samtímis. Kitty lagði frá
sér saumana og klappaði saman
lófunum eins og krakki með
fingurgóma beggja handa upp-
vísandi. „Ég vildi að ég hefði
komið fyrr og fengið að heyra
allt,“ sagði hún lágum rómi eins
og til að undirstrika vonleysið
sém umlukti hana.
„Ha?“ Roy hélt hendinni fyr
ir aftan annað eyrað, annað
hvort vegna þess að hann hafði
ekki heyrt, hvað hún sagði, eða
til að láta í ljós andúð sína á
þessum tilgerðarlega vonleysis-
tón.
„Ég sagði, að ég vildi að ég
hefði fengið að heyra allt,“
hrópaði hún en sleppti þó ýktu
varahreyfingunum í þetta sinn.
„Þakka".
Hann lagði Stradivarius-fiðl
una í kassann. Kitty tók upp
saumana aftur. Mér sýndist háls
inn á henni hafa lengzt um helm-
ing á þessum augnablikum. Ég
stóð á fætur og fór að líta í
kringum mig í stofunni. Þarna
var dýr plötuspilari með mögn-
urum, borð við vegginn með
marmaraplötu og á henni ótal
flöskur, vasabókarstafli, stórir
postulinskettir, veggspjöld í
ramma með myndum af Che Gue
vara, IIo-Ohi-Minh, nöktu
fólki í ástaratlotum og aðrar
táknrænar myndir fyrir okkar
tima. Ég heyrði (greinilega) að
Kitty sagði stundarhátt að baki
mér:
„Heyrðu, heldurðu að þú gæt
ir ekki rætt baðkersmálið við
Stykkishólmskonur
Munið fundinn í Tjarnarbúð miðvikudaginn
1. marz kl. 8,30 e.h.
Nefndin.
velvakandi
0 Margkrafin um
útvarpsgjöld
Þetta bréf barst okkur ofan
úr Borgarfirði:
„Ágæti Velvakandi!
Um leið og ég þakka þér fyrir
aflla þá skemmtun (og stundum
gremju), sem pistlar þínir hafa
veitt mér, lamgar mig til þess að
biðja þig fyrir nokkrar línur.
Og tilefnið er Innheimtudeild
Ríkisútvarpsins. Það eru víst
fleiri en ég og mitt heimili, sem
hafa undan þeirri stofnun að
kvarta, samanber Pósthólf 120
í útvarpinu fyrir skömmu.
Upphaf okkar viðskipta við
Ríkisútvarpið er það, að í byrj-
un búskapar okkar gaf maður-
inn minn mér útvarpstæki, og
var það skráð á mitt nafn, og
síðan hefur útvarpstæki heim-
ilisins alltaf verið á mínu nafni,
en ekki nafni manmsms míns.
Þetta var nú allt i lagi þangað
til við fengum sjónvarpstæki,
sem var skráð á nafn heimilis-
föðurins að venju. Þegar inn-
heimtuseðlar fyrir afnotagjöld-
um koma, fæ ég auðvitað gjald-
seðil fyrir útvarpstækið eins og
vanalega og maðurinm minm
gjaldseðil fyrir sjónvarpstækið
og útvarpstækið líka. (Spum-
ing: Getur maður ekki átt sjón-
varpstæki, án þess að þurfa að
borga af útvarpstæki, sem hann
hefur aldrei átt?)
Við vildum ekki una því að
borga tvöfalt iðgjald af útvarp-
inu og báðum um að útvarps-
gjaldið yrði strikað út af gjald-
seðli mamnsins mims, en ég vildi
fá að eiga mitt útvarpstæki
áfram eins og verið hafði. Við
borguðuim þess vegna af bæði
útvarpi og sjónvarpi eins og
vera bar, en ekki tvöfalt út-
varpsgjald. Þetta var árið 1963.
Þrátt fyrir stteriflega beiðni til
imnheimtudeildarinnar var þetta
ekki leiðrétt á næstu gjalöseðl-
um. Um haustið 1970 koma
hingað tveir menn frá Ríkisút-
varpinu og eru þá að karnna
hvort hér séu eteki ógreidd af-
notagjöld af sjónvarpi og út-
varpi fyTÍr árið 1968. Menn þess
ir voru himir prúðustu og tóku
vel fullyrðingum okkar um að
gjöldin hefðu verið greidd á
réttum tíma, þrátt fyrir að
kvittamir voru glataðar. Enda
átti að vera hægt að fá úr því
skorið á pósthúsinu, þar sem
gjöldim voru greidd. Það stóð
heldur eteki á því að fá viður-
kenmingu pósthúsisims að þetta
væri rétt. Töldum við því að
þetta væri úr sögunmi, En svo
gerist það núna hinn 5. febrú-
ar 1972, að maðurinn minm fær
bréf frá lögfræðisterifstofu í
Reykjavík, dagsett 9. 12. 1971,
þar sem hamm er krafimm um af-
notagjald af hljóðvarpi og sjón-
varpi fyrir árið 1963, auk kostn-
aðar, og skal skuldin vera
greidd fyrir 6. 1. 1972, elia
muni húm verða imnheimt með
málsólkn. Enm á ný var leitað
til pósthús'sins og fengnar við-
urkenmimgar fyrir greiðslu
beggja gjaldamna.
Nú langar mig til að spyrja:
Hvað verður um þá peninga,
sem fólk borgar skilvíslega fyr-
ir útvarp-sjónvarp, og hvergi
koma fram?
Er ekki kominm tími til að
láta fara fram opinbera ramm»
sókrn á fjárreiðum og bókhaldi
inmiheimtudeildar immar ?
Ása í Ás!.“
UM PASKA
BROSANDI SUMARSÓL Á
COSTA DEL SOL
ENGINN STAÐUR EVROPU
GETUR KEPPT VIÐ COSTA DEL SOL UM VEÐURSÆLD
OG VINSÆLDIR.
NÚ ERU SÍÐUSTU FORVÖÐ AD TRYGGJA SÉR SÆTI
í PÁSKAFERÐINA VINSÆLU 28. MARZ — 4. APRÍL.
ÞOTUFLUG FLUGFÉLAGS ÍSLANDS — 1. FL. GISTING.
VERÐ FRÁ KR. 15.500,—
FERÐASKRIFSTOFAN
ÚTSÝN
AUSTURSTRÆTI 17. SÍMAR 20100/23510/21080.