Morgunblaðið - 03.03.1972, Síða 5
MORGU.NBLAÐiÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972
300 manna kór
Þingeyinga
Björk, 28. febrúar.
KIRKJUKÓRARNIR í Suður-
Þingeyjarsýslu héldu mjög veg-
lega samkomu sl. laugardags-
kvöld í Ljósvetningabúð. Hófst
hún með samdrykkju. — Formað
ur Kirkjukórasambandsins, Þrá-
inn Þórisson, setti samkomuna
og stjórnaði henni af miklum
skörungsskap. Meðan setið var
undir borðum sungu 6 kirkjukór
ar 2—3 lög hver. Þeir voru:
Kirkjukór Hálssóknar, söng-
stjóri séra Friðrik A. Frið-
riksson og undirleik annaðist
Gertrud Friðriksson, Kirkjukór
Húsavíkur, stjórnandi Steingrím
ur Sigfússon, Kirkjukór Nessókn
ar á Aðaldal, stjórnandi Sigurður
Fransson, undirleikari Friðrik
Jónsson, Kirkjukór Grenjaðar-
staðar, stjórnandi Sigurður SLgur
jómsson, undirleikari Friðrik
Jónsson, Kirkjukór Reykjahlíðar
kirkju, söngstjóri Jón Ámi Sig-
fússon, undirleikairi Björg Frið-
riksdóttir og Kirkjukór Skútu-
staða, söngstjóri örn Friðriksson.
Þegar borð höfðu verið tekin
upp, söng sýslukórinn nokkur
lög þ.e. allir kóramir sameigin
lega og auk þess söng með fólk
úr Reykjadal og Bárðardal og
víðar, alls á þriðja hundrað
manns. Hver söngstjóri stjórn-
aði einu lagi. Heiðursgestir þess
arar samkomu voru Páll H. Jóns
son og kona hans. Páll var áður
fyrr mjög virkur þátttakandi í
sönglifi hér í sýslunni. Hann var
formaður kirkjukórasambands-
ins um margra ára skeið. Páll
flutti þarna snjaila ræðu. Mrnnt
ist með ánægju fyrri tíma og
hvatti til dáða á þessu sviði. —
Margir fleiri tóku til máls og
tóku mjög í sama streng. Talið er
að um 400 manns hafi ssótt
punktamót þetta, sem svo var
nefnt, og segja má að það hafi
tekizt með miklum ágætum og
verið öllum til sóma er að stóðu.
Veitingar voru afburða rausnar
legar og vel fxam bornar. Að lok
um var stiginn dans af miklu
fjöri fram eftir nóttu. Veðrið var
hið ákjósanlegasta og sumarfæri
á öllum vegum. Hjálpaði það
vissulega til að gera slíka sam-
komu sem þessa mögulega um
hávetur.
— Kristján.
Fasteigna- og
skipasalan hf.
Strandgötu 45, Hafnarfirði.
Opið alla virka daga kl. 1—5.
Sími 52040.
Nýkomnir
köflóttir RENNILÁSAJAKKAR
og dökkbláir SJÓLIÐAJAKKAR
úr þykku alullarefni.
Stærðir 14 til 18.
Verð 2.998,00 krónur.
Ennfremur MOLSKINNSJAKKAR
í stærðunum 12 til 50, TANINGA-
BUXUR úr ull og polyester —
falleat snið.
Hagkaup
Lækjargötu — Skeifunni 15.
SAMKVÆMISKJÓLAEFNI
ÍTALÍA -
SVISS
Glæsileg' ítölsk sam-
kvæmisk jólaef ni.
Ný sending frá Sviss
tekin upp í dag.
Athugið! Efnin eru
sérpöntuð og fást aðeins
hjá okkur.
Op/ð til klukkan 10
V
Vörumarkaðurinnhf.
ARMULA 1 A — REYKJAVIK — SIMI 86-113.
ALUR KRAKKAR EICA AÐ LE5A ÞETTA !
ANDRES ÖND OC FELAGAR
halda barnaskemmtun í Háskólabíói n.k. sunnudag 5. marz kl. 1,15
eftir hádegi. Fyrst spilar skólahljómsveit Kópavogs, þá verður kvik-
myndasýning — teiknimyndasyrpa. Ómar Ragnarsson skemmtir með
gamanvísum o. fl. Þá stjórnar Svavar Gests ýmsum leikjum og hefur
spurningakeppni, þar sem mörg góð verðlaun verða veitt.
UM LEIÐ OG SKEMMTUNINNI LÝKUR FÁ ÖLL BÖRNIN
AFIIENTA SÉRSTAKA GJAFAPAKKA FRÁ ANDRÉSI ÖND.
Verð aðgöngumiða er kr. 100.— og verður forsala aðgöngumiða á eftirtöldum stöðum í dag
og á morgun: Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg og Vesturveri. Bókabúð Jónasar Egg-
ertssonar, Rofabæ 7. Bókabúðinni Vedu, Álfhólsvegi 5, Kópavogi. Bókabúðinni Grímu, Garða-
hreppi. Bókabúð Qlivers, Hafnarfirði og í Háskóiabíói.
Allur ágóði rennur til barnaheimilisins að Tjaldanesi og líknarsjóðs Þórs.
Lionskiúbburinn ÞÓR.