Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUk 3 M ARZ 1972 20 Runólfur Runólfsson F. 20/2 1875. D. 27/2 1972 „Farirm burt í betri heim — burt að stærri ljósum, dýpri, fegri hörpu-hreim, hreinni sumar-rósum — ert þú nú, og Guðs í geim geisla laugast ósum: ótt þér bú við röðla-reim, roða af degi ljósum." Vestur-íslendingurinn Krist- inn Stefánsson. ALDINN vinur minn, er fiuttur i fegurri heim, og var hann orð- i«n 97 ára gamall. Runóifur var í meðallagi hár, rammur að afli, hæfilega þrekinn og vöxtur hans samsvaraði sér vel. Allur var svipur hans hinn drengilegasti. Hann var kvikur á fæti, og jafnvei i fasi hans mátti íinna að hann vildi sjálfur velja sér leið, en ógjarna þræða ann- exra slóðir. Hversdagsiega var hann stillt- ur í viðmóti, eigi orðmargur, en ávailt glaðlegur og fyndinn. Lund hans var viðkvæm og til- finningamar næmar og sterkar. Eitt af sterkustu einkennum Run ólís var það eigi að neyta liða- munar, heldur að veita þeim er á var haliað og minni máttar. Hann var fastur í lund og vin- hoiiur. Hann gerði sér þó eigi far um að leita sér vinsælda, en hann átti marga vini og kunn- ingja eldri sem yngri, og ég hygg því fleiri sem nær dró ævilok- um — fleiri en hann vissi um sjáifur. Fóik virðir og metur það, sem bezt er og sannast, ex það loks fær komið auga á það. Hugur Runólfs hneigðist snemma að bókum, en þess var ekki kostur að fara til langskóla náms, og varð hann þá að láta sitja við fræðslu þá er hann gat af sjáifsdáðum afiað sér. Kæri vinur. Ég bið þér allrar blessunar í æðri veröld. Börnum, tengdabömum, bama bömum og niðjum öllum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Helgi Vigfússon. 1 DAG kl. 2 fer fram fyrsta jarð- arför frá hinni nýju og glæsiiegu kirkju Bústaðasóknar. Vel fer á þvi að það skuli vera landnemi f jöldabyggðarinnar á þvi svæði og vafalitið aldursfor- seti byggðarinnar sem þar hefir einnig fomstuna. Umhverfi skeiðvailarins við Eliiðaár var hin óhreyfða jörð, er Runóifur Runóifsson byggði hús sitt þar uppi í brekkunni fyrir 40 árum. Þar vann hann nú á síðustu árum meira og minna að bygg- ingu nýs húss á lóðinni með dætr um sínum og tengdasyni, Georg Arnórssyni, málarameistara, Ás- gerði konu hans og Lám systur hennar. Þriðja dóttirin er Gyða, gift Júiiusi Magnússyni, húsasmið. Þessir sterkustu baráttumenn hugsjónar Góðtemplarareglunn- ar hafa nú kvatt undarlega þétt siðustu daga. Ailir vom þeir vin- ir, sem vænta mátti, og þar sem Steindór Bjömsson frá Gröf var áratug yngri en Runóifur, spurði hann oft í sima eftir öldungnum, er hann var orðinn sjúkur og bað að láta sig vita, ef eitthvað breyttist, en reyndin varð, að hann fór sjálfur á undan og Hannes J. Magnússon og Pétur Sigurðsson. Algjör ákveðinn bindindismað- ur var Runólfur aHa tið, bæði á áfengi og töbak, áður en hann gekk í Regluna, en taldi það samt sitt lifsins ián, að hafa not- ið þess félagsskapar bæði til bak- tryggingar sinni eigin ákvörðun og til að geta þar fengið tæki- færi til að skipa sér í sveit tii mannbóta. Aldrei lét Runólfur sig vanta til sinna trúnaðarstarfa eða á neinu standa er honum var fai- ið, og svo mun hann hafa í þvi gjört harðar kröfur til sjálfs síns, að með eindaamum var. Auk margvislegra starfa hans og annars er ég nefndi í grein- arstúf um hann er hann var 95 ára og verður ekki endurtekið hér, var hann umboðsmaður stórstúkunnar í stúku sinni til skamms tima og það ég bezt veit aldursforseti hennar að ár- um og svo langsamJega mest áber andi að starfshug og þrótti nú alveg fram á síðustu ár. Sjálf- um var honum efst í huga allt fram til þess síðasta, að kynna sem flestum hugsjónir Reglunn- ar, þá biessun sem unigir og gamlir gætu veitt sjálfum sér og öðrum, með þvi að ganga af heilum hug í þær liðssveitir, ekki aðeins gegn áfengisneyzlu, held- ur einnig til auðugra og betra lífs. Ritgerð hans sjáifs væri hér of langt máf Runólfur, þetta hógværa prúð- menni, hlaut verðskuldaða heim- iiisró með ástvinum sínum að Byggðarenda 6. Óskandi væri að við gætum látið sem flesta er há- um aldri ná, iifa svo glaða við sitt, sæJa á sinum aftni, sátta við guð og menn, biðandi eins og gróður jarðarinnar rólega þeirr- ar sígandi frostnœtur, er feli hann aftur i fang þeirrar jarð- ar er hann ól. Við templarar þökkum honum fyrir dygga og langa þjónustu hugsjónarinnar, vottum samúð okkar þeim er studdu hann og sakna hans og þökkum guði sem gaf hann. Ingþór Sigurbjs. KVEÐJA frá stúkunni VERÐANDI Góði féiagi og neglubróðir, Runólfur Runóifsson. Á rúmra sjö áratuga ferii þin- um í stúkunni okkar, Verðandi nr. 9, hefur þú verið samtíma mörgu fóiki, sem hefur komið> staðið við ef til vilJ um skamma hrið eða nokkra áratugi, og horf- ið — sumt einfaJdlega gengið úr stúkunní, en annað kvatt af sömu ástæðu og þú ert nú horf- inn okkur sjónum. Við, sem sátum með þér síð- ustu fundina í Verðamdi, drúp- um höfði í þögn og með þakk- Jæti í huga fyrir allt, sem þú varst okkur og hugsjónum regl- unnar. Þú varst ekki málgefimn, en til- lögugóður og traustur félagi. Það var ekki fyrr en á 90 ára af- mæli þínu fyrir sjö árum, að þú sagðir okkur í fróðlegu og skemmtilegu erindi frá því helzta, sem á dagana hafði drif- ið, svo sem er þú stofnaðir bind- indisfélag 15 ára gamail -árið 1890, og margt annað, sem verð- ur ekki rakið hér, því að þetta er kveða okkar til þín, bróður- ins, sem hafði aldrei hátt, en var trúr til hinztu stundar. Þin verður minnzt, heiðurfélagi okk- ar, á meðan Verðandifundir eru haldnir. Ástvinum þínum vottum við dýpstu samúð. Biessuð sé minn- ing þín. F. h. félagamna í st. Verðandi nr. 9. Njáll Þórarinsson. — Kröfur Framhald al bls. 14 harðskeyttum mótmælend- um og verið stjómað af þeirra mönnum. Framkoma þeirra gagnvart kaþólskum er sögð hafa einkennzt af hroka og yfirgangi. Öfga- fyiistu sambandssinnar neita því raunar, að svo hafi ver- Ið, en hógværari mótmælend- ur segjast I engu geta varið þessar sveitir. Gengið var að þessari kröfu eftir að fuli- trúi brezku stjórnarinnar hafði rannsakað skipulag og starfsemi sveitanna og mælt með því, að þær væru af- vopnaðar og endurskipuiagð- ar frá grunni. 6. Þá er loks að geta kröf- unnar um afnám „Special powers“-laganna, sem gerír stjórn N-lriands fært að stjórna nánast sem ein- ræðisstjórn. Þeirri kröfu hef ur verið afdráttarlaust synj- að á þeirri forsendu, að stjómin verði að hafa þessi vöid til þess að verja stjóra- arskrá landsins og Stormont. Lítur stjórnin svo á, að af- mám laganna mundi einungis bjóða heim harðari baráttu IRA fyrir sameiningu Irlands og þannig grafa undan tiivist hennar. NICRA * Ouppfylltar nýjar kröfur McCorry sagði, að óupp- íylltar kröfur NICRA væru nú eftirfarandi: 1. Að brezki herinn hætti að standa í vegi lýðræðis- legra endurbóta á Stormont stjórninni og þinginu. Til þess þyrfti brezka stjórnin að taka í taumana. 2. Að „Spécial powers" — iögin verði afnumin, —• og sleppt verði öllum þeim, sem nú eru i varðhaldi án dóms- úrskurðar. 3. Að öllum stjómmála fiokkum verði tryggður rétt ur til að vinna að markmið- um sínum eftir iýðræðisieg- um ieiðum. 4. Að sett verði lög, sem tryggi fullkomiega, að þegn um ríkisins sé ekki mismun- að eftir trúarbrögðum eða öðrum atriðum. í þessu skyni sagði McCorry, að -brezka stjómin gæti til að byrja með látið nýju kynþáttalöggjöf ina, sem samþykkt var í West minster 1970, ná til N-ír- lands. Það hefði ekki verið gert vegna þess, að Stormont stjórnin hefði staðið svo fast á þeirri fuilyrðingu sinni, að þetta væri ekki mál, er West- minster ætti að fjalia um heldur Stormont. „En vist 15.000 brezkra hermanna, sagði McCorry, sýnist mér næg sönnun þess, að þetta sé mál, er Westminster á að láta til sín taka.“ 4. Að komið verði á sann- gjörnu kosningafyrirkomu- iagi, helzt hlutfailskosninga- kerfi. 5. Að Westminster úr- skurði, að iögiegt sé að vinna í N-lrlandi að samein- ingu írlands á lýðræðislegum grundveili. Tii þessa hafa brezk yfirvöld aiitaf stutt þær kröfur Stormont stjórn- arinnar að landamæri N-ír- lands séu hvorki né verði til umræðu. Það er fyrst á síð- ustu mánuðum, að Harold Wilson, leiðtogi brezka yerkamannaflokksins hefur látið uppi þær skoðanir, að senniiega verði Irlandsmáiin ekki endaniega ieyst nema með sameiningu landshlut- anna í einhverri mynd. Fordæma „provisional“ IRA Það var á Kevin McCorry að heyra, að talsmenn NICRA teldu nauðsyniegt, að brezka stjómin tæki stjórn- arskipan N-Iriands til ræki- legrar endurskoðunar og kvæði upp úrskurð um það með hverjum hætti N-írlandi skyldi stjórnað í framtiðinni og mannréttindi tryggð. Nú- verandi ástand væri óviðun- andi með öllu og NICRA for dæmdi harðlega hryðjuverka starfsemi „provisional" IRA. Hann sagði að samtökin styddu heldur ekki hernaðar aðgerðir „official" IRA en þó væru þær með öðrum og skynsamlegri hætti, að þeirra mati. Hann sagði ennfremur, að samtökin krefðust þess ekki, að Stormont þingið yrði leyst upp, aðeins að þeim, sem óskuðu, yrði leyft að vinna að sameiningu. Ég spurði McCorry, hvort hann teldi að Bretar högn- uðust fjárhagslega og stjórn málalega á sambandinu við N-írlamd og sagði hann það siður en svo vera. Það væru N-írar, sem hefðu hag af sam bandinu við Breta, að minnsta kosti fjárhagslegan — frá þjóðernislegu sjónar- miði horfði málið e.t.v. öðru visi við. Hann kvaðst eindreg ið þeirrar skoðunar, að N-ír- ar mundu ekki búa við eins góð lífskjör í sambandi við írska lýðveldið og í sambandi við Breta. Þó hefðu orðið talsverð ar framfarir á írlandi og aug- Ijóst væri, áð meginhluti kaþólskra manna á N-Ir- landi óskaði sameiningar. Ég spurði McCorry að lok- um hvaða ráðum samtök hans beittu til að vinna að kröfum sinum og tiltók hann sem dæmi, að nú væru í öllu land inu um 26—27.000 heimiii, sem neituðu að greiða húsaleigu og önnur opinber gjöld. Fylg ismenn NICRA í stjómarand stöðunni á Stormont hefðu ekki setið þingfundi frá því sl. sumar og kaþólskir menn hefðu hvarvetna hætt störf- um í nefndum og ráðum bæja og sveitastjórna. Hann sagði, að samtökin nytu stuðnings margra aðila, meðal annars irsku og brezku verkalýðs- samtakanna, írskættaðra manna í Bandarikjunum og víðar. Ekki vildi hann viður- kenna, að samtökin nytu að- stoðar róttækra stjórnmáia- flokka i öðrum löndum, eins og stundum hefur verið hald ið fram — né að marxistar, hefðu gersamlega yfirtekið samtökin. „Meirihluti stjórn- arinnar mundi þó teljast vinstrisinnaður, sagði hann, sósialistar, kommúnistar,: frjálslyndir vinstri menn, —; vinstrimenn af ýmsu tagi, en við njótum stuðnings margra afla, einnig hreinna kapital- ista. Við vinnum að auknum mannréttindum íyrir alia ibúa Norður-lrlands, mark- mið okkar nú er að endur- bæta lýðræði þings og stjóm ar, — hvað tekur við þegar því er náð, ja úr því verður fram tíðin og rás atburðanna að skera ..." — mbj. — Kuldinn nísti Framhald af bls. 17 hinna og þá helzt MeClosk- eys, enda litiar líkur á að nokkur geti sigrað Muskie, sem er öidungadeildarþing- maður frá nágrannafyikinu Maine. NIXON OG MUSKIE Þó að ailt bendi til þess að þeir Nixon og Muskie fái yfirgnæfandi meirihluta at kvæða í kosningunum á sunnudag þarf það ekki endi lega að þýða að það verði þeir, sem hijóti útnefninguna á flokksþingunum, (þó er nær ógerningur að ímynda sér að svo verði ekki með Nixon). Úrslit prófkosning- anna má túlka á marga vegm Það er ekki alltaf nóg að fá flest atkvæði, taka verður til iit til hversu mörg prósent er um að ræða og hversu mörg prósent umfram keppinaut- ana. Prófkjörið í New Hamps- hire er hið fyrsta af 24 próf- kjörum, sem fram fara á tima biiinu frá 7. marz til 27. júní, en síðasta prófkjörið er í New York. Það á þvi mikið vatn eftir að renna til sjáv- ar áður en þeim kosningum lýkur og flokksþingin byrja í júií. Hitt er annað að sag- an sýnir að úrslit prófkjörs- ins í New Hampshire hafa oft leitt í ljós tiihneigingar eða verið ábending um það sem koma skal í næstu próf- kjörum, hverjir sigri og hverjir tapi og hér er átt við báða flokka svo og þjóðina í heild. 400 ÞÚSUND Á KJÖRSKRÁ Skv. nýjustu kjörskrártöl- um frá New Hampshire eru alls 400 þúsund manns á kjöi skrá þar i fylki, en íbúar eru alls um 750 þúsund. Af þessum eru 160 þúsund skráð ir repúblíkanar, 140 þúsund óháðir og 100 þúsund demó- kratar. Slagurinn kemur þvi til með að standa um at- kvæði óháðra, en New Hampshire hefur nær und- antekningalaust verið repú biíkanafylki og í prófkosn- ingunum 1968 fékk Nixon 84 þúsund atkvæði, en John- son þáverandi forseti 26 þús und atkvæði. Ýmsir teija að þessi úrslit hafi verið upp- hafið að endinum hjá John son, þvi að skömmu eftir próf kjörið í New Hampshire, lýsti hann þvi yfir að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur í framboð. I þeim kosn ingum fékk Eugene Mc- Carthy, sem talinn var „frið- arframbjóðandi", aðeins 3 þúsund atkvæðum minna en Johnson. Mörgum kann að finnast undarlegt að prófkjörið i svo litiu íyiki skuli wra svo mikilvægt, þvi af þeim 538 manns, i yfirkjördæmaráði sem endaniega velja forset- ann skv. úrslitum kosning- anna í. nóvember koma að- eins 4 frá New Hampshire. En hér er það ekki stærðin, heldur hefðin, sem ræður. Úr slit íyrstu prófkosninganna hljóta alltaf að hafa einhver sálræn áhrif, og sá sem sigr- ar stendur oftast betur að vígi næst en sá sem tapar. Þess vegna hefur líklega ver ið anzi kalt hjá frambjóðend unum sem börðust i New Hampshire meðan Nixon drakk te með Mao og Chou i Peking og öil bandaríska þjóðin horfði á. -M»j.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.