Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972 Landsliðið - HSV f KVÖLD leiða saman hesta sína í íþróttahúsinu í Hafnar- flrði þýzka liðið HSV og is- lenzka landsliðið í handknatt leik. Er sá leikur liður í al- þjóðahandknattleiksmóti því, sem Víkingarnir gangast fyr- lr, en fyrsti leikur þess móts fór fram í gærkvöldi. Verður spennandi að sjá hvernig landsliðinu vegnar í kcppn- inni við þýzka liðið, sem er mjög gott og hefur innan sinna raða fjóra landsliðs- menn. Leikkvöldið í Hafnarfirði hefst kl. 20.15, á forleik, en strax að honum loknum hefst leikur HSV og lands- liðsins. VL sigraði í síðasta leiknum — í sendiherrakeppninni í ár tJRSLITIN í Sendiherrakeppn- fnni í ár urðu þau að Varnarliðið sigraði í fjórum leikjum, en Reykjavíkurúrval í einum. Síð- asti leikurinn var leikinn á mið- vikudagskvöld suður á Keflavik- Varnarliðsmaður skorar körfu. urflugvelli, og þá fór einnig fram leikur í kvennaflokki milli ÍR og úrvals af vellinum. í kvennaleiknum bar það til tíðinda að ÍR sigraði og er það í fynsta skipti, sem íslenzkt kvennalið sigrar kvennalið af vellinum. ÍR hafði forystu allan leikinn, og sigurinn 23:18 var fyllilega vefðskuldaður. f síðari leiknum voru liðin mjög jöfn í byrjun, og þegair hinir þrír amerísku dómarar siáu að útlit var fyrir jafnan leik, þá gengu þeir í lið með sínum mönn um, og það var ekkert hálfkák á þeirri hlutdrægni. Hún gekk það langt, að jafnvel áhorfendur voru farnir að púa á þá. Með þessari hjálp tókst Vamarliðs- mönnum að ná góðri forustu fyrir hálfleik, en þá var staðan 42:23, og fyrir utan „dómara- vandamólið" þá var það aðallega hittnin sem fór með okkar menn, en hún var slæm hjá liðinu. VL- menn hittu mjög vel, og liðið lék mjög sannfærandi. í siðari hálfleik náðu okkar menn sér öllu betur á strik, og tókst fyrir lok leiksina að koma muninum niður í 12 stig, en hon- um iauk með sigri VL. 82-70. StighæstiT í Rv.liðinu voru þeir Agnar Friðriksson með 17 stig og Einar Bollason og Jón Sigurðsson með 16 stig hvor. gk. wmmm KR-ingar fagna sigri yfir Fram í 4. flokki karla ... LEIKIR UNGA FÓLKSINS 2. flokkur kvenna Ármann — Vikingur 8-1 (5-0) í síðasta þætti um leiki unga fólksins siæddist inn mjög ieið- inleg vitleysa. Þar var sagt að Valur væri að vinna Reykjavík urriðilinn í 2. floikki kvenna. Þetta er ekki rétt, heldiur era það Ármannsstúlkurnar sem standa bezt að vígi og allt útlit er fyrir sigur þeirra. Þær eiga aðeins tvo leiki eftir, við Fyikl og fR, en þau lið eru ek'ki lík- ieg til að taka stig af Ármanni, þó að allt geti vitanlega gerzt. Ef Víkingur hefði unnið hefðu möguleikar Ármanns minnkað verulega, en Víkings og Vals aukizt að sama skapi. En það er bara með þetta ef . . . þá . . . —- Víkingur átti aldrei neina möguleika á móti hinum skemmti legu Ármannsstúlkum. í hálf- leik var staðan 5-0 fyrir Ár- mann. Seinni hálfleikur var held ur jafnari og unnu Ármenning- ar hann 3-1, lauk leiknum því 8-1. Flestar stúlkurnar í Ármanns liðinu eru hávaxnar og skot- harðar. En auk þess að geta skotið eru þær leiknar með bolt I ann. Beztar í þessum leik voru Katrín og Erla ásamt Sigrúnu i markinu. Víkingsliðið á ekki hrós skil- ið fyrir þennan leik. Mörkin: Ármann. Katrín 3, Erla 2, Sigriður, Guðrún og Ágústa eitt hver. Víkingur. Kolbrún 1. 3. flokkur karla Valur — Fylkir 11:11 (5:6) Þarna var um að ræða enn einn úrsiitaleikinn í 3. flokKi Reykjavíkurriðilsins. Fylkir hefði þurft að vinna til að vera í baráttunni áfram. Það tók.st ekki og er Fylkir þvi með 6 stig, en Víkingur og Valur hafa hiotið 8 stig hvort félag. Markahlutfall Víkings er tais- vert betra, en þeir eiga eftir rnun erfiðari mótherja en Vaiur. Leiikur Vals og Fyl'kis var all an tímann mjög jafn og munaði mest þrem mörkum á iiðunum Var það rétt fyrir leikslok að staðan var 11-8 fyrir Fylki. Val ur var með boltann og tókst Jóni að skora gott mark. Fylkir byrjaði á miðju, í stað þess að spila rólega reyndu þeir ótima- bært skot og Davíð skorar skömmu siíðar 10. mark Vals. Enn byrjar Fylkir með boltann og spennan er í hámarki þegar Jón kemst inn í sendingu, brun- ar upp og skorar um leið og fiauta timavarðar geilur við. Vissulega var Fylkir öhepp- inn að sigra ekki í leiknum, því sigurinn var, að manni sýndist, orðinn þeirra. Að vanda var Ás bjönn beztur, en Guðmundur og Stefán sýndu einnig góðan leik. 1 Valsliðið vantaði Sverri Ögmundsson og munar um minna en hann. Björn og Davíð áttu góðan leik, Óskar sýndi annað slagið skemmtilega hluti, en „klikkaði" á miiii. Og ekki má gleyma þætti Jóns undir lok in. Mörkin: Valur. Björn 4, Davíð 3, Jón 2, Karl og Óskar eitt hvor. Fylkir. Ásbjörn 4, Guðmund- ur 3, Gísli 2, Stefán og Ómar eitt hvor. 3. flokktir karla Þróttur — KR 11-10 (3-5) Þróttur byrjaði leikinn á því að skora tvö fyrstu mörkin. KR- ingar virtust ekki átta sig fyrst i stað, en tóku svo heldur betur við sér og skoruðu fimm næstu mörk án þess að Þrótturum tæk ist að svara. Þróttur átti þó sið- asta orðið i hálfleiknum og stað an í hálfleik var 5-3 fyrir KR. KR-ingar höfðu áfram yfir- Talið frá vinstri: Konráð Bjarnason, ritari GSf, Finnbogi Gunnlaugsson, Sveinn Bjömsson, Jón Thorlacius og Páll Ásgeir Tryggvason. Fengu gullúr og sty ttu NÝLEGA var þremur kylfingum er unnið höfðu það afrek að slá holu í höggi, afhent gullúr og verðlaunastytta fyrir afrek sín. Er það fyrirtækið Sveinn Björns- son hf. og Omega-umboðið sem gefa þessi verðlaun og hafa gefið þau til allra, er farið hafa holu i höggi. Að þessu sinnd fengu þeir, er afrekið unnu á árinu 1970, af- hent verðlaunin, en þeir voru Gestur Magnússon frá Akureyrl, en hann fékk afhent verðlaunin fyrir norðan, Finnbogi Gunn- laugsson frá Akranesi og Jón Thorlacius úr Golfklúbbi Ness. Sló Jón 9. holu á Nesvellinum i höggi í september, en það er 140 m vegalengd og Finnbogi sló 9. holu á Akranesvellinum, 109 m vegalengd. Páll Ásgeir Tryggvason, for- maður Golfsambands íslands, flutti stutta ræðu, er verðlaunin voru afhent, og þakkaði fyrir- tæki Sveins Bjömssonar fyrir þá velvild, sem það hefði sýnt golf- iþróttinni i áraraðir. Hann óskaði einnig kylfingunum til hamingju og Einherjaféiagsskapnum, en í honum eru þeir, sem farið hafa hoJu í höggi, til hamingju með hina nýju félaga. Ágúst setti Íslandsmet Góður árangur í mörgum greinum Á INN ANFÉL AGSMÓTI, sem haldið var af ÍR i Laugardalshöll inni laugardaginn 26. febr. náðist ágætur árangur og vom m.a. sett tvö ný íslandsmet. Úrslit í hinum einstöku grein- um urðu sem hér segir: 1500 m hlaup karlar min. Ágúst i Ásgeirsson, ÍR 4.19.4 (ísl. met). Högni Óskarsson, KR 4.40.6 Júlíuis Hjörleifsson UMSB 4.41.5 (Drengjamet) Steimþór Jóhannss. UMSK 4.53.7 Magnús Geir Einarsson, ÍR 4.58.3 (Sveimamet) Sigurður Haraldsson, ÍR 5.46.2 (Piltamet) Magnús Haraldsson, ÍR 5.46.5 1500 m hlaup konur mín. Björk Eiríksdóttir, ÍR 5.44.0 (ísl. met) Anna Haraldsdóttir, ÍR 6.10.0 Stangarstökk m Guðmundur Jóhannsson, ÍR 4.29 Valbjörn Þorláksson, Á 4.14 Stefán Hallgrímssom, KR 3.54 Kúluvarp m Guðm. Hermannsson, KR 16.78 Hreinm Halldórsson, HSS 15.45 Páll Dagbjartsisom, HSÞ 14.45 Guðni Sigfússon, Á 13.88 Valbjöm Þorláksson, Á 12.57 Guðni Halldórsson, HSÞ 12.07 Jón Þ. Ólafsson, ÍR 11.94 Óskar Jakobsson, ÍR 11.86 Kúluvarp sveinar m Sigurþjöm Lárusson, ÍR 13.74 Jón Sævax Þórðarsom, ÍR 12.70 Kúluvarp konur m Sigríður Sveinsdóttir, ÍR 7.21 Lilja Guðmundsdóttir, ÍR 6.59 FH OG GOTTWALDO SIGRUÐU í gænkvöldi fóru tvedr led'kir fram í Vikimgsimót inu oig urðu úrslit sem hér segiir: FH — FRAM 19:18. GOTTWALDO — VÍKINGUR 23:21.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.