Morgunblaðið - 03.03.1972, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972
Kafbáturinn
enn á reki
— dráttarbátnum gengur illa
að koma honum heimleiðis
Washington, 2. marz. AP.
BANDARtSKA flotamálaráðu-
neytið tilkynnti í dag að rúss-
neska dráttarbátnum sem kom
til aðstoðar kjarnorkubátnum
bilaði við Nýfundnaland, virtist
ganga illa að halda festum á hon
um. Verið er að reyna að draga
bátinn í norðausturátt, en fest-
arnar hafa oft slitnað.
Síðast þegar fréttist í kvöld,
rak kafbátinn stjómlaust, en
dráttarbáturinn var að reyna að
koma öðrum festum i hann. —
Hassan
fékk 98%
Rabat, 2. marz. AP.
HASSAN Marokkókonungur sigr-
aði í dag í þjóðaratkvæðagreiðslii
um nýja stjómarskrá og hlaut
þar með traustsyfirlýsingu þjóð-
arinnar, en andstæðingar stjóm-
arinnar segja kosningarnar að-
hlátursefni ailrar þjóðarinnar. —
98.7% kjósenda samþykktu
stjómarskrána, hina þriðju, sem
hefur verið innleidd á tín árum.
Kommgur hefur lýst yfir því,
að nýja stj órnarsfcráin sé fyrsti
áfangi á þeirri braut, að þjóð-
kjömir fulltrúar fái sífellt aukin
völd í landinu.
Sovéztot beitiskip er nú komið á
vettvang, og amnað er á teiðimni.
Veður er enn mjög s’læmt á þess-
um slóðum, en þó heldur að
ganga niður.
Stefnan bendir til þess að verið
sé að reyna að draga kaífbátinn
tii Murmansk, en þar eiga Sovét-
ríkin mikla kafbátahöfn. Kafbát-
urinn veltur mikið og líklega er
vist áhanfarinnar ekki góð, em
ekki hefur sézt að neinn úr henni
hafi verið fluttur um borð í sov-
ézíku skipin sem eru þarna í
grenndinni. Skip frá bandarisku
strandgæzlunni er enn á þessum
slóðum, reiðubúið að veita aðstoð
ef óskað er.
Forsetinn lagði blómsveig að minnisvarða um finnska hermenn sem féllu í síðari heimsstyrjöld-
inni. Til vinstri er Heikki Hannikainen, ráðherra, herra Kristján Eldjárn og Erkki Sávy ofursti.
- Forsetinn í Finnlandi
Frambald af bls. 1
veUiraum fór fram stutt og há-
tíðleg athöfn, þjóðsönigvar
beggja landanna voru leiknir, og
forseti íslands kannaði heiðurs-
vörð úr finmska hemum. íslenzki
fáninn blafcti víða við hún, bæði
á fflugvellinum og á opinberum
byggingum í Helsinki.
Smygluðu
25
tonnum
af hassi
New York, 3. marz. AP.
LÖGREGLAN í New York
handtók síðastliðinn miðviku
dag tvo menm og eina konu,
sem hafa hjálpað til við að
smygla a.m.k. 25 lestum af
hassi frá Jamaica til Banda-
ríkjanna síðan 1968. Jafnframt
var byrjað að yfirheyra 2500
manns sem vinna á Kennedy-
flugvelli, en hassið hefur
komið um þann flugvöll.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar hefur verið
komið með 270 til 360 kíló af
eitrinu, þrisvar til fjórum
sinnum í viku, síðan 1968.
Ekki voru gefnar neinar upp-
lýsingar á hvem hátt þvx hef-
ur verið smyglað inn í landið.
RÆÐA
KEKKONENS
I'ramliald af bls. 3
Lífsmagn fólksims og seigla og
hæfileiki til þess að þroska um-
hverfi sitt á öllum sviðum lifsins,
eru undirstaða alls. Ég treysti
því að þjóðir vorar séu þessum
kostum búnar, ég veit að þér,
herra forseti, eruð sömu skoðun-
ar.
Er við gaumgæfum alþjóðaþró-
un eftirstríðsáranna, sjáum við
okkur til ánægju, að hið svokall-
aða kalda stríð milli stórvelda;
blokkanna er á undanhaldi. í
þess stað er komin samvinm.a,
sem einmitt nú er að stíga fyrstu
leitandi sporin.
Margar smáþjóðir, þeirra á
meðal ísland og Finnland, ha-fa
aidrei hagað stjómmálum sínum
samkvæmt takmörkum og regl-
um kalda stríðsins.
Jafnvel þegar samvinn-a yfir
hugmyndafræðileg landamæri
hefur verið talin draumur, eða
móðgun, höfum við leitað eftir
samvinmu, því að hún er bezta
trygging friðarin-s, og friðurinn
er undirstaða lífs vors sem
þjóða.
Tilgangurinm með öryggisráð-
stefnu Evrópu, sem við erum nú
að undirbúa, er einmitt tygging
friðarins. Bæði ísland og Finn-
land vinna heilshugar að því að
byggja upp þes-sa ráðstefnu.-
Að lokinni móttökuathöfninni
á flugveilinum var ekið til for-
setahallarinnar í HeLsinki þar
sem íslenzku forsetahjónin og
fylgdariið þeirra munu búa með-
an á heimsókninni stendur. For-
setahöllirl stendur við höfnina í
Helsinki og á sér merka sögu.
Hún var reist á 17. öld af auð-
kýfingi einum af borgaralegum
ættum, og 1812 keypti rússneska
keisaradæmið höllina og varð
hún upp frá því aðsetursstaður
stórfursta Rússakeisara i Finn-
landi.
Þegar Finnland hlaut sjádf-
stæði varð höllin að búsietustað
Finnlandsforseta eða þar til
Kekkonen varð forseti. Hann
hefur ekki viljað búa þar, held-
ur á sér bústað lítið eitt uitan
við Helsiniki, en höllin e-r áfram
hinn opinberi móttötoustaður
Finndandsforseta.
LAGDI BLÓMSVEIG AÐ
HETJUKROSSINUM
Kl. 4 að hértendum tiíma eftír
að forsetahjónin höfðu snætt
hádegisverð var haldið til kirkju-
garðsins í Helsimfci þar sem for-
setinn lagði bdómsveig að Hetju-
krosskmm sem svo er nefndur
og reistur var til mmningar um
fallna Finna i heimsstyrjöldinni
siðustu. Slika krossa má sjá í
kirkjugörðum í öllum borguim og
bæjum Finnlands, enda urðu
Finmar að þola mikla blóðtöku í
styrjöldinni, og er talið að þeir
hafi misst um 80 þúsund manns,
flesta á aldrinum 20 tid 30 ára. I
kirkjugarðinum í Heisiinki eru
leiði mörg þúsund finnskra her-
manma, og þar kaus Mannerheim,
hinn merki forseti Finna, að láta
grafa sig. Þegar forseti íslands
hafði lagt blómsveiginn við kross
inm staðnæmdist hann stutta
stund við leiði Mannerheims og
vottaði hinum látna forseta virð-
ingu sdna.
SENDIHERRA KÍNA
Þá var haldið að nýju tid for-
setahallarinnar þar sem forset-
inn og kona hans voru kynnt
fyrir fulltrúum erlendra ríkja
hér í Finnlandi. Meðal þeirra sem
forsetinn var kynntur fyrir vsr
sendiherra Kína í Helsinki, og
ræddust þeir lengur við en aðrir,
enda mun þetta vera í fyrsta
skipti sem forsetinn hittir fuli-
trúa Kína eftir að löndin tóku
upp stjórnmálasamband.
Kvöldverður Finnlandsforseta
tid heiðurs íslenzku forsetahjón-
unum hófst svo kl. 19 að hér-
lendum tima, og sátu um 140—
150 manms þá veizlu. Til hennar
var boðið ráðherirum hinnar nýju
jafnaðarmannastjórnar og ýms-
um háttsettum embættismönnum
ásamt sendiherrum Norðurlanda
þjóðanna. Við þetta tækifæri
fluttu forsetarnir báðir ræður,
sem birtast á öðrum stað í blað-
inu.
Á morgun heimsækir forsetinn
meðal annars þinghúsið hér í
Helsindd, þjóðminjasafnið, Finn-
landshúsið og verksmiðjur, en
um kvöldið situr hann kvöldverð
arboð finnsku ríkisstjórnarinmar.
Flugvél
tók bát
tók Sjöstjömuna VE 92 að meint-
um ólöglegum veiðum um tvær
milur frá landi undan Hjörleifs-
höfða í fyrradag. Báturinn kom
til Vestmannaeyja í gær og verð-
ur málið tekið þar fyrir.
Skipherra í flugvélinni var
Helgi Hallvarðsson.
N ORÐUR-IRL AND:
Eru mótmælendur nú
að hervæðast líka?
Ýmislegt bendir til að þeir hafi
hafið hryðjuverkastarfsemi
Belfast, 2. marz. AP.
ÝMISLEGT bendir til að öfga
sinnaðir mótmælendatrúarmenn
séu að búa sig undir hefndarað-
gerðir vegna morðherferða
kaþólskra hryðjuverkamana und
anfarnar vikur. Mótmælendur
hafa um margra mánaða skeið
látið lögreglu og herlið wm að
berjast við hryðjiiverkamenn-
ina, og haft sig lítt í frammi.
Að undanförnú hefur þó tekið
að bera á atburðum, sem talið er
að mótmælendur beri ábyrgð á.
Tveix kaþólikkar voru særðir í
skotárás í þessari viku, og voru
lögregla og herlið hvergi hærri.
Þá varð sprenging í hóteli, þar
sem kaþólskir stjórnmálamenn
hittust og fyrir nokkru fannst
sprengja í húsi, sem iþróttahreyf
ing kaþólskra ætlaði að nota til
fundarhalda.
Talsmaður stjórnarinnar hefur
sagt að fylgzt sé mjög náið með
þessari nýju þróun, en hingað til
hafi ekkert komið í Ijós sem
bendi til að um skipulagða starf-
semi sé að raeða. Mótmælendur
hafa að vísu myndað nokkur her
ská samtök, en í átökunum á
Norður-írlandi nú, hefur sama
og ekkert borið á þeim. Menn ótt
ast mjög afleiðingamar ef þau
fara nú að bæra á sér, því það
er ekkert tilhlökkunarefni ef
tvenn eða fleiri samtök hryðju-
verkamanna fara að keppa um
hvert er afkastamest. Samtök
mótmælenda geta tæplega jafn-
azt á við írska lýðveldisherinn
svonefnda, en átök og hefndarað
gerðir þessara tveggja aðila
gætu auðveldlega orðið að hroða
legu blóðbaði.
- Ted Willis
Franihald af bls. 1
fjárrækt er eina aðalatvinmu-
gireinin önnur og hún mjög 'lítil.
Engin þjóð önnur er eins háð
fiskveiðurn og Islendingar. Fisk-
urinn er undirstaða þeirra.
Svo sinemma sem árið 1951 var
fyrir hendi hætta á ofveiðum
við ísland,, sagði Willis lávarður
eninifiremur. Það kom að gagni, að
lanidhelgiin vair stækkuð úr þrem-
ur í tólf mílur, en nú þegar veið-
arniar væru í stað 300—500 tonna
togara stundaðair af risavöxnum
4000 tonna verksmiðjutogurum,
sem gætu verið um kyrrt á veiði-
svæðinu mánuðum saman, „sjúga
þeir upp fisikinin eins og ryksug-
ur og afleiðingin er sú einu sinni
enn, að mjög alvarleg hætta er
á ofveiði."
Margar þjóðir hefðu fiskveiði-
lögsögu, sem væri talsvert meiri
en 50 mílur. Fímmtíu mílma land
helgi myndi efla varðveizlu fisiki
stofmamina í þágu allra þjóða. „ís
lenzka ríkisstjómin er ekki
hneigð fyrir að halda áfram mál-
skrafi um þessa landhelgi og út
af fyrir sig, þá álasa ég henmi
etoki.“
Willis lávarður kvaðist vera
þeirrar skoðunar, að brezlca
stjórnin ætti að notfæra sér vilja
íslenzku stjórnarinnar til þess að
halda áfram viðræðum í því
skyni að finina lausn. íslendingar
hefðu hvað eftir annað hjálpað
brezkum sjómönnum, er togurum
þeirra hefðu hlekkzt á eða þeir
þarfiniast læknishjálpar. Út.hafs-
veiðar væru hættulegt starf.
„Island treystir á hjálp vinsam
legra þjóða og ég vona, að við
FLUGVÉL Landhelgisgæzlunnar muTlum aldrei framar lenda 1
þeirri aðstöðu, að við þurf um að
grípa til aðgerða gegn íslending-
um. ísland byggir ekki á hernað-
armætti heidur á siðferðislegum
rétti, sem ég held, að sé mjög
sterkur þeirra megin og byggist
á almennri skynsemi,“ sagði Will
is lávarður ennfremur.
Hann tók það fram, að brezk-
ir sjómenn hefðu veitt í mangar
kynslóðir í höfunum umhverfis
Island, en hann bætti við:
„Það er mjög mikil ástæða til
þess að vernda þessi mið, með
íslendinga sem gæzlumenn og á
þeim grundvelli held ég, að þvi
fyrr, sem við tölum við þá, því
betra.“
Boothby lávarður var sam-
mála því, að málsstaður Islend-
inga væri sterkur. Hann sagði.
að það bygðist á friðunaráætlun-
um og hann bætti við:
„Ég vona, að áður en áratug-
ur er liðinn, þá höfum við fund-
ið betri leiðir til verndunar. Það
þýðir stærri möslkva og veiði-
aðferðir sem eyðileggja ekki jafn
mikið og ég vildi óska þess, að
ríkisstjórnin hefði gert meira en
hún gerði í samningunum við
Efnahagsbandalagslöndin. Ef
ekkert er gert, óttast ég, að vanda
málið verði nær óleysanlegt, áð-
ur en áratugur er liðinn. Islend-
ingar eru I fullum rétti til þess
að krefjast þessara verndunar-
marka."