Morgunblaðið - 03.03.1972, Side 16
16
MORGUNBLAÐLÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972
C/tgefandi Nf Áivd<uc R&yfkijavfk
Frarrvkvæmdastjóri Harafdur Sveinsaon.
ft'rtsitióirar MattBiías Johanneasen,
EyJÓIifur Konréð Jórisson.
Aðstoðarritstjóri Stynnir Gunnarason.
Ritstjórnarfuittrúi Þiorbjjönn Guðmundsson
Fréttastjóri Björn JóBiannsson.
Auglýsinga&tjðri Árni Garðar Kristlnsson.
Ritstj'órn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sfmi 1Ö-100.
Augi'ýsingar Aðatetræti 6, sfmí 22-4430
Ásikri'ftargjatd 225,00 kr á imórtuði innaniands
I lausasöiru 15,00 kr eintakiö
BARNAFJÖLSKYLD-
UR VERST ÚTI
TTækkun landbúnaðarvar-
anna er táknrænt og um
leið geigvænlegt dæmi verð-
lagsþróunarinnar í landinu.
Þar er um að ræða þær
neyzluvörur, sem eru undir-
staðan í daglegri fæðu allrar
alþýðu, og án þeirra getur
enginn verið og hátt verðlag
á þeim leggst að sjálfsögðu
þyngst á þá, sem hafa fyrir
flestum að sjá, barnafjöl-
skyldurnar. Ef tekið er dæmi
af súpukjöti, hefur 1 kg
hækkað úr kr. 124.50 í kr.
165.50 frá áramótum. Skyr
hefur hækkað úr kr. 24.50 í
kr. 41 og 45% ostur úr kr.
142.50 í kr. 185.80. Þótt þessi
saga sé skýr, er hún ekki öll
sögð með þessu, þar sem
launþegarnir fá þessa hækk-
un ekki borna uppi í gegnum
vísitöluna nema að litlu leyti.
Þannig nam hækkun land-
búnaðarvaranna nú um mán-
aðamótin 2,14 vísitölustigum.
Af þeim verða launþegarnir
að bera 1,8 stig bótalaust.
En eins og fyrr segir eru
þetta ekki einu hækkanirnar,
sem skollið hafa yfir síðan
vísitalan var reiknuð út 1.
febrúar. Brauð og kökur hafa
hækkað, rafmagn, niðursuðu-
vörur, kex, harðfiskur, — allt
hefur þetta hækkað og meira
til — samtals nema þessar
hækkanir 0,64 stigum, þannig
að í heild er vísitalan nú orðin
2,78 stigum hærri en hún var
1. febrúar sl., eins og Gylfi Þ.
Gíslason vakti réttilega at-
hygli á við umræður á Al-
þingi fyrir skömmu. Á móti
þessu eiga svo launþegar að
fá 1% kauphækkun að þrem-
ur mánuðum liðnum. Það
kemur því ekki á óvart, að
forseti Alþýðusambands Is-
lands skuli segja það í við-
tali við Morgunblaðið í gær,
að þessar verðhækkanir hafi
komið „á óheppilegum tíma“.
Launþegar verða að bíða eft-
ir vísitöluuppbótinni í þrjá
mánuði, og fá þá hækkanirn-
ar bættar aðeins að tæpum
þriðjungi.
Ennþá svartara verður
dæmið, ef tekið er tillit til
þess, að kaupgjaldsnefnd hef-
ur kveðið upp þann úrskurð,
að afnám nefskattanna skuli
koma til lækkunar á kaupi,
þótt vitað sé, að skattabyrð-
in í heild hefur ekki létzt,
heldur þvert á móti þyngzt.
Og eins og fyrr segir bitnar
það fyrst og fremst á þeim,
sem fyrir flestum hafa að sjá,
barnafjölskyldunum. Það er
óleyst gáta, hvernig þeim
tekst nú á þessu fyrsta ári
ríkisstjórnar Ólafs Jóhannes-
sonar að láta endana ná sam-
an. Þær geta ekki sagt eins og
fjármálaráðherra: Ef halla-
rekstur á ríkissjóði er fyrir-
sjáanlegur á miðju ári, verður
honum mætt með nýjum
sköttum.
ÞÓRAR-
INN OG
VÍSI-
TALAN
jVTú er svo komið, að sjálfur
•*• ’ aðalritstjóri Tímans, Þór-
arinn Þórarinsson, tekur af
skarið um skattamálin í for-
ystugrein og segir þar, þótt
óheint sé, að skattalagabreyt-
ingarnar muni þyngja skatt-
byrðar hins almenna laun-
þega. Þannig segir í Tíman-
um í gær: „Fyrir tilmæli Al-
þýðusambandsins mun nú
verða tekið tillit til þess í
fyrsta sinn við útreikning
vísitölunnar, hvaða áhrif
breytingar á þessum sköttum
hafa í för með sér fyrir
launafólk. Þetta er glöggt
dæmi þess, hversu miklu
meira tillit er nú tekið til
hagsmuna launþega en áður.“
Þessi orð ritstjóra Tímans
verða ekki skilin öðru vísi en
svo, að hann hafi loks fallizt
á þá skoðun Morgunblaðsins,
að við útreikning kaupgjalds -
vísitölunnar skuli taka tillit
til skattbyrðarinnar í heild,
en ekki til einstakra þátta
hennar. En það var ekki gert
1. marz. Þess vegna stendur
það óhaggað, að svikizt var
aftan að launþegum, þegar af-
nám nefskattanna var látið
verka til lækkunar á kaup-
gj aldsvísitöluna.
Það er svo mál út af fyrir
sig, þegar Þórarinn Þórarins-
son skrifar tvær forystugrein-
ar um vísitöluna í sama tölu-
blaðið og ber Morgunblaðið
það á brýn í annarri, að það
haldi því fram, að oddamað-
ur kauplagsnefndar hafi ver-
ið undir áhrifum ríkisstjórn-
arinnar, sem sé rangt, en seg-
ir svo í hinni, að öðru vísi sé
að vísitöluútreikningnum
staðið nú eftir stjórnarskipt-
in en áður. „Þetta er glöggt
dæmi þess, hversu miklu
meira tillit er nú tekið til
hagsmuna launþega en áður
var,“ skrifar ritstjórinn. Hver
tók þetta tillit? Hvað er rit-
stjórinn að fara með þessu?
Eða er kauplagsnefnd ekki
skipuð með sama hætti og áð-
ur var? Það væri vissulega
fróðlegt að fá svar við þess-
um spurningum.
Athyglisverðar myndir
— væntanlegar hjá
EFTIR
BJÖRN VIGNI SIGURPÁLSSON
Nýja bíó hefur nýlega gert samn-
ing við 20th Century Fox um sýning
ar á rúmlega 40 myndum, sem gerðar
hafa verið á fjórum síðustu árum.
Eins og nærri má geta eru myndirn-
ar af ýmsu tagi, en inn á milli eru
allmargar, sem eflaust munu ylja is-
lenzkum kvikmyndaunnendum um
hjartaræturnar. Verður hér á eftir
stiklað á nokkrum, sem áhugaverðar
mega teljast.
Skal þá fyrst telja bandarísku
myndina MASH (gerð 1970) með
þeim Elliot Gould og Donald Suther-
land í aðalhlutverkum. Myndin lýs-
ir störfum lækna á vígvellinum i
Kóreustyrjöldinni, en engum dylst
að sögusviðið gæti allt eins verið Vi-
etnam vorra tíma. Myndin hlaut ein
róma lof erlendra gagnrýnenda, og
þykir ein bezta stríðsádeila, sem frá
Bandaríkjunum hefur komið um ára-
bil. Leikstjóri er Robert Altman, en
hann hefur á síðustu 3—4 árum hasl-
að sér völl, sem einn athyglisverð-
asti leikstjóri Bandaríkjanna.
Önnur stríðsmynd, engu ófrægari
er á nýja listanuon. Patton heitir hún,
og hlaut hvorki meira né minna en
sjö Oskarsverðlaun við siðustu út-
hlutun, ef einhverjir telja það með-
mæli nú orðið. Að minnsta kosti hafá
dómar verið misjafnir erlendis, en
allir eru þó sammála um að leikur
George C. Scott í hlutverki hins ann
álaða en umdeilda hershöfðingja sið-
ari heimsstyrjaldarinnar sé stórkost-
legur. Scott hlaut líka Óskarinn fyr-
ir framlag sitt, en hafnaði þeim, sem
Nýja Bíói
frægt er orðið. Myndin hlaut líka
Óskarinn sem bezta mynd ársins, svo
og hlaut leikstjórinn Franklin J. Sc-
haffner sömu viðurkenningu fyrir
bezta leikstjórn.
Áhugamenn um vestra fá einnig
eitthvað fyrir sinn smekk. Butch
Cassidy & The Sundance Kid (gerð
1969) með þeim Paul Newman, Robert
Redford og Katharine Ross er á list
anum. Þessi mynd byggir lauslega á
sannsögulegum atburðum og leikstjór
inn George Roy' Hill stelur blygðun
arlaust ýmsum annáluðum atriðum úr
sögufrægum myndum, svo sem Bonn-
ie og Clyde. Árangurinn er hinn
prýðilegasta gamanmynd að dómi er
lendra gagnrýnenda.
í Tora! Tora! Tora! gelta byssur
líka, en með öllium stórkostlegri hætti
en í vestranum hér á undan. Hér
greinir frá árásinni á Pearl Harbour
í síðari heimsstyrjöldinni, sem leiddi
til stríðsþátttöku Bandaríkjamanna.
Þetta er óskaplega dýr mynd, enda
hefur 20. aldar refurinn sjaldan lent
í öðru eins basli út af einni mynd.
Upphaflega var ráðgert að fá meist-
Jolin og Mary.
ara japanskra leikstjóra, Kurusawa
-til að annast leikstjóm að hálfu á
móti Richard Fleicher, en honum geðj
aðist ekki að bandarísku peninga-
mönnunum og hætti fljótlega afskipt
um af myndinni.
Hello Dolly er líka á listanum með
þeim Barböru Streisand og Waiter
Matthau í aðalhlutverkum, en Gene
Kelly stjórnar. Myndin er auðvitað
gerð eftir samnefndum söngleik, sem
gekík sem lengst á Broadway, og þó
að hún hafi fengið misjafna dóma,
fer ekki á milli mála að myndin er
hin ágætasta skemmtun.
Af öðrum toga er The Walkabout,
ný brezk mynd með þeim Jenny
Agutter (sem við sáum í The Rail-
way Children) og Lucien John. Hún
fjallar um baráttu tveggja hvítra
barna í óbyggðum Ástralíu, hvernig
þau kynnast náttúruöflunum og sigr
ast á þeim með aðstoð ungs Ástralíu
negra. Óvenjuleg mynd, sem hefur
hlotið mjög lofsamlega dóma. Leik-
stjóri er fyrrum einn fremsti kvik-
myndatökumaður Breta, Nicholas
Roeg, sem gat sér mikinn orðstír sem
leikstjóri fyrir myndina The Perform
er með Mick Jagger i aðalhlutverki.
Handritið gerði Edward Bond, hinn
sami og samdi leikritið Hjálp, er LR
sýndi nýlega.
Önnur nýstárleg mynd er Gimme
Shelter — annáluð heimildarmynd
um hljómleikaferð Rolling Stones í
Bandaríkjunum, þar sem sýnd er í
smáatriðum hið óhugnanlega morð
Djöflaenglanna á ungum pilti á ein-
um tónieikunum. Myndin hefur feng
ið einróma lof. í annarri nýrri mynd
The Hellstrom Chronicles er blandað
saman skáldskap og staðreyndum.
Myndin hefur að geyma stórkostleg
ar tökur af skordýralífi, enda fjall-
ar myndin um það hversu skordýrin
mega sín sameinuð í baráttunni gegn
manninum.
Nú verður að fara fljótt yfir sögu.
But«h Cassidy and Tlie Sundance
Kid.
Meðal athyglisverðra eldri mynda á
listanum má nefna Prime of Miss
Jean Brodie sem Maggie Smith hlaut
Óskarsverðlaun fyrir á sínum tíma;
100 Rifles, vestri sem er aðallega
frægur fyrir að Raquel Welch háttaði
þar hjiá blökkuieikaranum Jim
Brown; Stairoase, gamansöm mynd
um sambúð tveggja kynvilltra hár-
skera með þeim Richard Burton og
Rex Harrison í aðalhlutverkum und-
ir leikstjórn Stanley Donen; Unde-
feated frá því ágæta vestraári 1969
með John Wayne og Rock Hudson;
John and Mary um skyndiástir ungs
fólks með Miu Farrow og Dustin
Hoffman í aðaihlutverkum, leikstjóri
Peters Yates; Only Game in Town
um fjárhættuspil og gleðikonur með
Liz Taylor og Warren Beatty í aðal-
hlutverkum, leikstjóri Georg Stew-
en — umdeild mynd; Sicilian Clan,
prýðileg glæpamynd meðJeanGabin
og Alain Delon undir leifcstjórn Henri
Vemeuil; The Gamea um reynslu
maraþonhlaupara á Olympíuieiikiun-
um með Michael Grawford og Stan-
ley Baker undir leikstjórn Michael
Winner; tvær framhaldsmyndir um
Apaplánetuna; Myru Breckinridge —
Framhald á bls. 21