Morgunblaðið - 03.03.1972, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1972
21
— Björgunin
Franiliald af bls. 32
að sækja lögregluna, en fór
sjálfur að huga að Binna.
Gullborgin, báturinn hans
Binna, lá þarna utan á ísleifi
og ég fór um borð í fsleif,
sparkaði af mér skónum og
henti mér í sjóinn. Ég sá
strax Binna. Hann virtist
vera með einhverri rænu- og
hafði tak í bryggjunni, sem
hann missti í þann mund,
sem ég náði til hans. Svo
missti hann líka meðvitund.
Ég náði taki með annarri
hendi í spýtu í bryggjunni og
hélt Binna uppi með hinni.
Hann var þungur í sjónum og
mér fannst hjálpin aldrei ætla
að koma. Ætli ég hafi ekki
verið einar 15 mínútur með
Binna i sjónum.
Þegar hjálpin kom, var ég
alveg að niðurlotum kominn.
Guðmundur Guðfinnsson,
skipstjóri, stökk í sjóinn til
okkar og setti band á Binna,
en án hans hjálpar hefði mér
ekki tekizt það. Ég hafði mig
svo það upp í kaðalstigann,
að þeir, sem uppi voru, náðu
taki á 'handleggjunum á mér,
og drógu mig upp. Hjálpar-
laust hefði ég alls ekki kom-
izt einni tröppu ofar.“
Guðmundur sagði, að það
hefði verið mjög kalt í sjón-
um, „en ég dreif mig bara
heim og mér hefur ekkert orð-
ið meint af þessu.“
Guðmundur kvaðst mundu
heimsækja Binna í sjúkrahús-
ið um leið og liðan Binna væi i
orðin það góð, að hann gæti
tekið á móti gestum.
— Kvikmyndir
Framhald af bls. 16
sérleg umdeild mynd um pilt
sem breytir sér í stúlku með Mae
gömlu og Raquel Welch; nýja
útgáfu af gömlum myndum með
Laurel og Hardy; The Great
White Hope um fyrstu ögrun
negra við veldi hvíta mannsins
í hnefaleikum með James Earl
Jones undir leikstjórn Martin
Ritt; Little Murders, gerð eftir
samnefndri satíru Jules Feiffer
um ofbeldið i Bandaríkjunum
með Eliot Gould og Marica Rodd,
frumraun Alan Arkins sem leik-
stjóra; Vanishing Point undir
leikstjórn Richard Sasafian, þar
sem gefur að líta einn æðisleg-
asta kappakstur kvikmyndanna;
og Panic In Needle Park eftir
Jerry Scatzberg um eiturlyfja-
noyzlu.
— Útsvarið
Framhald af bls. 32
Skattstjórar skulu annast á-
lagningu útsvara, nema sveitar-
stjóm hafi ákveðið að annast
hana sjálf eða kosið til þess sér-
staka nefnd.
Aðstöðugjaldið er hækkað upp
í 65% þess hundraðshluta, sem
lagður var á árið 1971, og það
tekið inn í lögin, en áður voru
ákvæðin um það í bráðabirgða-
ákvæði.
Loks er 4. mgr. 23. gr. breytt
svo, að ef einstaklingur eða
hjón, annað hvort eða bæði, eða
ófjárráða börn þeirra, vinna við
eigin atvinnurekstur eða sjálf-
stæða starfsemi, skuli sveitar-
stjórn heimilt, ef sérstaklega
stendur á, að ákveða, að tekjur
slíkra aðila til útsvars verði
ákveðnar eftir því, sem ætla
megi, að laun þessara aðila, mið-
að við vinnuframlag þeirra,
hefðu orðið, ef þeir hefðu unnið
starfið í þágu annars aðila, en
í frumvarpinu, eins og það var
lagt fram, var þetta skylt
— Ólíft vegna
hita
Framhald af bls. 2
ur verið gerð fyrir skólann önn-
ur en sú, sem kennarar sömdu
sjálfir, án þess að fá nottkur laun
fyrir. Hins vegar þurfti í eiinu
tilviki að þýða þessa riámsskrá
yfir á ensku og fyrir það starf
borguðu fræðsluyfirvc’ö án at-
hugasemda. Tækniskð’.inn er að
mestu leyti sniðiinn eftir danskri
fyrinmynd tækniskólans í
Horsens. Hér eru gerðar sömu
kröfur til nemenda O'g þar, enda
þótt aðbúnaður allur í danska
skolanum sé hinn bezti, en í is-
ienzka skólanum algjörlega
ófullnægjandi.
Að lokum kváðust nemendur
vi'lja benda á það, að nú væru Is-
lendingar á aðlögunartímum
vegna samskipta við EFTA og
tollabandalög og því væri nauð-
syn að mennta sem flasta tækni-
fræðinga og á sem bezta hátt á
næstu árum, svo að íslendingar
geti verið viðbúnir því að keppa
við erlend stórfyrirtæki á ýntsum
sviðum.
— Fjórir
skotnir
Framliald af bls. 1
inn skömmu síðar með þrjár
kúlur i höfðinu.
Annar heimavarnarliði var
drepinn á heimili sinu að dóttur
Sinni viðstaddri og var hún skot-
in í annan fótinn.
25 kílógramma sprengja
sprakk í Londonderry og 43 særð
ust. Sprengjan sprakk í stolinni
bifreið, sem hafði verið lagt í
þröngri götu í miðbænum. Tjón-
ið er metið á 6 milljónir íslenzkra
króna.
*
— Frá Irum
Framhald af b)s. 17
signa sig í grennd við kirkjur, öku-
maðurinn líka. Þá slappaði ég af og
hélt mér ekki neitt, en hlustaði bara
og hló, eins og aðrir. Þetta var mjög
fyndinn maður.
Önnur þjóðfélagsmein en sam-
göngutregðan vaða hér uppi, og þau
eru sýnu átakanlegri. Fátækt er
mjög áberandi. Betlarar eru eins og
hráviði um allar götur. Litlir krakk-
ar, óhreinir, illa klæddir og bláir af
kulda, eru aigeng sjón hér seint á
kvöldin, þar sem þeir hafa hniprað
sig saman í krókum eða kimum með
betlikassann fyrir framan sig. Og ef
maður spyr þá, af hverju þeir séu
ekki farnir heim í háttinn, segjast
þeir ekki geta farið heim, fyrr en
þeir séu búnir að fá tiltekna upphæð.
Og því miður lítur ekki út fyrir að
upphæðinni sé eytt í mat, eða
föt, heldur í drykk handa foreldrun-
um og sannilega ættingjum. Og það
eru ekki bara litlir krakkar, sem líða
hér og þjást — við manni blasir líka
gamalt fólk, sem enginn virðist
skipta sér af.
ÞESSIR ELSKULEGU ÍRAR
En auðvitað lokar maður augunum
fyrir allri eymdinni og er að mestu
hættur að taka eftir veslingunum,
sem ráfa um göturnar. Og þegar þvi
takmarki er náð, má næstum því
segja, að Dublin sé paradís á jörð.
Hvers vegna í ósköpunum? mætti
spyrja, í anda Cícerós. Svarið hef ég
á reiðum höndum. Það er fólkið hér.
Þetta elskulega, snarvitlausa, trúaða,
drykkfeilda, lata, einlæga fólk, sem
fyllir strætin, skólann minn, búðim-
ar, krárnar og kaffihúsin. Gott fólk.
En með eindæmum málglatt.
Það ætti eiginlega að skylda alla,
sem hugsa sér að gerast klinískir sál-
fræðingar, eða geðlæknar, til þess að
dveljast á írlandi um sex mánaða
skeið, áður en þeir fá réttindi. Því
að fyrir utan þá námu af komplexum
og geðtruflunum, sem eru til staðar,
lærist hér sú list að hlusta. Að vísu
vill svo illa til, að uppáhaldsumræðu-
efni íra, trúmál og stjómmál, eru
ekki beinlínis minn vettvangur, og
þar af leiðandi hef ég oft þjáðst í
hljóði undir slíkum samræðum. En
ekki verður á allt kosið. Og ég hlýt
að játa, að þeir kunna sko að koma
orðum að hlutunum.
ÞESSIR ANDSKOTANS
ÍSLENDINGAR
Og auðvitað eru frarnir blessunar-
leg tilbreyting frá minnar þjóðar
fólki, sem er innhverfara en eggja-
rauða og hefur viðurstyggð á orða-
gjálfri (stjórnmálamenn og rithöf-
undar eru hér undamskildir). En þótt
undarlegt megi virðast eru fslending-
ar enn betri tilbreyting frá írum en
írar frá íslendingum. Það er nú einu
sinni svo, að þungu fargi er af mér
létt, þegar ég losna úr talsambönd-
unum hér og dvelst í ró og spekt i
kuldanum heima. Lifið fær á sig inn-
hverfari og hyggjuþyngri blæ. Leið-
inlegri, mætti kannski segja. Æ, ég
held ekki. Og ég get ekki að þvi gert.
Þegar öllu er á botninn hvolft, og
sannarlega er öllu á botninn hvolft,
held ég hreint og beint, að maður
komist aldrei álnarlengd frá uppeldi
sínu og upprunalegu umhvei-fi í nein-
um raunverulegum, andlegum skiln-
ingi (ef ég má taka svo andlega til
orða) — þrátt fyrir tilraunir, sem
bæði geta verið margar og harka-
legar. Og við það situr, eins og nú
verður frá skýrt.
Eftir langdvalir erlendis, hjá engl-
um frekar en mönnum, þar sem vin-
ir mínir meðal íra eru annars vegar,
hef ég komizt að þeirri hryllilegu
niðurstöðu, að svona yfir höfuð vil
ég hvergi frekar vera en meðal ís-
lendinga, þessara andskotans, inn-
hverfu, ókúltíveruðu durta, sem eru
eins og sprottnir út úr landslaginu í
Dimmuborgum eða Ódáðahrauni og
eru kaldari en klakinn í Vatnajökli
sjálfum. Og því fær víst ekkert
breytt.
— Hringvegur
Framliald af bls. 32
bréf samtals að fjárhæð 250
milljónir í allt að 5 flokkum á
árinu 1971 T975 og hefur fjár-
málaráðherra f.h. ríkissjóðs
ákveðið að bjóða nú út verð-
tryggð happdræltisskuldabréf, að
fjárhæð samtals 100 millj. króna.
Eru þau gefin út á handhafa og
hvert að fjárhæð 1000 krónur og
seljast á nafnverði. Falla bréf-
in í gjalddaga að 10 árum liðnum
frá útgáfudegi þeirra eða 15.
marz 1982. Engir vextir eru
greiddir, en vinningum úthlutað
i samræmi við útdrátt númera
úr öllum skuldabréfum landsins.
Fer dráttur fram einu sinni á
ári, í fyrsta sinn 15. júni 1972
eða alls 10 sinnum. Árleg fjár-
hæð vinninga er 7% af heildar-
fjárhæð skuldabréfanna. Þeir
eru í hvert sinn: 2 vinningar á
kr. 1 milljón, 1 vinningur á 500
þúsund, 22 vinningar á 100 þús-
und og 230 vinningar á 10 þús-
und, eða alls 255 vinningar á 7
milljónir.
Happdrættisskuldabréfin eru
visitöiutryggð og undanþegin
framtalsskyldu og eignasköttun,
en vinningar, svo og verðbætur
undanþegnar tekjuskatti og
tekjuútsvari.
Fjármunir þeir, sem inn kotna
fyrir sölu happdrættisskuldabréf
anna, skulu renna til greiðslu á
kostnaði af vega- og brúargerð
á Skeiðarársandi, er opni hring-
veg um landið.
Morgunblaðið hefur áður
kynnt þessar vegaframkvæmdir,
sem á að hefja upp úr péiskum
næstkomandi og ljúka á 1100 ára
afrnæli íslandsbyggðar 1974,
þannig að þá verði hægt að aka
hringinn um landið. Er það mik-
il mannvirkjagerð með þremur
aðalbrúm, yfir erfiðar ár, sem
í koma stórhlaup úr Grimsvötn-
am og Grænalóni, en þær liggja
yfir Núpsvötn, Súlu og Sand-
gigjukvísl og Skeiðará, alls 1700
m á lengd. Auk þess eru 17 km
af varnargörðum. Vegalengdin
sem enginn vegur liggur um er
34 km, en endurbyggja verður
stóran kafla vestan megin að
þeim stað. Er kostnaður áætlað-
ur 500 milljónir, miðað við að
framkvæmdir hefjist í vor og
ijúka megi þeim árið 1974. Verð-
ur nánar sagt frá þessu mikil-
væga mannvirki i blaðinu síðar.
— Opið hús
Framliald af bls. 4
lagakvöld, þar sem við feng-
um heimsókn þjóðlagasöngv
ara, diskótek og dans og
fjöldasöng og kvikmyndasýn-
ingar og ýmislegt annað þess
hóttar skemmtiefni. Við höf
um lika haft sérstakar „vök-
ur“, sem helgaðar voru á-
kveðnum viðfangsefnum. Ein
var helguð hungrinu í heimin
um. Þar var sagt frá hungr-
inu og hörmulegu ástandi víða
um heim, sýndar voru kvik-
myndir, og einnig var teikni-
keppni. Fengu unglingamir
þá örstuttan tima, 5 minút-
ur eða svo, til að teikna mynd
tengda hungrinu. önnur vaka
var um reykingar, áfengis-
neyzlu og fiknilyfjaneyzlu. —
Þar var m.a. sýnd kvikmynd
um þetta efni og einnig var
slagorðakeppni þar sem ungl-
ingamir bjuggu til slagorð og
setningar urri áhrif fíkni-
lyfja.“
Látum við hér fylgja nokk
ur sýnishorn: „Ef þú kaupir
eiturlyf, kaupirðu dauðann."
— „Fyrsti skammturinn get-
ur orðið valdur að dauða þín-
um.“ „Eiturlyf eru hægt sjálfs
morð.“ — „Ungt fólk, sem er
óánægt með tilveruna, ætti
ekki að fara út i eiturlyf og
flýja frá henni, heldur gera
eitthvað til bóta.“
Ný ndmskeið í keramik
að HULDUHÓLUM Mosfellssveit, eru að hefjast.
Upplýsingar í síma 66194 frá kl. 11—12 í dag og
1—2 næstu daga.
STEINUNISI MARTEINSDÓTTIR.
TUDOR rafgeymar
allar stærðir og gerðir í bíla, bátavinnuvélar
og rafmagnslyftara. Höfum sérstaka raf-
geyma fyrir rafdrifnar handfærarúllur með
P.g. sellum.
NÓATÚN 27, sími 2-58-91.
Hafnarfjörður — Hafnarfjörður
Hraunver auglýsir
Frá og með laugardeginurji 4. marz verður
verzlunin lokuð á laugardögum, en opin á
mánudögum til föstudags frá kl. 9—6 og
föstudaga frá kl. 9—7.
Vinsamlegast gerið helgarinnkaupin á föstu-
dögum.
HRAUNVER
ÁLFASKEO 115 SIMI 52690