Morgunblaðið - 13.04.1972, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.04.1972, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍ-L 1972 „FERÐIRNAR HAFA SANNAÐ GILDI SITT“ Spjall við Úlfar Þórðarson um augnlækningaferðir um helgar Úlf'ar Þórðarsoii. Olfar Þórðarson, aug'n- læknir, hefur sl. 3—4 ár far- ið i reglubundnar augnlækn ingaferðir til Norðurlands, sem eru með nokkuð nýstár- legu sniði. 1 viðtali, sagði Úlfar: „Upphafið að þessum ferðum var það að enginn augnlæknir fékkst til að taka við af Helga Skúlasyni, eir hann lét af störfum. Land- læknir fór þess þá á leit við mig, að ég tæki að mér að sjá um augnlækningaþjónustu í þessum landsf jórðungi. Það var hreinlega í björg- unarskyni að ég féllst á að taka þetta að mér, þvi að það var ótækt að heill landsfjórð ungur væri án augnlæknis- þjónustu. Landlæknir gerðist siðan milligöngumaður um að skipuleggja ferðirnar og skapa aðstöðu fyrir augn lælkni á stöðum, þar sem héraðslæknar og sjúkrahús- læknar voru, til að hægt væri að færa allt sem gert væri í sjúkrasögu á hverjum stað otg að læiknarnir gætu átt sinn þátt í að skipuleggja starfið og fylgjast með því.“ — Hvernig er þessum ferð um háttað? „Við fljúgum frá Reykja- vík á laugardagsmorgni, vinn um allan daginn og sunnu- dag, en komum aftur til Reykjavíkur á sunnudags- kvöldi, Oft er annar læknir með í förinni svo og aðstoð- arfólk til þess að forðast langa biðlista." — Hvers vegna voru helg- arnar valdar? „Þær eru eini tíminn, sem við höfum frí frá störfum hér í bænum. Auk þess er aðstað an á sjúlkrahúsunum oig í læknamiðstöðvunum laus til afnota þessa daga og einnig á fólk miklu auðveldara með að komast á staðinn um helg ar.“ — Hver er helzti tilgangur ferðanna? „Að veita fólki nauðsyn- lega læknisþjónustu á þessu sviði og jafnframt að leita að gláku og öðrum augnsjúk- dómum, alveg eins og gert er á læknastofum." — Hvernig hafa þessar ferðir tekizt? „Að mínum dómi hafa þær tekizt mjög vel, því að undir tektir fólksins hafa verið mjög jákvæðar." — Er hægt að framkvæma aðgerðir á þessum stöðum? „Já, ég hef gert aðgerðir á öllum þessum stöðum, minni- háttar aðgerðir. Allir þeir, sem þarfnast meiriháttar að- gerða, eru sendir til Akur- eyrar, eða ef þeir kjósa held ur til Reykjavíkur." — Hversu margar ferðir eru farnar á hverju ári? „Þær eru milli 15 og 20 ef meðtalin eru þau s'kipti, sem veður hefur heft för og tíðni ferðanna fer eftir biðlistun- um. Héraðslæknirinn eða sjúkrahúslæknirinn eru okk- air milligöngumenn. Fólkið hefur samband við þá og þeir láta skrifa niður biðlistann. Siðan hafa þeir samband suð ur og þá komum við.“ — Eru þessi ferðalög ekki erfið? „Vinnan er ekki svo mjög erfið, en auðvitað geta svona ferðir verið þreytandi Kannski er mesta spennan í að komast til baka á sunnu- dagskvöldi, því að það er oft erfitt að ferðast í litlum flug vélum að vetrarlagi. Hins veg ar hefur það hjálpað mikið, hve veturnir hafa verið mild ir undanfarið. Ferðirnar eru þýðingarmiklar og einnig skemmtilegar. Það má segja að þær hafi tviþætt gildi. Læknarnir á stöðunum hafa fengið áhuga á þessu og mjög gobt samstarf skapazt. Við berum saman bækur okkar hverju sinni og þannig verð- ur auðveldara að fylgjast með sjúklingunum. Hitt er svo, að ferðirnar hafa áróð- ursgildi, því að þegar læknir inn kemur reglulega hvetur það fólk til að leita til hans og láta lita á augun.“ — Þú sagðir að þessar ferð ir væru skemmtilegar? „Já, ég hef persónulega not ið þeirra mjög mikið. Ég hef kynnzt m.örgu fólki og kom- izt þannig í skemmtileg tengsl við landsbyggðina. Annars var ég einu sinni héraðslækn ir á Sauðárkróki og hef á ferðum mínum þangað endur nýjað gömul kynni. Það er einnig mjög skemmtilegt að starfa með læknunum úti á landsbyggðinni." — Ekki er þetta frambúð- arlausn á þessu vandamáli? „Nei, það þyrfti auðvitað að fá lækni til að ferðast reglulega um þetta svæði svo og alit landið um nokkurra ára skeið í samvinnu við land læknisembættið, en það verð ur erfitt að fá mann til slíkra starfa. Það er þó hugsanlegt að starfið verði fýsilegra, ef hægt er að koma upp góðum tækjabúnaði á stöðunum og skapa góða aðstöðu. — Hefur árangur þessara ferða verið góður? „Maður veit auðvitað ekki hvað fólkið hefði gert ef eng inn læknir hefði komið á stað inn, en við teljum sterkar lík ur á að sjútedómar hafi uppigötvazt fyrr en ellta hefði orðið, þó að ekki sé hægt að fuilyrða um það. En við höf- um orðið varir við að minna er um alvarleg tilfelli og við vitum að við höfum náð til fólks, sem annars hefði ekki leitað til læknis. Með þetta í huga tel ég að þessar ferð- ir, sem landlæknir skipu- lagði, hafi fýllilega sannað réttmæti sitt og gildi og ætti að mínum dómi að skipu- leggja slíkar ferðir á öðrum sviðum. Talið er að landnámsmemn hafi í upphafi flutt með sér talsvert af ómótuðu silfri og það verið notað sem gjaldimdð- iil milli manina, en þó einkum í viðskiptum við útlönd. Bn silfrið hvarf sujiám saman úr umferð og í staðinn kom skipti verzlun. Þessi skiptiverzlun fékk á sig lögbumdið form, svonefndan ! andis'/ísurei kndin g, sem gilti lanr't firam eftir ö’d tim. Að sjálfsögðu fluttist erlend íslenzk mynt frá upphafi í safni Seðlabankans. 200 ár liðin frá sláttu mynt- ar með nafni íslands Hálf öld frá útgáfu sjálf- stæðrar myntar á Islandi Ræða Birgis Kjarans, formanns bankaráðs Seðla- banka íslands á ársfundinum HÉR fer á eftir að meginefni tii ræða sú, sem Birgir Kjaran, formaður bankaráðs Seðla- banka íslands, flutti á árs- fundi Seðlabankans í gær: „Mér fininist ástæða til þess að geta þess að í ár eru nokk- uir tímamót í sögu islenzkrair mynitar. Nú mun að mestu vera lokið nýskipun íslenzkrar myntar og peniinigasláttu og jafnfiraimt vill svo til, að um tvö hu.ndruð ár eru liðin frá því að fyrst var slegim mynt með nafni íslands á, en það var árið 1771 og jafnframit er hálf öld síðan ísland hóf að gefa út sjálfstæða mymt. Það getur því varla talizt út í hött, að stiklað sé hér í mjög stór- um dráttum á báttum íslemzlkr ar myntsögu mynt til landisins, en í svo litlum mæli, að um almennt gangsilfur var efcki að ræða. Heimildir eru til fyrir því, að emskir „Half-Crowin“ gullpen- ingar, þýzfciir Kreuzthaler, Carolusthaler, daniskar Gull- rósenóbluir og fleiri tegundir frægra mynta hafi borizt hing að til lands og verið hér eitt- hvað í umferð. Þegar Dan'ir komu til sög- uninar var kaupmönmum gert að skyldu að sjá íslenzfcu efma- hagslífi fyriir mauðisynlegum gjaldmiðli. — En ekki verður sagt, að hinár erlendu kaup- menin hafi ávallt rækt skyldur 3Ínar í þessu efni, enda var hér stöðugur gjaldeyirishörg- ull. Flestum mun hafa verið ljóst, hvaða erfiðleikum slikur gj aldmiðilsskortur olli. Muin það ásamt öðru, hatfa leitt til þess, að stjórnin lét setja í um- ferð á íslandi damsika Courawt- seðla á árunum 1780 til 1804. Var íslenzk áletrun á bakhlið þeirra, senmilega til þess að vekja traust landsmaimna. Tölu vert var af þessum seðlurn hér lendis í umferð og urðu all- margir íslendinigar fyrir fjár- hagstjónd þegar pendingalhrue- ið varð í Danmörku árið 1813, að lokmum Napóleoms-styrjöld- unum. Þá urðu þessir seðlar sem næst verðlausdr. Eftir þvi sem atvinnuvegum íslendinga óx fiskur um hrygg og viðskipti og verzluin færð- ust í auka, varð gjaldimiðils- þörf meiri og skortur han/s til- fimn/aimlegri. Reyndu þá ein- stafclinigar með einhver j um hætti að leysa vandainin og um miðja síðustu öld tóku ýmisir kaupmenm að gefa út svo- nefnda varupeninga. Carl Franz Siemsen, kaupmaður í Reyfcjavík, reið á vaðið árið 1846. Gaf hanin út tvo peniruga, 16 skildimga og 4ra skildinga. Voru þeir og í notkun í Fæir- eyjum, en þar rak hanin einimig verzlun. Fleiri kaupmenn fet- uðu í fótspor hanis og kunn- astir urðu hinlr svonefndu Bíldudalshlumkar, sem gefndr voru út á vegum verzlunar Péturs J. Thorsteinissamair á Bíldudal. Sdðustu vörupening- arnir murau hafa verið gefnir út af Lefoliis-verzluninni á Eyrarbafcka um aldamótin. Þessi einkamyntslátta olli Birgir Kjaran. nokkrum ruglingi í peninga- kerfiinu, svo ófullkomið sem það var. Því var með löguim frá Alþingi árið 1901 lagt barun við einfcamynitsláttu. Hins vegar mátti enn halda áfram að slá svokallaða brauð- peninga, enda raotkun þeirra álitin aramans eðlis. Muinu hiiniir síðustu þeirra hatfa verið í gangi á vegum Karls Eyjólfa- sonar í Boluragarvík, fram til ársins 1932. Árið 1873 voru hiraar forrau norrærau myrateiniinigair lagðiar niðuir og sameigiiralegur miynit- fótur tefciran upp fyirir öll Norð uirlöcrad. Stofrauðu þau með sár mynitsamband, svonefnit Sfcand iniavisk Montunion. Var þá tekin upp sameiginleg fcrónu- mym/t og áfcveðið, að úr eimu kílógrammi af gulli miættá slá 2480 krómur. Jafrufiramit vair ákveðið, að hver mymtslátta um sig skyldi vera lögleguir gjaldimiðill á öLlum Norður- löndum, og þair með talið Is- land, enda talið hluti Dana- veldis. — Norðurlandafcróniur uirðu því héir ekki fáaéðlaír, etft- iæ þvi sem auiraráð julfcust, en Framhald á blls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.