Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.05.1972, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAl 1972 t 22-0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 14444 S125555 BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 Ódýrari en aárir! Shodii LEIGAN 44 -46. SiMI 42600. FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga — sími 81260. Tveggja manna Citroen Mehary. fimrwn rrvanria Citroen G. S. 8—22 manrva Mercedes-Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). Hópierðir _il legu í lengri og skemmn ferðir 8—20 farþega bílar. Kjartan ingimarsson símí 32716. Hf Útboð &Samningar Tilboðaöftun — samningsgwð. Sóleyjargötu 17 — sfmi 13583. STAKSTEINAR ' * Osæmilegar aðdróttanir ráðherra Halldór E. Sigrurðsson, fjár málaráðherra, gerir sig sekan um ósæmilegar aðdrótianir í garð Jóseps H. Þorgeirssonar, framkvæmdastjóra skipa- smíðastöðvarinnar á Akranesi í viðtali er Tíminn birti við fjármálaráðherra sl. laugar- dag. I viðtali þessu heldur ráð herrann því óbeint fram, að Jósep H. Þorgeirsson hafi í rauninni brugðizt trúnaði við hann og gefur í skyn, að fram kvæmdastjórinn hafi verið upphafsmaður að frétt, sem birtist í Morgunblaðinu sl. fimmtudag um, að lausn væri fengin á vandamálum skipa smíðastöðvarinnar vegna ó- happsins með skipalyftuna, sem mönnum er í fersku minni. Eftir að fjármálaráð- herra hefur rakið samtöl sín við forráðamenn skipasmíða- stöðvarinnar í síðustu viku segir hann: „Ég tók ekki íram í þessu samtali, að ég óskaði eftir því, að þeir skýrðu ekki opinberlega frá málinu fyrr en mér hefði gefizt kostur á að skýra frá því á Alþingi, af því að ég taldi það svo sjálf sagða kurteisi, að ekki þyrfti orðum að þvi að eyða. Hins vegar virðist Jósep H. Þor- geirsson ekki telja slika máls meðferð eðlilega eða æskilega. Það er hans að meta á hvem hátt hann vill koma fram við aðra menn og mun ég ekki hafa afskipti af því, þó að ég muni treysta honum með var- úð, ef til viðskipta milli okk- ar kemur.“ Þessi svigurmæli og aðdróttanir Halldórs E. Sigurðssonar eru ráðherran- um með öllu ósæmandi. Morg- unblaðið fékk ekki upplýsing ar um að lausn þessa máls væri fengin, frá forsvars- mönnum skipasmíðastöðvar- innar. Hins vegar var leitað álits þeirra á lausninni og þeirri fyrirgreiðslu, sem í boði var, svo sem vera bar. Það er nefnilega ennþá þann ig ástatt í þessu landi að til eru fjölmiðlar, sem bíða ekki eftir tilkynningu frá ríkis- stjórninni um það sem er að gerast, heldur leitast við að afla frétta með sjálfstæðum hætti og framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar gerði ekki annað en það, sein hon- um bar, að láta aðspurður í ljósi álit sitt á málefni, sem snertir heilt byggðarlag. Ráð- herranum væri því sæmst að biðja Jósep H. Þorgeirsson af sökunar á þessum aðdróttun- um í hans garð og taka aftur ummæli sín þar um. Hortugheit og hótanir En svo mjög hefur hinum dagfarsprúða fjármálaráð- herra runnið í skap vegna þess, að Morgunblaðið birti frétt um ákvörðun hans, áður en honum gafst timi til að skýra sjálfur frá henni, að hann heldur áfram með hort ugheitum og hótunum i garð forsvarsmanna skinasmíða- stöðvarinnar á Akranesi — Þannig segir hann: „Fyrst Jósep finnst svo lítið til þessa koma, þeirrar 23 millj. kr. út vegunar af aðila, sem eðli málsins samkvæmt hefur ekki sérstaka ástæðu til að bjarga þessu fyrirtæki þeirra feðga og bæta aðstöðu þess, þótt það sé hins vegar gevt vegna Akraneskaupstaðar og þess fólks, sem hefur atvinnu við fyrirtækið, þá ætti slíkum garpi, sem Jósep H. Þorgeirs son telur sig vera, ekki að verða skotaskuld úr þvi nð út- vega það fjármagn, sem á vantar til að koma fyrirtæki sínu i það horf, sem hann tel ur þörf á . . . . . . Ég lít ekki heldur svo á, að það sé hlutverk fjár- málaráðherra að standa að fjármagnsútvegun fyr- ir einkafyrirtæki, þó að þau hafi orðið fyrir óliöpp- um ..." Þessi ummæli eru Halldóri E. Sigurðssyni til skammar og þeir, sem haft hafa kynni af þessum ráð- herra, sem prúðmenni og góð um dreng, líta hann ekki sömu augum og áður. Til hvers hef ur hann verið kjörinn á Al- þingi fyrir Vesturlandskjör- dæmi og í þá miklu trúnaðar- stöðu, sem hann skipar nú, ef ekki til þess að veita liðsinni sitt, þegar vandi steðjar að, og þá alveg sérstaklega í hans eigin kjördæmi? Hefur ráð- herradómurinn stigið hinum fyrrverandi bónda og iðna þingmanni svo til höfuðs, að hann telji sér ekki skylt að veita þá aðstoð, sem embadti hans og áhrif gera honum kieift? Og það ætti Halldór E. Sigurðsson að vita, að mörg eru þau atvinnufyrirtæki í landinu, sem hafa notið meiri aðstoðar og fyrirgreiðslu frá hinu opinbera en það myndar- fyrirtæki, sem Þorgeir Jóseps son, hinn aldraði athafnamað ur á Akranesi, hefur varið lífi sínu til að byggja upp og er nú ein af megin undirstöð- um i atvinnulífi fjölmenns byggðarlags. Halldór E. Sig- urðsson, f jármálaráðherra, mætti gjarnan hafa þetta í huga, i þeirri upphöfnu til- veru, sem hann virðist nú halda til i, áður en hann lætur frá sér fara fieiri fúkyrði af því tagi, sem hér hafa verið gerð að umtalsefni. Skýrsla um umferöarslys 1971; 6.483 umferðarslys og 21 látinn SKRÁÐ umferðarslys á árinu 1971 urðu 6.483, þar af voru 789 slys með meiðslum eða höfðu í för með sér dauða. Slasaðir voru 1.068, en látnir 21. í skýrslu Um- ferðarráðs, sem komin er út um umferðarslys á árinu 1971 eru samanburðartölur slysa allt frá árinu 1966. Hefur tala Iátinna stigið frá 1968, er hún var í lág- marki, aðeins 6 Iátnir. 1969 lét- ust 12 í umferðarslysum, 1970 20 og eins og áður er getið 21 árið 1971. Árið 1966 var tala lát- inna 19 og 1967 var hún 20. Fyrsta skýrsla um skráningu umferðarslysa var gefin út 1969, og tók hún til umferðarslysa 1966 til 1968. önnur skýrsla, sem gefin var út af Umferðarráði, tók til skráningar umferðar- slysa 1969 til 1970. Skýrsla Um- ferðarráðs um umferðarslys 1971 er því fyrsta skýrslan, sem tek- ur til eins árs. Skráning slys- anna fór fram með þeim hætti, að Umferðarráð safnaði lög- regluskýrslum um umferðarslys frá öllum lögsagnarumdæmum, en verkfræðistofan Hagverk s.f. annaðist úrvinnslu og uppsetn- ingu á töflum. 1 skýrslunni eru birtar 18 töflur um umferðar- slys 1971. 85% skráðra slysa og óhappa urðu í þéttbýli en 15% í dreif- býli. Slysum í dreifbýli fækkaði nokkuð frá árinu á undan eða úr 878 í 727. Það vekur þó at- hygli að i dreifbýli hefur hlutfall slysa, með meiðslum og dauða sem afleiðingu, vaxið sl. 6 ár úr 14,7% 1966 í 21,2% 1971. Flest slys í þéttbýli í einum mánuði urðu í desember eða 12% allra þéttbýlisslysa ársins (687 slys og óhöpp). 1 dreifbýli er júlímán- uður slysahæstur með um 19% allra slysa og óhappa ársins (139 slys). Fæst slys urðu aftur á móti í apríl og á það bæði við um þéttbýli og dreifbýli. 1 þétt- býli 6,6% (381 slys og óhöpp) og dreifbýli 3,4% (25 slys og óhöpp). Timadreifing slysa, þ.e. á hvaða tima sólarhringsins slys verða, er óbreytt miðað við und- aníarin þrjú ár. I þéttbýli urðu flest slys milli kl. 13.00 og 14.00 eða 10% allra slysa og óhappa. 1 dreifbýli er fjöldi slysa á klst. varla marktækur. Á töflu um aidursdreifingu umferðarslysa má sjá, að 18 ára gamlir ökumenn eiga fyrstu hlut deild að flestum slysum eða sam- tals 669. Næst flestir eru 17 ára ökumenn eða 584. Ökumenn 30 ára 245 og 50 ára 217. Til skýringar skal þess getið, að með fyrstu hlutdeild er átt við þann ökumann, sem fyrst á hlut að því að skapa þá aðstæðu, sem leiðir til umferðarslyss, og án tillits til þess, hver er sekur eða verður fyrir tjóni. Þá liggja ekki fyrir samanburðartölur um fjölda ökumanna i hverjum ár- gangi og/eða ekna kílómetra. 98 börn 13 ára og yngri áttu fyrstu hlutdeild að slysi. 69,2% allra slysa urðu í dags- birtu og 46,7% slysanna í góðri færð (þ.e. þurr akbraut). Nokk- uð jöfn skipting er svo milli slysa í bleytu og snjó annars vegar og ísingar hins vegar eða um 24%. Af þessu má sjá, að flest slys- anna verða í góðri færð. 1 skýrslunni eru sérstaklega skráð umferðarslys í hverju um- daami fyrir sig. Samkvæmt þessari skýrslu verða um 55,6% allra slysa í Reykjavík, 9,2% á Akureyri, 5% í Hafnarfirði, 4,1% I Kópavogi, 3,4% i Ámessýslu og 4,2% í Guilbringusýslu. Á Stór-Reykja- víkursvæðinu urðu þvi um 69% allra slysanna, sem er um 2% hækkun frá þvi árið 1970. :j:;f"linaí-3LokL alladaga alladaga laugardaga laugardaga LOFTLEIDIR þriðjudaga miðvikudaga fimmtudaga sunnudaga mánudaga miðvikudaga föstudaga mánudaga föstudaga :

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.