Morgunblaðið - 01.06.1972, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.06.1972, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUH 1. JÚNl 1972 3 , Per Olof Sundman: Kjör norrænna mynd- listarmanna viða bág Býst við falli stjórnar Olofs Palme í kosningunum næsta ár SÆNSKI rithöfundurinn og þingmaðurinn Per Olof Sund- man er nú staddur hér á landi til þees að sitja ráðstefnu Norræna Listhandalagsins, sem haldin er að Hótel Esju þessa dagana. Per Olof er einn af kunnustu rithöfundum Norðiirlanda, en hann fékk sem kunnugt er bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs ár ið 1967 fyrir bók sina „Loft- sigiingin“. Á þriðjudag í fyrri viku fékk Per Olof Sundman alþjóð leg verðlaun bókmenntagagn- rýnenda, „Gullörninn“. Per Olof hefur um nokkurra ára skeið setið á þingi fyrir Miðflokkinn sænska, og eink- um beitt sér fyrir menningar- málum á þinginu. Þá hefur hann og sýnt mikinn áhuga á málefnum sem varða sam- vinnu meðal Norðurlandaþjóð anna, og nýlega fékk hann samþykkta i sænska þinginu fjárveitingu til menningarsam skipta íslands og Svíþjóðar. MorgunbJaðið hafði fyrir skömmiu stutt viðtal við Per Olof Sundman, og innti hann fyrst fregna af ráðstefnunni. — Ráðstefna þessi f jallar um stöðu myndlistarmanna í þjóðféiaginu í dag og á morg- un. Þar er m.a. fjallað um það með hvaða hætti iistamenn geta haft áhrif á stjórnmál á þann veg, að meira tillit verði tekið til menningarlegra þátta þjóðJófsins. Ég er sjáLfur ekki myndlistarmaður, en hins veg ar hef óg haft mikil afskipti af hinum ýmsu greinum menn ingarmála á mínum stjórn- málalega ferli, og var þvi boð ið hingað til þess að koma af stað og taka þátt í umræðum um stuðning hins opinbera til listarinnar. — Þann stuðning þarf að auka verulega, því að kjör myndlistarmanna á Norður- löndum eru víða mjög bág og sýna kannanir, sem gerðar hafa verið, að verulega stór hluti myndlistarmanna getur alls ekki lifað af vinnu sinni, jafnveJ þótt þeir séu mjög fær ir á sínu sviði. — Ég held þó, að þessi mól séu öll að færast tiil betri veg ar. Fóik er farið að gera sér grein fyrir þvi, að myndlist er ekki bara eitthvað til þess að horfa á, heldiur er hún nauðsyniegur þáttur i menn- ingarlífi þjóðarinnar. — Ég er þeirrar skoðunar, að ráðstefnur sem þessi séu mjög gagniegar á alian hátt og vel til þess faiinar að koma einhverjum umbótum til leið- ar. Per Oloí Sundman — Svo við vikjurn þá að stjórnmálunum. Nú verða al- mennar þingkosninigar í Sví- þjóð eftir rúmt ár. Býst þú við að stjórn Olofs Palme haldi vel'li? — Nei, því býst ég ekki við a.m.k. ef marka má þær kann- anir, sem gerðar hafa verið. Samkvæmt þeim er ástandið í dag þannig, að ef til kosninga kæmi þá hlyti Miðfiokkurinn um 30 af hundraði atkvæða, í stað 20 við siðustu þingkosn ingar. Hægri flokkurinn myndi væntanleila fá um 10 a.f hundraði og frjáisiyndi flokkurinn um 12 af hundraði. — Við verðum reyndar að taka tiH.it til þess, að þessar skoðanakannanir sýna auðvit að aðeins hvernig fóJk vildi kjósa, en ekki hvernig það myndi endilega kjósa þegar á hólminn kæmi, og flokksbönd in væru farin að segja til sín. — Hverja telur þú skýring- una vera á þessum öra vexti jyiiðflokksins? — í sænskum stjórnmálum hafa orðið mikil umskipti á síðasta áratug. Miðflokknum, sem áður var einungis bænda flokkur, tók að vaxa fyJgi á þéttbýlissvæðunum, og ná at kvæðum af frjálslyndum og sósíaJdemókrötum. — Flokkurinn hefur um larngt skeið beitt sér fyrir um hverfisverndarmálum, sem seinni hluta síðasta áratugar fóru að verða þung á metun- um hjá kjósendum. Fólk er far ið að gera sér grein fyrir, að í þeim málum verður að gera stór átök hið fyrsta ef umbót- um á að ná. — Þá höfum við beitt okk- ur mjög gegn þeirri miðstjórn arstefnu, sem framfyigt hefur verið af núverandi stjóm- völdum, og er það málefnið, sem skilur hvað mest á milli Miðflokksins og Sósíaldemó- krataflokksins. Valdinu heíur verið safnað saman á hendur miiðstjónnarkerfis í borgun- uan og orðið til þess að embætt ismannakerfið er mjög þungt í vöfum. — Við leggjum áherzlu á dreifinigu valdsins út um Jandsbyggðina, og viljum i því sambandi fela Jandsþinigunum mun meira vald en þau hafa nú. — Afleiðing þessarar stefnu miðvæðimgar er og, að fólk hefur safnazt saman til búsetu í borigum og bæjum og upp hefur komið stétt hinna „ný fátæku“. Það er fólk sem býr í rándýru húsnæði í útjaðri borganna, og þótt það hafi sæmileg laun, þá hrökkva þau ekki fyrir helztu litfsnauð synjum þegar greidd hafa ver ið ölfl skylduigjöld. — Þetta verður auðvitað ekki lagtfært á einni nóttu, en með þeirri stefnu sem nú er framfylgt, og fólkið er nú óð um að hafna, þá færist þetta alltaf á verri veg. — Ég býst við, að sú ríkis- stjórn, sem kemur til með að verða mynduð við næstu þing kosnim.gair mumi samamstamda af Miðfiokknum og Frjáls- lyndaflokknum, undir forystu Thorbjörns Fálldin, en ég á ekki von á að Hægri flokkur inn komi tii með að taka þátt i henni, þótt hann mundi styðja hana á þinginu. — Nú hefur þú nýlega feng ið mikla viðurkennimgu sem rithöfundur á alþjóðlegum vettvangi? Já, og ég er mjög stoJtur af þvi. Rithöfundur á sér alltaf tvö meginmarkmið. Annað er að öðlast frama meðal sinnar eigin þjóðar, og hitt að öðlast frama á alþjóðlegum vett- vettvangi. Það er mjög torsótt tfyrir Norðurlandabúa að ná seinna markmiðinu, þar sem þjóðirnar eru litlar og máBið þvi iitt útbreitt. — Því er það mikill heiður að hljóta alþjóðleg verðlaun •bókmenntagagnrýnenda. — Ég gat þó ekki tekið á móti verðlaununum sjáltfur, þar sem einmitt þennan dag voru mjög miklar umræður á þiniginu um fjárframlög til Jista. Ég held, að þetta haíi verið eini dagurinn á árinu, sem ég gat með engu móti komizt frá vegna anna. Seztir að á Bárðarbungu Byrja aö bora í dag Vísindaleiðamgrurinn á Vatna- jökli er nú biiinn að koma sér fyrir sunnan Bárðarbungii í nær 2000 m hæð með öll sin tæki. Hefur verið grafin 6 ni djúp gryf'ja og komið fyrir í henni raf- magnsbornum, sem á að nota til að bora gegnum ísinn. í gær var verið að refta yfir gryfjuna og átti að byrja að bora í dag, að því er Páll Theodórsson, eðiis- fræðingur tjáði Mbl. nm talstöð I gær. Á jök'iin'uim euu nú 10 manrnis fim Raunvisindastofinun og Jökila- ranmisókniatfélagiinu og munu þeir vinna við borunina. Býr tfóMdð í tjöldum, en lítið hús á sdeða er notað fyriir eldhús og geta aUÍT borðað þair im-nti, að sögn Páis. Fer vel um fólikið. Veður er ágætt, að jafnaði fimm sti'ga flros>t og nú að undanfö'mu þoika. En siíðdegis í gær var henni að lótta og sás't tffl fjailíla í Kveatk- fjöffluim og á GníimsfjaJJi. Mairkimið leiðanigursins er að má með bonuniuim saimtfelMum is- kjama niður í gegnum issikjöld- iran á Bárðarburagu, því voinir sitanda til að isinn geymi upp- lýsinigar um veðurfarssveiflur liðiinna alda á norðurhvefi. Einn- ig að ös'kulög, sem geymast í isnum, geti auikið við þekkimgu á jarðsögu íslands sil. 10—20 ald- ir og að þar megi fá sikrá yfir þrívetnisstyrk únkomunnar sið- ustu áratugi Enu því milklar von- ir bundnar við að takasit megi að ná upp iskjamanum i leið- angriraum á Bárðarbungu, hæði hérlendis og erlendis. Er reiknað með að uranið verið við borun í um það biJ mánuð. Leiðangurinn, sem lagði atf st'að um hvitasunnuna fékk ákatf- Jega óheppiilegt veður, því svo hlýtt var að mjög miklum erfið- leiikum reyndi'Sit bundið að koma öllum tækjum og fanaragri að jökili og svo upp neðstu jökul- rönd, vegna þess að jörð var auð og mffldl bleyta í snjóraum og jöklinum. Ferð Guðmundar Jónassonar með ensika ferðamenn á jökul- inra, sem hófst á hvitasunrau, hefur gengið vel. Og var Guð- miundur á leið niðuir af jöldi í gær. Máltíð á Bárðarbungu. Leiðangu rsmenn tylla sér fyrir ntan eld- hiisið, sem flntt var með á sleða og borða matinn sinn í góða veðrinn. Rannsóknarleiðangurinn hefur komið sér fyrir á Bárðarbungu í 2000 m hæð, þax sem verður heimili leiðangursmanna næstu 4 viknr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.