Morgunblaðið - 26.08.1972, Qupperneq 1
s
mm tTíi
LAUGARDAGUR 26. AGtJST 1972. 24 SÍÐUR.
OLYMPÍUBLAÐ MORGUNBLAÐSINS
leikar eiga að vera yfir allt
í DAG rennnr upp stór stund
í lífi margra æskumanna og
kvenna, en XX Ólympíuleikar
vorra tíma verða settir á hin-
um glæsilega Ólympíuleik-
vangi í Múnchen í Vestur-
Þýzkaiandi. Næsta hálfan
mánuðinn mun athyglin bein-
ast að þeim atburðum og
átökum, seim eiga sér stað í
íþróttakeppni leikanna, og ef
að likum lætur mun þar ýmis-
legt p\ænt gerast. Að leikum
loknum halda nokkrir ein-
staklingar til síns heima krýnd
ir lárviðarsveig sigurvegar-
ans, en fjöldinn mun eJigin
önnur verðlaun hljó.ta en þau,
að hafa verið þátttakandi í
mestu íþróttahátíð lieims.
Þær minningar verða örugg-
lega flestum þátttakendum
góður sjóður.
XJndanfarna viku hafa verið
ýmsar blikur á lofti og hart
deilt á fundum leiðtoganna.
Úrslitin í því þrátefli stjórn-
málanna urðu þau að peðinu
í leiknum — Rhodesíu — var
fórnað. Um þá ákvörðun liafa
verið skiptar skoðanir, og
má mikið vera, ef hún á
ekki eftir að verða hættulegt
fordæmi. Hins vegar ber því
ekki að neita, að mikill sjónar-
sviptir hefði orðið af Afríku-
mönnum, ef þeir hefðu verið
sendir heim. Kjarni málsins
er hins vegar sá, að Ólympíu-
stjórnmálaþras hafnir. Þar á
æska heimsins að geta mætzt
í leik, án tillits til litarháttar,
menningar eða tungu.
í tilefni Ólympíuleikanna
gefur Morgunblaðið út þetta
aukablað, þar sem fjallað er
um ýmislegt, sem efst eða of-
arlega verður á baugi á
Ólympiuleikunum. Meðal efnis
í blaðinu er spjall um ein-
staklinga, sem álitnir eru sia:-
urstranglegir í keppni leik-
anna, íjallað er um Ólympíu-
svæðið og hina lífsglöðu
Munchenborg, íslenzku þátt-
takendurnir í leikunum eru
kynntir, rætt er við þátttak-
endur á fyrri Ólympíuleikum,
spáð fyrir um úrslit í einstök-
um greinum, kort birt af
Ólympíusvæðinu, rakin dag-
skrá íslenzku þátttakendanna
og margt fleira.