Morgunblaðið - 26.08.1972, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1972
3
-c
Miinchen. 1 öll skiptin hafði
verið uppselt á völlinn.
— Það var kannað hvað það
tæki langan tima, að kom öll-
rum áhorifendiuim bunt af iieik-
vanginum, sagði leiðsögumaður-
inn, — og það tók aðeins 15
mínútur. Hann sagði líka frá
því að á frjálsíþróttamótinu
hefði komið dálítið babb í bát-
inn. í sleggjukastskeppninni
hafnaði sleggjan sex sinnum
uppi í áhorfendasvæðinu, án
þess þó að slys hlytust af. Og
sama hættan virtist vera á ferð-
inni í kringlukastinu. Verkfræð
ingar voru að brjóta heilann um
hvað væri hægt að gera til þess
að breyta staðsetningu kast-
hringjanna þannig að ekki væri
hætta á slysum, þvi vafalaust
vill þýzka framkvæmdanefndin
koma í veg fyrir að sagan úr
grisku goðafræðinni komi fyrir
aftur, en þar er sagt frá því er
kringlan þaut út úr hinni guð-
legu hendi Apollos í höfuð
bezta vinar hans, Hyakinthos,
sem þegar datt dauður niður.
Eftir Olympiuleikana bíður
þessa vallar annað stórt hlut-
verk í iþróttasögunni. Þar fara
fram úrslitaleikir í heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu
1974. Eftir þá keppni verður
völlurinn svo skírður upp og
í höfuð hins þekkta knatt-
spyrnusnillings Þjóðverja, og
verður Völlurinn síðan eftirleið
is heimavöllur knattspyrnuliðs-
ins Bayérn Miinchen
SIJNDHÖLLIN
Af mannvirkjunum á Ol-
ympíusvæðinu fannst mér einna
mest koma til sundhallarinnar,
þótt ekki fengi ég að koma þang
að inn, af þeirri ástæðu, að vest
ur-þýzku sundmennirnir voru
þar við æfingar. Plasthiminninn
yfir sundlauginni virtist gefa
sérstaka birtu, sem varð til þess
að allir litirnir í byggingunni
virtust miklu skærari en ella og
vatnið var bókstafleiga dimm-
blátt. Eftir Olympíuleikana mun
áihorfendasvæði laugarinnar
verða minnkað verulega, en síð
an verður laugin notuð áfram
fyrir meiri háttar sundmót sem
fram fara i Þýzkalandi.
HANDKNATTLEIKSHÖLLIN
Höllin þar sem lokakeppni
handknattleiksins mun fara
fram, er heldur ekkert smásmíði
Ekki man ég glöggt hvað leið-
sögumaðurinn sagði að mörg her
bergi væru í byggingunni, en
þau skiptu hundruðum. Og
þarna var sú aðstaða sem alla
iþróttamenn dreymir um. Upp-
hitunarsalurinn var t.d. stærri
og veglegri en mörg af þeim
íþróttahúsum sem við Islending
ar erum að burðast við að
byggja. I húsinu voru nudd-
stofur, sérstakt herbergi til lyft
ingaæfinga o. s. frv. Höll þessa
á að nota eftir leikana sem sýn
inigahöll og æfingahöil fyrir
frjáls'íþróttafólk, auk þess sem
handknattleikurinn situr í fyrir
rúmi við notkun hennar. Svo er
um hnútana búið að gólfið i hús
inu er raunverulega þrefalt, og
má skipta um það með því einu
að ýta á takka. Rennur þá eitt
•gólf undir áhorfendasvæðið en
hitt sem nota skal kemur í ljós.
OLYMPÍUÞORPIÐ
Olympíuþorpið í Miinchen,
sem sennilega er nú stærsta hót
el í heimi, verður annað heimili
12.000 -íþróttamanna og leiðtoga
í þrjár vikur. Byggingarnar eru
hannaðar af hollenzka prófess-
ornum J. B. Bakemans, og eru,
eins og önnur Olympíumann-
virki, einkar falleg á að líta.
Allt hefur verið gert til þess að
sem bezt fari um íþróttafólkið
meðan á léikunum stendur, en
samt hefur verið hugsað til fram
tíðarinnar, og þorpið skipulagt
þannig, að unnt verði að nota
húsnæðið í framtíðinni, ýmist
sem stúdentagarða eða sem ibúð
ir lítilla f jölskyldna.
Að venju er þorpinu skipt
nokkurn veginn í tvennt, eftir
því hvort karlmenn eða kven-
fólk á að búa I ibúðunum. íbúð
ir karlmannanna eru samtals
2.995, en kvennaíbúðirnar eru
1.727. I hverri einustu íbúð er
salerni, bað og sturta, og allar
eru íbúðirnar búnar smekkleg-
um húsgögnum.
„Engum á að leiðast,“ er það
slagorð, sem Þjóðverjamir vilja
gera að veruleika í Olympíu-
þorpinu. Matsalur þorpsins
verður opinn frá klukkan sex á
morgnana til klukkan tvö á nótt
unni og geta 2.700 íþróttamenn
og leiðtogar mátazt þar samtím-
is. Er áætlað að á meðan á leik-
unum stendur muni þátttakend
urnir neyta 147 tonna af kjöti,
26 tonna af fiski, 1,1 millj. egigja,
960.000 skammta af smjöri,
28.000 skammta af jarðarberj-
um, sólberjum og hindberjum,
23.500 banana, melóna og grape
frugt, 100 tonna af kartöflum og
11 tonna af hrísgrjónum, svo
eitthvað sé nefnt.
I Olympíuþorpinu verða svo
stórar verzlunarmiðstöðvar,
pósthús, bankar, þvottahús, skó
smiðir, læknamiðstöð og kirkj-
ur, bæði fyrir kaþólska og mót
mælendur. Fyrir skemmtanalíf-
inu verður séð með dansstöð-
um, kvikmyndahúsum og klúbb-
um.
BRÓÐIR TIMOFEI
Segja má að öllu Oberwiesen
feldsvæðinu, sem Olympiumann
virkin eru reist á hafi verið um
bylt á síðustu árum. Aðeins ein
vin er í eyðimörk nýbygging-
anna, og er hún skammt frá
sjónvarpsturninum mikla. Þar
stendur lítil og hrörleg kirkja,
éiign bróður l'imnfeis, sem er
rússneskur Gyðingur. Enginn
veit hvað er langt síðan
hann settist að á svæðinu, þar
sem hann spurði hvorki kóng
né prest að þvi hvort hann
mætti reisa kirkju sína þarna.
Það var ekki fyrr en farið var
að skipuleggja Olympdusvæðið
sem menn fengu almennt vitn-
eskju um bróðir Timofei.
Kirkjan hans stóð þar sem
leggja átti braut fyrir hindrun-
arhlaup hesta, oig bróður Timo-
fei var vinsamlegast sagt að
hafa sig á brott. Hann lét það
ekkert á sig fa, og hélt áfram
bænagjörð sinni i kirkjunni
þrisvar á dag. Að lokum gáfust
skipulagsyfirvöldin upp á hinum
þrjózka klerki, og ákváðu að
fjarlægja hann með valdi. Það
var þá að blaðamaður nokkur
komst í spilið, og skrifaði grein
i blað sitt, þar sem hann mælti
með því að bróðir Timofei fengi
að vera áfram í kirkju sinni. Og
það var eins og við manninn
mælt. Mótrpæli tóku að berast
til skipulagsyfirvaldanna hvað-
anæfa að úr Þýzkalandi, og
reyndar víðar að. Fjöldi manna
gaf sig fram sem bauðst til þess
að verja bróðir Timofei ef því
væri að skipta. Endalok máls-
ins urðu þau að Timofei var lát-
inn i friði, og heldur hann bæna
gjörðum sínum áfram eins og
ekkert hafi í skorizt. Hann er
nú orðinn nokkurs konar vernd
artákn leikanna, og fjöldi
manna leggur leið sina í heim-
sókn til hans. Og víst er að
bróðir Timofei þarf varla að
kvíða því að hann hafi ekki nóg
að bíta og brenna þann tíma sem
hann á ólifað. Margir hafa gefið
gamla manninum peninga, og
eins hefur hann haft tekjur af
því að skera blóm úr garðinum
sinum og selja.
GÍFIIRLEG AÐSÓKN
Það liggur fyrir, að aðsókn að
Olympíuleikunum í Múnchen
mun slá öll fyrri met í aðsókn
Olympíuleikanna. Fram að þess
um leikum hafði mest aðsókn
verið að leikunum í Tokíó, en á
þá seldust um 2 millj. aðgöngu-
miða. Á leikana í Mexikó seld-
ust um 1,9 millj. aðgöngumiða.
Þegar eru seldir um 3 millj. að
göngumiða af þeim 3,8 millj.
sem gefnir voru út i Munohen,
og af þessum miðum hafa um
900.000 verið seldir útlending-
um. Alllangt er siðan upp-
selt var á frjálsiþróttakeppn-
ina, sem virðist hafa mest seið-
magn allra iþróttagreina á Ol-
ympíuleikunum. Þá er einnig
langt siðan uppselt var á
flesta daga sundkeppninnar, og
á úrslitaleiki í handknattleik,
knattspyrnu, blaki og körfu-
knattleik.
Sala aðgöngumiða að róðra-
keppni, hesitaimennsku og glírnu
hefur verið einna daufust, en
þó gerir þýzka framkvæmda-
nefndin sér vonir um að einnig
þeir miðar muni seljast upp. Tii
Múnchen mun nefnilega koma
stór hópur fólks, sem enga miða
hefur fengið á vinsælustu
iþróttagreinamar í trausti þess
að geta keypt miða á svörtum
markaði. Rannsókn sem gerð
var á því hversu mikið af slík-
um miðum væri í framboði,
benti hins vegar til þess að
þorri þeirra sem keyptu miða á
leikana, gerðu það í þeim til-
gangi að fara þangað sjálfir til
þess að fylgjast með. Likur
benda því til þess að þeir miða-
lausu kaupi sig inn þar sem enn
eru til miðar, heldur en að fara
heim, án þess að hafa séð neitt
af dýrðinni.
Verð aðgöngumiða er mjög
misjafnt. Dýrustu miðarnir eru
að setningarathöfninni og loka
athöfninni og kosta þeir 100
mörk, eða 2.750 kr. islenzkar.
Ódýrustu miðarnir kosta hins
vegar um 10 mörk.
MARAÞONSETNINGAR-
ATHÖFN
Setningarathöfn leikanna I
dag mun taka langan tíma, þó
ekki væri af öðru en þvl
hversu langan ttma það tekur
fyrir keppendaskarann að
ganga inn á leikvanginn.
Gangan inn á leikvanginn og
kyrrstaðan þar mun verða mjög
erfið fyrir íþróttafólkið, ekki
sizt ef heitt er í veðri. Er bú-
izt við að margir falli í yfirlið
og hafa verið gerðar ráðstafan
ir til þess að aðstoða þá.
Setningarathöfnin mun verða
hin tilkomumesta. Aðalatriði
hennar eru hefðbundin, eins og
móttaka Olympíufánans, tendr-
un Olympíueldsins og Olympiu-
eiðurinn. Auk þess verða hin
venjubundnu ræðuhöld, þar sem
Avery Brundage kemur fram
fyrr hönd alþjóða Olympíu-
nefndarinnar og Gustav Heine-
mann forseti Þýzkalands flytur
ávarp og setur leikana.
3200 þýzk skólaböm munu
svo taka þátt í mikilli skraut-
sýningu. Þau eiga að hlaupa
inn á völlinn, drengirnir blá-
klæddir og stúlkurnar gul-
Framhald á bls. 20
Hratt fljúga þotur -
hratt fflýr stund
Nýtið þvf naumar stundir.
Notið hraðferðir Loftleiða
heiman og heim.
Njótið hagkvæmra
greiðslukjara Loftleiða.
Flugfar strax-far greitt síðar.
30 þotuferðir í hverri viku
til Evrópu og Ameríku
með DC-8
LOFTLEIÐIR
ICELANOIC
V