Morgunblaðið - 26.08.1972, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1972
OLL STEFNA ÞAU A EFSTA ÞREPIÐ
Janis Lusis — er hann setti hei msmetið í spjótkasti í sumar.
Verður hann
herforingi?
— til þess þarf guil í Munchen
Hljóti hinn 33 ára gamli
Rússi, Janis Lusis, gullverð-
laim í spjótkasti á Olympíu-
leikunum, getur hann gengið að
því sem gefnu að hann þurfi
að fá sér nýja merkingu á úti-
dyrahurð sína i Riga. Hann
mun þá ekki iengur verða lið-
þjálfi, heldur herforingi. —
Þannig fara Rússar að því að
viðurkenna góða íþróttamenn,
er haft eftir þjálfara Lusis.
Eins og málin standa núna
segja margir að ekkert nema
handleggsbrot geti komið í veg
fyrir að Lusis sigri á Olympíu
leikunum. Hann hefur einfald-
lega verið hinn mikli meistari
Hann hlaut bronsverðlaun i
Tokíó, gullverðlaun í Mexikó,
og Evrópumeistari varð hann í
Belgrad 1962, í Budapest 1966, í
Aþenu 1969 og 1971 í Helsinki.
Árið 1968 eignaðist Lusis
heimsmetið í spjótkasti með því
að kasta 91,98 metra. Ári siðar
varð hann að sjá af meti sínu
til Finnans Jorma Kinnunen, en
nú hefur hann endurheimt það
aftur með þvi að kasta 93,80
metra.
- Hefði það verið nauðsyn-
legt að kasta 100 metra til þess
að slá met Kinnunens, þá er ég
viss um að hann hefði gert það,
varð sænska spjótkastaranum
Jan Smiding að orði, er hann
horfði á metkast Lusis.
Um þetta gæti Kinnunen sjálf
sagt borið. I Mexíkó hafði hann
forystu fram á síðasta kast.
Taugaspennan var í algleymingi
hjá öllum keppendum, nema
Lusis. Þessi 180 sm hái og 90
kg þungi rússneski bjöm, hætti
þrisvar við að kasta, þar sem
honum fannst atrennan ekki
passa hjá sér. Loks flaug spjót-
ið úr hendi hans og kom niður
Gullið var hans.
Janis Lusis er kvæntur Elv-
iru Ozolinu sem sigraði i spjót-
kasti á Olympíuleikunum í Róm
árið 1960. Þau eiga einn son
sem heitir Dimitri. Hann á að
verða arftaki föður síns sem
bezti spjótkastari heims, að
sögn foreldranna.
Allt lagt
í sölurnar
Sigri finnska þjóðhetjan Juha
Vaátainen annað hvort í 5000
eða 10.000 metra hlaupi á Olym-
píuleikunum í Múnchen fer tæp
ast milli máia að jafnmikið hef-
ur aldrei verið greitt fyrir Olym
píugull fram til þessa. I þrjú
ár hefur Váátainen ltfað og
hrærzt fyrir íþrótt sína, — þrjú
löng ár, þar sem hinn mjög svo
áhugasami finnski skólakenn
ari, hefur dvalið við æfingar i
Brasiliu, Kenya og Suður-
Afríku, þar sem honum fannst
kuldinn í Finnlandi vera of mik
Ul. Hann hefur lifað sem atvinnu
íþróttamaður, en þó búið við
fremur þröngan kost.
Á Evrópumeistatamótinu í
Helsinki s.l. sumar varð Váátá-
inen að finnskri þjóðhetju, er
hann tryggði landi sínu gullverð
laun i 5000 og 10.000 metra
hlaupum. Sá árangur var þó hon
um aðeins áfangi á leið. Mark-
miðið hjá honum hefur alltaf
verið leikarnir í Múnchen.
Juha Váátáinen hóf feril sinn
sem spretthlaupari, og komst sið
ar inn í finnska landsliðið sem
800 metra hlaupari. Hann
gleymdist síðan í nokkur ár, en
átti síðan stórkostlegt „come
back“ fyrir tveimur árum og þá
sem langhlaupari.
Hinn ljóshærði finnski stór-
hlaupari er náttúrubarn í íþrótt
sinni. Sagt er að hreyfing-
ar hans minni á gazellu, en
Jafnaði met Snell
og Doubels
— ætlar að gera betur í Munchen
Ein nýjasta stjarnan á frjáls-
íþróttafestingu Bandaríkja-
manna er Dave Wottle. Fram að
bandariska úrtökumótinu fyrir
Olympíuleikana í Múnchen
hafði nafn hans verið lítt kunn-
ugt, en eftir mótið má segja að
það hafi verið á hvers manns
vörum, a.m.k. þeirra sem fylgj-
ast með frjálsum íþróttum. Á
mótinu liafði Wottle jafnað
heimsmet Peters Snells og
Ralplis Doubells í 800 metra
hlaupi, er hann hljóp á 1:44,3
min. Sagt er að aldrei áður hafi
farið fram annað eins 800 metra
hlaup, en sem dæmi um
keppnina má nefna að hinn
kunni hlaupari Jim Ryun lenti
þarna í fjórða sæti á 1:45,2 mín.,
og alls liliipu sjö hlauparar á
1:46,0 mín., eða betra.
— Ég þakka það séræfingum
mínum í 1500 metra hlaupi, að ég
náði þessum árangri í 800 metra
hlaupinu, sagði Dave Wottle að
keppninni lokinni. Fyrstu 400 m
voru hlaupnir á 52,0 sek. Það
sem eftir var hlaupsins var
sannarlega harður slagur og ég
var ekki um of bjartsýnn, þeg-
ar Ryun tók mikinn sprett og
náði forystunni.
— Það var Wottle sem keyrði
upp hraðann i þessu hlaupi, sagði
Jim Ryun, að því loknu. Það
var ekki nokkur lifandi lífsins
leið að fylgja honum eftir. Hann
drap okkur alla af sér
með sprettunum.
í þessu umrædda hlaupi hljóp
Wottle með derhúfu, rétt eins og
hinn kunni hlaupari Keino hef-
ur oft gert. Þegar Wottle var að
því spurður hvort hann væri að
apa eftir Keino, svaraði hann
því til, að svo væri ekki. Hann
hefði einungis verið að hlífa
krafturinn á skógarbjörn.
Váátainen, sem er vel greindur,
telur þó sjálfur að sinn aðal-
styrkleiki liggi í þvi hversu vel
honuim tekst að meta andstæð-
inga sína og aðstæður hverju
sinni, og frægur er hann fyrir
það að sprengja andstæðinga
sína í langhlaupunum með stutt-
um, hröðum sprettum.
Eftir leikana i Múnchen, mun
Juha Váátáinen hætta þátt'töku
í íþróttum, og einbeita sér að
stjórnmálum. Miklir iþróttamenn
eiga nefnilega nokkurn veginn
öruggan pólitískan frama i Finn
landi, og er Kekkonen, Finn-
landsforseti, eitt dæmið um það.
Á sínum yngri árum var Kekk-
onen landsliðsmaður í hástökki.
Juha Váátáinen er pipar-
sveinn, og um það atriði sagði
hann eftirfarandi eftir EM í
fyrra: — Engin kona getur ver
ið gift öðru eins „sportidjóti" og
ég er.
höfði sínu við brennandi sólskin
inu.
Dave Wottle hóf keppni 1970.
Hann náði fljótlega góðum ár-
angri, og undir lok keppnistíma
bilsins hafði hann hlaupið 800
metrana á 1:47,1 mín„ og míluna
á 3:59,0 mín. Sökum anna við
skólanám sitt keppti hann ekk-
ert árið 1971, en s.l. vetur tók
hann svo til við þær að nýju af
enn meiri krafti en fyrr. Hann
ætlaði sér að komast til Mún-
ehen sem keppandi í 1500 metra
hlaupi.
Rær einn á báti
*
- en er óhemju vinsæll á Italíu
David Wottle er 1,85 m hár
og vegur aðeins 63 kg. Hann
mun keppa bæði í 800 og 1500
metra hlaupum í Múnchen og má
mikið vera ef hann á ekki eftir
að leika e:tt af aðalhlutver'kun-
um í úrslitum þessara greina.
Dave Wöttle nieð Keinohúfu
jafnaði heinismetið í 800 metra
hlaupi á bandaríska úrtökumót
inu.
— Francesco Arese er pipar-
sveinn, og dálítið sér á báti,
sagði sænskur blaðamaður ný-
lega við starí'sfélaga sinn í
Stokklilómi, — en bann er mjög
vinsæll á Ítalíu, bætti hann svo
við. — Hann á þó aðeins vini
meðal íþróttamannanna, og þeir
hefja hann til skýjanna. Hann
er þekktur fyrir það hversu al-
þýðlegur og almennllegur hann
er.
Francesco Arese komst fyrst
verulega í sviðsljósið í fyrra, er
hann sigraði í 1500 metra hlaupi
Evrópumeistaramótsins öllum á
óvart. Með bros á vör seig hann
fram úr keppinautum sínum á
síðustu 20 metrunum og sleit
snúruna sem öruggur sigur-
vegari. Að hlaupi loknu varð
honum það fyrst að orði, að
af biöðum daginn eftir, en hún
er blaðasöliukona á ftaliu.
Áður en Arese sigraði í Hels-
inki var hann búinn að vera
einn fremsti hlaupari ftala i
fjögur ár. Hann gat þó aldrei
gert það upp við sig, að hvaða
grein hann ætlaði að einbeita
sér, og eftir keppnina kvaðst
hann ætla sér að taka þátt i
5000 metra hlaupinu í Múnchen.
En Arese mun siðar hafa
skipt um skoðun og keppir
í 1500 metra hlaupinu í Múnch-
en. Hann hefur haft hægt um
sig í sumar, og því lítið vitað í
hvernig formi hann er. Það
eina sem er vitað er það að
hann æfði sérstaklega vel i vet
ur og sumar. Áður hafði hann
verið eini meðlimurinn í íþrótta-
félagi sem mágur hans stofnaði
fyrir hann, en í fyrrahaust
gekk hann í stórt félag í Alco
til þess að geta notið leiðsagnar
þjálfara. Ef til vill tekst Arese
að koma á óvart og skjóta stóru
nöifnunum ref fyrir rass í
Múnchen, þ.e. að segja ef hann
er ekki einn af þeim.
Francesco Arese — keinur fagnandi að marld sem Evrðpu-
meistarl í fyrra.