Morgunblaðið - 26.08.1972, Side 11
MORGUNIBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1972
11
Hvirfilvindurinn frá
Kaliforníu
— hefur gengiö í gegnum
strangan skóla
Hvirfilvirulurinn frá Kali-
forníu, Eddie Hart, hefur feng-
ið þaA erfiða hiutverk á Ol-
yjnpiuieikumim að halda uppi
lreiðri Bandaríkjamanna í sprett
hlaiipunum, ásanit þeim Ray
Rohinson og Robert Taylor. Það
vom þeir sem komust heilir
geífnum hildarleik þann sem
háður var í 100 metra hlaup-
inu á úrtökumóti Bandaríkjaima
þar sem þeir hlupu á 10,1 sek.
10,2 sek kornu ekki til álita.
— Þrátt fyrir lélégt viðbragð
í 100 metra hlaupinu á úrtöku-
mótinu náði ég mér fljótt á strik
og um mitt hlaupið sá ég að ég
myndi sigra, sagði Hart eítir
keppnina, þar se<m hann jafnaði
heimsmetið og hljóp á 9,9 sek.
Sama tima fékk Ray Robinson
sem varð í öðru sæti.
Eddie Hart hefur verið frem-
Helzta von
Norðmanna
Helzta von jVorðmanna í frjáls
íþróttakeppni Olympíuleikanna
er langstökkvarinn Finn Bendix
en sem í suniar hefur sýnt mikið
öryggi á frjálsíþróttamótum, og
er nú alveg við 8 metra markið.
Það er ekki sízt vegna þess að
Bendixen liefur verið undir
stjórn bandarískra þjálfara að
Norðmenn gera sér niiklar vonir
um að átta metra stökkið — og
vel það — komi á Olympiiileikuu
um, en sem kunnugt er, þá eru
bandariskir íþróttamenn frægir
fyrir það að ná sínum bezta ár-
angri í jafnri og harðri keppni.
Finn Bendixen kom fyrst fram
sem langstökkvari þegar hann
var 17 ára, og vakti strax á sér
Finn Bendixen — kemst hann á
pall í Múnchen?
athygli. Sumarið eftir stökk
hann 7,46 metra, en bætti sig
fremur lítið næstu ár. Það var
ekki fyrr en í fyrra, þegar
hann var 22 ára, að árangurinn
fór batnandi, enda hafði hann
þá hafið nám við University of
Califomia í Los Angeles. Hon-
um tókst að komast í úrslit á
Evrópumeistaramótinu í Hels-
inki, ásamt landa sínum og
norska methafanum — Terje
Haugland.
í ár hefur svo Bendixen
blómstrað sem langstökkvari fyr
ir alvöru. Snemma í vor bætti
hann met Hauglands úr 7,87
metrum í 7,92 metra, og síðan hef
ur hann tæpast stokkið styttra
en 7,80 metra í keppni. Og
norska metið er komið í 7,97
metra, og það met setti Bendix-
en við fremur óhagstæð skil-
yrði.
Sjálfur segist Finn Bendixen
gera sér vonir um að vera í hópi
sex fyrstu á Olympíulerkunum í
Miinohen. — Róðurinn verður
þó þungur, en ekki er víst að
stökkva þurfi mikið yfir 8 metra
til þess að sigra, hefur hann
sagt, — langstökkskeppnin mun
reyna mjög á taugar manna, og
því hefur það verið einn nauð-
synlegasti þátturinn í undirbún-
ingnum fyrir leikana, að venja
sig við slíkt taugastríð. Og svo
virðist sem Bendixen hafi tek-
izt það bærilega. A.m.k. sigrar
hann fræga stökkvara hvað eft-
ir annað, m.a. á Bisletmótinu.
ur lítið kunnur til þassa, en
hefur þó verið í röð fremstu
spretthlaupara Bandarikja-
manna undanfarin ár, og sá
strangi skóli sem hann hefur orð
ið að ganga í gegnum á stórmót-
unum í Bandaríkjunum, reyhist
eflaust notadrjúgur þegar á
hólminn verður komið í Muneh-
en.
— Frá 13. maí s. 1. og fram
til mótsins í Eugene gerði ég
ekkert annað en að æfa, sagði
Hart, eftir keppnina. — Ég
þorði ekki öðru, og ég gerði mér
grein fyrir þvi að það gæti ráð-
ið úrslitum hvérnig maður væri
upplagður, þegar hlaupið hæf-
ist. Allt byggðist á þvi að vera
meðal þriggja fyrstu í hlaupinu,
— ef það tækist ekki þurfti mað
ur ekki einu sinni að hugsa um
farmiða á Olympiuleikana.
Eddie Hart er 1,78 metr. á hæð
og vegur 70.0 kg. Hann hóí
keppni fyrir alvöru árið 1969
og hljóp þá bezt á 10,4 sek., og
tvö næstu ár var 10,2 sek.
bezti tími hans.
Eddie Hart býst við því að
hættulegasti keppinautur
Bandarikjamannanna í 100
metra hlaupinu í Miinohen verði
rússneski Evrópumeistarinn Val
erij Borzov, og það eru örugg-
lega fleiri sem búast við því.
Kddie Hart — fljótur á sprettin um.
Heldur upp á af mælið
1 Munchen
og ætlar sér aö koma
þaðan með gull
1 dag, 26. ágúst á einn fremsti
íþróttaniaður heims 35 ára af-
mæli. Hann lieldur upp á dag-
inn i Olynipíuþorpinu í Mún-
chen, en þangað er hann kom-
inn til þess að keppa að gull-
verðlaununum i kringlukasti.
Maðurinn er Jay Silvester, sem
er heinismethafi í gTeininni,
ásamt Svíanum Ricky Bruch.
Báðir hafa þeir kastað kringl-
unni 68,40 metra.
Jay Silvester elur með
sér þann draum að verða fyrst-
ur manna til þess að kasta
kringlunni yfir 70 metra, en það
hafa reyndar bæði hann og
Ricky Brueh gert, en aðstæðurn
ar hafa ekki verið taldar lögleg
ar. Þannig kastaði Silvester í
fyrra 70,38 metra í lítilli banda-
rískri borg, sem heitir Lancast-
er. Það afrek fékkst ekki viður-
kennt sem heimsmet, þar sem
keppnin fór fram í hávaðaroki.
Fyrir leikana í Mexikó 1968
var Jay Silvester talinn likleg-
ur sigurvegari, en hann hafði þá
nýlega bætt heimsmetið i 68,40
metra. En Silvester varð fyrir
miklum vonbrigðum á leikunum.
Hann hafnaði i fimmta sæti.
Jay Silvester sem er trygg-
ingamaður að atvinnu á heima í
mormónaborginni Utah. Hann
byrjaði fyrir alvöru að fast við
kringlukastið 1955, og náði þá
fljótlega góðum árangri, 51,82
metrar. Fyrstu 10 ár keppnisfer-
ils sins var hann þó ætið i skugg
anum af öðrum og betri krirrslu
kösturum og það var ekki fyrr
en 1961 að hann kastaði fyrstur
manna yfir 60 metra, 60,72 m,
sem hann vakti veruiega
athygli.
— Síðan það gerðist hefur
mig dreymt um að verða fyrst-
ur til þess að sigra 70 metra
múrinn, hefur Silvester sagt, —
og í þeirri baráttu á ég núna að-
eins einn keppinaut, Ricky
Bruch.
Kastlag Silvester og Bruch er
talið mjög áþekkt. En Silvester
hefur þó meiri hraða í snúningn
um, og meiri sprengingu í útkast
Arf taki Balzers
— er 18 ára stúlka frá Berlín
Annelie Ehrhardt, 18 ára aust-
ur-þýzk stúlka á nú heimsnietið
1 1800 metra grindahlaupi, sá
í 100 metra grindahlaupi, ásaint
Pamelu Ryun-Kilborn frá Ástra
liu. Báðar hafa þær hlaupið vrega
lengdina á 12,5 sek., og að
margra áliti mun baráttan um
gullið i Múnchen standa á milll
þeirta. En það er sjálfsagt
þnngt lóð á vogarskáluntmi, að
þýzka stúlkan er 11 ámm yngri
en sú ástralska.
— Annelie Ehrtiardt er arf-
taki Karin Balzers í grinda-
hlaupinu, hefur þjálfari hennar,
Klaus Wúbbenhorst sagt. —
Hún byrjaði að æfa iþróttir 13
ára og var aðeins 14 ára, þeg-
ar hún komst fyrst á heimsaif-
rekaskrána í 80 metra grinda-
hlaupi með þvi að hlaupa á 11,5
sek. Af þessu má sjá að þarna
er mikið efni á ferðinni.
Annelie Ehrtmrdt, sem er 166
sm há og vegur 56 kg, þykir
hafa aflburðatækni yfir grindun
um og í þvi liggur meginstyrk-
ur hennar í hlaupinu.
Sem fyrr greinir vakti Anne-
lie fynst verulega athygli á sér
1968, er hún sigraði í 80 metra
grindahlaupi á Evrópumeistara-
móti stúlkna. 1970 hlaut hún
annað sætið í Evrópumeistara-
mótinu innanhúss í Vín, og það
sama ár setti hún heimsmet í 200
metra grindahlaupi kvenna. 1
fyrra hlaut hún svo silfurverð-
laun á Evrópumeistaramótinu í
Helsinki. Gullið féll þar í skaut
Karin Balzer.
— 1 Múnchen stefnum við að
gullverðlaunum, segir Kiaus
Wúbbenhoist. — Og reynd
ar heimsmeti iika. Annelie Ehr-
hardt, er eitt af stærstu tromp-
utm Austur-Þýzkalands í frjáls-
iþróttakeppninni.
Annelise Ehrhanl, A-Þýzkalan di sigrar í grindablanpinu &
Evrópunieistaraniótinu í Helsink