Morgunblaðið - 26.08.1972, Qupperneq 12
MORGUN'BLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1972
Lára Sveinsdóttir, Á,
nemandi, fædd 22. ágúst 1955 og
er yngsti þátttakandi íslands á
Olympíuleikunnni að þessu sinni.
Lára hefur sýnt miklar framfar-
ir í ár og ba-tt Islandsmetið í há-
stökki kvenna 7 sinnum. Núgild-
andi íslandsmet hennar er 1,69
m. Lára keppir í hástökki og er
fyrsta íslenzka stúlkan, sem
keppir í fr.jálsum íþróttum á
Oiympíuleiktim.
Bjarni Stefánsson, KR,
nemandi í MH, fæddur 2. desem-
ber 1950. Bezti spretthlaupari Is-
lendinga undanfarin ár. Beztu
tímar hans eru: 100 m hlatip 10,5
sek, 200 m 21,7 sek og 400 m 47,5
sek, en sá tími er íslandsmet.
Keppir í 100 m og 400 m hlaup-
um í Múnchen.
Erlendur Valdimarsson, IR,
skrifstofumaðtir h.já Loftleiðum,
fæddur 5. nóvember 1947. Bezti
kringlukastari Islands í mörg ár
og bætti nýiega Islandsmet sitt
í greininni, kastaði 60,82 m.
Keppir í kringlukasti.
Horsteinn Þorstttinsson, KR,
háskólanemi, fæddur 27. júlí
1947. Keppir í 800 m hlaupi, en
í þeirri grein hefur hann verið
okkar bezti hlatipari undanfarin
ár. Á metið í 800 m, 1:50,1.
rafvirkjanemi, fæddur 6. janúar
1952. Guðjón á nú öll íslandsmet-
in í bringusundi og keppir í 100
og 200 m bringusundi í Múnch-
en. Met hans í þesstim greinum
eru 1:10,9 og 2:32,9.
Giiðmtindur Gíslason, A,
deildarstjóri í tjtvegsbankanum,
fæddur 19. janúar 1943. Guð-
mundur hefur sett 151 íslands-
met. Að þessu sinni tekur hann
þátt i síniim 4. Olympíuleikum.
Hann á Islandsmet á ölltim vega-
lengdum í baksundi, fjórsundi
og flugsundi. Keppir í 200 og 400
m fjórsundi í Múnchen, en met
hans I þeim greinum eru 2:19,0
og 5:02,1 mín.
Finnur Garðarsson, Ægi,
læknisfræðinemi, fæddur 20.
marz 1952. Bezti sundmaður
okkar undanfarin ár. Á Olym-
píuleikiinum keppir hann i 100
og 200 m skriðsundi. I fyrr-
nefndu greininni á hann íslands-
met, 55,8 sek.
Friðrik Guðmundsson, KR,
nemandi, fæddur 4. marz 1955.
Fremstur Islendinga í langsund-
tim og keppir í 1500 og 400 m
bringusundi á Olympíuleikunum.
Á Islandsmetið í 1500 m, 17:38,0.
Giiðmundur Sigurðsson, Á,
verkstjóri, fæddur 9. júní 1946.
Guðmundiir er methafi i milli-
vigt, lyfti samanlagt 465,0 kg og
var metið sett á þessu ári. Guð-
nuindur er 10. á lista yfir lyft-
ingamenn í Evrópu.
Óskar Sigurpálsson, Á,
bakari, fæddur 21. desember
1945. Hann keppir í þungavigt
og bezti samanlagður árangur
hans, 482,5 kg, er íslandsmöt.
Óskar var fyrsti íslenzki lyft-
ingamaðurinn, er keppti á Olym-
píiileikum, en það var á Mexíkó-
leikunum 1968.
Axel Axelsson, Fram,
21 árs, lögregluþjónn. Hóf að
leika með meistaraflokki Fram
1968 og hefur Ieikið um 100 leiki
með flokknum. Hefur Ieikið 11
landsleiki og skorað 30 mörk.
8 unglingalandsleikir.
Agúst Ogmundsson, Val,
25 ára, skrifstofumaður. Hóf að
leika með meistaraflokki Vals
1964. Hefur leikið 24 landsleiki
og skorað 15 mörk. 4 unglinga-
landsleikir.
Birgir I'ínnbogason, IH,
markvörður, 24 ára, konnari. Hóf
að leika með FH-ingum 1966 og
hefur leikið um 130 leiki með
FH. Hefur leikið 28 landsleiki.
8 unglingalandsleikir.
Bjorgvin B.iorgvinsson,
23 ára, lögregluþjónn. Hefur ieik-
ið um 120 leiki með meistara-
flokki Fram, en þar hóf hann að
leika 1968. Hefur Ieikið 36 lands-
leiki og skorað 41 mark. 7 ungl-
ingalandsleikir.
Geir Hallstemsson, r H,
26 ára, íþróttakennari. Hóf að
leika með meistaraflokki FH
1964 og hefur leikið um 210 leiki
með meistaraflokki FH. Geir
hefur leikið 64 landsleiki og skor-
að 322 mörk. 4 unglingalands-
leikir.