Morgunblaðið - 20.10.1972, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
239. tbl. 59. árg.
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1972
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundur EBE-ríkjanna:
„Mótun nýs þáttar í sögu
Evrópu liggur 1 loftinu“
FRÁ MATTHÍASI
JOIIANNESSEN, ritstjóra.
París, 19. okt. — „Þegar við
erum setztir kringum samn
ingaborðið, mun lifna á
Ijósi Evrópu, Frakkland
mun ekki reyna að
blása á það ljós,“ sagði
Pompidou, Frakklandsforseti,
ekki alls fyrir Iöngu. Þegar
forsætisráðherrar hinna níu
Evrópulanda komu út af
fimmta fundi sínum upp úr
hádeginu í dag, mátti sjá af
andiitum þeirra, að Efnahags
bandalag Evrópu þreifar sig
ekki áfram í neinu myrkri
um þessar mundir.
Pompidou Frakklandsfor-
scti flutti aðalræðuna við
opnun þessa fundar æðstu
manna Efnahagsbandalags-
ríkjanna níu í morgun og
lagði áherzlu á samræmda
efnahags- og fjármálapólitík
aðildarríkjanna. Hann sagði
ennfremur, að Efnahags-
bandalagið hefði stuðlað að
„détente“ og öryggi í Evrópu
og ræddi sérstaklega um
tengsl þess við Sovétríkin og
Bandaríkin.
Heath forsætisráðherra Bret-
lands, lagði í sinni ræðu áherzlu
á, a@ Efnahagsbandalaig Evrópu
þyrfti að auka áhuga einstakl-
inga í aðildarlöndunuim á störf-
um bandaJagsins.
Forsætúnráðherra Bretlands
sagði, að fölik í EBE-iöndunum —
einkium uingt fólk — hefði ekki
fyrst ag fremst áhuga á efna-
hagsmálum, hve mikilvæg, sem
þau væru. „Allt, sem við gerum,
verður að sýna, að Efnahags
bandalagið er fyrst og síðast til
fynir fól'kið í Evrói>u,“ og lagði
hann áherzlu á, að EBE yrði lif-
andi lýðræðislegt samfélag, þar
sem þingræðisíeg þróun sæti i
fyrirrúmi. Heath sagði ennfrem-
ur að EBE ætti að stefna að þvi
að hafa sameiginlega utanríkis-
stefnu. Því væri ekki stefnt gegn
neinum heldur ætti það að koma
góðu til leiðar. Heath lagði eins
og Pompidou áherzlu á, að banda
laigið ætti að berjast gegn meng-
un.
Brandt kanslari Vestu.r-Þýzka
lands talaði sérstaklega um dýr-
tíðarmálin í ræðu sinni í dag eins
og búizt var við. Til að stemma
stigu við henni verði að sam-
ræma rmeir en verið hefur efna
hagsstefnu eimstakra bandalags-
rik.ja. „Fólk í lönduim okkar von
ast til þess, að á þessari ráð-
stefnu verði mörkuð stefna jafn-
Framhald á bls. 3.
Fmidur æðstu manna Efnahagsbandalagsins og ríkjanna sem bafa sótt um aðild í París.
Umræður í brezka þinginu:
Bretar hóta að senda herskip
ef „áreitni46 heldur áfram
Skorað á íslenzku stjórn-
ina að sýna stillingu
Einkaskeyti til Morgunbl.
London, 19. okt. — AP
Eftir Ed Blanche.
BRF.ZKA stjórnin varaði við þvi
í dag að brezk herskip yrðu send
á íslandsmið til þess að vernda
brezka togara ef islenzk varðskip
héldu áfrani að áreita þá. En
Anthony Royle aðstoðarutanrík
isráðherra sagði í Neðri málstof
unni að Bretar hefðu „sýnt mikla
stillingu" í deilunni og gerðu sér
ennþá vonir um að samkomulag
tækist.
Royle lagði hins vegar á það
áherzlu að þolinmæði Breta væri
ekki óþrjótandi og sagði: „Ég
skora á íslenzku stjórnina að
sýna eins mikla stillingu og eins
heilbrigða dómigreind og við höf
uim sýnt." Hann lýsti því yfir
að „ennþá væri tækifæri til þess
„Við Danir förum ekki með
fingurna í það mál46
— sagði Per Hækkerup um landhelgismálið
Fórnaði höndum og hristi höfuðið
Frá MATTHÍASI
JOHANNESSYNI, ritstjóra.
PAKlS, 19. okt. — A fundi
með norrænum blaðamönn-
um, sesm Anker Jörgensen,
forsíetisráðherra Danmerknr
og Per Hækkerup, fjármála-
ráðlierra, efndu til hér í
París uni kvöldmatarleytið,
var lögð áherzla á það, hvað
eftir annað, að Danmörk
yrði tengiliðnr milli Norður-
landanna og EBE. Hinn nýi
forsætisráðlierra Danmerkur
sagðist hafa talað máli Norð-
manna i háðegisverðarboði
leiðtoganna og hefði máli
hans verið tekið nokkuð vel.
Brandt hefði einkum tekið
nndir það, að aðstoða þyrfti
Norðmenn til að ná góðum
viðskiptakjörum hjá Efna-
hagsbandalaginu og sagði
Brandt að hann væri ánægð-
ur með að nú þyrft.i hann
eklti að halda fram málstað
Norííniamia.
1 tilefni af þessu spurði
fréttaimaður Morgunblaðsiins
Hækkerup og K. B. Ander-
sen, utanríkisráðiherra, hvort
þeir mundu beiita sér fyrir
því, að laind'helgisdeilan mdlli
Breta og Islendinga yrði leyst
og afstaða belgísku stjómar-
imnar gagnvart Islendingum
yrði ofan á innan Efnahags-
bandailagsins.
Per Hækkerup fórnaði
höndum. Blaðamaður Morg-
unblaðsins talaði við annan
Per Hækkerup en þann, sem
flutti ræðuna forðum á
pressiubal'linu. „Við Danir för-
um ekki með firaguma i það
mál,“ sa.gði hann og hrisfi
höfuðið. K. B. Andersen
sagði, að landhelgismálið væri
ekki til umræðu á þessum
fundi og Danir mundu ekki
ræða það, hvorki við Bireta
né iranan EBE. Haran benti á,
að Danir hefðu farið sér hægt
í þessu máli, en ef til vill
gætu þeir síðar reynt að miðla
Framh. á bls. 20
að semja um lausn með skjótum
og vinsaimleguim hætti" til þesa
að binda enda á átökin á hafinu
við ísland þangað til finna mætti
„endanlega lausn“.
f ræðu sinni sagði Royle, sem
gekk í gær á fund Níelsar P. Sig
urðssonar sendiherra til þess að
mótmæla síðustu atburðunum á
miðunum: „Ég tók skýrt fram
að við áskilduim okkur rétt . . .
til þess að gera þær ráðstafanir
sem við teldum við eiga til þess
að vernda skip okkar." Royle
sagði að atburðirnir væru „afar
Framh. á bls. 31
Achilles
kominn
á miðin ?
London, 19. okt. AP.
BREZKA freigátan AchUles,
seni sagt hefnr verið að sé
við Færeyjar til aðstoðar
brezkum fiskiskipiim þar,
var 1 kvöld sögð á siglingu
ekki langt frá 50 milna mörk
unum við ísland. Brezka land
varnaráðuneytið vildi ekki
staðfesta þetta í kvöld.
Efnahagsbandalagið fyrst
og fremst fyrir fólkið
í Evrópu, sagði Heath