Morgunblaðið - 02.12.1972, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1972
SAC3AIM
stofunni. Hann kom aftur um
hæl. — Það hefur ekkert ver-
ið snert. Hann hlýtur að hafa
orðið hræddur og forðað sér.
Hann hlýtur að hafa verið í fel-
um í bakdyrastiganum og þá
heyrt til Fioru. Haldið, að hún
hafi séð sig og þá skotið á
hana og forðað sér síðan. Það
virðist trúlegast.
— Nú kemur bíll, sagði Cal.
Það var læknirinn. Hann var
ungur og órakaður, eins og von
var til á þessum tima nætur og
leit þess vegna hálf draslara-
lega út. Ilann virtist líka syfj-
aður og órólegur, sem vonlegt
var, hugsaði Jenny, þegar kall-
að var á hann á þessum tíma til
að líta á skotsár.
Mér þykir þetta leitt, læknir,
sagði Pétur, sem tók eftir því
hvernig ástatt var hjá læknin-
um. —- Þetta hefur verið flakk-
ari — eða þjófur, sem komst
inn í húsið.
Það lifnaði yfir unga læknin
um. —- Náðuð þið i hann?
— Nei, hann slapp. Við höf-
um kallað á lögregluna.
Læknirinn hristi höfuðið. —
Það eru óþarflega margir slikir
hér um slóðir. Jæja, við skulum
líta á yður, frú Vleedam.
Þetta var í fyrsta skipti
sem Jenny hafði heyrt Fioru
kallaða frú Vleedam — hún
hafði alltaf hugsað sér sjálfa
sig með því nafni. Cal sagði: —
Ættum við ekki að koma henni í
rúmið, læknir? Er það ekki
þægilegra fyrir yður?
— Jú, auðvitað. Jæja, ef þér
getið nú gengið frú Vleedam.
— Já, það get ég áreiðanlega,
sagði Fiora, áður en augu
þeirra Blanche mættust, en allt
í einu hallaðist hún máttleysis-
lega upp að Pétri. — Æ, berðu
mig, elskan. Ég er með svoddan
svima og mátfcleysi. Ég hlýt að
hafa misst talsvert blóð.
Pétur tók hana í fang sér.
Læknirinn sagði: Ef svo er,
þá verðum við að gefa yður
blóð. Svo gekk hann fram í for-
stofuna með svörtu töskuna sína
í hendinni.
Fiora greip andann á lofti.
Æ nei, ég missti ekki það mik-
ið blóð. Ég er bara dálítið mátt-
laus.
— Slagæðin hjá henni er
sterk, ságði Blanche.
Læknirinn leit á Blanche.
Mér skilst, að þér hafið sett
þessar umbúðir á hana?
Blanche strauk einhverja
Hdngt eflir midncelli
M.G.EBERHART
ímyndaða hrukku á hnénu. —
Sagði Cal yður það? Já, ég hef
verið á námskeiði í hjálp í við-
lögum.
Mmmm, sagði læknirinn og
hélt áfraim fram í forstofuna.
Pétur greip Fioru í fangið og
bar hana út. Cal elti þau og
Jenny heyrði eitthvert manna-
mál utan úr forstofunná. Cal
sagði: Lofið þið mér að
hjálpa ykkur.
Pétur sagði: — Hún er ekki
svo þung.
Og svo sagði Fiora dálítið ön-
ug: Ég get gengið sjálf.
Þetta virtist gera út um mál-
ið. Svo heyrðist fótatak í teppa-
lögðum stiganum.
Blanche sat róleg og glæsi-
leg, líkust ketti við músar-
holu. Jenny hlustaði líka, en
loks þoldi hún þetta ekki leng-
ur. Hún þoldi heldur ekki þenn
an djúpa hægindastól, svo að
hún stóð upp, fékk sér annan
stól og kveikti sér i vindlingi.
Ljósgrænu augun í Blanche
horfðu á hana stundarkom. Svo
andvarpaði hún. — Æ, elskan
hún Fiora. Ég er hrædd um, að
hún sé óþarflega þver út af
þessu. Ég held henni væri betra
að kannast við, að hún hafi skot
ið á sjálfa sig fyrir slysni.
4. kafli.
Hún var ekki með neina
byssu.
Svo segir hún sjálf.
Jenny starði á hana. — Ertu
í einhverjum vafa um það?
Blanche hugsaði sig um and-
artak og yppti síðan öxlum.
Ég veit svei mér ekki.
Það ætti að vera auðvelt
að komast að því.
Hvernig þá?
Nú vitanlega með því að
ganga á hana.
Blanche brosti. Cal er bú-
inn að spyrja hana.
Nú, en leita þá að byss-
unni.
— I öilu þessu húsi? Blanche
brosti aftur.
Áttu raunverulega við, að
Fiora eigi sjálf byssu og hafi
skotið á sig með henni? Og fal-
ið hana síðan?
Það voru ekki mín orð.
Mér heyrðist þú segja það.
Ég skal vem alveg hrein-
skilin. Mér datt það í hug, af
því að ég get ekki annað en
haldið, að ef einhver hefði brot
izt inn í húsið hlyturn við að
hafa heyrt tii hans. Ég vildi
í þýðingu
Páls Skúlasonar.
bara óska þess, að Fiora vildi
tala við mig um það, sem henni
kann að liggja á hjarta.
Þú heldur, að hún hafi
gert það viljandi. En hvers
vegna?
Ég get ekki hugsað mér ástæð
una. Nema henni hafi lent eitt-
hvað saman við Pétur — eða
viiljað vekja meðaumkun hams
æ, það er ómögulegt að segja.
En Pétur veslingurinn virðist
vera talsvert sleginn.
Ef þú átt við, að sekt eða
samvizkubit skími út úr honum,
þá er það mesti misskilningur.
Hann lítur út aiveg eins og
hanm á að sér, hugsaði Jenny.
Alveg eins fallegur, sterkur og
sjálfsöruggur.
Blanche yppti öxlum. — Ég
held lika, að Fiora haldi fast
við þennan framburð sinn, að
einhver hafi skotið á hana. Ef
Fiora litla hefur tekið eitthvað
í sig, verður engu um þokað.
Það ættir þú bezt að vita, sagði
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi tii
föstudags ki. 14—15.
# Um leikskóla
„Umbótasinmið móðir“
skrifar:
„Velvakandi góður!
Ég á barn, sem verið hefur
á leikskóla hér i Reykjavík
nú í nokkur ár. Ég vi-1 taka
sérstaklega fram, að ég
er mjög ánægð með þessa þjón
ustu, sem ég hefi orðið aðnjót-
andi. Barnið er einbimi og við
búum í hverfi, þar sem aðstæð-
ur til leikja utanhúss eru ekki
svo góðar, að hægt sé að senda
bömin út ein sins liðs. Þannig
hefur leikskólavistin verið
ómetanleg bæði fyrir bamið
og okkur foreldrana.
Bamið, sem er drengur, hef-
ur einnig lært margt gagnlegt
og skemmtilegt í leikskólanum,
eignazt þar marga félaga og er
hænt að fóstrunum.
• Óumbeðnir styrkir
Ég hefi nú lýst með mörg-
um orðum ánægju minni með
leikskólann.
Eitt er það þó, sem ég er
hvorki ánægð með, né skil. Það
er hvers vegna þjónusfca þessi
er greidd niður, óumbeðið, að
einum fjórða.
Mér finnst ástæðulaust, að
annað fólk sé að borga leik-
skólavist fyrir mitt bam, þeg-
ar ég tel mig vel hafa efni á
því að greiða hana sjálf við
kostnaðarverði.
Ég hef reyndar ekki rætt
þetta mál við marga, en ég
kannast nægilega vel við
marga foreldra, sem eiga böm
í margnefndum leikskóla, til
þess að vita, að flestir þeirra
búa við svo góðan efnahag, að
þeir hafa vel efná á að greiða
leikskólavist bama sinna fullu
verði.
• Er lítillækkandi að Ieita
eftir aðstoð?
Nú er mér fullljóst, að efna-
hagur fólks er mismunandi góð
ur og þeir foreldrar eða for-
ráðamenn bama eru vissulega
til, sem þurfa að fá aðstoð við
að greiða gjöld á leikskólum
og dagheimilum. Ég veit um
nokkur dæmi, þar sem viðkom-
andi hafa ekki einu sinni efni
á að greiða þann hlufca gjalds
ins, sem þeiim er ætlað
að greiða. Þessir aðilar fá að-
stoð og hún er ekki talin eftir,
sem betur fer.
Mér finnst því ekki til of
mikils mælzt, að þeir sem að-
stoðar þurfi við, leiti eft-
ir henni. í því þarf ekki að
felast nein litiUækkun. Það
væri reyndar þokkalegt þetta
rórnaða velferðairsamfélag,
ef það gæti ekki veitt þá hjálp,
sem þörf er fyrir, nema með eft
irtölum.
Reyndar hef ég ekki trú á
því, að þeir séu margir sem
ta* *kju nærri sér að biðja um
aðstoð, ef með þyrfti, í því
styrkjaþjóöfélagi, sem við lif-
um i.
Ég tei, að það sé sóun á al
mannafé að greiða niður það,
sem þarflaúst er. Það fé, sem
hér um ræðir, væri miklu bet-
ur kornið annars staðar.
Umlxitasinnuð móðir.“
• Að heyra dýrin tala
Guðrún Jakobsen skrifar:
„Velvakandi góour og les-
endur.
Síðan „karlinn á kassanum",
leið, og aðrir vitnendur sinn-
ar trúar hættu að kalla synd-
ugar sálir í ,,ausbursfcræti“,
himnaríkis með söng og spili-
ríi, »r fátt um fína drætti i bæj
arlífi Reykvíkinga urn helgar.
Einn er þó sá bæjarsið-
ur við lýði enn —- að labba
í góðviðri niður að Tjör».
Og vissulega er það ánægju-
leg útiskemmtun í sól og sum-
aryl á fallegum sunnudegi, að
líta lítil börn í fylgd feðra
sinna eða eldri systkina gefa
öndum brauð, meðan aðrir fugl
ar hæfmsríkari, fljúga um
loftin blá, syngjandi — dýrr-
inn, dýrrinn, og mamma iagar
h ádegismatinn. Eftir allt sól-
skinið á einum sunnudegi, kem
ur svo bara mánudagur — og
hvað blasir þá við? Fjali'háir
hraukar af franskbrauðspört-
um fjöl.skyklunmar fljótandi á
vatnsborðinu, innan um plast-
poka, bréfadrasl og pakksadda
Tjarnarbúa. Það er öimurlegt
að mæta rannsakandi
augnaráði lífsreyndrar stokk-
andar, sem á sólskiinsdegi
í gær var pislarvott-
ur í „ódýrri" dæmisögu um,
hvei’nig á að vera góður við
bra bra á tjörninni — en spyr
að morgni: Er þetta fyrir yður
— eða fyrir oss fugiana!
Það líður að mestu gjafahá-
tíð mannanna, þegar kaupaug-
lýsingar blaða, útvarps og
sjónvarps dynja yfir heims-
byggðina — og boða lýðnum
með hverjum hætti honum ber
að gleðjast með glöðum.
Nú hef ég ekki löngun til
að stela senu frá þrautpínd-
um söluskattsgreiðendum. En
væri nú ekki gaman ef við, sem
gefum f uglabömum á sólskins
eða frídegi, hefðumst eitthváð
að hina dagana líka? Drægj-
um okkur til dæmiis eitt and-
artak í hlé úr götuhasamum
á Þorláksmes.su, settuimist nið-
ur við Tjöm í frosti og norð-
angarra, með glæný, ilmandi
toei'Ihveiitibrauð handa vanda-
lausum, undrandi sértióp líf-
vei'a -— ekki aðeins í snapi eft
ir þeirri fríaura andlitslyft-
ingu, sem öilum er föl, heldui'
til að gleðjast með glöðum á
endumýjaðan háfct? Jafnvel
harðskeyttur gæsasteggur, sem
lært hefur í hailæri að þekkja
vininn sinn, rennir goigginum
lárétt og mjúklega eftir manns
lófanum, líkt og maður kunni
á skmi tíð að stinga sér til
sunds í vatn, er vart náði 50
sentiimetra hæð á laugardags-
morgni í gömlu laugunum —
án þcss að dælda botninn.
Nú, nú. — Og þá er nú hægt
að syngja inn jóliin á fleiiri
vegu en leika jólasvein á anda
polli borgarinnar. — Eða hvað
segið þið húsmæður góðar, um
að heiga slatta jólabakstúrsdnis
að þessu sinni frostbólgnum
bei’fæfcldnigum loffcsins, sem
ekki hafa enn fengið bóðskort
in sín, og þurfa kannski sök-
um kulda og fannfergis, að
haida til í borginnd yfdr há-
tíðina, eins og hvert annað
ökutæki, fennt í kaf norðan-
lands? Ef í harðbakkann slær
sökum matlystugra jóla-
gesta. — Er ekki forkastanlegt
að fleygja molum af gestaborði
í úrga'nigsfcunrau heiimilisins,
þegair snæviþakinn liúsgíu’ður
er gæfudegri til síns brúks?
Og þá er koinið að hedmidiis-
vi/llfcum fjórfæfilingum götunn-
ar í dag, sem énginn útiask-
ur bíður effcir eins og annars
koniar búálfum. Ja, ef þau dýr
kynnu nú að lesa sér fcil, um
spillingu heimsins, i dagbiöðun
um, skyldu þau ekki segja si-
sona:
Harðsvíruðustu glæpaanenn
í þekn löndum þar sem dauða-
refsing er við lýði, fá gott *ð
éta fyriir aftöku. - - Mætfcum
vér aðrar sképnur, sakLausar,
njóta sömu hlunnipda á hedð-
ursdegd Frelsarans. — oöa er
hann ekki iausnari vor lika?
Og þá — þegar jarðairdýirið
hefur fengið síha saðningu
eins og mannsbamið, sem á að
gefa brauð, að bíta í á jólun-
um, getur einn eidífðar smáfugl,
sem máski húfcir einmana, kald
ur og hnípinn uppi í tné á að-
fangadagskvöld, sungið jóla
guðsspjailið:
Slá þú hjartans hörpusfcrengi
hrær hvern streng, sem ómað
fær. —
Á aðfarandi aðvenfcu,
Guðrún Jacobsen“.
• Tyríingar
Ilaiikur Óskar Ársælsson
hringdd. Hann leggur tid að að-
standendur væntanlegra Torfu
samtaka nefni sdg Tyrfinga, i
sfcað „þeir, sem stuðia vilja að
verndun og varðveizlu Bem-
höftstorfuwniar.“ „Tyrfingar"
er mikd'u þjálla og þægilegra.
VIÐ MIKLATORG OG
HAFNARFJARÐARVEG
HAPPDRÆTTI
S J ALFSTÆÐISFLOKKSINS
I»cir, sein hafa fengið heimsenda happdrætt-
ismiða, cru vinsamlegast heðnir að gera skil
hið fyrsta.
Dregið verður 9. desember um VOLVO 142
Grand Lux að verðmæti kr. 630.000.00.
Andvirði miða sótt, ef óskað er, sími 17100.
Opið til kl. 7 í kvöld að Laufásvegi 47.