Morgunblaðið - 02.12.1972, Page 32
LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1972
Laugavegi 178, sími 21120.
Norðurleidin:
Ofær með
kvöldinu
Mokstursmenn í Oddsskarði urðu
að ryðja sér braut gegnum snjóflóð
I GÆR var norðurleiðin íær til
Aknreyrar og’ raunar til Siglu-
fjarðar líka um miðjan daginn.
En þegar Ieið á daginn gekk á
Frest-
urinn út-
runninn
1 GÆR rann út frestur sá sem
yfirvöld hafa gefið flugfélögtm-
um — Fí og Loftleiðum — til
að koma sér saman um fyrir-
komulag á Norðurlandaflugleið
flugfélaganna.
Að ósk flugfélagaona hefur
nú Brynjólfur Ingó'lfssoin ráðu-
neytisstjóri, tekið sæti setm fuH-
trúi sarngöngumálairáðuneyfis-
iins í nefnd þeirri, sem skipuð er
fu'lltrúum flugfélaganna og fjalla
skai um þetta mál. Er gert ráð
fyrir áframhaldandi fundum á
neestunni, en að sögn Brynjólfs
Ingólfssonar verður reynt til
þrautar að ná saimkomu-
lagi mdlli fiugfélaganna umn þetta
mái svo að ekki þurfi að koma
tái einhliða ákvörðun yfrvalda
um skiptingu á flugleiðinni.
með versnandi veðrí. Siglufjarð-
arvegur lokaðist þá strax og í
gærkvöldi var ekkl útlit fyrir
annað en að norðurleiðin lokað-
ist með kvöldinu.
Á Austfjörðum var verið að
mioka Oddsskarð í gær, og komst
umferð á uoi miðjan daginn, en
undir kvöld féll töiuvert af snjó-
flóðuim á vegiinn á sama tíma og
versmamdi veður fór í hönd. Urðu
moksturisimenn að skilja við veg-
imn ófæran og raunar að ryðja
sér leið gegnum snjóflóð til að
koimast tii byggða.
30 staurar brotnir á
6 kílómetra kafla
Miklar símabilanir út frá Akureyri vegna
ísingar á línum og staurum
Akureyri, 1. desember.
AF vöidum ísingar hafa orðið
miklar símabilanir hér víða út
frá Akureyri en þó sérstaklega í
Þirigeyjarsýslu — út frá land-
símastöðvnnum Skógum og Foss
hóli og einnig er mikið um bilan-
„í samræmi við
venjur frjálsrar
blaðamennsku“
TVEIR ráðherrar ríkisstjórn-
arinnar hafa, svo sem kunn-
ugt er, hótað því að veita
ekki Morgunbiaðinu viðtöi
eða upplýsingar. Frá þessu
og orðsendingu ráðherranna
skýrir Alþýðublaðið í gær-
morgun, en þar segir blaða-
maður þess svo frá:
,,Þess skal getið, að blaða-
maður Alþýðublaðsims var
viðstaddur, er umrædd orða-
Skipti blaðamanms Morgun-
blaðsims og ráðherrainna
tveggja fóru fram í forstofu
Ráðherrabústaðarims við
Tjamargötu siðdegis mánu-
daginn 27. nóvember síðast-
liðirrn að loknum fundi við-
ræðunefnda ríkisstjóma Is-
lands og Bretlands um land-
helgismálið.
Blaðamiaður Morgunblaðs-
ins tók öli orðasikipti, sem
fram fóru á milM blaðamanna
og ráðherra, upp á seguiiband,
enda tóku ráðherrarnir aldrei
fram, að það, sem þeir segðu
blaðaimönnum þama í forstof-
unini, væri leyndarmál og ekki
til birtimgar opinberlega.
Þar sem blaðamenn, sem
staddir voru í Ráðherrabú-
staðnum umrætt síðdegi báru
sig eftir fréttum af landhelg-
isviðr'æðunum með ósköp
venjuiegum hætti og í sam-
ræmi við venjur frjálsrar
blaðamennsku, hafði Alþýðu-
blaðið eftdr ráðherrunum
svör við spumingum, sem
fyrir þá voru lagðar, daginn
eftir, þriðjudag, og hefur
þeim ekki verið mótmælt.“
ir írá Breiðumýri og Staðarhóli.
Þannig liggur línan alveg niðri
allt frá Vatnsenda í Ljósavatns-
skarði og austur fyrir Holtakot,
en þetta er um 6 km vegalengd.
Eru yfir 30 staurar brotnir á
þessum eina kafla. Víða annars
staðar hafa línur slitnað niður og
staurar brotnað.
Rafmagnslínur hafa einnig ver
ið að fara og staurar að brotna,
t. d. á nokkrum stöðum á há-
spennulínunni frá Laxá, en hefur
þó ekki enn valdið verulegum
rafmagnstruflunum.
Ástandið er verst í Ljósavatns-
skarði og norðarlega í Bárðar-
dal, og þar var eiginlega ekki
vinnuveður í dag, hvassviðri og
slydda. Viðgerðarflokkar hafa þó
verið að reyna að koma á sam-
bandi aftur, en það verk sækist
afar seint vegna veðursins.
Sv. P.
Morgunblaðið sneri sér í gær
til starfsmanna við mæliborð
Landssímans, og fékk þar þær
upplýsingar að þeim hefðu ekki
borizt fréttir af fleiri bilunum af
völdum ísingar norðanlands.
TEKINN
VIÐ
EMBÆTTI
BIRGIR ísleifur Gunnars-
son tók við embætti borgar
st.jóra í gær, og tók Ólafur
K. Magnússon, ljósmyndari
Morgunblaðsins, þessa
mynd af hinum nýja borg-
arstjóra á skrifstofu hans
fyrsta starfsdaginn.
Djúpi5:
Góð aflabrögð
— þrátt fyrir fádæma erfiðar
aðstæður til sjósóknar
ísafirði, 1. desember.
TÍÐ hefur verið með fádæmum
Leigubílst j ór ar:
Hækka
næturtaxtann
- án samþykkis verðlagsnefndar?
þeir
ALLAR horfur eru á því að
leigubílstjóriar í Reykjavík
hækki nú næstu daga nætur-
taxta sina, og verður dagvinnu-
tími þá st.yttur nokkuð um leið.
Var þessi samþykkt gerð á
mjög fjölmennum fundi bifreiða-
Viðræðugrundvöllur
óaðgengilegur
— segir utanríkisráðherra
MIKIL óvissa ríkir nú uim það
fcvwt af viðræðum verður milli
Ss3emzkra og v-þýzkra stjórnvalda
írt af landhelgismálin u en V-
Þjóðverjar hafa sem kunnugt er,
óskað eftir slíkum viðræðum í
Bomn.
Eimar Ágústssom, utanríkisráð-
herra, hefur skýrt frá þvi, að
V-Þjóðverjar hafi nú gert is-
lenzku ríkisstjóminmi greim fyr-
ir þvi á hvaða grundvéBi þeir
viilji ræða landhelgismálið.
Er sá grundvöllur mjög óað-
gengilegur að sögn utanríkisráð-
herra, og óvíst hvort viðræður
verða til nokkurs gagms ef V-
Þjóðverjar breyta ekki þeiim
grundvelli.
stjórafélagsins Frama, en ef til
hækkunar kemur er hún gerð
án samþykkis verðlagsnefndar.
Stjóm félagsins mun ekki
stamda fyrir þessard samþykkt,
og á skrifstofu Frama fékk Mbl.
þær upplýsiwgar i gær, að of
snemmt væri að hefja blaða-
skrif um hækkumma, Mnumar
mundu senniiegia skýrast r.Tn og
eftir helgima, enda verið boðað
til frekari fundarhalda immiam fé-
lagsins um þetta mál um helg-
ina.
23
dagar
til jóla
erfið til sjósóknar í nóvember,
stöðugur norðan og norðaust-
an fræsingur allan mánuðinn.
Þrátt fyrir erfið veður hefur sjór
verið sóttur af miklu kappi, og
hefur yfirleitt fengizt góður afli,
þegar bátar hafa komizt á sjó.
Hefur aflinn verið frá 6—8 lest-
ir að jafnaði í róðri, og komizt
hæst í 12 lestir á einum bát.
Aflahæstu línubátarnir við
Djúp eru: Mimir frá Hnífsdal
með 149,3 lestir í 19 róðrum, Vik
ingur III. frá ísafirði með 127
lestir í 20 róðrum og Sólrún frá
Bolungarvík með 125,7 lestir í 18
róðrum.
Afli togbátanna hefur verið
mun tregari en hjá línubátunum,
sem stafar fyrst og fremst af þvi
hversu erfitt þeir hafa átt með
að athafna sig vegna veðurfars-
ins. Aflahæstur þeirra er Guð-
björg frá ísafirði með 110,2 lest-
ir i 4 róðrum.
Mikil framleiðsla hefur verið
hjá öllum frystihúsunum við
Djúp og mikil vinna á öllum
stöðunum. Fiskurinn er yfirleitt
stór og góður. Línubátarnir hafa
beitt smokk og síld til helminga,
en alls hafa verið flutt um 300
tonn af smokkfiski til Djúps, sem
fengin eru af pólskum verk-
smiðjuskipum. — Jón Páll.