Morgunblaðið - 03.12.1972, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.12.1972, Blaðsíða 24
56 MORGUNBLAÐIÐ, SUiNNUDAGUR 3. DESEMBER 1972 „Hvöss gagnrýni sendiherra á utanrikisþjónustuna." — Vísir 17. nóv. sl. Pétur Eggerz LÉTTA LEIÐIN LJÚFA Hreinskilin frásögn af áratuga starfi í utanrikisþjónust- unni, þar sem höfundurinn hafði kynni af fólki í öllum tröppum mannfélagsstigans. Bók, sem hefur vakið gíf- udega athygli og umtal og fyrirsjáanlegt er að verður ein af mestu sölubókum ársins. — Margir misstu af bók Péturs Eggerz í fyrra, — „Létta leiðin Ijúfa er enn eftirsóttari. „Góð bók um grimm örlög." — V.S. í Tímanum. Jón Helgason ÞRETTÁN RIFUR OFAN I HVATT Listatök á mali og frásagnarstíl, hrikaleg og harmþung mannlífssaga. — Jóhann beri var einn frægasti fulltrúi hinna göngumóðu förumanna, ýturskapaður manndóms- maður sem grimm örlög og sviptibyljir mannlegra ástríðna firrtu ölfum heillum og knúðu gaddsporum fram á verganginn. — Saga Jóhanns bera mun snerta djúpt hvert mannsbarn, sem hefur hjarta í brjóstinu og veitir yfirdrepslausa innsýn í mannlegan skapadóm. Ragnar Ásgeirsson SKRUDDA I , Safn þjóðlegra fræða í bundnu og óbundnu máli, sem Ragnar hefur safnað á ferðum sínum um landið, er hann var ráðunautur Búnað- arfélags Islands. Ragnar er sjófróður og skemmtilegur sögumaður, með næma eftir- tekt og skarpskyggni á þjóð- leg einkenni. Þessi nýja Skrudda er stóraukin og endurbætt og í henni verða sögur úr öllum sýslum landsins. Oscar Clausen SOGN OG SAGA Nýtt safn fróölegra og skemmtilegra þátta um ævi- kjör og aMarfar, íslenzkar þjóð lífsmyndir, sem spegla mann- líf og menningu fyrri tíma. Hér kennir margra grasa, þvi þættirnir eru ólíkir að efni og úr ýmsum áttum, en allii fjalla um menn og málefni, sem forvitnilegt er að kynn- ast. — Bók, sem á erindi við al'la, sem láta sig varða sögu lands og þjóðar. Magnús Gestsson MANNLÍF OG MÓRAR í DÖLUM Hér er safnað saman sögnum og fróðleik, sem varðveitzt hefur í minni manna í Dala- sýslu. Margar snjallar svip- myndir eru dregnar upp, mörg skemmtileg tilsvör og sér- stæðar tiltektir. Sagt er frá fjölda manna í héraðinu, greint frá slysförum og svað- ilförum, merkum draumum og sýnum, fylgjum og mögn- uðum draugum og langur þáttur er um Sólheimamóra, — Fjölbreytt bók að efni og skemmtileg aflestrar. Eiríkur Sigurðsson MEÐ ODDI OG EGG MINNINGAR RÍKARÐS JÓNSSONAR Saga Ríkarðs er saga mikilhæfs listamanns, sem flest- um öðrum er rammislenzkari í list sinni. En Ríkarður er einnig frægur sögumaður og söngvinn gleðimaður, vin- sæll og eftirsóttur félagi. Eftirminnilegir verða vinir hans úr bakhúsinu við Grundarstiginn, en meðal þeirra voru séra Árni Þórarinsson, Jón í Skjálg, sem Ríkarðut telur fyndnasta mann sem hann kynntist, Sigvaldi Kaldalóns, Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnari o. fl. o. fl. — Þá gleymast ekki svipmyndir hans frá æskustöðvunum é Austurlandi og sögupersónur þaðan. — Minningabók Ríkarðs er stórskemmtileg. Ingólfur Kristjánsson PRÓFASTSSONUR SEGIR FRÁ MINNINGAR ÞÓRARINS ÁRNASONAR BÓNDA FRÁ STÓRAHRAUNI Séra Árni Þórarinsson prófastur á Stórahrauni er ein frægasta sagnapersóna síðari tíma. Þórarinn sonur hans, sem hér segir sögu sína, hefur í ríkum mæli erft frásagnargleði föður síns. Hann er glettinn í frásögn og hreinskilinn i bezta máta er hann segir sögur af „vondu" fólki og góðu á Snæfellsnesi, í Reykjavík og víðar, — stórum hópi samferðamanna, sem hann hefur haft kynni af á langri og litríkri lífsleið. — Hispurslaus og skemmtileg minningabók, full af glettni og gamansemi. Kormákur Sigurðsson DULSPAKT FÓLK Sonarsonur Haralds Níelsson- ar, föður spiritismans á ís- landi, sendir frá sér fyrstu bók sína um dulræn efni. — Menn láta sig flest annað meira varða en uppruna sinn og tilgang þess lífs, sem þeir lifa. Kormákur leitast við að svara áleitnum spurningum í bók sinni og hann fjallar um þessi mái af íhygli og þekk- ingu. En það, sem e. t. v. vek- ur mesta athygli lesandans, er viðtal hans víð völvuna Þorbjörgu og skýringar hennar á árunni, áhrifum hennar, útgeislun og útstreymi. — Nýr höfundur, málefni, sem alia varðar. Hafsteinn Björnsson SÖGUR ÚR SAFNI HAFSTEINS MIÐILS Einstæðar og ómetanlegar bernskuminningar hins kunna miðils, eigin frásögn hans ai fyrstu kynnum af duirænum fyrirbærum og lýsing hans á aðstæðum og lífsviðhorfum, sem mótuðu persónu hans á viðkvæmu æviskeiði, þegai hann lifði nánast í tveimui heimum. — I síðari hluta bók- arinnar segir fjöldi nafn- greindra manna frá merkum draumum og ýmiss konar dulrænni reynslu, sem þeim hefur reynzt mikilvæg og í sumum tilfellum ómetanleg og fært þeim heim sanninn um framhaldslíf að jarðvistardögum loknum. — Gagn- merk bók og ómetanleg fótki sem trúir. Skúli Guðjónsson á Ljótunarstöðum HEYRT EN EKKI SÉÐ Hvernig er að vera blindur? Hvernig skynjar blindur maður umhverfi sitt? Hér segir blindur maður, sem flýgur til fjarlægs lands í leit að lækningu, ferðasögu sina. Frásögn hans er sérstæðasta ferðasaga, sem skráð hefur verið og gefin út á íslenzku, — skrifuð al hinni óvenjulegu og næmu athyglisgáfu, frásagnargleði og ritsnilld, sem Skúli er kunnur fyrir. ISLENDINGA SÖGUR MEÐ NÚTÍMA STAFSETNINGU í útgáfu Gríms M. Helgasonar og Vésteins Ólasonar Og nú er einnig hægt að fá bækurnar með afborgunarkjörum — aðeins 500 krónur á mánuði. Þessi eina heildarútgáfa íslendinga sagna og þátta, sem fáanleg er með þeirri stafsetningu sem lögboðin er í landinu, hefur hlotið almennt lof allra gagnrýnenda. „Þessi útgáfa er prýði á hverju heimili og þvi meiri hollvættur, sem hún er betur lesin". — Andrés Kristjánsson í Timanum. „Það er einmitt höfuðkostur hinnar nýju útgáfu hve sögurnar verða aðgengilegar og aðlað- andi að lesa þær í þessum bókum". — Ólafui Jónsson í Visi. Elínborg Lárusdóttir FÖRUMENN Þessi skáldsaga er eitt helzta ritverk hinnar mikil- virku og vinsælu skáldkonu. Þetta er margslungin ættarsaga, þótt sögufólkið lifi fábrotnu sveitalífi Skáldkonan leikur mörgum skjöldum og konur Elra- Ásættarinnar eru höfuð viðfangsefnið, ástir takasl með ungu fólki, tryggðabönd eru bundin, eiðar rofn- ir og örlög ráðast. Fastheldni á fornar dyggðir og að ættarinnar dómi hollar venjur fyrri tíma, veldur árekstrum og orsaka sviptingar og átök, því konur Efra-Ásættarinnar eru stórlátar, með stranga og sterka réttlætiskennd. — Á þessari miklu skáldsögu er þróttmikil og hressandi manndómsbragur. Theresa Charles ÞEIR SEM HÚN UNNI Þrá Idoneu eftir hlýju, umhyggju og ást, óx stöðugt og varð að ástríðu. Hún hafði ekki fundið það, sem hún leitaði að, hjá fyrstu möhnunum i lífi hennar. Hin brenn- andi spurning var því: Mundi hún heídur ekki finna hamingjuna og njóta hinna fulikomnu, sönnu tilfinninga hjá Luciusi, manninum, sem hún hafði gifzt? — Enn á ný hefur Theresa Charles skrifað svo spennandi ástar- sögu, að aðeins vinsælustu bækur hennar sjálfrar kom- ast þar í samjöfnuð við. SKDGGSJfl Sfrandgötu 31, Hafnarfirði Sími 50045

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.