Morgunblaðið - 20.01.1973, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.01.1973, Blaðsíða 15
TJf .\IOR(',(TNRI.ADIÐ. LAttóARDAGUR 20. JANÚAR 1973" Skattframtal árið 1973 Skattframtal árið 1973 INNGANGUR 1. Aritun. Til innsendingar til skattyfir- valda skal nota framtals- eyðublaðið, sem áritað er í skýrsluvélum. sbr. þó 3. mgr. Notið aukaeintak af eyðublaði til að taka afrit af framtali yð- ar og geymið afritið með þeim upplýsingum og gögnum til stuðnings framtali, sem yður ber að geyma a.m.k. í 6 ár miðað við framlagningu skattskrár. Fram- teljanda skal bent á að athuga, hvort áritanir gerðar af skýrslu vélum, nöfn, fœðingardagar, -mán. og -ár, svo og heimilis- fang, séu réttar, miðað við 1. des. sl. Ef svo er ekki, skal leiðrétta það á framtalinu. Einn ig skal bæta við upplýsingum um breytingar á fjölskyldu í des ember, t.d. giftur (gift), hverri (hverjum), hvaða dag, nafn barns og fæðingardagur eða óskírð (ur) dóttir (sonur) fædd(ur) hvaða dag. Ef áritanir eru ekki réttar, miðað við 1. des., þá skal fram- teljanda bent á að senda einnig leiðréttingu til Hagstofu ís- lands (þjóðskrá), Reykjavik. Athygli er vakin á orðsend- ingu frá Hagstofu Islands, sem fylgir með árituðum fram- talseyðublöðum í ár, varð- andi skráningu rikisborgararétt ar. Ef áritað eyðublað er ekki fyr ir hendi, þá skal fyrst útfylla þær eyður framtalsins, sem ætl- aðar eru fyrir nafn og nafnnúm er framteljanda, fæðingardag hans, -mán. og -ár, svo og heim- ilisfang hans 1. des. sl. Einnig nafn eiginkonu, fæðingardag hennar, -mán. og -ár, svo og nöfn, fæðingardag, -mán. og fæð ingarár barna, sem fædd eru ár- ið 1957 eða síðar. 2. Fengið meðlag og barnalífeyrir. Fengið meðlag með börnum yngri en 16 ára, þar með tal- inn barnalífeyrir frá almanna- tryggingum, ef annað hvort for- eldí'a er látið eða barn er ófeðr- að, skal færa í þar til ætlaða eyðu neðan við nöfn barnanna. önnur meðlög, aðrar barnalif eyrisgreiðslur frá almannatrygg ingum og allar barnalífeyr- isgreiðslur frá öðrum (t.d. lif- eyrissjóðum), skal hins vegar telja undir tekjulið 13, „Aðrar tekjur“. 3. Greidd nieðlög. Upplýsihgar um greidd með- lög með börnum framtelj- anda skal færa í þar til ætlaðan reit á fyrstu síðu framtalsins. Varðandi upplýsingar um aðra vandamenn á framfæri framtelj- andá, visast til leiðbeininga um ákvæði 52. gr. skattalaganna í liðnúm „Aðrar upplýsingar". 4. Slysatrygging við heimilisstörf. Skv. ákvæðum 30. gr. laga nr. 67/1971 um almannatryggingar geta þeir, sem heimilisstörf stunda, nú tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með þvi að skrá í framtal sitt ósk um það, í reit, sem til þess er ætl- aður, á fyrstu síðu framtals. Ársiðgjald verður nú kr. 780. Þeir, sem atvinnurekstur hafa með höndum, geta tryggt sér og mökum sinum, sem með þeim starfa að atvinnurekstrinum, rétt til slysabóta, sbr. upplýsing ar þar um á launamiðafylgiskjöl um. Óski þessir aðilar að tryggja sér eða mökum sínum jafnframt rétt til slysabóta við heimilisstörf, skulu þeir geta þess i umræddum reit, og mun þá slysatryggingin í heild reikn ast 52 vikur á vikugjaldi þess áhættuflokks, sem hærri er. I. EIGNIR 31. DES. 1972 1. Hrein eign samkv. með- fylgjandi efnaliagsreikningi. Framtölum þeirra, sem bók- haidsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald, skal fylgja efnahagsreikningur. 1 efnahagsreikningi, eða í gögnum með honum, skal vera sundurliðun á öllum eignum, sem máld skipta, svo sem innstæðum í bönkum og sparisjóðum, víxil- eignum og öðrum útistandandi kröfum (nafngreina þarf þó ekki kröfur undir kr. 10.000), birgðum (hráefni, rekstrar- vörur, hálfunnar eða fullunnar vörur), skuldabréfum, hlutabréf um og öðrum verðbréfum, stofn- sjóðsinnstæðum, fasteignum (nafngreindar á þann veg, er greinir í 3. tl. — Fasteignir), vélum og tækjum og öðrum þeim eignum, sem eru í eigu framtelj- anda. Birgðir skulu tilgreindar á heildarmatsverði án sérstaks frádráttar skv. heimild í D-lið 22. gr. skattalaga, og skal síð- an tilgreina frádráttinn sérstak lega. Á sama hátt ber að sundur- liða allar skuldir svo sem yfir- dráttarlán, samþykkta víxla og aðrar viðskiptaskuldir (nafn- greina þarf þó ekki viðskipta- Síkuldir undir kr. 10.000), veð- skuldir og önnur föst lán svo og aðrar skuldir framteljanda. Einnig skal sýna á efnahags- reikningi, hvernig eigið fé fram- teljanda breytist á uppgjörsár- inu. Ef í efnahagsreikningi eru fjárhæðir, sem ekki eru í sam- ræmi við ákvæði skattalaga (svo sem tilfært verð fasteigna), skal úr því bætt með áritun á efnahagsreikninginn eða gögn með honum. Hreina skattskylda eign skal síðan færa á framtal undir 1. tölulið I g?a Skuldir umfram eignir í C-lið bls. 3. 2. Bústofn skv. landbúnaðarskýrslu Framtölum bænda og annarra, sem bústofn eiga, skulu fylgja landbúnaðarskýrslur, og færist bústofn skv. þeim undir þennan lið. 3. Fasteignir. Fasteignir skal telja til eign- ar á gildandi fasteignamatsverði eða áætluðu matsverði full- byggðra mannvirkja, ef fast- eignamat er ekki fyrir hendi. Gildandi fasteignamatsverð, sem telja ber til eignar i framtali 1973, er fasteignamat það, sem gildi tók 31. des. 1971 eða skv. síðar gerðuim miilimötum. Metnar fasteignir ber að til- greina í lesmálsdálk og kr. dálk á þann veg, er hér greinir: Tilgreina skal fyrst nafn eða heiti hverrar sérmetinnar fast- eignar í lesmálsd'álk, eins og það er tilgreint í fasteignamatsskrá. Sé fasteign staðsett utan heim- ilissveitar framteljanda, ber einnig að tilgreina það sveitar- félag, þar sem fasteignin er. I fasteignamatsskrám er hverri fasteign skipt niður í ýmsa matshluta eða matsþætti. T.d. er jörðum í sveitum skipt í eftirtalda matsþætti: tún, land, hlunnindi, íbúðarhús, úti- hús o.s.frv. Öðrum sérmetnum fasteignum er skipt í eftirtaldn matshluta eða -þætti: land eða lóð, hlunnindi, sérbyggðar (sér- greindar) byggingar eða önnur mannvirki. Hins vegar er sé"- byggðum byggingum ekki skipt eftir afnotum, t.d. milli íbúðar- og verzlunarhúsnæðis, séu þau í sömu sérbyggðri bygg- ingu. 1 lesmálsdálk ber að tilgreina einstaka matshluta eða -þætti fasteignarinnar, sem eru í eigu framteljanda, á sama hátt og með sama nafni og þeir eru tilgreind ir i fasteignamatsskrá. Sé mats- hluti eða -þáttur ekki að fullu eign framteljanda, ber að geta eignarhlutdeildar. Séu sérbyggð ar byggingar notaðar að hluta til íbúðar og að hluta sem at- vinnurekstrarhúsnæði, ber einnig að skipta matshluta eða -þætti eftir afnotum, og skal skiptingin gerð í hlutfalli við rúmmál. Sérreglur, sbr. næstu málsgrein, gilda þó um skiptingu leigulanda og leigulóða til eignar milli landeig anda og leigutaka. Fjárhæð fast eignamats hvers matshluta eða -þáttar, í samræmi við eignar- eða afnotahlutdeild, skal færð í kr. dálk. Eigendur leigulanda og leigu- lóða skulu telja afgjaldskvaðar- verðmæti þeirra til eignar. Af- gjaldskvaðarverðmætið er fund ið með því að margfalda ársleigu ársins 1972 með 15. Tilgreina skal í lesmálsdálk nafn landsins eða lóðarinnar, ásamt ársJeigu, en í kr. dálk skal tilgreina árs- leigu x 15. Leigjendur leigu- landa og leigulóða skulu telja sér til eignar mismun fasteigna- matsverðs og afgjaldskvaðar- verðmætis leigulandsins eða -lóð arinnar. Tilgreina skal i lesmáls dálk nafn landsins eða lóðarinn- ar, svo og fullt fasteignamats- verð lóðarinnar eða landsins eða þess hluta, sem hann hefur á leigu, og auðkenna sem „Ll.“, en í kr. dálk skal tilgreina mis- mun fasteignamatsverðs og af- gjaldskvaðarverðmætis (sem er land- eða lóðarleiga ársins 1972 x 15). Mannvirki, sem enn eru í byggingu eða ófullgerð, svo sem hús, ibúðir, bílskúrar og sumar- bústaðir, svo og viðbyggingar og breytingar eða endurbætur á þegar metnum byggingum eða öðrum mannvirkjum, skal til færa sérstaklega í lesmálsdálk undir nafni skv. byggingarsam- þykkt eða byggingarleyfi og kostnaðarverð þeirra í árslok 1972 í kr. dálk. Eigendum slíkra eigna ber að útfylla húsbygging arskýrsilu, sem fylgja skal fram- tali. Hafi eigandi bvgginga eða annarra mannvirkja. sem byggð eru á leigulandi eða leigulóð, ekki greitt leigu fyrir landið eða lóðina á árinu 1972, ber land- eða lóðareiganda að telja fasteignamatsverð lands eða lóðar að fullu til eignar. 4. Vélar, verkfæri og áhöld. Hér skal færa í kr. dálk þók- fært verð landbúnaðarvéla og -tækja skv. landbúnaðar- skýrslu. Enn fremur skal hér færa eignarverðmæti véla, verk- færa. tækja og áhalda, annarra en bifreiða, sem ekki eru notuð í atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja í efnahagsreikningi, sbr. tölulið 1. Slíkar eignir skulu teljast á kaup- eða kostn- aðarverði í kr. dálk. Þó skal heimilt að lækka þetta verð um fyrningu, nú að hámarki 8% á ári, miðað við kaup- eða kostnaðarverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó rná aldrei t'elja eignarverð lægra en 10% af kaup- eða kostnaðarverði. Fyrn- ing þessi kemur aðeins til lækk- unar á eign, en ekki til frádrátt ar tekjum. 5. Bifreið. Hér skal færa í kr. dálk kaup verð bifreiða, sem ekki eru not- aðar í atvinnurekstrarskyni eða ekki ber að telja í efnahags- reikningi, sbr. tölulið 1. Þó skal heimilt að lækka kaupverð um fyrningu, nú að hámarki 10% á ári, miðaða við kaupverð, svo og um áður reiknaða fyrningu. Þó má aldrei telja eignarverð lægra en 10% af kaupverði. Fyrning þessi kemur aðeins til lækkun- ar á eign, en ekki til frádrátt- ar tekjum. 6. Peningar. Hér á aðeins að færa peninga- eign um áramót, en ekki aðrar eignir, svo sem víxla og verð- bréf. 7. Inneignir. 1 A-lið framtals, bls. 3, ber að sundurliða eins og þar segir til um a.m.k. allar framtalsskyld ar og skattskyldar innstæður í bönkum, sparisjóðum og innláns deildum, svo og verðbréf, sem hlita framtalsskyldu og skatt- skyldu á sama hátt skv. sérstök um lögum. Þessar tegundir eigna eru framtalsskyldar og skatt skyldar til jafns við skuldir framteljanda. Til skulda í þessu sambandi teljast þó ekki eftir- stöðvar fasteignaveðlána, að há marki kr. 600.000, ef þau voru tekin til 10 ára eða lengri tíma og sannanlega notuð til að afla fasteigna eða endurbæta þær. Síðan skal færa samtölu skatt- skyldra inneigna í eignarlið 7. Víxlar eða verðbréf, þótt geymt sé í bönkum eða sé þar til innheimtu, teljast ekki hér, heldur undir tölulið 9. 8. Hhitabréf. Rita skal nafn hlutafélags í lesmálsdálk og nafnverð hluta- bréfa í kr. dáik, ef hlutafé er óskert, en annars með hlutfalls- legri upphæð, miðað við upphaí legt hlutafé. 9. Verðhréf, útián, stofnsjóðs- innstæður o.fl. Útfylla skal B-lið fram- tals bls. 3 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtölu í eignarlið 9. 10. Eignir barna. Útfylla skal E-lið framtals bls. 4 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtöluna, að frá dregnum skattfrjálsum innstæð- um og verðbréfum, í eignarlið 10. Ef fi’amteljandi óskar þess, að eignir barns séu ekki taldar með sinum eignum, skal ekki færa eignir barnsins í eignarlið 10, en geta þess sérstaklega í G-lið framtals bls. 4, að það sé ósk framteljanda, að bamið verði sjálfstæður eignarskatts- greiðandi. 11. Aðrar eignir. Hér skal færa þær eignir (aðr ar en fatnað, bækur, húsgögn og aðra persónulega muni), sem eiigi er getið hér að framan. II. SKUUDIR ALLS Útfylla skal C-lið framtals bls. 3 eins og eyðublaðið segir til um og færa samtölu í þennan lið: III. TEKJUR ÁRIÐ 1972 1. Hreinar tekjur af atvinnu- rekstri eða sjálfstæðri starf- semi skv. meðfvlgjandi rekstrarreiijiingi eða landbúnaðarskýrsln. Framtölum þeirra, sem bók- haldsskyldir eru skv. ákvæðum laga nr. 51/1968 um bókhald, skal fylgja rekstrarreikningur. Þeir, sem landbúnað stunda, skulu nota þar til gerða land- búnaðarskýrslu. Gögnum þess- um skal fylgja fvrningaskýrda, þar sem fram komi a.m.k. sömu upplýsingar og til er ætlazt, að komi fram á fyrningaskýrslu- eyðublöðum, sem fást hjá skatt- yfirvöldum. 1 Þegar notuð er heimild i D- lið 22. gr. skattalaga til sérstaks frádráttar frá matsverði birgða, skal breyting frádráttar milli ára tilgreind sem sérliður i rekstrarreikningi, en ekki reiknuð inn í vörunotkun eða -eyðslu. Ef í rekstrarreikningi (þ m.t. landbúnaðarskýrsla) eru fjár hæðir, sem ekki eru í samræmi við ákvæði skattalaga, svo sem þegar taldar eru til tekni fjár- hæðir, sem ekki eru skattskyld- ar, eða til gjalda fjárhæðir, sem ekki eru frádráttarbærar, skal úr þvi bætt með áritun á rekstr- arreikning eða gögn með houum. Sama gildir, ef framteljandi viH nota heimild til frestunar á skattlagningu skattskylds hluta Leiðbeiningar ríkisskattstj ór a við skattframtö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.