Morgunblaðið - 30.01.1973, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1973
Nýja eldfjallið orð-
ið 180 metrar á hæð
Engin hús höfðu í gærkvöldi
brunnið frá því á laugardag
ENN brunnu 12 hús í Vestmanna
eyjiun sl. laugrardagskvöld, er
suðaustanáttin feykti glóandi
hraunslettum inn yfir kaupstað
inn. Lítið vikurgos var um helg-
ina, þótt cskuhryðjur hafi geng-
ið yfir bæinn, en frá upphafi goss
ins reikna verkfræðingar með að
um 2 til 3 milijónir rúmmetra af
vikri og ösku hafi fallið yfir
byggðina. Bergtegundin, sem
myndast í eldgosinu er mjög
sjaldgæf og finnst aðeins á tveim
ur öðrum stöðum á iandinu, en
viðbótin við Heimaey, sem gos-
ið hefur myndað, var í gær orð-
in 1 ferkílómetri að stærð.
Vestmannaeyjum í gærkvöldi,
frá Árna Johnsen.
12 hús brunnu sl. laugardags
kvöld í austurbænum á Heima-
ey, þegar suðaustanátt skall á
um kvöld'ð og feykti glóandi
hraun- og vikurslettum yfir bæ
inn. Hvassviðri var. Nærri aMir
brunamir urðu vegna þess, að
hraunmolar köstuðust í gegnum
gluggarúðu og kveiktu í hilsun-
um.
Ekkert hjálparlið hafði verið
til staðar til þess að byrgja aust
urgliugga húsanna í bænum. Dag
inn eftir komu 70 trésmiðir frá
Reykjavík og negldu mjög skipu
-lega járnplötur fyrir aust-ur-
glugga húsanna í austurbænum.
Eru þeir nú komnir að Kirkju-
Valur og
Fram unnu
1 GÆRKVÖLDI voru leiknir
tveir leikir í 1. deild karla í hand-
knattleik. úrslit urðu þessi:
Valur—Víkingur
Fram—Haukar
21:17 (12:9)
16:14 ( 8:4)
vegi. f>á hafa margir meginlands
búar komið Eyjaskeggjum til
hjálpar síðustu daga og haifa
þeir vakið aðdáun Eyjaskeggja
fyrir dugnað í björgunarstarfinu.
Um helgina vann sjórinn í
þág-u Eyjaskeggja og breikkaði
aftur inns'iglinguina í Vestmanna
eyjahöfn og dýpkaði þar sem
grynnkað hafði, með þvi að sópa
burt og brjóta norðurhraunkant-
inn nýja.
Lítið vikurgos var í Eyjum um
helgina, en þó komu öskuhryðj
ur inin yfir bæinn. Ekkert þó í
líkingu við það, sem varð fyrst-u
öskufallsnóttina. Samkvæmt út-
reikningum verkfræðinga er tal
ið, að u-m 2—3 mil'ljónir rúm-
metra af vikri og ösku hafi faM
ið á bygigðina, en aska sést varla
utan byggðarinnar og öll suður-
eyjan er hrein. Láta m-un nærri,
að meðalöskuþykktin á stærst-
um hluta bæjarins sé um 30 sm
þykk aska. Talað hefur verið um,
að þyrlurnar geti illa lent, þar
sem aska er, en helmingur eyj-
arinnar er sem fyrr segir la-us
við ösku.
30 gráðu hliðarhalli er nú á
KirkjufeMi, eins og nýja eldkeil
an er netfnd hér af öllum. Ber
hún naifn Kirkjubæjanna og hús
ið Kirkjubær var fyrsta húsið,
sem fór undir hraun í þesisu gosi.
Er þessi halli sami hl'ðarhalli og
á Helgafelli. Hæð Kirkjufells
var í gær orðin 180 mietrar, en
hæð Helgafells er 227 metrar. Er
lögun Kirkjutfeils mjög ámó 9 og
iögun Helgafells.
Sveinbjörn Bjömsson og Leó
Kristjánsson, jarðeðlisfræðingar
hjá Orkustofnun og Raunvísinda
stafnun Háskólans sögðu í gær í
viðtali við Mbl., að um miðjan
dag 26. janúar hefðu jarðskjálft
ar minmkað m-ikið. Síðan hef-ur
þeirra helzt orðið vart við
sprengingar í gigunum.
Halldór Ólafsson aðstoðarmað-
ur Sigurðar Þórarinssonar, pró-
fessors, gerði í gær nýja ösku-
mælingu í kaupstaðnum. í boga
línu frá Kirkjubæjarbraut að
kirkju-nni og austur að Gerði er
meðaj öskuþykktin nærri 1 metri.
í bogalín-u frá Grænuhlíð um
Vailagötu og að Sóleyjargötu er
ösikuiþykktin n-ærri 70 sm. En á
stærstum hl-utum bæjarins er
hún 30 sm og allt niður í 10 sm.
1 gær voru jarðýtur og ve-g-
hefill byrjaðir að ryðja göturnar
og gekk það gre'ðlega. Hins veg
ar eru engin tæki hér ennþá til
þess að hefja hreinsun í bænum.
Láta m-un nærri, að 60 hús
séu hrunin og huli-n ösu í Eyj-
um, og hefur a-ustasta byg-gðin
og suðaustasti hluti hennar orðdð
verst úti. Hins vegar er ekki
metra hátit öskulag við húsin
norðan Bústaðarbra-utarinnar.
HjálparsveJirnar í bamaskóJ-
a-nu-m halda stöðu-gt áíram að
flytja innbú húsa, en skortur er
á mönnum í afleysingar og sér-
sta-klsga vantar bíia til fl-utninga.
Vinna menn sleitulaust og má
segja, að þeir séu orðnir úrvinda
af þreytu.
Fjórir kokkar komu frá Reykja
vik í gær, og leystu kokkinn af,
siem hafði stjórnað möt-uneyti Is-
lags'ns, 9Íðan gosið hófst. Hefur
Kar verið sle tulaust unnið. 600
Framhaíd á bls. 31
168
íbúðir
boðnar
fram
TILBOÐ um 168 íbúðir höfðu
borizt ibúðakönnun Rauða
kross íslands siðdegis í gær,
en í fyrrakvöld voru þau 30
talsins.
Eg-gert Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri RKÍ, sagði Mbl.
að nú yrð-i farið i að kann-a
þessar íbúðir og finna leiðir
t'l að framkvæma það, sem
gera þyrfti sums staðar til að
hægt verði að flytj-a inn í
íbúðirnar. Að sögn Eggerts
eru flestar íbúðanma 168 í
Reykjavík og nágrenni.
Skipsskaöar fyrir austan:
Loðnuskip sökk,
annað strandaði
Dagfari ÞH 70 tvisvar í björg-
unarstörfum sama sólahringinn
NÚ RÉTT í upphafi loðnuvertíð
ar hafa tvö loðnuveiðiskip orðið
úr leik, Jón Kjartansson SU 111
sökk síðdegis á sunnudag 2 sjó-
míiur austur af Vattanesi og
Reykjanes GK 50 strandaði í gær
morgun við Hvalbak, en skipið
losnaði af strandstað og komst
við aðstoð Dagfara ÞH inn til
Eskifjarðar, en Dagfari liafði þá
nokkrum klukkustundum áður
bjargað allri áhöfn Jóns Kjart-
anssonar. Engin slys urðu á
mönnum í þessum tveimur ó-
höppum, en báðar loðnunætur
skipanna týndust í sjónum og
varaði Slysavarnafélag íslands i
gær skip, sem ieið eiga um þess
ar slóðir við nótunum, en þær
geta verið hættulegar skipum á
siglingu.
Neskaupstaðarradíó tilkynnit-i
kliukkan 10,24 á sunnudag, að
vélstoipið Jón Kj-arta-nsson frá
Eskifirði hefði skyndilega l'agzt
á bakborðshlið. Þegar þetta
gerðist var verið að Ijúka við
að dæla loðn-u úr nót skipsins
og átti að fara að taka hana uim
borð. Skipið var þá statt s-uður
undir Hvalbak. Tveir bátar voru
í fylgd með Jóni Kjart-anssyni,
m.a. Dagfari ÞH. Kaldi var á
o>g dálitill sjór. Lónaði skipið síð
an til lands, en tilkynnt var að
mienn væri ekki í yfirvotfandi
hættu.
Um klukkan 11.15 breyttist
skyndiiiega bakborðshallinn og
lagðist s-kipið þá á stjómborðis-
hlið og var hallinn mjög mik-iM.
Var þá sýn-t að s-ki-pið var í yfir-
vofandi hættu og yfirgaf öll á-
höfnin skipið og fór um borð í
Dagfara, nema 3 rruenn, skip-
s-tjórinn, Þorsteinn Erl-ingsspn,
1. vélstjóri og 1. stýriimaður. Yfir
FramhaJd á bls. 31
MINNISllM VESTNMNNAEYINGA
ALMENN upplýsingaþjón-
usta: Bæjarstjóm Vestmanna
eyja og Rauði krossinn reka
skritfstofu í Hafnarbúðum.
Símar hennar eru þessir-
Skiptiborð: 25788. Samhand
við húsnæðisdeild, fjárhágs-
aðstoð, vinntemiðiun, eldhús,
farangursdeild og óskiíamuni,
móttöku fjárframlaga, skrif-
stofustjórn, upplýsingar um
skipaferðir sjúkrasamlag og
almannatryggi-ngar, bæjarfó-
getaembættið.
Beinir símar: 12089 — Upp-
lýsingar um heimilisföng
Vestmannaeymga — aðseturs-
titfkynningar.
25831 og 25843 — húsnæðis
máladeild.
11380 og 11994 — Upplýs-
i-ngar um skipaferðir, bíla-
flutni-ng o. fl. — Almennar
upplýsíngar.
Nætursími í Hafnarbúðum
er 22203.
Læknisþjónusta: Vestmanna
eyjalæknar hafa opnað stof-
ur í Domus Medica við Egils-
götu og eru viðtalstímar sem
hér segir:
Ingunn Sturiaugsdóttir: Kl.
09:00 f -30 og 13:00—15:00,
sími 26519
E nfi Guttormsson: Mánu-
daga o föstúdaga kl. 14:00
—16:00 Aðra daga, nema laug
ardaga, kl. 10:00—12:00, sími
11684.
Kristján Eyjólfsson, héraðs
læknir: Kl. 10:00—12:00, sími
15730. Einnig viðtalstími að
Digranesvegi 12 í Kópavogi
kl. 14:00—16:00, sími 41555.
Óli Kr. Guðmundsson, yfir-
læknir: Tímapantanir eftir
samkomulagi í síma 15730.
Einar Valur Bjarnason, yf-
irlæknir: Tími auglýstur síð-
ar.
Einn læknir mun hafa þjón
ustu að staðaldri í Vestmanna
eyjum og munu læknarnir
skiptast á um hana.
Heilsugæzla: Un-gbarnaeftir
lit verður i Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur og starfar heilsu
vemdarhjúkrunarkona frá
Vestmannaeyjum þar.
Fólki, sem dvelst í Kópa-
vogi, Gaxðahreppi og Hafnar-
firði, er heimilt að leita til
heilsuvemdarstöðva viðkom-
andi svæða. Tímapantanir
æskiiegar.
Mæðraeftirlit fyrir Stór-
Reykjavíkursvæðið verður í
Heilsuverndarstöð Reykjavík-
ur. Tímapantanir æskilegar.
Aimannavarni r: Upplýsinga-
sími er 26120.
Póstur: Afgreiðsla á pósti
til Vestmannaeyinga er í kjall
ara Pósthússins, gengið inn
frá Austurstræti, kl. 09—18,
sími 26000. Ráðstafanir verða
einnig gerðar til að bera út
póst til þeirra, sem gefá upp
ákveðið heimilisfang á höfuð
borgarsvæðinu eða annars
staðar.
Upplýsingasimi lögreglunn-
ar í Rc-ykjavík: er 11110.
Húsdýr Vestmannaeyinga:
Upplýsingaþjónásta Sam-
bands íslenzkra dýravemdun
arfélaga er í síma 42580, eftir
hádegi.
Fjárhagsaðstoð: Skrifstofan
í Hafnarbúðum veitir styrki
og Vestmannaeyjaútibú Út-
vegsbankans og Sparisjóður
Vestmannaeyinga veita lána-
fyr rgreiðslu. Hj álparsjóður
æskufóiks styrkir æskufólk;
umsóknir sendist Magnúsi Sig
urðssyni, Hofteigi 18.
Fatnaður: Systrafélagið
Aifa, félag innan safnaðar að
ventista, úthlutar fatnaði til
Vestmannaeyinga í kjallara
Aðventkirkj unnar, Ingólfs-
stræti 19.
Akureyri: Skrifstofa Vest-
mannaeyjan-efndarinnar er í
Hafn-arstræti 107, 3. hæð, sím
ar 21202 og 21601. Upplýsinga
þjónu-sta, útvegun húsnæðis
og atvinn-u, tekið á móti fram
lögum í fjársöfnun á vegum
RK-deiidar Akureyrar. Út-
hlutun peninga til Vestmanna
eyinga fer fram árdegis. Opáð
kl. 10—19, en á öðrum tím-um
má ná til nefndarmanna í sím
um 11546, 21842 og 11382.
Selfoss: Vestmannaeyingar
snúi sér tii skrifstofu Seltfoss
hrepps, Eyrarvegi 6, simar
(99)1187 og 1450.
Hafnarfjörður: Vestmanna-
eyingar snúi sér ti-i bæjar-
skrifstofanna, Stmndigötu 6,
sími 53444.
ORÐSENDING TIL
VE STM ANN AE YINGA
Tilkynnið skrifstofunni í
Hafnarbúðum allar breytingar
á dvalarstað.
Vestmannaeyingiar, sem
hafa ekki tilkynnt núverandi
dvalarstað sinn til skrifstotf-
un-nar í Hafnarbúðum, eru
beðnir að gera það strax og
því verður við komið. Þetta á
jafnt við þá, sem dveljast í
Reykjavík og nágrenni, sem
og við þá, sem dveljast ann-
ars staðar á landin-u.
Þeir, sem hafa skipt um
dvalarstað síðan þeir komu
frá Vestmannaeyjum eftir að
gosið hófst, eru sérstaklega
beðnir að tilkynna nú þegar,
hvar þeir dveljast, nema það
hafi verið gert þegar.
A-uk götu og húsnúmers,
eða húsheitis, þarf að titkynna
fæðingardag og -ár, og enn
fremur nafn og símanúmer
þess húsráðainda, sem dvalizt
er hjá.
Þeir, sem ekki koma sjálfir
í skrífstofuna í Hafnarbúðum
og tilkynna dvalarstað sinn —
eða láta aðra gera það — eru
beðnir um að síma umbeðnar
applýsingar eða póstsenda
þær.
Það skiptir m'kl-u máli, að
Vestmannaeyín-gar tiikynni
áfram skrifstofunni í Hafnar-
búðum jafnóðum allar breyt-
ingar, sem verða á dvalarstað
þeirra.
Bá-taábyrpöarfélaK Vestmanna-
eyinga: Skrifstofa þess er i húsa-
kynnum Samábyrgöar Islands á
fiskiskipum, í Lágmúla 9, 4. hæö,
simi 81400, opiÖ kl. 09—17.
lönaðarmenn: Landssambanrt
iðnaöarmanna veitir aðstoð, m.a.
við vinnuöflun, á skrifstofunni í
Iðnaðarbankahúsinu, Lækjargötu
12, kl. 09—17, símar 12380, 15095
og 15363.
Sjómenn: Ctvegsbændafélag
Vestmannaeyja hefur skrifstofu 1
húsakynnum L.Í.Ú., Hafnarhvoli,
sími 16650.
Verkafólk: Á skrifstofu A.S.Í.,
Laugavegi 18, er veitt þjónusta
öllum félagsmönnum verkalýðs-
félaganna í Vestmananeyjum, sem
aðild eiga að A.S.Í. kl. 09—17,
sími 19348.
"Ctlbú tJtvegsbankans í Vest-
mannaeyjum: Afgreiðsla þess er í
tJtvegsbankanum við Lækjartorg,
opið kl. 09,30—15,30, sími 17060.
Sparisjóður Vestmaunaeyja: —•
Afgreiðsla hans er i Seðlabank
anum við Hafnarstræti, opið kl.
09,30—15,30.
Vélsmiðjurnar í Vestmannaeyj-
um: Skrifstofa í Garöastræti 41,
simar 17882 og 25531.
Afgreiðsla Eimskips í Vest-
mannaeyjum: Skrifstofan er 1
Eimskipafélagshúsinu, Pósthús-
strætl 2, slmi 21460, innanhúsnúm
er 63.