Morgunblaðið - 30.01.1973, Blaðsíða 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1973
eigi ekki að leggja fram í
þinginu, fyrr en fullreynt er
um samkomulag milli allra
þingflokka.
2. Eðlilegast væri, að frum-
varp um ráðstafanir yrði
flutt sem þingmannafrum-
varp allra flokka.
3. Einskorða ber aðgerðirn-
ar við aðstoð til Vestmanna-
eyinga og úrbætur í tengsl-
um við náttúruhamfarirnar.
4. Ýmis ákvæði frv. liggja
utan við þann tilgang, og
kanna ber fjáröflunarleiðir
betur.
5. Leggja ber áherzlu á hið
SAMHJALP OG ÞEGNSKAPUR
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvaemdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Eyjclfur Konráð Jónsson.
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80.
Áskriftargjald 225,00 kr. á mánuði innanlands.
I iausasölu 15;00 kr eintakið.
j gær samþykkti Alþingi ein-
róma þingsályktunartil-
lögu um neyðarráðstafanir
vegna jarðelda í Vestmanna-
eyjum. Við umræður um það
mál komst Jóhann Hafstein,
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, svo að orði:
„Ég vil hefja mál mitt með
því að lýsa sarnúð með Vest-
mannaeyingum, sem orðið
hafa fyrir hinum ægilegu
náttúrubamförurrvvið eldgos-
ið í Heimaey, sem hefúr svipt
þá heimilum og öðrum eign-
um og slitið þá frá heima-
byggð og ættarslóðum að
sinni. Ég vil einnig láta í Ijós
þakklæti og virðingu í garð
þeirra, sem innt hafa af hönd-
um frjáls framlög og veitt
hafa aðstoð til bjargar á
margan hátt og boðið fram
aðstoð til þess að græða sár,
sem neyðarástand eldgossins
hefur skapað. Sjálfstæðis-
flokkurinn heitir á íslendinga
alla að mæta þeirri ógn, sem
að höndum hefur borið í
Vestmannaeyjum, með þegn-
skap og samhjálp. Ég hef áð-
ur lýst yfir og lýsti því enn
yfir, að Sjálfstæðisflokkurinn
er reiðubmnn til samstarfs
um ráðstafanir til aðstoðar
Vestmannaeyjum í neyðar-
ástandi þeirra.“
Forsætisráðherra upplýsti
á þingi, að ríkisstjórnin befði
haft tilbúið uppkast að frum-
varpi um fjáröflunarráðstaf-
anir og hefði það verið sýnt
stjómarandstöðunni sl. laug-
ardag. Af því tilefni gat Jó-
hann Hafstein um eftirfar-
andi bókun í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins, senv gerð var
þann sama dag:
„1. í>að er skoðun þing-
flokks sjálfstæðismanna, að
tíllögur um neyðarráðstafan-
ir vegna eldgoss í Heimaey
sérstæða tjón og atriði ná-
tengd því.
6. Meta ber framboðna er-
lenda aðstoð og kanna mögu-
leika, bæði varðandi framlög
og lán.
7. Jafnhliða ítarlegum til-
raunum til samstöðu þing-
flokka ber að hafa samráð
við bæjarstjórn Vestmanna-
eyja um aðgerðir.“
Ríkisstjórnin hefur nú horf-
ið frá þeirri ákvörðun, að
reyna að fá það frumfvarp
samþykkt, sem hún lét semja
fyrir helgina, a.m.k. að sinni,
og upplýst var í umræðun-
um, að nefnd sú, sem kjörin
hefur verið til að semja til-
lögur til lausnar fái þessi
frumvarpsdrög. Ástæðan fyr-
ir þessari ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar mun vera sú,
að innan ríkisstjórnarflokk-
anna sjálfra mætti það mik-
illi andstöðu að tengja saman
neyðarráðstafanir vegna eld-
gossins og almennar efna-
hagsráðstafanir. Og munu
a.m.k. þrír af þingmönnum
stjórnarflokkanna hafa snúizt
gegn því. Um þennan tillögu-
flutning sagði Jóhann Haf-
stein m.a. í ræðu sinni:
„Ég tel nú, að ríkis-
stjórnin hafi með flutningi
þessarar þingsályktunartil-
lögu fallizt á þau sjó'nar-
mið, að rétt væri að gefa
viljayfirlýsingar við fyrsta
tækifæri, en gefa sér síðan
tóm til þess að freista þess
að ná samstöðu um efnishlið
þeirra úrræða, sem síðar
verður sjálfsagt fjallað um í
þinginu. Ég hefði hins vegar
vænzt þess, að stjórnarand-
stöðunni hefði verið gert að-
vart um flutning þessarar
þingsályktunar og jafnvel
leitað samráðs um meðflutn-
ing að henni, og það er í raun
og veru í samræmi við þær
viljayfirlýsingar okkar, sem
fram hafa komið í því efni,
og það hefði verið útlátalaust
að mínu áliti og ekki skap-
að nein vandkvæði.“
Með samþykkt þessarar til-
lögu hefur málinu verið kom-
ið inn á eðlilegan farveg og
vonandi er, að algjör sam-
staða náist um aðgerðir
vegna neyðarástandsins. Rík-
isstjórnin hefur nú þegar
fengið heimild til bráða-
birgðalántöku til að ráífet
fram úr brýnasta vandanum
og heildartillögur munu vafa-
laust sjást von bráðar.
í nefndaráliti er þess getið,
að rætt hafi verið um það,
að ríkisstjórnin kanni nú
þegar, hvort unnt sé að fá
lán til langs tíma hjá sjóð-
um á vegum alþjóðastofn-
ana.
í umræðunum í gær báru
ráðherrarnir á móti því, að
hlífzt hefði verið við að
þiggja alla þá hjálp, sem
varnarliðið gæti látið af
höndum rakna. Þær yfirlýs-
ingar eins og margar aðrar af
stjórnarinnar hálfu tekur al-
menningur nú orðið með öll-
um fyrirvara. En hvað sem
því líður ber að fagna sam-
stöðunni, sem náðist í gær,
hvort svo sem hún endist eða
ekki.
ÞAKKIR VEST-
MANNAEYINGA
/^uðlaugur Gíslason kvaddi
^ sér hljóðs utan dagskrár
á Alþingi í gær og flutti fram
þakkir Vestmannaeyinga til
allra þeirra, sem vel hafa
brugðizt við. Hann sagði:
„Ég vil flytja þessar þakkir
til þjóðarinnar allrar. Hvar
sem á hefur þurft að halda
höfum við fengið hin sömu
einlægu svör, að allt væri til
reiðu til þess að greiða úr
hinum margvíslegustu vanda-
málum, sem að hafa steðjað.“
Nú ríður á, að sá andi,
hjálpsemi og fórnfýsi, sem
ríkt hefur undanfarna örlaga-
daga, endist, sá „þegnskapur
og samhjálp“.'
Þáttur
varnarliðsins
í
björgunar-
störfum
ÞÁTTUR varnarliðsins á
Keflavikurflngvrlli i björgun
arstörfunum i Vestmannaeyj
um hefur verið mjög til um-
ræðu meðal almennings og
hafa stjórnvöld sætt gagn-
rýni fyrir að hafa ekki not-
fært sér þá aðstoð sem yfir-
menn varnarliðsins hafa boð-
ið fram. Mbl. sneri sér til upp
lýsingaþjónustu Bandarík.j-
anna og bað hana um skýrslu
um þátt varnarliðsins.
Þar segir að þriðjudaginn
23. janúar hafi flugvélar varn
arliðsim, tvær Dakotavélar,
tvær stórar þyrlur af gerð-
inni Jolly Green Giant og ein
Herkúlesflugvél flutt 67
manns til lands, aðallega
sjúklinga og gamaknenni,
sem ekki hafi verið hægt að
flytja með öðru móti. Voru
flugvélarnar komnar á stað-
inn nokkrum klukkustundum
eftir að gosið hófst.
Föstudag og laugardag 28.
Flugvél varnarliðsins við fjárflutninga frá Vestmannaeyjum
— 27. janúar fiut'tu Dakotavél-
arnar og þyriurnar 399 kind-
ur til lands.
Um helgina fór síðan Sveinn
Eiriksson slökkviliðsstjóri á
Keflavíkurflugvelli ásamt
þremur manna sinna til Vest
mannaeyja til að aðstoða við
slökkvistörf og eldvarnir. Þá
iagði varnarliðið til háþrýsti-
dæiubíl, sem getur dælt 2000
lítrum af vatni á mínúbu og
auk þess sérstakt tæki til að
berjast við vatnsmeng'jn, sem
aíkastar einnig 2000 lítrum á
mínútu.
Af öðrum tækjabúnaði má
nefna að varnarliðið hefur
lagt til gáma og stóra kassa,
t;l að geyma búslóð i og auk
þess nokkra asbestbúninga,
sem þola allt að 600 gráðu
hita.
Á Keflavíkurfiugvelli
gekkst prestur staðarins fyr-
ir fatasöfnun og afhenti hann
AðventLstakirkjunni í Reykja
vík um eina lest af fatnaði.
Nú eru á Keflavíkurfhig-
velli 5 flugvélar á neyðar-
vakt og margar áhafnir, sem
eru til taks með mínútn fyrir
vara ef beðið er um aðstoð við
björgunarstörf.
Þá hefur yfirmaður várnar
liðsins boðið ríkisstjóminni
afnot af öllum hugsanlegum
tækjum og aðstöðu auk mann
afla, eftir því sem ríkisstjórn-
in telur nauðsynlegt.