Morgunblaðið - 30.01.1973, Side 4

Morgunblaðið - 30.01.1973, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANOAR 1973 BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 14444 "S 25555 14444'S'25555 HÓPFERÐIR Til leigu í lengri og skemmri ferðir 8—34 farþega bílar. Kjartan Ingimarsson, símar 86155 og 32716. STAKSTEINAR Náttúru- hamfarirnar ENN er ekkert lát á náttúru- hamförunum i Vestmannaeyj- um, og enn er ekki hægt að henda reiður á þeim skaða, sem þjóðin hefur orðið fyrir. Fyrirsjáanlegt er, að eigna- tjón Vestmannaeyinga verður geysimikið. Ekki er nóg með að fjöldi húsa hefur eyðilagzt af eidi og eimyrju, heldur er allur staðurinn þakinn vikri og ösku, sem eykst stöðugt. Og ef svo fer að höfnin lok- ast til frambúðar, þá breyt- ist verðmætamat mjög á þeim fasteignum, sem jafnvel koma óskemmdar úr ham- förunum. t öðru lagi er ljóst, að geysilegt félagslegt vanda- inál hefur komið upp. Fjöl- skyldur þurfa að taka sig upp við verstu aðstæður og flytjast til staða, sem hafa upp á ónógt húsnæði að bjóða, og það sem fæst, er oft mjög lélegt. Allir sjá hví- lík geysileg viðbrigði það eru að þurfa að flytja fjölskyldu sina úr eigin húsnæði, sem komið hefur verið upp af elju- semi athafnasamra einstakl- inga, og flytja í þröng og ófullkomin húsakynni, og búa við stórlega skert atvinnu- skilyrði. Börn missa sjónar af leik- félögum og vinum í stórbæn- um, skólaganga þeirra er erfiðleikum bundinn og þau eru rifin úr fyrra umhverfi snögglega og óvænt. I þriðja lagi er svo báta- flotinn og atvinnutækin. Að vísu hafa þau ekki stöðvazt lengur en gerist í meðal verk- falli, en augljóst er, að at- hafnastarfsemi, sem við þessi framleiðslutæki er bundin, verður mun óhagstæðari og nýting þeirra verri en ef þau væru gerð út frá Vestmanna- eyjum. Ekki þarf að minna á hin fullkomnu frystihús, sem eru og verða óstarfhæf um ótiltekinn tima. Hér hefur að- eins verið minnzt á nokkur atriði í þeim erfiðleikum, sem eldgosið í Vestmannaeyjum hefur. Auðvitað er hér um geysilegt efnahagslegt tjón að ræða, en menn verða þó að varast að rugla þessum at- burðum saman við efnahags- líf landsins og þær umræð- ur, sem um það höfðu orðið, áður en þessir atburðir gerð- ust. Aðstoð erlendra ríkja Fjöldamörg ríki hafa boðið fram aðstoð sína, vegna þeirra erfiðleika, sem nátt- úruhamfarirnar hafa í för með sér, rétt eins og við Is- lendingar höfum gert, þegar eitthvað hefur verulega bját- að á hjá öðrum þjóðum. Bandarikin buðu fram að- stoð þegar hina umbrotasömu nótt og áréttuðu þannig orð forsætisráðherrans í áramóta- ræðu, þar sem hann benti á, að Bandaríkin hafi ætið ver- ið okkar mesta vinaþjóð. Þjóðviljinn hefur ekki getað á heilum sér tekið vegna þessa, og hefur verið uppfull- ur af skætingi út í Banda- ríkjamenn. Framsóknarráð- herrarnir ættu nú að sýna manndóm og umgángast Bandaríkjastjórn í samráðl við þá einkunn, sem forsætis- ráðherrann gaf Bandaríkja- mönnum. spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Eesendaþjónustu Morg- unblaðsins. FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga — sími 81260. Tveggja manna Citroen Mehari. Fimm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). SKODA EYÐIR MINNA. Shodo LEIGAN • AUÐBREKKU 44 - 46. i SÍMI 42600. GÖNGUHRAÐIOG GKÆN EJÖS Þorkell Pálsson, Stóragerði 22, spyr: Á mótum Háaleitisbrautar og Mifchibrautar eru umferð arljós m.a. fyrir gangandi. Mér telst svo til, að til þess að komast yfir gatnamótin á grænu Ijósi þurfi maður að fara með 12 km hraða, en áætlaður gönguhraði meðal- manns er 5 fcm á klukfcu- stundu. Er þetta rétt? Guttormur Þormar, yfir- verkfræðingur hjá gatnamála stjóra svarar: Nei, þetta er ekki rétt reiknað. Hins vegar verður að viðurkenna, að ekki er unnt að komast alla leið yfir Miklubraut á grænu Ijósi með venjulegum gönguhraða, en grænt Ijós logar í 13 sek. Trá því að rautt ljós kvikn- ar á götuljósinu og þar til grænt ljós kviknar fyrir um- ferð um Miklubraut Kða 11 sek. Sé gangandi maður kom- inn út á seinni akbrautina, þegar rautt tjós kviknar, er því nægur timi til að ganga síðustu metrana í fyllsta ör- yggi- Umferð gangandi fólks um gatnamótin er mjög strjál, en bifreiðaumferð um Mikliu- braut hins vegar mjög mikil. Ræður það tímastiMngu um ferðarljósanna, svo og sam- stilling við önnur gatnamóf. mengunarrAðgjafi hjA s.þ. Gréta Sigfúsdóttir, Kára stíg 9, spyr: 1. Hvaða laun hafði ráðgjaf Lnn um mengunarmál, Thor Vilhjál'msson, meðan hann dvaldi hjá S.Þ.? 2. Hafði hann önnur hlunn indi en beinar launagreiðsl ur? 3. Hve margar ræður flutti hann þar? 4. Hve marga fundi sótti hann? UTANRÍKISRAHUNEVTH) SVARAR: 1. Hann hafði engin I'aun frá u ta n ríkisráðu neyt i nu. 2. Honum voru greiddír dagpeningar. 3. Hann fltutti 1 ræðu í 2. nefnd. 4. Hann rmætti dagliega bæði á fundum hjá fasfa- nefnd íslands í New York og i nefndum allsherjarþingsins. BRÉFUM EKKI SVARAÐ? Gylfi Hallvarðsson, Hrísa- teigi 37, spyr: „Ég vil beina þeirri spum- ingu til RUdsskatitanefndar, hvort hún svari ekki öllum bréfum, sem henni berast. Ég hef sent nefndinni þrjú bréjí að undanförnu, það fyrsta i ágústmánuði sl., en hef enn- þá ekki fengið svar við neinu þeirra.“ Guðmundur Skaftason, for- maður Ríkisskattanefndar, svarar: í tilefni af fyrirspum bréf- ritara viH ríkisskattanefnd taka fram, að málefni það, sem í bréfunum greinir heyr- ir ekki undir úrskurð henn- ar. Bréfin eru i vörzlu emb- ættis ríkisskatts'tjóra og ber bréfritara að snúa sér þang- að. Að gefnu tilefini vill nefnd- in vekja athygli á, að vald- svið hennar nær aðeins til að úrskurða kærur, þ.e. í ágrein ingsmáil!um, þegar gjald- andi (eða skattkrefjandi) telja álagninguna fara í bága við lög eða aðrar álagningar reglur. Afgreiðsla á beiðnum um eftirgjafir á sköttum vegna at vika þeirra, sem talin eru í 52 gr. Laga um tekjuskatt og eignarskatt og 27. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga (þ. e. vegna sjúkdóma, slysa, menntunarkostnaðar bama, eldri en 16 ára o.s.frv.) er fyr ir utan verksvið nefndarinn- ar. Sú afgreiðsla er í höndum skattstjóra og rifcisskattstjóra að því er tekjuskatt varðar og sveLtarstjórnia að því er snertir tekjuútsvar. spurt Og svarað Skattgreidendur spyrja Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Jóhann Örn Héðinsson, Hraunbæ 58, spyr: Hvemig snýr maðnr sér í því, ef maður fær ekki lauina- roiða yfir fengið kaup á liðnu ári, þrátt fyrir Krekaðar til- raunir? Rikisskattstjóri svarar: Engin ákvæði er að finna í skattalöggjöf okkar, sem skylda launagreiðanda til þess að láta launþega i té af- rit af launamiða. 1 þessu sambandi þykir þó rétt að taka fram eftirfar- andi: 1. Ölium launagreiðendum eru látin í té launamiðaeyðu- blöð í f jórriti, þar aif em ætl- uð 2 eintök til handa skattyf- irvöldum, 1 eintak fyrir iaun- þega og 1 eintak fyrir launa- greiðanda. 2. Framtalin lauinaupphæð í framtaM er á ábyrgð fram- teljanda sjáMs, en ekki launa- greiðanda. Jónas Rafn Jónsson, Teigra- vegi 2, spyr: Hvar á greiðsla í Mfeyris- sjóð að færast á framtaís- skýrsluna? Rikisskattstjóri svarar: Fyrirspyrjianda er bent á 3. tL a. og b. IV. Frádrá'ttur bls. 2 í framtalseyðublaði. Páll Sigurgeirsson, spyr: Framteljandi, sem er skuld- laius um áraimót en á spari- skirteitni ríkissjóðs frá ýms- um tímum fyrir tæplega 500 þús. kr. Vextir og visitölu- hækkun er óútreiknað. Sleppur hann imnan þess rarrnna, sem ákveðinin er, viafrðandi spariskírteini og shattírelsi? Rikisskattstjóri svarar: Sé fyrirspyrjandi skuldlaus um sl. áramót em verðtryggð spariskírteini ríldssjóðs, sem njóta sama réttar og sparifé, sfor. 21. gr. laga nr. 68/1971, undanþegin framtalsskyldu og eignaskatti i framtaM 1973. Ennfremur era vextir og verðbætur ársins 1972 af slíkri uindanþeginmi eign und- undanþegin tekjuskatti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.