Morgunblaðið - 30.01.1973, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANOAR 1973
5
Eyjadeild á
Borgarspítala
Ólafur KR Guðmundsson, skurð-
læknir á sjúkrahúsinu í Eyjum,
hef ur rætt við landlækn; um það
hvernig heilsuigæzlu yrði háttað
fyrir Vestmannaeyinga, sem
komnir eru til Reykjaví'feur. En
á sjúkrahúsum i Reykjavík eru
um 50—60 manns frá Eyjum. Var
ákveðið að leggja til, að heilsu-
gæzlustöð yrði fyrir Vestmanna-
eyinga i nýju Grensásdeild Borg
arspítalans, sem ekki hefur ver-
ið hægt að opna vegna mann-
Reykjavíkurhöfn
heitir
fyrirgreiðslu
Á FUNDI liafnai'Stjórnar Reykja
vfknr sl. fimmtudag var gerð eft
lrfarandi sainþykkt :
„Hafnarstjórn Reykjavíkur
sendir Vestmannaeyingum kveðj
ur sdnar vegna þeirra váiegu nátt
úruhamfara sem yfir Eyjamar
hafa dunið.
Jafnframt heitir hafnarstjórn
útvegsmönnum og sjómönnum
frá Vestmannaeyjum allri til-
tækri fyrirgreiðslu hafnarinnar."
leysis og mætti starfsfólk sjúkra
hússins í Eyjum eiga von á að
vera kallað þangað til . starfa.
Þar yrði þá sjúkrahús Vest-
mannaeyinga. Einar Valur
Bjamason sjúkrahúslæknir ætl-
aði að verða eftir i Eyjum, en
Ólafur Kr. Guðmiundsson að
vera á sjúkrahúsinu í Reykja-
vík og sinna Vestmannaeyingum
og seinna mundu þe'.r svo skipta.
um.
10 þús. kr.
sænskar
VESTUR-SÆNSKA fiskimanna-
sambandið hefur lagt 10 þús. kr.
sænskar (um 206 þús. ísl. kr.) í
söfnun sænska dagsblaðsins
Göteborgs-Posten til styrktar
Vestmannaeyingum. Formaður
sambandsins, þingmaðurinn Ge-
org Áberg, bað við það tækifæri
fyrir kveðjur til Vestmannaey-
inga og sagði, að þrátt fyrir ólík
sjónarmið varðandi fiskveiðitak-
mörk, þá skyldi fullvissað um,
að sænskir fiskimenn stæðu með
Vestmannnaeyingum á stund
neyðarinnar.
Lionsmenn
safna
1 SAMBANDI við athurðina í
Vestiiiaiinaeyjirm i.efur Lions-
hreyfingin á fslandi opnað reikn
ing í Landsbanka íslands í
Reykjavik, sem er númer 3723,
og er mælzt til þess að einstakl-
ingar og Lionskliihliar, er vilja
senda fjárfranilög, leggi inn á
þennan reikning eða sendi uni-
dæmisstjórn.
Umdæmisstjóri Lionshreyfing-
arinnar, Þórður Gunnarsson, hef
ur ritað formönnum Lionsklúbb
anna um allt land bréf varðandi
þær áætlanir, sem Lionsmenn
hafa gert um aðstoð við Vesl-
mannaeyinga, en rétt þykir að
bíða átekta varðandi heppileg-
asta form þess stuðnings.
Nýkomið bó Schoiíhauser
MOHAIR-garn, tízkulitir.
SALVATORE- handprjónagarn, 50 litir.
LIVIA- véla- og handprjónagarn.
MON-AMOUR, babygarn.
Gjörið svo vel að líta inn.
Verzlunin HOF,
Þingholtsstræti 1.
Nýkomið iró Schoifhauser
Glæsilegt úrval af SMYRNA-teppum.
Svissnesk gæðavara.
Gjörið svo vel að líta inn.
Verzlunin HOF,
Þingholtsstræti 3.
L4ónG.(iUaAQnF
simi 20000.
DALE GARNEGIE
SÖLUNÁMSKEIÐIÐ
er að hefjast — mánudagskvöld.
Daie Carnegie sölunámskeiðið stendur yfir í 12
vikur, þar sem þú sjálfur tekur virkan þátt ásamt
sölumönnum frá öðrum fyrirtækjum.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að hjálpa hverjum
sölumanni, að ná sinum hámarksafköstum, sem
meðal annars eru fólgin í því að:
★ Byrja sölu sina á áhugaverðan hátt.
★ Komast að þörfum viðskiptavinarins með
hlutlægum spurningum.
★ Orva persónulegan áhuga fyrir sölustarfinu.
★ Ná markmiði fyrirtækisins og sínu eigin.
★ Bæta söluhæfni góðra sölumanna.
★ Draga úr kostnaði og áhættu sölunnar.
★ Spara tima sölumannsins og sölustjórans.
★ Nota báðar hliðar slöuhvatningarinnar —
hvetja sjálfan sig og kaupandann.
★ Nota 5 skref sölunnar með öryggi atvinnu-
mannsins.
★ Þjálfa tækni og öryggi í þvi, að mæta og
selja erfiðasta kaupanda.
★ Auka söluafköstin áður en námskeiðinu lýkur.
Námskeiðið er eingöngu ætlað starfandi sölumönn-
um vöru, hugmynda eða þjónustu. Námsbækur eru
á ensku.
Innritun og upplýsingar i sima 3 0216.
Þeir sem hefðu áhuga á því, að fá sendan að kostn-
aðarlausu, bæklinginn „FACTS AND FALLACIES
about selling and saiesmen" vinsamlegast látið vita
i síma 3 0216.
Stjórnunarskólinn
KONRÁÐ ADOLPHSSON.
Auglýsing
um gjalddaga fyrirframgreíöslu
opinberra gjalda 1973.
Samkvæmt reglugerð um sameiginlega innheimtu
opinberra gjalda nr. 95/1962, sbr. rglg. nr. 112/1963,
nr. 100/ 1965 og nr. 2/1972, ber hverjum gjaldanda
í Reykjavík að greiða á fimm gjalddögum frá febrúar
til júní, fyrirfram upp í opinber gjöld, fjárhæð sem
svarar 60% þeirra gjalda, sem á hann voru lögð
s.l. ár..
Gjaldseðlar hafa verið sendir út og er þar tilgreind
skipting á gjalddaga.
Fyrsti gjalddagi fyrirframgreiðslu er T. febrúar n.k.
Ef gjöld samkvæmt gjaldheimtuseðli eru ekki
greidd áður en 2 mánuðir eru liðnir frá gjalddaga,
verður greiðandi krafinn um dráttarvexti af því, sem
ógreitt er 1% fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði
sem líður fram yfir frá gjalddaga. unz gjöldin eru
greidd.
Kaupgreiðendum er skylt að halda eftir opinberum
gjöldum af launum starfsmanna að viðlagðri sömu
ábyrgð og þeir bera á eigin gjaldskuldum.
Verði kaupgreiðandi valdur að því með vanskil-
um á innheimtufé, að gjaldandi fái kröfu um dráttar-
vexti, verður kaupgreiðandi gerður ábyrgur fyrir
greiðslu þeirra, auk þess sem bent er á, að slík
vanskil varða refsingu samkvæmt 247. gr. hegning-
arlaganna.
Gajldendum er bent á að nota sér giróþjónustu við
greiðsiu opinberra gjalda til Gjaldheimtunnar.
Reykjavík, 30. janúar 1973.
Gjaldheimtustjórinn.
í§li
§|f|
:Mm
, ■■■■ •- '
S'-'Y:
11
Appelsínur
Hreinol grænt
Kjörís Fromage
Hersey s Instant
Cocoa
Shiny de Luxe
shampo
Rainbow Hair
Spray
3 kg. 183.00
Zi Itr. 37.40
1 Itr. 65 00
8 oz. 50 00
i/i Itr. 93 00
18 oz. 169 00
32.-
54.-
42.-
76.-
135.-
K-KAUPMAÐURINN
SELUR ÓDÝRT