Morgunblaðið - 28.02.1973, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. FEBRÚAR 1973
15
„Hvað .íp hluturlnn hjft
háseta niikill?"
„Ætli hann sé ekki um 250
þús. kr. með þessum róðri.“
„Hvjfrnig; leggst úthaldið i
þig?“
„I»að leggst ágætlega í mlg.
Við byrjuðum 21. janúar, en
urðum þó að vera í landl í
vlku vegna bilunar. Það er
bara verst með löndunarvand
ræðin, það mimar um Eyjar
og það iK'fði verið hægt að
ausa miklu magni upp þar
þessa dagana. Þar er felkileg
loðna og nótin fór á svarta
kaf hjá okkur í síðasta kasti.“
,,l»að var komin austan-
bræla og degi tekið að halla,
þegar við kvöddum þá á
Heimi með góðum óskuni
eins og .enja er hjá sjómönn-
um, en við höfðum haft Kefl-
viking í sigti og tókum þvi
Stefnuna á hann. í»að gekk þó
hægt, sigling á móti, komin
6—7 vindstig og báturlnn far-
Inn að mígleka. Austurtrogið
var látið í gang viðstöðulaust
og Litli-Doj var aftur orðinn
skrlðléttur, þegar við nálguð-
unist Keflviking KE 100.
Eiuar Gaðmundsson skip-
stjóri var liinn vígalegasti i
brúnni, með feikn mikla
kuldahúfii. Það vantaði bara
reiðskjóta á fjórum fótum til
þess að liann liti út eins og
foringi á liásléttum Asíu.
„Við erum komnir með 2000
tonn,“ sagði hann, „og við
höfurn aðallega landað fyrir
austan, en einnlg í Grindavik
til reynslu. Um 480 tonn fóru
í vinnslu, en íííft hefur farið
í bræðslu. Við erum 13 á og
skipið lestar 260 tonn. Við er
um núna komnir með 170
tonn í bátinn, en við tökuni
210 tonn í iest. Við erum með
annað kastið núna. í fyrsta
kastinu snerist nótin við af
því að hún yfirfylltist svo að
við náðum ekki neinu. Við vor
um liins vegar heppnir að
losna við aflann úr nótinni úr
þvi að svona fór og ná lienni
kiárri."
„Mikil loðna?“
„Það er alveg hellingur að
renna liérna vestur núna, og
nóg er af henni, svo að þetta
leggst vel i mann, en okkur
vantar bara pláss hér um
borð. I»að er lika slænit að
geta ekki landað í Eyjum
núna, hreint heiviti.“
„Þegar við kvöddum þá á
Keflvíkingi, voru þeir að gera
klárt fyrir þriðja kastið. Hin-
riksmenn voru ennþá að fást
við nótina og Heimir var að
gera klárt fyrir kast. Þeir
voru aliir i.rðnir hlaðn'r bát-
arnir í kring. Nokkrir bátar
voru skammt undan, ýmist að
toga eða dæla og það var allt
i gangi. Loðnan á vesturieið
í þykkum torfum.
Brælan hafði tekið völdin
og við vorum nærri kiukkii-
tíma að sigla aftur til Heima-
eyjar. Fyrir rúmum mánuði
var brimótt aiveg inn fyrir
hafnargarða í slíku verði en
nú vorum við komnir i var
fyrir austan Yzta-Klett, en ekk
ert hraun hefur runnið í átt
að klettinum í marga daga og
er sundið á niilli Hðlega 140
metra breitt.
Vlð brunuðum framhjá
Nausthamarsbryggju og Báta
skersbryggju, inn í Friðar-
höfn, sem 80 báta lægi, þar
voru kálgarðar Eyjaskeggja
fyrir nokkrum áratuguni, en
allt er' hægt, ef viljimi og
áræðið er fyrir hendi. Finun
loðnubátar voru að landa þar
í Gúanóið, þessari gömlu fiski
mjölsverksmiðju, sem Gísli J.
Johnsen stofnaði á fyrri liluta
þessarar aldar. Þrír Eyjabát-
ar og 2 aðkomubátar og fleirl
Eyjabátar voru í höfninni. Við
renndum að einum loðnubátn-
um, ísleifi IV og röbbiiðum
við Jón Berg skipstjóra. Þeir
liöfðu lokið iöndun fyrlr 4
timuni og voru komnir aftur
inn með fullfermi. Hann var
hinn hressasti, en þó er að-
eins skorsteinninn upp úr ösk
unni, þar sem nýlegt tveggja
hæða liús lians er við Búastaða
braut. Og fimm metra frá
einum gafli hússins er 10
metra hár kantur gjallfjalis-
ins eftlr að það hrundi í átt-
ina að bænum fyrlr viku. Ná-
búi Jóns Bergs hafði á orði,
að loksins væru þeir búnir að
fá sk í ðabrikk u rn ar.
„Við byrjuðum si. þriðju-
dag á Ioðnunni,“ sagði Jón
Berg, „og erum með 730 tonn.
Okkur seinkaði vegna gossins.
tír fyrsta túrnum lönduðum
við á Seyðisfirði, en úr síð-
ustu þremur túrum höfum við
landað hér heima. Það er eng
in höfn eins og þessi höfn,
frábært.“
„Hvernig lízt þér á breyt-
inguna í innsiglingimni?“
„Maður er nú ekki orðlnn
vanur henni alveg ennþá og
eins og er finnst mér hún
leiðinleg fyrir hlaðinn bát í
myrkri. En sú bezta sarnt sem
áður. Þetta er alit í lagi fyrir
okkur heimamennina og við
koniiim væntanlega aftur í
nótt. Við erum ekki búnir að
reka upp tærnar.“
Hér á síðunni eru þrír skipstjórar, sem blaðið heim-
sótti á loðnuslóðunum norður af Eyjum í fyrradag, þeir
Einar Guðmundsson, Keflvikingi (efst), þá Magnús Þor-
valdsson, sem er með Heimi, og Jón Berg, sem er
skipstjóri á ísleifi IV, en þeir á ísleifi tvífylltu á fáeinum
klukkutimum. Neðsta myndin er af Marinó Sigursteins-
syni, sem var með „Litla-Doj“ á siglingu Morgunblaðs-
manna. — Þá er hér á litlu myndinni loðnan komin til
Vestmannaeyja, en á þeirri efstu eru þeir að hífa nótina
um borð í Hinrik frá Kópavogi eftir að hafa fengið hana
í skrufuna. Myndirnar á hinni siðunni eru frá loðnumið-
unum þarna rétt fyrir handan Eyjarnar. — Sigurgeir tók
myndirnar.