Morgunblaðið - 10.03.1973, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MARZ 1973
21
Nei hvað konan þín minnir mig á mína konu!
— Aili fór 1 útilegu fyrir
tveimur árum og er ekki kom
inn enn.
— Þá spurði ég hann
hvort hann þættist vera hús-
bóndinr. og hann svaraði mér
ekki einu sinni.
— Nú þarftu ekki að hafa
áhyggjur af því hversu mikið
þjónustugjald þú átt að gefa
gengilbeinunum.
— Nei, þú færð ekki að
spyrja lækninn um gallblöðr-
una í þér Doddi minn!!
Hrúturinn, 21. marz — 19. aprU.
I»« krmur þér vel íyrir í smáatriSum og hejmiHslífið er að
lagast, þótt clálítið sé ásetið í svipinn.
Nautið. 2«. april — 20. maí.
Kitthvað hvetur þis til að reyua að standa þi|t hetur. I.ítið
fuírðu f.vrir pening'ana.
Tviburarnir 21. mai — 20. júni
l»ú ert við öliu búinn ng forsjálni þín kemur að fuilum notum.
Krabbinn, 21. júni — 22. júlí.
Framinn herst þór upp í hendurnar, þútt þér finnist ekkert srer-
ast.. Unsa fólltið býr .vfir einhverju.
Ljonið, 23. júlí — 22. ágúst.
I»ú velur þér hentuBa stefnu áður en atburðir dagsins ná að
rusla þÍB í ríminu.
Mærin, 23. ágúst — 22. september.
Það eru ekki allar ályktanir tímabærar. Þú hefur nægan tíma
til að hrinda öilu í framkvæmd samkvæmt áætlun.
Vogin, 23. september — 22. október.
l»ú þarft að koma víða við tii að *©ta sinnt starfi þínu ©ins og
æskiloRt er, en athuR'ar um leið vel, að láta ekki lofa aðra fyrir
verk þín.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
i»ú tyK'jar þig til og reynir að ktnuast í samband við rétta aðila.
l»ú hugsar mikið um Iiðna tið.
Bogmaðnrinn, 22. nóvember — 21. desember.
Þú hefur orðin heldur færri þessa dugana, en framkvæmir því
meira, og lagfærir og leiðréttir ótal skyssur. Gott að skipuleggja
ferðalög.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
I»ú finnur loksins glætu undir hádegið, þegar þú ert að verða úr
kula vonar. l»ú ferð fremur eftir eigin hyggjuviti en skipulagi.
Vatnsberínn, 20. janúar — 18. febrúar.
l»ú stendur þig vel og tekst að lokka náungann. l»ú reynir jafn-
vel að vera dálítið kristilegur.
Fiskarnir. 19. febrúar — 20. marz.
l»ú varar þig á rafmagni og hita í dag. Félagar þlnir reyna að *
draga þig með sér.
Friðun
Faxaflóa
Akranesi, 2. marz 1973.
ÁRUM saman barðist Árni Frið-
riksson fiskifræðingur fyrir frið
un Faxaflóa fyrir veiðum með
botnvörpu og dragnót, og benti
erlendum þjóðum á hversu geysi
mikilvæg uppeldisstöð Faxaflói
væri fyrir ýsu og annan smáfisk.
Síðan hafa ýmsir menn haldið
þeirri baráttu áfram.
í dag erum við almennt að
gera það sama, við erum að
reyna að sannfæra aðrar þjóðir
um nauðsyn friðunar fiskstofn-
anna og sér í lagi á ungfiski, ekki
aðeins í Faxaflóa, heldur á land-
grunninu öllu. Hvaða mark verð
ur tekið á okkar rökum, ef við
sjálfir ætlum að ræna ungfiski
á einni aðal uppeldisstöð okkar,
eins og ýmsir spekingar vilja, til
að fá fisk í soðið.
Það er þó alveg til að bita
hausinn af skömminni þegar yfir
maður Hafrannsóknastofnunar-
innar, Jón Jónsson, lýsir þvi yfir
í útvarpsviðtali, að óhætt sé að
opna Faxaflóa fyrir botnvörpu
og dragnót, aðeins til þess að
hann geti fengið ýsu í pottinn.
Á þennan mann lýsum við al-
gjöru vantrausti. Við héldum
satt að segja, að Hafrannsókna-
stofnunin væri fyrst og fremst
til vísindalegs eftirlits fiskstofn-
anna, en ekki til útrýmingar
þeirra. Forstöðumaðurinn var að
vísa til Sviss, þar væri hægt að
fá soðfisk, og var engu likara
en hann væri að gefa i skyn, að
þar hefðu þeir sinn Faxaflóa til
að sækja i soðfiskinn. Allavega
átti það að vera lausnin hér að
opna Faxaflóa.
Við teljum að í Sviss þurfi
þeir að flytja sinn fisk langar
vegalengdir. En hér á fslandi
virðist það eitthvað voðalegt ef
soðfiskur er fluttur á milli
hreppa, þótt alls konar varning-
ur sé fluttur á bilum jafnvel
700—800 km leið. Þá eru land-
búnaðarvörur, t. d. mjólk, fluttar
héðan frá Akranes-svæðinu til
Reykjavíkur og aftur til baka í
fernum, og enginn segir orð.
Þá væri fróðlegt að fá skýr-
ingu hjá forstöðumanninum,
hvernig á því stendur, að í hvert
skipti sem Faxaflóa er lokað,
stóreykst ýsumagnið á skömm-
um tíma, en þegar botnvarpa og
dragnót hafa verið notuð þar
nokkurn tíma, verður Faxaflóinn
nánast eins og eyðimörk, eins og
hann var orðinn t. d. 1950 og
fyrir síðustu lokun.
Þá viljum við í framhaldi af
þessu birta eftirfarandi skýrslu,
sem Útvegsmannafélag Akraness
lét taka saman um ýsuafla Akra
nesbáta (á línu) á haustvertíðum
frá 1960 til 1972: kg róðrar í tonn róðrt
1960 159.080 64 = 2,5
1961 332.496 138 = 2,4
1962 246.990 67 — 3,7
1963 105.440 32 = 3,3
1964 223.870 89 = 2,5
1965 510.680 254 = 2,0
1966 381.780 192 = 2,0
1967- 103.200 56 = 1,8
1968 116.330 163 = 0,7
1969 206.410 252 = 0,8
1970 156.49C 212 = ‘ 0,7
1971 308.460 309 = 1,0
1972 311.745 179 = 1,7
Vorið 1970 var Faxaflóa lokað,
og árangurinn lætur ekki á sér
standa. f stað 0,7 tonna afla í
róðri fyrir lokun var aflinn í
haust sem leið 1,7 tonn í róðri.
Ef það óheillaspor væri stigið
að opna Faxaflóa aftur fyrir áð-
urnefndum veiðarfærum, viljum
við lýsa ábyrgð á hendur þeim
mönnum sem að því standa.
Virðingarfyllst,
Útvegsmannafélag Akraness.
Þórðnr Óskarsson,
Haraldur Sturlaug-sson.
[ á vegum i
DflGLECn
r r
HJOLHYSA-SYNiNG 1973
Sýning og sala á CAVALIER 1973 hjólhýsum veröur daglega
næstu 3 daga frá kl. 1 e. h. til kl. 6 - einnig laugardag og
sunnudag á sama tíma.
★ Sýningin er haldin í húsakynnum VÉLABORGAR,
Skeifunni 8 (neðri hæð).
Nokkrir punktar um CAVALIER-hjólhýsin:
0 Húsin eru fallega innréttuð, úr ljósum viði.
0 Innrétting er t.d. dagstofa sem breytt er í svefnherbergi yfir nóttina, 5
rúm, eldhús og klósett.
0 Cavalier-hjólhýsin eru sérstaklega vel einangruð, gólf, loft og veggir.
0 1973 módelin eru með tvöföldu gleri.
0 Húsin eru með yfirstærð af ofnum.
0 Að utan eru húsin klædd áli, en grind galvaniseruð, þannig að ekkert get-
ur ryðgað.
0 Húsin eru á „extra“ stórum dekkjum, sex strigalaga og með aurhlífum.
0 Vegna íslenzku malarveganna eru settar báraðar álplötur framan á hús-
in, upp að gluggum.
0 Rafmagns-vatnsdæla innifalin í verðinu.
0 Við tökum húsin til vetrargeyms lu.
0 Við reynum að auðvelda fólki að eignast þessi sumarhús t.d. með að Iána
í þeim.
0 Reynsla sýnir að endursöluverð á CAVALIER-húsunum er hátt.
—Þið eruð velkomin í Skeifuna 8. — GÍSLI JÓNSSON & CO. HF.
Skeifan 8, símar 11740 og 86680.