Morgunblaðið - 10.03.1973, Blaðsíða 25
hún geislaði af honum og smlt-
aði frá sér hvar sem hann fór
og átti ekki minnstan þátt í þvi,
að hann var hvers manns hug-
Ijúfi.
Ég bjó með Páli Þór á her-
bergi í heimavist MA tvo vet-
ur og kynntist honum því náið;
seinni veturinn bjó ég einungis
í heimavistinni af þvi ég átti
kost á að búa á herbergi
með honum. Hann var
hélt heim til Húsavikur að
einstakur herbergisfélagi, jafn-
iyndur, glaðvær, tillitssamur og
hjálpsamur, enda man ég ekki
til þess að okkur yrði nokkurn
tima sundurorða þessa tvo sam-
býlisvetur, þó okkur greindi
stundum á um sitt af hverju.
Páli Þór var snemma mikill
áhugamaður um leiklist, enda
gæddur miklum leikarahæfileik
um. Hann var aðalhvatamaður
að stofnun Leikfélags MA, drif-
fjöðrin í starfi þess síðustu ár
sin í menntaskóla og aðalleikari
þess samtimis. Auk þessa hæfi-
ieika var hann ágætur iþrótta-
maður og tók allmikinn þátt í
þeim á mennfcaskólaárunum.
Páil Þór lagði stund á við-
skiptafræði að loknu stúdents-
prófi og lauk prófi í henni frá
Háskóla Islands 1954. Hann
hélt heim t il Húsavíkur að
loknu háskólanámi. 1955 varð
hann bæjarstjóri á Húsavík og
gegndi þvi starfi til 1958. Þá
fluttist hann til Reykjavíkur og
hóf að starfa hjá Olíufélaginu
Skeljungi og vann þar til 1962.
Þá fluttist hann aftur til Húsa-
víkur og setti þar á stofn hluta
félagið Öskju, verzlunarfyrir
tæki, sem hann veitti forstöðu
til dauðadags.
Páll var mikils virtur og vin-
margur borgari á Húsavík og
setti svip á bæjarlífið þar.
Hiann tók sem áður mikinn þátt
í félagsstarísemi og á hann hlóð
ust ýmis trúnaðarstörf. Hann
var m.a. um skeið formaður
Sjáifstæðisféiags Húsavíkur,
formaður Ekknasjóðs Húsavík-
ur og Lánasjóðs smábátaútvegs
ins á Húsavík um tíma. Hann
var í Lionsklúbb Húsavíkur og
starfaði mikið fyrir hann og
söng I Kirkjukór Húsavikur.
Hann var um skeið formaður
Bandalags íslenzkra leikfélaga
og starfaði einnig mikið hjá
Leikfélagi Húsavíkur og var
einn aðalleikkraftur þess um
árabil.
Páll Þór Kristinsson var
fæddur á Húsavík 11. júlí 1927
og var því 45 ára að aldri, þeg-
air hann lézt 27. febrúar síðast-
liðinn eftir langa vanheilsu.
Hann kvæntist Aldísi Friðriks-
dótfcur hjúkrunarkonu, sem
eininig er frá Húsavik, árið 1956
og eignuðust þau þrjú böm,
tvær dætur og einn son. Ég
votta fjölskyldu hans dýpstu
samúð mina við fráfall hans og
ég veit að gömlu bekkjarsystk-
inin úr MA fcaka undir það af
heilum hug.
1 okkar röðum er nú skarð
fyrir skildi, þar sem hann var
og það skarð verður aldrei
fyllt. En mér er það ofurlitil
huggun að eiga eingöngu um
hann góðar minningar. Slíkur
mannkostamaður v>ar hann.
Eyþór Einarsson.
LOKAÐ I KVÖLD
vegna einkasamkvæmis.
f hádegisverSartímamjm fram-
reiðum við að venju fyrsta
flokks kaft borS, auk fjötbreyttra
vaitinga allan daginn.
MORGUNBLAEHÐ. LAUGARÐAGUR 10. MARZ 1973
25
INGÓLFS-CAFÉ
GÖMLU DANSARNIR ( KVÖLD.
HLJÓMSVEIT RÚTS KR. HANNESSONAR LEIKUR.
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 5. — Símí 12826.
MS SKIPHÓLL
ÁSAR
Matur framreiddur frá kj. 7.
Borðpantanir í síma 525Ö2.
SKiPHÖLL, Strandgötu 1, Hafnarfirði.
leika í kvöld. — Sætaferðir frá B.S.Í. kL 9.30.
UNGÓ.
Ungó
(^V,//cmóVcÆn
ELDRIDANSA-
KLUBBURINN
Gömlu
dansarnir
i Brautarholti 4
i kvöld kl. 9.
Hijómsveit Guð-
jóns Matthíassonar
leikur.
Söngvarí Sverrír
Guðjónsson.
Sími 20345
eftir klukkan 8.
STAPÍ
— Munið nafnskirteinin.
STAPI.
Svanfríður skemmtir i kvöld.
Simi
11544.
frumsýnfr
"FREE, TENÐER, LIFE-LOVING, CREATIVE AND CONCERNED ABOUT VALOES.
A MIUEU IN WHICH INTER-RACIAL SEXUALITY IS A SIMPLE FACT RATHER
THAN A REBEL CAUSE." -Playboy
Bönnuð innan 12 ára.
Sýud kL 5, 7 og 9.
Kveðjum Trúbrot
í Tónabæ í kvöld
Aðgangur 175,00 krónur.
Aldurstakmark fædd 1957 og eldri.
Nafnskírteini.