Morgunblaðið - 07.04.1973, Side 10
MÖRGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1973
Ford Ghia.
„Öryggis-smábíU“.
Piymoutii GrandAm
í DETROIT eru aðalbæki-
stöðvar bílaframleiðslu í
Bandaríkjunum. Árið 1972 var
óvenjulegt ár í Detroit. 1
fyrsta sinn í sögunni voru aft-
urkallaðir fleiri bílar heldur
en framleiddir voru — yfir
10 milljónir.
Meðal þeirra voru 6 milljón
Chevrolet bilar, sem grunur
lék á að hefðu gallaða vélar-
ísetningu.
Nú eru gengnar í gildi í
Bandaríkjunum reglur um að
allir nýir bílar skuli vera með
höggdeyfum er þola árekstur
allt að 8 km/klst hraða. Ýms-
ir töldu að með þessum regl-
um hyrfi fjöldi tegunda af
markaðnum. En svo fór alls
ekki og bílasmiðir Detroit
sýndu mikla hugvitssemi við
gerð nýrra höggdeyfa.
Spurningar um kostnaðinn
við þessa framleiðslu og þá
notagildið voru ekki látnar
sitja í fyrirrúmi er þessar
reglur voru settar. Hvað ger-
VW Buggy.
ist við árekstur á 10 km/klst
hraða? Þá er miklu dýrara að
gera við skemmdirnar heldur
en þegar venjulegur útbúnað-
ur er. En slit er höfuðverkur
neytandans, ekki stjórnmála-
mannsins, sem kemur fram
með lögin. Hér eru þegar
farnir að sjást ameriskir bíl-
Um höggdeyfa
og fleira
ar með þessum klunnaiegu
höggdeyfum.
Annars verður meira .rætt
um ameríska bíla i þessum
þætti á næstunni.
Ford verksmiðjurnar brezku
keyptu í desember 1972 stór-
an hlut í fyirirtækinu de Tom
aso Inc., sem er á Ítalíu og
sérsmíðar og hannar bíla
(t.d. De Tomaso Panterna).
Ford hefur einnig sameinað
hönnunar- og framleiðsiuað-
stöðu frægra ítalskra bila-
smiðja Carrozzerie, Ghia, Vign
ale og Ford Italiana í eitt
fyrirtæki, kallast Ghia.
Hér fylgir mynd af Ford
Ghia MK I, sem er byggður
eftir Ford Granada þriggja
litra gerðinni, en aftur- og
framenda hefur verið breytt
og að innan er bíllinn allur
vandaðri.
Bíllinn var fyrst sýndur á
bílasýningunni í Genf 15.—
25. marz sl. Enn er óvíst
hvort þessi gerð verður sett
óbreytt í fjöldaframleiðslu.
>á eru hér myndir af tveim
smábílum. Annars vegar er
VW Buggy (sandhólabíli) frá
Kaliforníu, á breiðum dekkj-
um og án vélarhlífar. Hætt
er við að ila gengi að f á skoð
un á siikt tæki hérlendis.
Hins vegar er öryggis-smá-
bíll, sem gengur fyrir raf-
magni en varla er hægt að
taka þessa gerð alvarlega. En
hvert er stefnt?
Meinleg viila slæddist inn
í þáttinn fyrir 2 vikum og
skal af því tilefni skýrt tek-
ið fram að sportbíllinn frá
Datsun, Datsun 240 Z er aft-
urdrifinn.
Dátar
— gamalt nafn,
ný hljómsveit
Fyrir sex árum eða svo
lognaðist hljómsveitin Dátar
út af eftir nokknrra ára
starf. Hljómsveitardauði er
ekki ýkja merkilegt fyrir-
bæri og það var heldur ekki
meiningin að skrifa langa
tölu um það. Tilefni þessara
skrifa er það, að nú eru Dát-
ar aftur komnir í sviðsijósið,
ákveðnir í að hasla sér völi
á nýjan leik.
Og hverjir skyldu svo vera
í nýjum Dátum? Aldursforset
inn heitir Hilmar Kristjáns-
son og hann er sá eini þeirra,
sem var í gömlu Dátunum —
kallar sjálfan sig uppgjafa-
hermann. Hilmar spilar á gít-
Hiimar.
ar. Ari Brimar Gústafsson
leikur á bassa og hann hefur
m.a. leikið með Fjörkum. Guð
mundur Daði Pétursson heit-
ir ungur maður; sá spilar á
gítar og er eini nýliðinn í
hópnum. Síðast en ekki sízt
skal svo nefndur fjórði dát-
inn, Grimur Bjarnason, fyrr-
um trommuleikari í Tilveru,
hann ber húðirnar í Dátum.
Við ræddum fyrir skömmu
stuttlega við þá félaga Grím
og Hilmar og voru þeir báðir
hressir i bragði — ánægðir
með að vera komnir aftur í
hljómsveitarbransann. Við
spurðum Hilmar fyrst hve-
nær þeir ætiuðu að byrja að
leika opinberlega og hvernig
Guðmundur.
tónlist þeir ætluðu að flytja
væntanlegum hlustendum sín
um.
— Við komum sinn úr
hverri áttinni og ég reikna
með að við flytjum blandaða
tónlist. Við erum búnir að
æfa í mánuð og byrjum að
spila af fullum krafti um
þessa helgi.
Siðan Tilvera andaðist hefur
lítið heyrzt frá Grimi og því
spurðum við hann hvort
hann hefði alveg hvílt sig
frá húðslætti i þetta ár sem
nú er liðið frá láti Tilveru.
— Ég eyddi fyrri hluta árs
ins við að æfa með „súper-
grúbbu" sem bar nafnið Axis
Grímur.
sagði Grímur. En því miður
varð hljómsveitin aldrei
nema nafnið, að vísu fórum
við í eina Ameríkuferð, en þá
ferð ætti frekar að kalla æv-
intýri en hljómleikaferð.
Seinni hluta ársins slappaði
ég svo af.
Þá inntum við félagana eft
ir því hvort þeir semdu sjálf
ir lögin, sem þeir ætla að
flytja. Sögðust þeir ailir
föndra lítillega við að semja,
en til að byrja með ætluðu
þeir aðeins að hugsa um að
skemmta fólki og hafa gam-
an af því að spila. Þegar
fram í sækti væri aldrei að
vita hvað þeir gerðu, tíminn
yrði að skera úr um það.
Ari.
Loks spurðum við þá
hvernig tónlist þeir héldu að
fólkið vildi heyra og látum
við álit þeirra fylgja með 1
lokin.
— Fólkið vill heyra tón-
list, sem lætur þægilega i eyr
um og það getur tekið und-
ir. Góður kunningi okkar
sagði einu sinni að fólkið
vildi fá að syngja fyrsta vers
ið, skála í miðju lagi o.s.frv.
Okkur finnst talsvert til í
þessu hjá honum og á þessu
verður tæpast breyting fyrr
en upp kemur staður þar sem
fólk getur hitzt til að tala um
tónlist og hlusta.
- áij.
Húmgott húsnæði ósknst
á leigu, hentugt fyrir bílaleigu.
Upplýsingar í síma 30674.
Einbýlishús ósknst til leigu
Starfsmaður bandaríska sendiráðsins óskar að taka
einbýlishús á leigu frá 1. júlí nk. til langs tíma.
Upplýsingar í símum 11084 og 19331 á skrifstofutíma.
JúorrsunþTaWt)
nucLvsincnR
^-»22480