Morgunblaðið - 07.04.1973, Síða 20
20
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. APRÍL 1973
fclk
i
fréttnm
.>!r.
PERSÓNULEGT MET
Poppsöngvarinn Elton John,
nýtur stöðugt vinsælda og
sankar að sér guUplötum, bæði
í Engiandi og Bandaríkjunum.
Hann hefur sett persónulegt
met og gengur nú um í skóm
með hærri hælum og þykkari
sólum en nokkru sinni áður.
Alls eru sólarnir fimm og eru
af gömlu skónum hans, sem
þóttu þó nógu háir einir sér.
SÁ VAR HEPPINN
Það er ekki að undra þó að
frú Debbie Charlton gráti af
gleði yfir því að Michael litli
fékk ekki eina einustu skrámu.
Hún var á 100 km hraða á bíln
um sínum í Alabama, þegar
Michael, sem er fimm ára fikt-
aði eitthvað við húninn. Það
hafði þær afleiðingar að hurð-
in opnaðist og Michael lá á
götunni. Stór vörubill hafði
keyrt á eftir þeim, en bílstjór-
inn hafði augun hjá sér
og hemlaði snarlega. Michael
hafði samt sem áður lent undir
bilnum og þar lá hamn
óskaddaður — með höfuðið 1
om frá framhjóli vörubílsins.
☆
FINNSK FEGURÐ
Stúlkan héitir Helena Poski-
parta og er frá Finnlandi, hún
var nýlega kosin ungfrú Yard-
ley Finnlands. Myndin er tekin
á blaðamannaf. sem hún hélt
nýlega í London, en ferð þang
að fékk hún fyrir að vinna í
Yard-ley fegurðarsamkeppninni.
Poskiparta er 25 ára, en því
miður herrar mínir, hún er gift
Risto Poskiparta.
HVERJUM ÞYKIR
5°GHO/Uo -2-3JL
Myndin sýnir John Lennon ist John hafa áfrýjað dómi
og Yoko Ono á blaðamanna- sem kvað á um að hann skyldi
fundi sem þau efndu til á mánu vera á brott frá Bandarikjun-
daginn i New York. Þar sagð- um innan tveggja mánaða.
Steve McQueen og Ali McGraw eru vinsælt par á hvíta tjaid-
inu.
MORÖKVENDIB ALI
MCGRAW
Ali McGraw, stjarnan úr
Love Story, hafði aldrei áður
haldið á skammbyssu, en þeg-
ar taka síðustu myndar henn-
ar hófst var hún þó orðin sæmi
lega leikin í að handfjatla slíkt
vopn. Það var mikið stökk fyr-
ir leikkonuna sem hafði unnið
hvers manns hjarta með leik
sínum sem hugljúf, ung stúlka
í Love Story. Nú lék hún harð-
geðja morðkvendi, sem einskis
sveifst, en Ali McGraw var
ánægð með skiptin og fegin
að losna undan þeirri mynd
sem almenningur hafði gert sér
af henni.
Hún segir: — 1 einkalífinu
er ég hvorki sérstaklega lag-
leg eða aðlaðandi, ég er bara
kona. Þegar ég las handritið
að „Vild Flugt“ og komst að
að ég þurfti að aka bifreið i
lífshættulegum atriðum leizt
mér ekkert á blikuna. Ég vissi
næsta litið um bifreiðar og alls
ekki hvemig átti að aka svo-
leiðis tækjum. Nú hef ég lært
það og ég elska að aka, þvi
hraðar því betra.
Það var þó enn erfiðara að
leika morðkvendi með skamm-
byssu og ég ætlaði varla að geta
miðað byssunni að Ben John-
son, einum þeim albezta ná-
unga, sem ég þekki i kvik-
myndaiðnaðinum. Það átti að
líta raunverulega út, en þetta
var þó allt saman aðeins leikur
og að lokum hafðist það lika.
Kvikmyndin „Vild Flugt“ er
fyrsta kvikmyndin sem fram-
leidd er af fyrirtæki sem heit-
ir „First Artists Production" og
það eru engir smákarlar sem
sitja í forstjórastólum fyrir-
tækisins. Engir aðrir en leik-
ararnir Paul Newman, Steve
McQueen, Sidney Poiter og
Barbra Streisand. Sá sem stjórn
aði kvikmyndatökunni heitir
Sam Peckingpah og er hann
vel þekktur af fyrri myndura
sínum.
Bandariskir kvikmyndagagn-
rýnendur hafa kallað Steve
McQueen, Ali McGraw, Hump-
rey Bogart og Laureen Bacall
áttunda áratugarins. McGraw
og McQueen búa nú saman i ó-
vígðu hjónabandi að því að
sagt er, en hún er ekki alveg
á sama má'li. Hún segir að
henni líki vel við Steve og lík-
ir honum við dansarann Nurey-
ev og Edward Villella, en það
eru þeir þrir menn sem hún
dáist mest að.
UÆTTA Á NÆSTA LEITI -- Eftir John Saunders og Alden McWilliams
r SHOULD'VE
EXPECTED IT/
WHEN you WANT
A RAVEN MALE
TO DO SOMETHING
IN A HURRy...
you WALK
Í BEHINO HIM r
U WITH A CLUB !J
J*ett& er hlæg'Regt. I>aö &etur ekki tékið fig hefði svo Sem mátt vita það, þegar eitthvað, þá verður að ganga. á eftir hon-
Uee Roy merra en fiiiim án m nútiir að líarlkynstofn Rayen ættartnnar á að geta um með kylfij!
staWa bíl o£ aka eina. hiisleni;d (2Tmyiid) J - 1
☆
ADEINS GOÐSÖGN
Menn eru misjafnlega hrifn-
ir af Elvis Presley, rokksöngv
aranum fræga. Sænskur blaða-
maður eyddi einni kvöldstund
i Las Vegas í að hlusta á Elvis
og her hann honum ekki vel
söguna, blaðamaðurinn sagði
að Elvis væri hallærislegri en
nokkum tímann fyrr, hann
hefði fyrir löngu tapað rödd-
inni og nú syngi hann eins og
hann væri með „króníska háls
bólgu“. Elvis væri búinn að
vera, en lifði á goðsögninni sem
hefði skapazt um hann.