Morgunblaðið - 09.05.1973, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 1973
® 22-0-22-
RAUÐARÁRSTÍG 31
______________-J
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
BÍLALEIG A
CAR RENTAL
B0RGARTÚN29
STAKSTEINAR
Hin styrka hönd
Mafíiuís Kjartansson fagn-
aði því á sínum tíma, að
frjáls skoðanamyndun ætti
sér ekki stað í Tékkóslóvakíu.
Þessum manni hefur ætíð
staðið stug-gur af þvi, sem
eflt gæti frjálsa hugsun.
Þetta er ósköp eðlilegt, þvi
að framkoma mannsins öll
er með því lagi, að ótrúlegt
er, að nokkurn tima hafi
hann talið frjálsa hugsun til
mannréttinda.
Magnús Kjartansson er sá
einn ráðherra á fslandi, sem
hefur atyrt þingmenn fyrir
að beina til sín fyrirspiirnum.
Hann hefur lýst því yfir í
alþingi, að hann sé þar ekki
kominn til þess að svara fyr-
irspurnum þingmanna. Stend-
ur þó í stjórnlagafræði for-
sætisráðherrans, að slíkt sé
helzta embættisskylda ráð-
herrans.
Og á sama hátt og Magnús
Kjartansson neitar að svara
fyrirspurnum þingmanna, þá
svaraði hann ekki bréfi
tryggingafélaganna um ósk
um hækkun iðgjalda af bif-
reiðatryggingum. Hafði þetta
bréf þó verið sent i febrúar
sl. til þess að ráðherrann
hefði timann fyrir sér. En
það dugði Magnúsi Kjartans-
syni ekki. ftrekuðum óskum
tryggingafélaganna um svar,
— jákvætt eða neikvætt —
var ekki sinnt. Trygginga-
félögin voru þvi tilneydd til
þess að segia upp sanming-
um sínum um bifreiðatrygg-
ingar.
Astæðan fvr’r bvi. að Magn
ús Kiartansson svarar ekki
bréfi tryggíno-afélaganna,
er sú. að iafnframt eðlislægri
óbeit ráðberrans á lýðræðis-
legum vinnuhrögðum, þá er
Magnúsi það mjög í mun að
koma ölliim heilbrigðum at-
vinnurekstri á fslandi fyrir
kattarnef. Magnús Kjartans-
son hefur enn mesta trú á
þeirri styrku hönd ríkis-
valdsins, sem á sínum tíma
Ieiddi Masaryk að glugga
herbergis síns í Prag.
Fari her
og veri her
Eins og kunnugt er, sam-
þykkti miðstjórnarf undur
Framsóknarflokksins að lýsa
yfir stuðningi við stefnu rík-
isstjórnarinnar i varnarmál-
um eins og hún birtist í mál-
efnasamningi ríkisstjórnar-
innar.
Hefur þessi samþykkt vak-
ið mikla undrun manna, því
að mikil deila hefur nú kom-
ið upp milli framsi'iknar-
manna, hvernig túlka berl
þessa ályktun. Þannig halda
Ólafur Ragnar Grimsson og
grislingarnir hans því fram,
að þessi samþykkt þýði í
raun, að herinn eigi ekki að
fara.
En aðrir eru á annarri skoð
un. Steingrímur Hermanns-
son svarar i gær nokkrum
spiirningum Þjóðviljans og
segir þar m.a.:
„Telurðu þá túlkun ranga,
að Framsóknarflokkurinn sé
með þeirri samþ. sem gerð
var búinn að gefa upp á bát-
inn ákvæði málefnasamnings-
ins ii m endurskoðun með
brottför hersins fyrir aiigum.
Það tel ég alrangt.“
Með þessari yfiriýsingu
sinni tekur Steingrímur und-
ir túlkun kommúnista á mál-
efnasamningnum. Er hann
fyrsti þingmaður framsókn-
armanna, sem slíkt gerir.
spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið i síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegl til föstudags og biðjið um Lesendaþjóniistii Morg- unhlaðsins.
_ SIMI 24460
LAUGAVEGI 66
6ÍLALEIGAN
EYSIR
CAR RENTAL
SKODA EYÐIR MINNA.
Shooh
LEIGAN
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
SAMVINNU-
BANKINN
ER HVERAVATN HOELT?
Ásdís Waage, Hörðalandi
16, spyr:
„Er ástæða til að bursta
temrjr upp úr hveravatni og
nota það í mat vegma fluor-
inn-ihaidsiins í þvi?“
Baldur Johnsen, hjá Heii-
brigðiseftirliti ríkisins, svar-
ar:
„Já, hitaveituvatn er tals-
vert fluorauðu'gra en Gvend-
arbrunnavatn og yfirleitt allt
neyzluvatn á Islamdi, þótt inni
haldið af fluor sé ekki það
mikið, að það uppfylli kröf-
ur, sem gerðar eru til þess
með það í huga, að veruleg
tannvernd fáist, aem er 1 ppm
eða einn hluti í milljón. En
fluorinnihaldið er talsvert
en.gu að siður og ætti þess
vegna frekar að vera til góðs
en hitt, ef notað er í mat. —
Hvað tamnburstun snertir, þá
er fiuormagnið ekki það mik
ið í hitaveituvatn'nu, að það
hafi umtalsverð áhrif, en ef
hiitaveltuvatnið er að Stað-
aldri notað til matargerðar og
drykkjar, þá ætti það frekar
að vera til góðs en hitt.“
HLUTUR RAUÐA KROSSINS
Addý Guðjónsdóttir, Sól-
heimuim 25, spyr:
„Hve mörg prósent fær
Rauði krossinn til eigiin afnota
af gjafafé, sem hingað berst?“
Eggert Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri, svarar: „0% —
ekkert."
RÖÐ FRÉTTA
1 HLJÓÐVARPI
Jón Magnússon, Álfhekn'um
34, spyr:
„Mig iangar til að vita, hver
tilgangur hlj óðvarpsins er
með því að hefja alltaf frétta
tima sinn á fréttuim frá Viet
nam, og um að Thieu og ÍSIix
on hafi komizt að þessu og
hirvu samkomulaginu, hvernig
málin standa í Cambodiu og
svo framvegis? Hvers vegna
er ekki minnzt á innlendu
fréttirnar að fyrra bragði,
þegar ekkert sérstakt er að
gerast erlendis? Ég hefði hald
ið að úr nógu væri að velja úr
innlendum fréttum?"
Margrét Indriðadóttir,
fréttastjóri hljóðvarps, svar-
ar: „Það er alllangt síðan
hætt var að aðgreina innlend
ar fréttir og erlemdar í lestri,
eins og áður fyrr var gert. Nú
er meginreglan sú, að reyna
að raða fréttunum eftir frétta
gildi, og þannig hafa inmlend-
ar fréttir oft verið lesnar
ir. Má þar sem dæmi nefna
fyrstar og þær erlendu á eft
Vestmaninaeyjafréttir, sem
hafa mjög oft á undamfömum
vilkum verið lesmiar fyrstar,
einnig fréttir um landhelgis-
málið og þaninig mætiti lengi
telja.“
VERÐUR GEIR MEÐ í HM?
Birgir Blomsterberg, Lamba
stekk 2, spyr:
„Til Geiirs Hallsteinssonar:
Hvort hann muni leika með i
he imsmeis tarakeppninni í
handknattleik?“
Geir Hallsteinsson svarar:
„Að sjálfsögðu verður það
fýrst og fremsrt landsliðs-
nefndar HSÍ að álkveða, hvort
ég verð valinn í liðið fyrir HM
eða ekki, en mér hefur verið
boðið að taka þátt í laindsliðs
æfingum í sumar — hófust
reyndar í fyrradag. Einn.ig
miun það skipta máli, hvemig
stendur á hjá félaginu i Dan
mörku, Stadion, á þessum
tíma og hvemig stendur á hjá
mér í sambandi við nám mitt
í íþróttakermaraháskólanuim
þar ytra.“
TÍU Á TOPPNUM
- NÝR ÚTVARPSÞÁTTUR
HRUND
Laugavegi 27 — sími 15135.
Ný sending
Jersey-blússur
VerS: 835,00 krónur.
Ég þakka af aiihu g öllum sem
glöddu mi'g með gjöfuna,
skeytum og blómum á 95 ára
afmæiimi.
Guð blessí ykkur öll.
Jón Þórðarson.
Loksins virðist ætla að
verða af þvi, að íslenzkir popp
tónlistaráhngamenn fái viku-
legan lista yfir vinsælustu lög
in á íslandi, því að á laugar-
daginn kemur, kl. 16.30, verð-
ur fyrsta sinni á dagskrá hljóð
varpsins stundarlangur þátt-
ur, sem nefnist „Tíu á toppn-
um“ og er ætlað það hlut-
verk að vera vikuleg kynn-
ing á tíu vinsælustu Iögunum
meðai islenzkra ungmenna,
topp 10.
Stjómandi þáttarins verður
Örn Petersen, sem í vetur hef
ur haft umsjón með einu
„Popphomi" I viku i hljóð-
varpinu. I viðtali við Mbl. í
gær sagði hann, að í fyrsta
þættinum yrðu kynnt 15 lög,
sem vinsæl væru eða líkleg
til vinsælda, og síðan gæfist
hlustendum kostur á að
greiða þremur þeirra atkvæði
sitt með því að senda þættin-
um miða með einkennisnúm-
erum þeirra þriggja laga. Síð
an yrði hafizt handa um há-
degi á miðvikudag að reikna
út, hvaða tíu lög hefðu feng-
ið flest atkvæði, og þau lög
skipuðu siðan sætin tíu á vin-
sæidalistanum í næsta þætti.
Þá kæmu fimm ný lög inn,
í stað þeirra, sem fæst at-
kvæði fengu, og þannig yrði
síðan haldið áfram á hverj-
um laugardegi.
Við munum kynna efni
fyrsta þáttarins betur í blað-
inu fyrir eða um helgina og
birta þá lista yfir lögin 15.
Og alltaf
er einhver
að hætta...
Undarlegir menn þessir
popptónlistarmenn; þeir virð-
ast enga eirð hafa i sér til að
spila í sömu hljómsveitinni
lengur en eitt ár í senn, eða
svo virðist a.m.k. ástatt um
suma þeirra. Skal hér getið
nokkurra breytinga, sem orð-
ið hafa að undanfömu:
ANDY FRASER, fyrrum
bassaleikari FREE, hafði
stofnað hljómsveitina Sharks
með engu minni manni en
gítarleikaranum Chris Spedd-
ing. Nú er Andy hættur, en
líklegur eftirmaður hans er
Rik Kenton, fyrrum liðsmað-
ur Roxy Music.
CHRIS FARLOWE, eitt sinn
forystusöngvari með hijóm-
sveitina Thunderbirds að baki,
siðan einn á báti, síðan liðs-
maður Colosseum og loks fé-
lagi í hljómsveitinni Atomic
Rooster, hefur nú að nýju haf
ið einkaútgerð á sjálfum sér
— hættur i Atomic Rooster.
PATTO, hljómsveit stofnuð
upp úr rústum hljómsveitar-
innar TIMEBOX, hefur nú
gengið sinn feril á enda, a.m.
k. virðist svo vera, enda þótt
alilrei sé að vita hverju þess-
ar hljómsveitir kunna að taka
upp á.
BREAD, bandaríska hljóm-
sveitin, sem hefur náð gífur-
legum vinsældum í heima-
landi sínu fyrir falleg og vel
unnin lög, hefur ranibað á
barmi djúprar gjár tipplausn-
arinnar, en með lagni hefur
tekizt að koma máluin svo
fyrir, að liðsmenn hljómsveit
arinnar fari í langt frí ttl að
hvila sig og sinna hugðarefn-
um sínum og taki svo aftur
upp samstarfið, sem hingað
til hefur svo góðan árangur
borið.