Morgunblaðið - 12.05.1973, Blaðsíða 5
MOPvGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1973
5
Bleikjunni fækkað
1 Meðalfellsvatni
Jón Krist.jánsson mælir ieng-dina á bleikjunni.
VÍÐA í íslenzkum vötnum er
bleikjan svo smá, að vart get-
iu1 talizt að það borgi sig að
veiða hana. Sumir veiðirétt-
areigendur hafa haldið þeirri
firru fram, að smáfisktmnn
sé afleiðing ofveiði í vötnun-
nrn, og liafa því bannað veiði
i þeim. Þessi rök þeirra eiga
nú engan rétt á sér, þar sem
sannað er, að þar sem svona
er ástatt, fær fiskurinn ekki
næringu vegna offjölgunar
Þetta er einnig aljækkt vanda
mál á Norðurlöndunum og
hafa Norðmenn grisjað fisk-
inn i vötnum oft með góð-
um árangri, því eftir stutt-
an tíma hefur fiskurinn i
vötnunum farið stækkandi og
fitnað um leið. Nú er í fyrsta
skipti á Islandi verið að
grisja fiskstofn i islenzku
vatni. Vatn það sem hér um
ræðir er Meðalfellsvatn í Kjós
arsýslu, en hafizt var handa
um að grisja bleikjustofninn
þar í fyrra.
Það e<r Jón Kristjánsson,
fiskifræðingur, sem sér um
rannsóknir og grisjun i Með-
alfellsvatni, og fengu Morg-
unblaðsmenn að fylgjast með
grisjunarstörfunum með hon-
um í gær.
„Það var samkvæmt tilmæl
um frá Félagi sumarbústaða
eigenda við Meðalfellisvatn og
Veiðifélagi Kjósanhrepps að
ákveðið var, að Veiðimála-
stofnunin hæfi rannsóknir á
vatninu vorið 1972 í þeim til-
ganigi að bæta það sem veiði-
vatn. Strax við fyrstu athug
un, sem fram fór í apríl, kom
i ljós að mikið magn af
smárri bleikju var í vatninu
og voiru strax hafnar nauð-
synlegar ræktunaraðgerðir,
sem fölu í sér að grisja
bleikjustofninn. Fleiri rann-
sóknaferðir voru famar sið-
ar urn sumarið, og sam-
kvæmt rannsóknum kom í
ljós, að um 40 þúsund bleikj-
ur voru í veiðanlegu ástandi,
þegar veiðar hófust árið
1972,“ sagði Jón.
„í fyrra veiddust um 16
þúsund bleikjur í vatninu, ag
Hér er bleikjan koinin á
pönnnna, og er steikt i heilu
lagi.
Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
elzta bleikjan sem var ald-
urgreind var rau ára og að-
eins um 27 sm löng, en
tveggja ára blei'kjur voru
allt að 16,5 sm; í>etta sýnir
að bleikjan vex ágætlega til
að byrja með, en vöxturmn
staðnar að mestu vdð 22 -24
sm lengd. Og er þetta dæmi-
gert offjölgunareinkenni. Kyn
og kynþroski var ákvarðað á
50 bleikjum og reyndust 94%
vera kynþroska.
Aðaltilgangurinn með rann-
sókninni," segir Jón, „er að
finna leiðir er geta bætt vatn
ið sem veiðivatn og hafa þvi
ekki verið settar strangar vís-
indalegar kröfur heldur er
stuðzt við einfaldar aðferð-
ir, sem gefa mestar upplýs-
ingar á sem slytztum tíma.
Og því ber að meta niður-
stöðurnar samkvæmt þvi. Við
höfum notað netasamstæður
með mörgum möskvastærð-
um, en slík samstæða veiðir
nokkuð jafnt á allar lengdir
af fiski, frá 19—45 sm og með
þessari aðferð má fá hug-
mynd um hvetrnig stofninn er
samsettur. Til þess að ná
smærri fisknum höfum við
notað ádiráttannót með 10
mm möskva. Alliir fiskar-voru
vegnir og mældir, gætt var
að smkjudýrum, og kynferði
og kynþroski fisksins var
ákvarðaður. I rannsóknar-
stofu var aldur fisksins les-
inn af kvönnum hans og
hreistri."
Þá sagði Jón, að rannsókn
ir hefðu áður verið gerðaæ í
Meðiiifellsvatni. Var það árið
1952. Þegar þær niðurstöður
sem þegar eru fengnar eru
bomair saman við þær, er ekki
hægt að fullyrða hvort vöxt-
ur urriðams hafi verið betri
þá en nú, ti'l þess eru sýni of
fá. Hins vegar er bleikja nú
mun smærri og á níu ára
bleikju muinar nokkrum
sentimetrum á lengd. Bleikju
stofndnn er því þéttari nú en
hanm var árið 1952, og hefur
Ellert bóndi á Meðalfelli gef-
ið þær upplýsingar að mik-
il bleikjuveiði hafi verið stund
uð á æskuárum hans. Þá var
veitt í net á hrygningarstöðv
unum og afli var mjög góður.
Allri netaveiði var hætt i
vatninu kringum 1943, en þá
hafði dregið mjög úr henmi
frá þvi sem áður var.
Offjölgun sú sem hefur orð
ið á hleikju í vatninu er því
auðskilin, þegar tUUt er tek-
ið til þess að hrygingarskil-
yrði bleikjunnar eru góð.
Við fórum út á vatnið með
Jóni og aðstoðarmanni hans
Jóni Bjarna Jónssyni, sem ráð
iiim er veiðimaður næstu daig-
ana. Vitjuðum við um fjögur
net og reyndist aflimn úr þeim
Framh. á bls. 8
Jón Bjarni dregnr netin. Eins og sjá niá á myndinni eru
bleikjurnar niarg ar en smáar.
Voronov
og Shelest
áeftirlaun
Moskvu, 7. maí — AP
TVEIR menn úr forystuliði sov-
ézka kommúnistaflokksins, sem
nýlega misstu sæti sín i l'ram-
kvænHlastjórn flokksins, hafa nú
einnig verið sviptir stöðum sín-
um og settir á eftirlaun. Menn
þessir eru Pyotr Shelest, fyrrum
leiðtogi flokksdeildarinnar í
Ukraínu og Gennady Voronov,
sem áður fyrr var forseti Sovét-
lýðveldisins Rússlands.
She-lest mun hafa miiisist sæti
sitrt og áhrif i flokknum vegna
andstöðu við þá stefniu Leoniids
Brezhnevs að taka þátt i viiðleiitmi
tíl að draga úr spenimu miillii aust-
urs og vesturs; Voronov aftur
á mótí vegna andstöðu simmar
Viið stefnu Sovétstj órna rinn,ar !
Iiandlbúnia ðarmáluim.
Shelest missiti stöðu sína í Ukra-
fau fyrir ári og var þá gerður
aið aðstoðarráöherra í Moskvu,
en hefur nú emnág missrt það
Starf.
Voronov hefur að uindanfömu
verið formaður eftiriiitsnefndar
rikisins, sem hefur það verkefni
sérstablega að atihuga kvartanir
hfais aimenna borgara.
TIL SÖLU
Chevrolet Pickup úrgerð 67
Bifreiðin er ný sprautuð og yfirfarin.
Upplýsingar á bifreiðaverkstæði JÓNASAR & KARLS,
Armúla 28, sími 81315.
TEAGLE
HÁÞRÝSTI
BLÁSARINN,
SEM BÆNDUR
KEPPAST NÚ UM
AÐ EIGNAST
Allt að 6 faldur blásturskraftur miðað við aðra súgþurrku-
blásara á markaðnum.
AHir bændur geta tryggt sér góð hey sem eiga TEAGLE
háþrýsti blásara.
Pantið því blásara i tíma, svo þér fáið hann fyrir slátt. Það eru
um 40 ánægðir eigendur TEAGLE blásara og alltaf fölgar þeim.
AGÚST JÓNSSON,
símar 17642/25652.
Po Box 1324.
REIÐSKOLI
RAGNHEIÐAR
NÁMSKEIÐ
haldin á Tóftum Stokkseyrarhreppi verða sem
hér segir:
4. júní — 15. júní, Námskeið fyrir drengi.
18. júní — 27. júni, Námskeið fyrir stúlkur.
2. júlí - 7. júlí, Námskeið fyrir tamningamenn.
Aðalkennari Walter Feldmann
yngri.
10. júlí - 15. júlí, Námskeið fyrir dömur og herra,
eldri en 18 ára.
16. júlí - 27. júlí, Námskeið fyrir drengi.
30. júlí — 10. ágúst, Námskeið fyrir stúlkur.
Tamningastöð verður rekin á vegum skólans.
Tamningamaður, Pétur Behrens.
Innritun og upplýsingar hjá frú Sveingerði Hjartar-
dóttur, bókara, sími 86962. Einnig í síma 83271.
Ragnheiður Steingrímsdóttir.
Geymið auglýsinguna.