Morgunblaðið - 12.05.1973, Síða 23

Morgunblaðið - 12.05.1973, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAl 1973 23 Þj óðleikhúsiö: Lausnargj aldið Viðfang'sefni Lausnargjaldsins er nútíminn, andstæðumair á milli kynslóðanna: annars vegar er fuliorðinn fjölbragðaglímu- kappi, nú sennilega velstæður kauðsýslumaður. Hann er harð- ur og ákveðinn, viðhorf hans eru mótuð af erfiðri lífsbaráttu miHistriðsáranna og glímunni. Þar að auki hefur hann aðals- Itiannslegt fyrirlitningarviðhorf til sumra samborgara sinna, einkanlega ef þeir búa ekki í fin um gömlum einbýlishúsum eins og hann sjálfur. Valur Gíslason leiikur þennan mann og gerir það vel, enda er Valgarð lif- magnaðasta persóna verksins. Konu hans Gró, milda og geð- Ijúfa en sennilega töluvert upp gefna á hörku manms síns leik- ur Guðbjörg Þorbjarnardóttir ágætlega. Andspænis fína gamla einbýl ishúsinu, en það heitir Ásgarð- ur og umhverfis það eru Ás- grindur, er risið mikið háhýsi, sem heitir Jötunheimar — skilji þeir sem skilja vilja! Þeir í Ása trúarfélaginu hljóta að fagna mjög starfi leiikhúsanna þessa dagana, það verður ekki amnað sagt en að „menningararfleifð heiðins siðar“ sé lifandi með Höfundur: Agnar Þórðarson Leikstjóri: Benedikt Árnason Leikmynd: Gunnar Bjarnason Tónar: Sigurður Rúnar Jónsson Sigurður Skúlason og Þórhallur Sigurðsson. Bryndis Pétursdóttir og Guðbjörg Þorbjarnardóttir. þjóðinni! Fyrsti fulltrúi Jötunheima innan Ásgrinda er saumakona, sem komin er til að breyta göml um kjól frúarinnar, Jötunheima saumakonuna Völu leikur Bryn dís Pétursdóttir og tekst ágætlega að bregða upp mynd viðkvæmrar málglaðrar konu. Það þarf að breyta kjólnum því frúin er að spara fyrir lausnar- gjaldi fyrir son sinn, sem hún álítur að skæruliðar hafi tekið höndum, en sonurinn, sá heitir eða hét Baldur, dvaldi síðast í Amsterdam, paradís hippanna í Evrópu og stundaði þar víst að- allega fíknilyfjaneyzlu og ann- að fýsilegt til frelsunar mann- kyninu. Senniiega hefur hanm verið hátt uppi og haldið að hann gæti gengið á vatninu og drukknað við það blessaður. Baldur á yngri bróður, Grím, sem Sigurður Skúlason leikur eða reynir að leika því það er lítið um heilar línur í persón- unni í verkinu og hvað þá í túlikuninni, persónan fær ekkert líf. En saumakonan á dóttur, sem heitir Unna og Rósa Ing ólfsdóttir leikur laglega. Sú ku vem eitthvað bækluð, manni skilst helzt lömuð eða einhvern veginn hölt en svo er hún bara með staurfót þegar hún kemur inn á sviðið. Hún á að vera mjög hortugur unglingur, frek og kjaftfor, sem ekki er sérlega sannfærandi i túlkun leikkon- umnar. Þegar hún mætir augna- ráði Grims er eins og falli á hana fjötur og gengur hún með honum til herbergis hans og þar kiknar hún í hnjáliðunum í bók staflegri merkingu, þvi eftir fund þeirra er hún ekki lengur Húsnæði ú Selfossi Vil leigja 2 til 3 herbergi og eldhús i sumar. Uppl. í sírma 99-1262 eftir kl. 17. Bútneigendur Óska eftir bát á leigu tii humar- veiða. Aðeins góður bátur með góðri vél og útbúnað kemur til greina. Tilboð með nauðsynleg- um upplýsingum sendist Morg- unblaðinu, merkt Humar 8021. með staurfót. Af þessu sést að Grimur býr yfir duldum krafti enda dvelur hann gjarnan úti um nætur og gjarnan í eða við kletta, sem á hvilir forn helgi og segir hann þar vera blótstein þar sem Óðni hafi verið blótað mönnurn. Annar gestur úr Jötunheimum er kvaddur tii leiks, sá heitir Logi og er þeldökkur og munað arlaus, hann er leikinn af Þór halli Sigurðssyni, sem gerir sem hann getur. Logi og Grím- ur og Unna verða vinir og ástunda nú öll sambandstilraun ir við hinar duldu vættir og er þar viða leitað fanga og nægir ekki Ásgarður enn forni einn, þvi þegar Grími er talin trú um að slys hafi orðið við kuklið þá er það Kalí úr Hindúasið, gyðja tortímingarinnar, sem hann ákallar. Skal hér ekki rakin atburða- rás leiksins nánar utan þess að lausnargjaldið greiðist með mannblóti á hinum forna stað og hinn þeldökki Logi verður að Baldri í augum Gró. Unglingarnir segjast vinna sig ur í lokin, en sá sigur er mjög óskýr og lítt sannfærandi sem leikritið allt. 1 einu atriði koma fram tveir reiðir feður, Lárus Imgólfsson og Valdimar Helgason, atriðið er ver skrifað en reyndum leikrita- höfundi sæmir og verða leikar- arnir þvi ekki sakaðir um vand ræðin. Erlingur Gíslason leikur hins vegar blaðamann, Fáfni, í miklu betur skrifuðu atriði og tekst það vel. Þetta verk verkar ekki, lif- ir ekki, sennilega vegna þess að það er of pappírskennt, of mik- il eftirskrift sbr. öll hin aug- ljósu tákn, of fjarlægt llfi og lifaðri reynslu. Leikmynd Gunnars Bjarna- sonar er mjög snjöll, rís hærra en leikritið og tónar Sigurð- ar Rúnars Jónssonar eru einn- ig mjög áheyrilegir, leiða inn í heim átaka, sem ekki verður svo úr. Báðir hefðu átt skilið betri forsendu fyrir verki sín-u. Þorvarður Helgason. ítalskar gólfklukkur .4 -sí VORUM AÐ FA ÞESSAR GLÆSILEGU GÓLFKLUKKUR MEÐ KORTERS- SLAGI (WESTMINSTERSLAG) 0G VERÐA ÞÆR TIL SÝNIS í GLUGGA VERZLUNARINNAR. KOMIÐ OG SJÁIÐ HINAR 60 GERÐIR SEM HÆGT ER AÐ ÚTVEGA MEÐ STUTTUM FYRIRVARA I LIT- SKREYTTUM MYNDABÆKLING. * Ur og klukkur Laugavegi 3 Sími 13540 Valdimar Ingimarsson, úrsmiður. Óskar Kjartansson, gullsmiður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.