Morgunblaðið - 12.05.1973, Side 28
28
MORGUNöBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1973
Eliszabet Ferrars:
Sarnferás í Jauíknn
og sagði: — Nei, Rakel, ég fékk
þessa hugmynd mina of seint.
)Það var þegar orðið. Telpan
hún Bernice. . .
Hann sá skelfingarsvip fær-
ast yfir andlitið á Rakel, þegar
hann þagnaði, og honum varð
ljóst, að með svipbrigðum sín-
um hefði hann líklega þegar
sagt Rakel allt, sem hann ætl-
aði að segja.
— 1 runna, hélt hann áfram.
— Dauð. Liklega kyrkt. Lögregl
an er komin á staðinn, og Creed
kemur líklega hingað bráðum.
Rakel glennti upp augun, en
hún sagði ekki neitt, og þvi
varð Paul feginn. Hann greip
aftur höndunum fyrir andlitið.
Eftir stutta þögn stóð hún
upp aftur og sagði með fram-
andlegri rödd: — Ég ætla að
hita okkur tesopa.
Svo opnaði hún dyrnar og
lokaði þeim á eftir sér.
Paul sat kyrr andartak, en
svo stóð hann upp og tók að
stika fram og aftur um gólfið.
Hann sá fyrir sér höfuðhreyf-
ingar allra mannanna á stígn-
um, þegar þessari fáránlegu
ásökun hafði verið hreytt í
hann, en nú fannst honum öll
andlitin véra sviplaus. Þau
höfðu hvorki svip né persónu-
leika til að bera. Þau voru orð-
in að einhverjum sviplausum
leirklessum, sem aldrei yrði
unnt að rökræða við.
— Þetta er hræðilegt, sagði
Paul upphátt. — Þetta er hlægi
legt. Enginn gæti trúað. . . Nei,
vitanlega ekki. Enginn gæti
hugsanlega imyndað sér, að . . .
En þessi sviplausu, ógnandi
andlit litu við, rétt eins og til
að elta hann fram og aftur um
gólfið.
Til þess að hafa eitthvað ann
að að hugsa um, greip Paul
krotuðu örkina, sem Rakel
hafði skilið eftir á borðinu við
arininn, og las: „Kæri Fergu-
son læknir! Væri yður mögu-
legt að leyfa mér að tala við
yður einhvem tima í næstu
viku. Ég hef verið að hugleiða,
hvort það væri mögulegt, að . .“
Hanin þurfti ekki að lesa
lengra. Hann gerði sér sam-
stundis ljóst, að Rakel hafði
verið að reyna að gera uppkast
að bréfi til að sækja um gömlu
stöðuna sína aftur. Hann lagði
frá sér örkina og var aftur far-
inn að ganga um gólf og
reyndi að herða sig upp í að
bjóða þessum sviplausu andlit-
um byrginn og þeim ugg, sem
stafaði frá þessu bréfi — en þá
kom Rakel inn með tebakkann.
Hún tautaði um leið og hún
settist niður: — Þessi stormur
. . . hvað ég hata hanm. Þá er
frostið skárra. Að minnsta kosti
er það kyrrlátara.
Hitt nefndi hún ekki, að í
hvert sinm sem vindurinn hvein
í reykháfnum, heyrði hún Bem
ice æpa úti á stignum, og húin
hafði verið að hugsa um fyrir-
boða og dauða, en án þess þó að
hafast að. Kannski var erfiitt að
vita, hvemig snúast átti við fyr
irboðum, en henni faninst samt,
að manneskja með meira ímynd-
unarafl hefði eitthvað getað tek
ið til bragðs. En hún hafði
bara, rétt eins og ekkert væri,
farið yfir í húsið með inniskó
Jane og hlustað á ruglið í henni
um, að Margot Dalziel hefði far
ið á fylliri i einrúmi og brotið
allt og bramlað, og svo horfið
með einhverjum ímynduðum
elskhuga, meðan verið var að
fremja glæp á næstu grösum.
Þannig sátu Paul og Rakel,
niðursokkin í hugsanir sínar, og
bæði urðu fegin, þegar bjöll-
unni var hringt og frú Godfrey
kom inn. Hún sagðist hafa ver
ið i þorpsbúðinni og frétt um
morðið, en þar snapaði hún jafn
an upp fréttdr.
— Ef ég bara gæti eiignazt
kæliskáp, þá veit ég ekki, hvað
ég kynni að gera, sagði hún, um
leið og hún settist niður og þáði
með þökkum að fá tebolla. —
Þá þyrfti ég ekki að fara í búð
nema einu sinni eða tvisvar í
viku í staðinn fyrir daglega. —
Þá rnundi ég ekki þurfa að vita
um allt sem gerist. En þama
voru allir að tala um þetta rétt
eins og þeir hefðu átt von á
þessum hryllilegu tíðindum. Það
sagði, fóikið, að eitthvað svipað
þessu hefði hlotið að koma fyr-
ir telpugarminn, fyrr eða seinna
jafn vanrækt og húm var. Það
býst við, að þetta hafi verið
kynferðisglæpur, vitanlega.
— Það er alis ekki víst —
síður en svo, sagði Paul. Rödd-
in var reiðiieg og andmæiandi
og hann var farið að hita í and-
litið. Hann velti því fyrir sér,
hvað frú Godfrey hefði frétt í
búðinni. Og hvað fólk væri far-
ið að segja um þetta í þorpinu.
En hann huggaðást nokkuð
í þýáingu
Páls Skúlasonar.
við rólega en einbeitta rödd
hennar.
— Það er svo sorglegt með
þessa fjöiskyldu. Ég man eftir
Nel'l Applin, þegar hún var ung
stúlka. Einhver laglegasta
stúlka, sem maður sá — svona
rjóð og svarthærð eims og Tat-
ari. Hún var nú aldrei sérlega
greind, en hún var geðgóð og
vel uppalin stúlka, og fór í
kirkju á hverjum sunnudegi,
með fallegan stráhatt með blóm
um á og með hreina hanzka.
Hún hefði getað náð í hvaða
ungan mann í þorpinu sem var,
þar með talinn Jim Gower, jafn
vel eftir að Applin skepnan
barnaði hana. En Burtfólikið var
afskaplega siðsamt og gifti hana
Applin í einum grænum hvelli á
þeirri forsendu, að hann gæti
fengið eitthvað að gera í Fall-
ford, þar sem hann var talinn
hafa einhvers konar atvinnu.
Og þangað fóru þau, en svo
voru þau bara komin aftur, áð-
ur en árið var liðið, og settust
að í þessum skúr, þar sem þau
hafa verið siðan, og Applin aBt
af atvinnulaus annað veifið, og
svo hafa þau hlaðið niður
ómegð. Og veslings Nell varð
eins og raun ber vitni. Frú God
frey saup aftur á bollaniun. —
Ef það var ekki kynferðisglæp-
ur, þá veit ég ekki, hvað það
var.
— Kannski þetta standi í ein-
hverju sambandi við það, sem
kom fyrir ungfrú Dalziel, sagði
Paul. — Bemice var alltaf að
sniglast í kringum húsið henn-
ar.
— Já, það hús hlýtur að hafa
verið hræðileg freisting fyrir
krakkana svona mannlaust
iengst af. Og ég man eftir, að
fyrst þegar ungfrú Dalziel kom
þangað, þá heldur hændi hún
að sér krakkana en hiltt. Hún
Seljum í dag
TAUNUS 20 M X.L. hardtop árg. 1969, ekinn 46 þús. km.
SKODA guli pardus 1972, ekinn 12 þús. km.
DATSUN 1200 Coupe 1971, ekinn 46 þús. km.
VAUXHALL VIVA árg. 1971, ekinn 22. þús. km.
CHRYSLER 180 1971, ekinn 22 þús. km.
CITROEN special 1972, ekinn 18 þús. km.
CITROEN Amy 8 station 1971, ekinn 22 þús. km.
VOLKSWAGEN VARIANT árg. 1966.
SKODA 1000 árg. 1969.
TOYOTA CORONA árg. 1968.
FIAT 1100 station árg. 1967.
RAMBLER CLASSIC árg. 1963.
Til söfu og sem ný Benz diesel vél 94 ha.
OPIÐ ALLA HELGINA.
Notið tækifærið og fáið yður góðan bíl fyrir sumarleyfið.
Lækjargötu 32, simi 52266.
BlLASALAN HAFNARFIRÐI H.F.,
Einbýlishús
innan Hringbrautar eða í næsta nágrenni óskast
til kaups. Gott timburhús kemur mjög til greina.
Hugsanleg skipti á 180 ferm. íbúð í tvíbýlishúsi í
Hlíðunum.
Þeir sem hafa áhuga á að kanna málið eru beðnir
að senda tilboð um slíkt til afgreiðslu blaðsins eigi
síðar en næsta fimmtudag merkt: „Timburhús i mið-
bænum — 8335".
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá mánudegi til
föstudags kl. 14—15.
0 Takið magnarann úr
sambandi
„Einn hálíærður“ skrifar:
„í þættinum Spurt og svarað
i Morgunblaðinu s.l. fimmtu-
dag svarar þjóðleikhússtjóri
fyrirspum varðandi bassa-
drunur, sem berast upp i aðal-
eal Þjóðleikhússiins og ættaðar
eru úr Leikhúskjallaranum.
Lætur hann þess þar getið, að
þetta sé vandamál, sem ráða-
menn hússins hafi lengi orðið
að glíma við en án árangurs
— og nú séu kannaðar enn nýj
ar ráðstafanir.
Nú get ég glatt þjóðleikhús-
stjóra og aðra, sem vilja ótrufl
aðir hlusta á það, sem er á boð
stólum á sviði Þjóðleikhússins
með því, að ég kann ráð við
þessum ófögnuði. Og það sem
nieira er, vandarm má leysa án
þess að það kosti Þjóðleikhús-
ið einn einasta eyri. Það þarf
aðeins að kippa í snúru og
taka magnara hljómsveitar
Leikhúskjallarans úr sambandi
Leikhúskjallarinn ' er ekki
stærri en það, að tónlist hljóm
sveitarinnar kemst vel til
skila þar niðri án þess að not-
aðir séu magnarar, sem upphaf
lega eru sennilega ætlaðir þús
und manna danssal. Gengi
Leikhúskjallarinn þá á undan
með góðu fordæmi fyrir önn-
ur danshús þar sem yfirþyrm-
andi hávaði er alla að æra."
0 Leikfimikennsla í
sjónvarpi
„Triinma" skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Viltu koma því á framfæri í
dálkum þínum, að mjög almenn
ur áhugi er á því, að sjónvarp
að verði leikfimikennslu.
Sólaóir
hjólbaróar
til sölu ó ýmsar stærðir fólksbíla.
Mjög hagstætt verð,
Full óbyrgð tekin á sólningunni.
Sendum um allt land gegn póstkröfu.
Áhugi fólks á llkamsrækt hef-
ur farið vaxandi undanfarið og
þess vegna væri einmitt alveg
upplagt að þetta ágæta sjón-
varp værí notað í þágu þessa
góða málefnis.
Mig hálfmimnir að þessi ósk
hafi komið fram einhvers stað
ar áður, en það er kannski ekki
von, að hlaupið sé til og allt
gert, sem farið er firam á. Þess
vegna mælist ég til þess að
fleiri sem áhuga hafi á þessu
máli láti til sína heyra.
„Trimma“.“
0 Fýla út í gatna-
viðgerðir
Maður nokkur hafði samband
við Velvakanda. Hanm hafði ek-
ið í leigubíl nýlega og hafði þá
bifreiðarstjórinn varla verið
mömmium sinmandi af illsku og
taugaveiklun vegna gafmaviO-
gerða i borginrtí. — Hafði
hann tvinnað saman blóts-
yrðutn i hvert sinn, sem
hann þurfti að taka á sig
krók vegna þessara fram-
kvæmda. Vinur vor var mjög
hneykslaður á þessari afstöðu
bifreiðarstjórans og viil minna
þá, sem eru líkt simmaðir á
það, að þessar framkvæmdir
eru í þágu borgarbúa og þakk-
arvert sé hversu vel er staðið
að þessnm nauðsynliegu við-
gerðum.
Djúpmenn!
Kaffi verður á morgun sunnudag frá kl. 3 — 5.30
í Félagsheimili Fóstbræðra við Langholtsveg.
Mætið öll Skemmtinefndin.
Flugvirkjafélag íslonds
Flugvélstjórar! Fundur verður haldinn að Brautar-
holti 6 í dag laugardaginn 12. maí kl. 2 e.h.
Fundarefni: Samningarnir.
Stjómin.