Morgunblaðið - 22.05.1973, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.05.1973, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1973 Hernaðarofbeldi Breta Brezk blöð um flotaverndina Sýnisliom af því hvernig brezk blöð slógu því upp á forsíðum sínum, að flotavernd hefði feng:- izt fyrir togara Hennar hátignar. „Erfið ákvörðun, en rétt“ segir Wilson Getur orðið til að afla íslendingum samúðar segir Glasgow Herald BREZK blöð gera sér mikinn mat úr nýjustu atburðum í landheig ismálinu nú um helgina og siá fréttinni um flotaverndina dug- iegra upp á forsíðum sínum, eins ogr sjá má af meðfylgrjandi mynd. Þó nokkur blöð birtu leiðara um málið ogr í Liverpool Daiiy Post segir undir fyrirsögrninni „Hin rétta ákvörðun“ að víst hafi hún verið erfið, en hún hafi verið rétt. Sé þetta niðurstaða Har- alds Wilson, leiðtoga stjórnar- andstöðunnar sem hafi ennfrem ur látið í ljós þá skoðun, að sijórnin hafi sýnt dæmalausa þolinmæði. Vissulegra hafi stjórn in vonað í lengstu lög að ekki þyrfti að senda brezk herskip á vettvang. Ólögmætar séu vissu- Iega aðgerðir íslendinga, en þó sé ekki vafi á þvi, hvert samúðin myndi beinast ef alvarieg átök yrðu. Þá myndu Bretar enn einu sinni ásakaðir fyrir ranga aðferð fyrir að gerá hið rétta, eins og gerzt hafi á Norður-írlandi. Blaðið minnir á að togaramenn hafi neitað að fiska nema þeir fengju flotavemd og hafi stjóm in aðeiins átt tveggja kosta völ: að viðurkenna að ísland hefði sigrað, ekki vegina þess hve hiið ísiendinga væri sterk, siðferðd- tega séð heldur vegna stöðugrar áreitni, eða að láta togarana fá umbeðna vernd. Margt bendi til þess sdðamefnda. Nú hafi það hins vegar gerzt eftir sífelldar aðvaranir Sir Alec og Joseph Godber, og þvi kunni nú svo að fara að íslendingar samþykki að þeir verði að gera einhverjar tilslakanir ellegar horfast í augu við langvinna og hættuiega bar- áttu á hafi úti. í blaðinu Glasgow Herald seg ir í forystugrein, sem nefnd er „Blotavernd“ m.a.: Ekki er unnt að taka með léttu geði þeirri á kvörðun ríkisstjómarinnar að senda freigátur til að vernda tog ara sem veiðar stunda innan hinna umdeiidu 50 milna marka. íslendingar hljóta að mótmæla þvi sem þeir munu kalia harðlíinu stefnu Breta gegn smáþjóð, sem byggir afkomu sína á fiskveiðum og hin sálgreimda túlkun þessara aðstæðna þeirra getur þvi miður orðið til að afla þeim samúðar meðal þeirra þjóða, sem eru reiðubúnar að horfa framhjá því, hversu veikur málstaður Islend- inga er. Frá þvi „þorskastriðið" hófst í september sl. hefur is- lenzka rikisstjómin af ráðnum hug hundsað ýmsan sannleika, sem verður til þess eins að grafa umdan afstöðu þeirra. Blaðið vill að sjálfsögðu skella ailri skuidinni á íslendinga og á- telur íslendinga fyrir að ætla sér að meina Bretum að veiða á þeim svæðum, sem þeir hafi fom an rétt til. Blaðið vitnar einnig til úrskurðar Alþjóðadómstóls- ins í Haag, sem telji sig hafa lög sögu í máldnu. Segir það að Is- land mundi standa mun sterkar að vígi — sem smáþjóð, sem sætti kúgun stórveldis — ef ís- tenzka ríkisstjómin hefði ekki tekið lögin í sínar eigin hendur og látið íslenzka fallbyssubáta hrekkja brezka togara á viðsjár verðan hátt, svo að ekki sé ís- lendimgum að þakka, að mann- tjón hafi ekki hlotizt af. Blaðið lýslr fögnuði með þolinmæði brezku ríkisstjómarinnar, sem hafí verið óhagganleg, þar til ekki var annarra kosta völ. 1 Birmingham Post er forystu greinin: Flotinn er kominn þang að, og þar er tekið undir orð hinna blaðanna, og margendur- tekin þoiinmæði sú og dæmafátt umburðarlyndi, sem Bretar hafi sýnt í þessum erfiðu þrenging um sínum. Bretar hafi verið ófús ir að fara með herskip inn á þess ar umdeildu 50 mílur, þar eð þeir ættu á hættu að vera sakað ir um yfirgang við smáríki. En nú hafi brezkir togaramenn tek ið af skarið með því að fara af miðunutm, og með þvi sýnt að að- staða þeiirra, svo varnarlausra, var óþolandi. Því sé nærvera frei gátanna í senn óhjákvæmiteg og rétt. Þetta þurfi ekki að þróast í vopniuð átök, nema því aðeins að ísienzku varðskipsstjórarnir verði svo ábyrgðarlausir að hefja slík átök. Nærvera brezka flotans sé aðeins viðvörun til stjómarinnar i Reykjavík, um að brezkir togarar geti ekki lið ið þessa stöðugu áreitni og þeir séu hindraðir í löglegum aðgerð um — i allra augum nema Islend inganna. Fordæmanlegar aðgerðir MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Kristjáns Ragnarssonar, formanns Landssambands ísl. út vegsmanna og .lóns Signrðsson- ar formanns Sjómannasambands ins og bað þá um að segja álit sitt á síðustu aðgerðum Breta í íslenzkri landhelgi. Unimæli þeirra fara hér á eftir: Mikil \í.onbrigði Kristján Ragnarsson, formað- ur LÍÚ, sagði: „Þessi ákvörðun veldur mér miklum vonbrigðum, því að ég hélt, að samTiingaumileitanir væru komnar á lokastig. Eins og slfýrt hefur verið frá hafa ísleinzk stjórravöld boðið Bretum að veiða 117 þúsund testir á ári í næstu 2 ár, það er 60 tid 70% af þeirra afla á Isiaoidsmiðum undanfarin ár. Auk þessa áttu þeir að hlita takmarkaðri svæða- skiptingu. Þetta tilboð er svo hagstætt Bretum, að það hvarflaði ekki að mér, að þeir létu koma til vald beitiragar. AWar líkur benda til þess, að möguleikar þeirra til veiða imdir herskipavernd séu takmarkaðri en tilboð okkar gef ur þeim. Ég tel því útilokað að Kristján Ragnarsson setzt verði að samniragaborði á ný í næstu framtíð. Við Verðum að halda áfram okkar takmörkuðu aðgerðum á miðunum og biða þess, að Bret um verði ljóst, að þeir eru að tapa þes®ari deiliu. Eraginn skip- stjóri getur tii lengdar fiskað v!ð þessar aðstæður.“ Svörum fullum hálsi Jón Sigurðsson, formaður Sjó mannasambandsins, sagði: „Þetta eru fordæmaralegar að- gerðir. Ég held að við eiigum að svara þeim fui'lum hálsi, eftir því sem v'ð höíum getu til. Ég segi fyrir mig, að ég er mjög ánægð- ur með þá ákvörðun forsætisráð herra að neita brezkum herflug vélum um tendingaleyfi hér. Við eigum að gera eitthvað meira í þessum anda. Mím skoðun er sú, að Bretar tapi þessu máli því fyrr, ef þeir giípa til fteiri aðgerða af þessu Jón Sigurðsson tagi. Ég hef þá trú, að við séum raunverutega búnir að vinraa, Bretarnir séu dæmdir til þess að tapa þessu máli.“ Norskir sjómenn skilja aðstöðu okkar Osló, 21. maí. Einkaskeyti til Mbl. frá AP. SAMTÖK norskra sjómanna hvöttu í dag norsku rikis- stjórnina tii að beita áhrif- um sínum í höfuðborgum Bretlands og íslands til að koma í veg fyrir átök á ís- landsmiðum. í yfirlýsingu sjómannasamtakanna segir, að þau skilji aðstöðu íslend- inga, en samtökin líti svo á, að leiða eigi slík ágreinings- mál til iykta í alþjóðasamn- ingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.