Morgunblaðið - 02.08.1973, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGU'R 2. ÁGÚST 1973
Fjóröungsmót austfirzkra hestamanna á Iöavöllums
Góð þátttaka og tvö ný íslandsmet
Uin helgina 27.— 29. júlí fór
fram á Iðavöllum 4. fjórðung:s-
mót austfirzkra hestamanna, sem
Hestamannafélagið Freyfaxi sér
um. Þátttaka á mótinu var góð
og árangur einnig' góður. T.d.
voru sett tvö ný íslandsmet,
annað í 800 metra stökki, hitt
í 800 metra brokki. Einnig voru
góðhestasýning-ar og sýnd voru
kynbótahross.
Sólin skein alla daga mótsins
og þótti sumum hestamönnum
fullheitt föstudag og iaugardag,
en þá mældist hitinn 24 gráður.
Á sunnudaginn var heldur kald-
ana og norðan gola og voru Is-
landsmetin sett þá. Aðstaða á Iða
völlum er með mestu ágætum,
áhorfendasvæði cru vel gerð fra
náttúrunnar hendi, því þau eru
það hátt uppi, að vel sést yfir
völlinn. Tvö þúsund áhorfendur
fylgdust með keppninni og nutu
veðurblíðunnar á daginn og á
kvöldin sótti fólkið dainsleiki
sem haldnir voru í Valaskjálf
og Iðavöllum.
Kynbóbahross voru nærri 70
og voru þau dæmd eftir aldurs-
flokkum. Úrsiit urðu þessi:
STÓÐHESTUR MEÐ
AFKVÆMUM.
Aðeins einn hestur var sýndur
og hlaut hann önnur verðlaun.
Það var Forni frá Homafirði,
eig. Friðrik Sígurjónsson frá
Fornustekkum. Forni ér talinn
mjög heppilegur tál undaneldis
klárhesta með tölti, gefur há-
reista tölthesta.
STÓÐHESTAR 5 VETRA
Þar var dæmdur beztur Krapi
frá Egilsstöðum, eig. Gunnlaug-
ur Sigurbjömsson, Egiisstaða-
kauptúnL
STÓÐHESTAR 4RA VETRA
Dæmdur var beztur Kolbakur
frá Egilsstöðum, eig. Pétur Jóns-
son, Egilsstöðum.
STÓÐHESTAR 3JA VETRA
Af 3ja vetra stóðhestum voru
dæmdir jafnir Skór frá Flatey,
eig. Bergur Þorleifsson, Flatey,
og Snær frá Snjóholti Eiðaþing-
há, eig. Þórólfur Sölvason, Snjó-
holti. Skór hefur glæsilega fram-
byggingu, en Snær var talinn
hæfileikameiiri. Báðir voru folarn
ir áiitnir einstaklega efnilegir.
HRYSSUR MEÐ AFKVÆMUM
Þar var dæmd bezt Elding frá
Jaðri í Suðursveit, eig. Þorberg-
ur Bjamason, Gerði Suðursveit.
Elding er talin afburða gæðinga-
móðir.
HRYSSUR 6 VETRA OG ELDRI
Þar var dæmd bezt og hlaut
1. verðlaun Hremsa 3889 frá Ey-
vindará, Eiðaþinghá, eig. Sævarr
Pálsson, Möðrudal.
HRYSSUR 4RA VETRA
I þeim aldursflokki var dæmd
bezt Nótt 3900 frá Beinárgerði
Völ'lum, eig. Klara Benediktsdótt
ir, Beinárgerði. Kynbótahrossin
vöktu mikla athygli ræktunar-
manna og voru þeir hrifnir af
þeim úrvalshestum, sem þarna
voru sýndir.
Á góðhestasýningunni voru 32
hestar.
Voru þessir dæmdir beztiir:
ALHLIÐA GÆÐINGAR
1) Skúrnur, frá Stórulág,
Hornafirði, eig. Sigfinnur Páls-
son, Stórulág. 2) Svipur, Jaðri,
MERSEDES BENS
300 SEL 3,5 lítrar
Til sölu nýinnfluttur BENS 300 sel 3,5 lítrar með
öllum hugsanlegum aukahlutum, m. a. automatic
gluggaupphölurum, automativ upphækkun, auto-
matic hurðarlæsingum, leðursætum, lituðu gleri,
sjálfskiptur, power-stýri og hemlar, litur sanseraður
grænn, árgerð 1971, ekinn 28.000 km.
Einn glæsilegasti einkabíll á íslandi í dag.
Tilboð óskast sent Morgunblaðinu fyrir 7. ágúst,
merkt: ..Glæsilegur — 9190".
London dömudeild
Buxnadragfir Jakkar
síðbuxur og kápur
Ný sending
London dömudeild
sími 14260 — Austurstræti 14.
Bindindismótið í Galtalækjarskógi
3.-6. ágiíst 1973
Hljómsveitin Opus leikur föstudagskvöld.
Mótið setur Gunnar Þorláksson, fulltrúi.
Þjóðlagatríóið Hitt og þetta.
Góðaksturskeppni B.F.Ö.
Helgistund: Séra Árelíus Níelsson.
Varðeldar og flugeldasýning.
Barnatími í umsjá Svanfríðar og Ólafs Gauks.
Þorvaldur og Jörundur skemmta.
Hátíðarræða: Séra Heimir Steinsson, skólastjóri í
Skálholti.
Baldvin Halldórsson les og syngur.
Kaffibrúsakarlarnir.
Söngkonan Helarie Jordon syngur.
íþróttir.
Gömlu dansarnir á palli.
Nýju dansarnir í stóru tjaldi.
Hljómsveit Ólafs Gauks og Opus leika.
Veitingar á staðnum.
Bindindi>.mótið býður alla velkomna sem vilja
skemma sér og njóta náttúrufegurðar án áfengis.
Ferðir frá Umferðarmiðstöðinni.
Suðursveit, eig. Ingimar Bjarna-
son, Jaðri. 3) Gustur, eig. Gunn
ar Egilsson, Egilsstaðakauptúni.
KLÁRHESTAR MEÐ TÖLTI
1) Náttfari frá Fornustekkuim,
Hornafirði, eig. Sigrún Eiríks-
dóttir, Höfn, Hornafirði. 2) Glói,
eig. Ólafur Jönsson, Urriðavatni.
3) Giófaxi, eig. Ásmundur Þóris-
son, Jaðri.
Kappreiðanna var vafalaust
beðið með mestri eftirvæntingu.
80 hross voru skráð tii leiks alls-
staðar að af landinu en 10 forföil
uðust.
Keppt var í undanrásum og til
úrslita og réð bezti tirni.
Úrslit urðu þessi:
250 METRA SKEIÐ
Keppt var í þremur riðlum.
1) Hera, Ámessýslu, 26,5 sek
Eig. og knapi Þorkell Þorkels-
son. Laugarvatni. 2) Sindri, Ár-
nessýslu, 26,7 sek. Eig. og knapi
Þorkell Þorkelsson, Laugarvatni.
3) Léttir, S-Múl., 27,6 sek. Eig.
Björn Hallgrímsson, Egilsstaða-
kauptúni, knapi Ragnar Hinriks-
son.
S50 METRA STÖKK
(FOLAHLAUP)
Keppt var í fimm riðlum.
1) Óðinn, Eyjafjarðarsýslu,
18,9 sek. Eig. Hörður G. Alberts-
son, Reykjavik, knapi Sigur-
björn Bárðarson. 2) Kolbeinn,
A-Skaft., 19,3 sek. Eig. Friðrik
Sigurjónsson, Fornustekkum,
knapi Magnús Ármannsson. 3)
Glói, S-Múl., 19,9 sek. Eigandi
Erna Nielsen, Eskifirði, knapi
Guttormur Ármannsson.
300 METRA STÖKK
Keppt var i fímm riðlurn.
1) Hrimnir, Borgarfjarðarsýslu
22,2 sek. Eig. Matthildur Harðar-
dóttir, Rvík, knapi Sigurbjörn
Bárðarson. Hrimnir hefur ekki
tapað í keppni síðustu þrjú ár,
en tvisvar orðið jafn í hlaupi.
Hann er tailinn afburða stökk-
hestur, og vel þjálfaður. 2) Glói,
N-Múl., 22,8 sek. Eig. Öiafur
Jónsson, Urriðavatni, knapi Sæv
arr Pálsson. 3) Skjóni,
S-Múl., 23,6 sek. Eig. Jarþrúð-
ur Þórisdóttir, Jaðri.
800 METRA STÖKK
Keppt var í tveimur riðluni.
1) Stormur, Dalasýslu, 61,9 sek
Eig. Hörður Albertsson, Rvík,
knapi Siigurbjörn Bárðárson.
Stormur setti nýtt Islandsmet i
þessari grein, bætti met Blakks
frá því fyrir tveimur árum, sem
hann setti á Vindheimamelum í
Skagafirði, en timi hans þá var
62,6 sek. 2) Léttir, ASkaft.,
62,6 sek. Eig. og imapi Sigurð-
ur Sigfinnsson, Stórulág. Léttir
hljóp á sama tlma og Blakkur
um árið. 3) Jökudl, N-Múl., 64,
2 sek., eig. og knapi Bjarni Hag-
en, Stóra-Sandfelli, Skriðdal.
800 METRA BROKK
Keppt var i tveimur riðlum.
1) Gustur, S-Múl., 1.41.4 mín.,
eig. og knapi Gunnar Egilsson)
Egilsstöðum. 2) Stóri-Rauður
Skagafj arðarsýsd u, 1.52.5 m;n.,
eig. Hrafn Sveinhjiarnarson,. HaiH
ormsstað, knapi Ragnar Ilinriks-
son. 3) Fífidi, A-Skaft., eig.
Ásgrímur Hailldórsson, Horna-
firði.
Á mótinu áttu sér stað um-
fángsmikil hrossaviðskiipti og var
vitað um nokkra sem komu
langt að til þess eins að
kaupa hesta. Sérstaklega var
gert ráð fyrir þessum viðskipt-
um i dagskránni, en þau héldu
svo áfram unz mótinu lauk.
Einnig var börnum leyft að fara
á hestbak og voru ti.l þess valdir
sex hestar, traustir og hiýðnir.
Hestamenn og mótstjórar voru
mjög ánægðir með ailla fram-
kvæmd mótsims og aðstöðu.
Næsta fjórðungsmót á Aust-
urlandi verður haldið á Horna-
fiirði eftir 5 ár. — rj.