Morgunblaðið - 09.08.1973, Page 28

Morgunblaðið - 09.08.1973, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1973 5AI BAI N : Anne Piper: 1 Snemma í háttinn á frú Higgins kam fram geigrt um handriðin og hún hóst- aði varlega. — Viljið þér fá hádegisverðinn strax frú ? sagði hún. — Já þakka þér fyrir frú Higgins. Ég vona að við höfum ekki hneykslað yður, en skipherr ann var rétt i þessu að biðja min. — Tii hamingju frú. Svo kom hún niður stigann, með braki og brestum og óskaði okkur báðum tii hamingju með handabandi, og ég þekki frú Higgins það vel, að ég veit að hún hefur verið hrifin af þessu. — Ég vona að þið verðið bæðl mjög hamingjusöm, bætti hún við dræmt um leið og hún hvarf inn í eldhúsið. Við matborðið útskýrði skip- henrnnn fyrirætlanir sinar. Þótt undarlegt megi virðast, Virtist hann því hlynntastur að ég kæmi til Bristol og yrði þar fejá móð- ur sinni, og brúðkaupið skyldi fara fram þar. Fyrst datt mér í huig að neita þessu alvag. En svo datt mér í hug: Ég hef engu að tapa og aldrei getur hún verið verri en hún mamma hans Ed- wards. — Ég verð að fara tii Bath i næstu viku, s igði skipherrann. Ég gæti ski'lið þiig eftir hjá henni mömmu og svo skroppið tii ykkar um helgar. Svo giftum við okkur undir eins og ég fæ svolítið við- bótarfrí. Ég vil ekki láta þig vera of iengi þama eina, það nær þá einhver ungur foringi i þig, ef ég vara mig ekki. Ég jánkaði þessu öHu. Það var gaman að láta aftur skipa sér fyrir. Ég hafði fengið tvö bón- orð sdðan um jól, en neitað báð- um af þvi að raenniimir sem um var að ræða voru allt of hóg- vserir og rólegir fyrir minn smekk. Ég vil láta skipa mér fyrir. Fred — en svo hét skip- herrann — var hramalegur og ein ráður og áreiðanlega á þeim bux- unum að gæta min vel. Hann gekk frá farangrinum minum og farmiðum og svo fórum við sam- an til Bristol í janúar 1941. Ég var sárfegin að sleppa frá loft- árásunum. Samkvæmt áætlun komum við til Bristol um tetáma. Mamma Freds lagði sig alltaf siðdegis og lét ekki ónáða eig fyrr. Ég sá húsið ekkert að utan þegar við fórum út úr bílnum, en inman var það ekkert uppörvandi. Gribbuleg vinnukona hleypti okkur inn í illa lýsta forstofu og flýtti sér að loka dyrumum vegna myrkvunarimmar. Við brölt um upp stigan með rauðum renningi á og okkur var visað inn í setustofuna. Gamla frú Foster sat við arin- inn með einhverja flókna handa- vimnu í höndunum. í bogaglugg- unum stóð gyllt búr með gráum páfagauk í. Um alit gólfið voru smáborð handa manni til að reka sig á. Ljósmyndir af skipherran um á öllum hugsanlegum aldri og öiium hugsanlegum einkenn- isbúningum, allt frá skáta- búniingi, gláptu á mig frá öllum borðunum, arinhillunni og slag- hörpunni. Tvær krukkur með feitum rauðum hýasintum stóðu sín hvorum megin við fuglabúrið. Frú Foster beindi hvössum blá um augum að okkur. — Jæja, sonur, sagði hún og rétti fmm andlitið til þess að láta kyssa það, en beiindi samt al'Iri athygli sinni að mér. — Hvemig líður þér, mamtna min? Þetta er hún Jenny. — Ég er hrædd um, að ég sé ekki uppá það bezta, Friðrik. En ég vona að ég hressist við þegar ég hef hana Jennifer hjá mér. Ég vona að þið hafið fengið góða ferð. Svo kemur teið eftir andartak. — Við fengum ágætis ferð. Höfðum ágætis homsæti. — Settu þig niður Friðrik og hangdu ekki svona yfir mér. Við settumst niður. Friðrik við hliðina á henni og ég á harðan grænan flosstól andspænis þeim. Mig sárlangaði að skara í eld- inn, sem var í þann veginn að kulma út. Gamla konan hélt áfram með út- sauminn simn. — Segið þið mér nú, hvað þið hafið ráðgert um giftinguna, sagði hún. — Ég vona að mér verði boðið. — Já, auðvitað elsku mamma. Við verðum að finna eimhverja hentuga kirkju, sem hægt er að koma stólmum þínum inn í. — Ég vil nú ekki verða nein- um til óþæginda. — Það verða engin óþægindi. Mér þætti fyrir því, ef þú gæt- ir ekki komið. Ég sagði ekki neitt, því ég sá að þetta ætlaði að verða bardagi upp á líf og dauða. Nú var ég alveg ákveðin að gift- ast Friðrik, en hingað til hafði mér verið svo sem rétt sama um það. Stútkan kom iinn og bar te á borð. Frú Foster viðhafði miklar serimóníur við að hela í boll- ana. Silfurkannan stóð yfir litlum Ooga, og sykurinn var tekinn með fíngerðum silfurtöngum, en kökurnar voru seigar eins og leð ur og ekki í þeim annað en sulta. Frú Foster útskýrði þetta þann- ig, að sjálí sneirti hún ekki við smjörMki, eða ætlaðist til að aðr- ir gerðu það og að hún geymdi Mckormik krydd Ævintýraheimur HVERRAR HÚSMÓÐUR, DRÖFN FARESTVEIT, húsmæðra- kennari, leiöbeinir meö val og notkun í verzluninni í dag kl. 2-6 VERIÐ VELKOMIN. ÚRVALIÐ ER MEIRA EN YÐUR GRUNAR. Matardeildir Aðalstrœti 9 MIÐBÆJARMARKAÐURINN. sér smjörið til að hafa með morgunverðinum. Ég tók of mikið af sultunni og sá, að frú Foster hafði ekki augun af skeiðinni og þvi sem í henni var. — Það verður indælt að hafa þig svöna nærri sér — i Bath, Friðrik miinn. Þú verður að koma oft og heimsækja mig. Og vitan lega lætur þú ekki bregðast að koma meðan hún Jenny er héma. Og hún sendi mér hatursauga yfir borðið. — Ég vona að þið Jenndfer verðið miklar vinkonur, sagði Fred veslingurinn. — Auðvitað verðum við vin- konur, fullvissaði móðir hans hann ismeygilega. — Meira te, elskan? Og við hvað hefur Jenni fer verið að vinna? — Ég var um tíma í matstofu við höfnina. Ég vona að ég fái eitthvað skemmtilegra í Bath. — Nú er ekki spurt um, hvað sé skemmtilegt, góða mín, held ur hvað við getum gert fyrir landið okkar á þessum erfiðu tim um. Hún tók aftur saumana sína. — Hringdu á hana Edith, Frið- rik minn ef þið eruð búin. Við megum ekki láta hana bíða eft- ir uppþvottinum. Kannski Jenni- fer vildi sjá herbergið sitt? Ég hef ætlað þér gestaherbergið bakatil hérna á hæðinni, Friðrik, og henni Jennifer framherbergið uppi við hliðina á mér. Fred fylgdi mér upp. Stigam- ir og stigagötin voru sýnilega með ljósum, svo að birtan fé'Il ekki niður og gat ekki ruglað fyrir myrkvuninni. Ég hrasaði og Fred rétti fram hönd til að styðja mig. Og herbergið mitt var ekki stórum betra — Mtið her- bergi með þremur húsgögnum — fataskáp, snyrti'borði og rúmi, og andstyggilega litil þvotta- grind úti í horni. En fegin varð ég að sjá náttlampa við rúmið. E5n þegar ég kveikti á honum kom ekki nema sáraMtil birta undan skerminum, sem Mktist meira blómapotti. Fred fór eitthvað að afsaka. — Ég er hræddur um að mamma sé dálítið gamaldags, sagði hann. — En þú hefur gott útsýni héðan yfiir Avongi'lið. Ég horfði á þykku bláu glugga tjöldin og vonaði að gfflið yrði kyrrt til morguns. Töskurmar minar tvær stóðu þegar þama á miðju gólfi. — Ég held ég verði að taka upp úr töskunum núna, sagði ég, — og þú getur talað við hana mömmu þína undir fjögur augu á meðan. Hún kann sjállsagt bezt við það. — Kannski. En vertu bara ekki lemgi, elskan. Þegar ég var orðin ein með I þýáingu Fbls Skúlasonar. farangrinum mínum, ákvað ég, ekki aðeins að giftast Fred, held ur Mka að giftast honum fljótt, áður en mamma hans og hús- gögnin hérna gerðu aiveg út af við mig. Ég óskaði þess heitast að geta flutt burt myndina yfir rúmimu minu sem var af snökt- andi stelpukrakka i ljósrauðum kjól, en Mklega myndi þetta reynast vera mynd af frú Fost- er á eimhverju gleðilegra ævi- skeiði. Hræðilegur gulur postu- Mnsfroskur glotti til mín af arim hillunni. Það minnti miiig á það að ég hafði alveg gleymt að kveðja Penelópu. Ég var alveg hajtt að taia við Davið. Hann ætlaði miig alveg lifandi að drepa. Ég snéri froskinum við og þá kom í ljós að þetta var í raumimmi sparibyssa. Ég stakk í hana tveggjapensapeningi til þess að friða hana. Ég gætti efablandin í töskum- ar minar og velti því fyrir mér, hvort ég ætti raumverulega þessi föt sem þar voru. Að minnsta kosti mundu þau alls ekki eiga við í þessu húsi. Og heldur ekki ég sjálf. Næsta framtið leit heldur kuldalega út. Og það kom mér til að leita að hita- flöskunni minni, með vaxandi vissu þess að ég hefði skilið hana eftir heima. Og sú var Mka ra/umim. Þetta var nú næstum meira en ég gat þolað. Ég sett- ist á rúmið sem lét ekkert und- m Electrolux SÆNSKAR ...^ « va UPPÞVOTT AVÉLAR Ryðfríar að innan Vörumarkaðurinn hf. © ARMULA ia. SlMI Beii2. revkjavIk. velvakandi Veivakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. Q Útvarpsefni eða sjónvarpsefni? „Kæri Velvakandi. Ánægjulegt var að hlusta á samtal þeirra Viihjálims Þ. Gisia sonar og Amar Snorrasonar, sem var á dagskrá Sjónvarps- ins s. 1. þriðjudagskvöld. Vil- hjálmur er fróður maður og reynsliuríkur, og þykir mér alltaf gaman að hlusta á það sem hann hefur að segja. Hins vegar er dálítið erfitt að skilja hvers vegna verið er að sjónvarpa svona samtalsþátt- um. Sjónvarpið er alltaf að barma sér vegna fjárskorts - í bili mam ég nú ekki hvað hver „sjónvarpsmínúta" kostar, enda breytist það sjálfsagt frá degi til dags eins og annað. Svona þættir eiga því aðeins erindi í Sjónvarpið ef sýndar eru myndir viðkomandi efninu um leið Áskrifandi." 0 Hanna María Móðir skrifar á þessa leið: Nú stendur yfir lestur sögu í „Mogunstund bamanna". Sag- an heitir „Hanna María og vill- ingamir", og er hún eftir Magn eu frá Kleifum. Sagan á mikl- um vinsældum að fagna hér á mínu heimili. Krakkamir, sem venjulega eru mestu svefnpurk- ur, sperra nú eyrun og glað- vakna, þegar Heiðdís Norðf jörð byrjar að lesa klukkan kortér fyrir níu. Þetta er prýðileg bamasig'j, sem auk þess að vera viðburða- rík og fyndin, hefur að flytja góðan „móral". Vonandi fáum við að heyra meira af Hönnu Maríu, þegar lestri þessarar sögu er lokið. Ég vil Mka nota tækifærið til að þakka Heið- 4iísi Norðfjörð fyrir góðan Jlutning. Móðir". 0 íslenzkir starfsmenn austur-þýzku einræðis- stjórnarinnar „Húsmóðir" skrifar: „Þegar ég las það, sem Gunnlaugur Stefánsson, formað ur Æskulýðssambamds Islands, sagði um för þessara átta, sem tóku þátt í heimsmóti ajsk- unnar í BerMm, datt mér í hug saga ein um samskipti íslenzkra stúdenta og yfiirvalda í Austur- Þýzkalandi. Gurnnlauigur segir í samtalinu, að íslenzku þátttak- endumir ætli ekki að klippa sig, og svo á rnaður að halda, að ekki ætU þeir að tatoa þátt í njósnum þar á þimginu. SSða hárið á auðvitað að sýna skyld- leikamn við gömlu vikingana, þó að ég haldi nú, að Jóms- víkingar hefðu látið klippa sig, ef það hefði verið eins auðvelt fyrir þá og þessa Reyk- vikinga í dag. Manmdómur og drengsfcapur felast ekki í síðu hári, og ég held, að þeir séu ekki merkilegri menn en SlA- stúdemtamir voru á símum tíma og firá segir í Rauðu bókinni. Meðal stúdentamna var einn sem var ekki afflls kostar ánægð- ur. Á bis. 204 í Rauðu bók- irnni er rætt um brotthlaup hans, og var honum ekki leyft að halda áfram námi, en Aust- ur-Þjóðverjar sögðust ekkert hafa á móti þvl, að hann kærni aftur eftir 2—3 ár. Á bls. 211 segir svo: „Þamnig úttu þeir Þór Vigfússon og Tryggvi Sig- urbjömssom viðræður við fé- iaga Lange, næstæðsta mann- inn í háskólaráðuneytinu í sum- ar. Voru þá helzt rædd vanda- mál iandahópsins, og gátu þeir Þór og Tryggvi þá um þróun þessa stúdents. Var það hið mesta happ, eins og síðar kom á daginn. Lofuðu þeir Lange að taka hanm aftur i okkar hóp og reyna að hálda áfram „upp- eldisstarfi" okkar, en liofuðu engu um árangur þesis". Eru þetta ekki drengilegar að farir? Um þet-ta stendur svo á bls. 212: „Við vorum að voma, að Lange byði okkur, að við skyldum þá fara í trúboðsreisu vestur yfir á ráðuneytisins kostnað, eða a.m.k. að hann byði okkur visumútvegun og fyringreiðslu. Af hvorugu v-arð þó, hvað sem við bárum okkur Ma“. Ef maður er orðimn kommún- isti þá eru engim takmörk fyrir því, hvað flokkurinn getur lát- ið mann gera. Þá dugar efcki sítt hár, dremgskapur eða aðr- ar fomar dyggðir. Húsm<iðir“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.