Morgunblaðið - 23.08.1973, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.08.1973, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, — FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1973 Hús í Flatey endurbætt Stykkiishólmi, 19. ágúst. 1 FLATEY er nú mikið um það að gera við og endurbæta gömul hús og nota þau til sumardval- ar, og hafa eigendur þeirra unn- ið það verk. Auk þess hafa göm- ul hús verið seld tii sumardval- ar. Mikið af fólki dvelur í Flatey á sumrin bæði í þessum húsum og tjöldum og er það mjög viin- sælt. Hins vegar eru nú verzl- Ljóðabók — eftir Helen Svein- björnsson MORGtJNBLAÐINU hefur borizt nýútkomin ljóðabók, sem er gef- in út & Stockwellforlaginu í De- vonshire í Bretlandi, „Cioth of Gold and Other Poems“ eftir Helen Sveinbjörnsson, en hún er dóttir Svetnbjöms Sveinbjöms- sonar, tónskálds. Bókinni er skipt í nokkra kafla: „Cloth of Gold and Nature Po- ems“, „Miscellaneous Poems“ og „Poems Based on Myth and Legend and Envoi". Bókin er í litlu broti og er 125 bls. að sitærð. anir þær, sem þar hafa verið, auðar. Seinasta verzlunin var starfrækt af frú Jónínu Her- mannsdóttur, sem komin er yf- ir áttrætt. Er hún búin um mörg ár að veita alveg sérstaka þjón- ustu og þeir ótaldir, sem hafa heimsótt hana og ferngið úrvais viðtökur. Þá rak frú Jónina Eyj- ólfsdóttir, sem nú er 87 ára göm- ul, verzlun í Flatey um langan tíma, en þeirri þjónustu er nú lokið. Báðar þessar konur dvelja nú í sumair í Flatey; þvi tii átt- haganmia andinn leitar. Mjög er nú rætt um og í athugun með veitingarekstur þar á næsta sumri. Nokkrar skemmtanir hafa ver ið í Fiatey i sumar, og hefir allt, sem inn hefir kómið á þeim ver- ið lagt í sjóð tiil endurbóta og viðgerðar á samkomuhúsinu, sem eitt sinn þótti öndvegis sam komuhús við Breiðaf jörð. Þá haf a menn tekið sig saman og hreinsað bæinn af öllu rusli. Var það flutt út á hól og kveikt i þvi á Jóntsmesisu. Nú eru i Fliatey staddir vel- unnarar kárkjunnar, sem eru að eimangra hana til þess að fyrir- byggja allan slaga og þannig gera sitt 'til að liistaverk Baltas- ars í hvelfimgu kirkjunnar fád að standa en fúni ekki. — Fréttariitari. Einimelur Dómnefndin, sem valdi fegnrstu götu Reykjavíkur í ár var eingöngu skipuð fulltrúum frá Fegrunamefnd Reykjavíkur, en þau vom Öm Egiisson, Ragnhildur Kr. Björnsson og Gústaf A. Níelsson. Nefndin varð sammála um að velja Einimel, sem fegurstu götu borgarinnar I ár og verður merld nefndarinnar sett upp við götuna. Jafnframt þótti ástæða til að benda á F.ikjuvog og Hvassaleiti, sem götur verðar viðurkenningar. Fmnbogi Guömundsson frá Geröum: Fiskveiðilögsagan og samninga- viðræður við Breta og Þjóðverja ÉG HEF verið í hópi þeirra manna, sem ekki hafa verið trú- aðir á, að hægt væri að semja við Breta um undanþágu til veiða tnna.n fiskveiðilögsögu okkar, jatfnved þó um mjög takmarkað ttmabil væri að ræða. Það eru sjálfsaigt margvíslegar ástæður til þess, að ekki virðist mögulegt að ræða mál þessi við Breta af raunsæi þvi, sem nauðsynlegt er, ef áranigur á að nást um skynsam lega lausn. En það, sem mér finnst torvelda mest viðunandi samkomulagslausn, er, að hátt- settir ráðamenn Breta virðast haldnir ótrúlegum fyrirfram mótuðum skoðunum og vanþekk inigu á hinum fiskifræðilegu stað reyndum. Betri upplýsingar um atriði þessi, gætu þeir auðveld- lega fengið frá stnum eigin fiski fræðingum og fiskimönnum, en þeim eru öll þessi atriði ljós, ef aðilar þessir þá vildu segja satt og rétt frá. Þannig hafa t.d. ýmsir tals- menn Breta haldið þvi fram, að ef Islendingum takist, að færa út fiskveiðilögsögu sína, munu mörg þúsund tonn af þorski fverða ellidauðir á miðunum við Island á ári hverju. Það er ekk ert nýtt í sögu Breta, að þeir leiki slikan leik við smáþjóð, og það þurfa ekki að vera neinir út- lendingar. Ég vil hér einungis nefna, hvemiig þeir léku íbúa Nýfundna lands, en það var alls ekki ætlun Breta að þar risi upp nein föst byggð. Þegar þeir sáu þess ein- hver merki, að slíkt væri að ger ast, aðgættu þeir hvort þama hefði verið reistur reykháfur. Er þanmig var komu herskip og skutu niður þennan reykháf. Miðin við Nýfundnaland áttu að vera ævarandi eign brezkra fiski manna. Hvað varð um fólk það sem hafði tekið sér bólfestu í landinu, skifti ráðamenn Breta alls ekki neinu máli. Sami leikur er að gerast á ný við Island, þó aðferðimar séu ef til vill nokkuð aðrar, er sama hugsun á bak við allt saman. — Ennfremur finnst mér, að samn- imgsfulltrúar okkar hafi ekki iagt málið þannig fram, að fullt tíllit hafi verið tekið til hinna Finnbogi Guðmundsson. fisk.fræðlegu staðreynda. Að minnsta kosti, — þeim hefur ails ekki tekizt að sannfæra Breta. Uppistaðan í afla brezku togar anna hér við land, hefur verið ó- kynþroska smáfiskur. Þetta hef ur verið sannað það greinilega, nú siðast af brezkum fiskkaup- mönnum, að enginn ætti að efast um það lengur. Þegar ókyn- þroska smáfiskur er drepinn, hef ir hann enga möguleika til þess, að kveikja af sér nýtt lif. Séu hins vegar uppeidisstöðv- ar hans látnar í friði, og hann fái að verða kynþroska, en það tekur hann fimm ár, og fái hann síðan að lifa í þrjú ár, hefur hann að minmsta kosti tvær mill jónir möguleika, til að kveikja af sér nýtt líf árlega, á hverju hrygningartimabili. Fái fiskur þessd hins vegar að verða 12—15 ára, vex þessi mögu leiki þannig, að þorskhrygna, sem náð hefur 60 sm lenigd, er hún kemur á hrygningarstöðv- amar gefur af sér 4,3 milljónir hrogina til frjóvgunar, og þantnig jafnmarga llfsmöguleika að meðaltali á hverju hrygning- artímabili, sem er árlega. Talað hefur verið um, að tak marka veiðar Breta við ákveðinn fjölda af smálestum. En hvað þýðir ein smálest? Hún getur þýtt eitt þúsund ó- kynþroska smáfiska, eða eitt- hundrað fullþroskaða fiska. Mér þykir þvi ekki smálestafjöldinn skþta nein.u höfuðmáli. Þá hefur líka verið um það rætt, að óhætt sé að leyfa togveið ar á uppeldisstöðvum þorskins, ef notuð eru veiðarfæri með nægilega grófuim möskva. Þetta er heldur ekki rétt. Ef smáfiskur lendir í vörpu, setn dregin er með venjulegium tog- hraða, sem er 3,5—4 sjómílur á klukkustund, myndast það mik ill straumur, að möskvarnir legigj ast saman, að minnsta kosti í belg og poka. Þegar smár þorsk ur þrýstist þannig í belginn og pokann, ásamt stærri þorski og ýmisum öðrum fisktegundum, verður hann fyrir það miklu hnjaski, að hann kemur ekki lif andi að pokaendanum, hvað þá út um möskvana, sem eru nú 120 mm eða 60 mm á legg, og að mastu lokaðir af straumþung anum vegna togsins, og þung- amium af fiski þeim, sem safnazt hefur í pokann og eykur á þrýst irnginn. Þó möskvastærðin yrði aukin í 130 mm eða 135 rnm eirns og nú er rætt um, eða 65—67,5 mm legg, myndi það ekki breyta neinu að ráði um möguleika smá þorsks til þess að komast liifandi út um belg eða pokamöskvana, ef þeir á annað borð hafa komizt undir höfuðlínuna og sogazt með straumnum og hafna svo að lok um í pokanum, ásamt öðrum fiski, sem safnast saman í hverju togi, og verður ekki fjarlægður fyrr en hift er og aflimm innbyrt- ur, en þá er oftast mest af við- kvæmasta þorsikinum dautt, eða skemmt af hnjaskinu. Þó það kunni að vera fræðileg ur möguleiki, að smár þorskur komiist lifandi út úr vörpu, sem hann er kominm í í togi, verðiur það aldrei sem neimu nemur í reynd. Eini möguleikinn til þess, að smáfliiskur komist lifandi út úr vörpu eftir að ha-fa lent undir höfuðlínunni, og þannig komizt i vörpuma, er þá helzt sá, að lyft sé á nokkurra minútna fresti þannig að hann losni við að sog ast inn í vörpuna og þá alla leið inn í pokann, losni þannig við hnjaskið og komist út um möskv- ana á skver og vængjum, ef hamn hefði fylgt eftir þeim hluta vörp unnar meðan híft var. Ég tel úti lokað, að vernda fiskistofnana, nema með þvi að banna algjör- l'ega að veiða ókynþroska smá- fisk og framfylgja þvi banni með ströngu eftirliti, bæði á mið um og í löndunarhöfnum. Því miður tel ég vonlítið, eða vomlaust, að samkomulag náist um það, sem duga muni, við margar þjóðir, t.d. Breta og ýms ar aðrar. Þeir sem hafa lesið samtal „Þjóðviljans" við Jakob Jakohs- son á sjómannadaginn sl, ættu að geta skilið, að ekki var skilnings að vænta, hvorki til lagfæring- ar á alþjóðarétti til aukinnar fiskveiðilöigsögu, né við vendun fiskistofna okkar. Það, sem Jak ob Jakobsson segir um rán- yrkju á Norðursjávarsíldarstofn inum á einnig við um Svía. „Þeir veiða einnig mjög «máa síld til mjölvinnslu." Því miður hafa ýmsar þjóðir haft of litiinn skiining á því að vernda og viðhalda lifskeðjunni á landi og í sjó og margar stór- þjóðdr verið frekastar í rányrkj- unni. Þó ég hafi ekki mikla trú á því að fá Breta til viðræðna, hvað þá til samkomulags um raunhæfar ráðstafanir til bjargar fiskistofn um, samamber það, sem áður er sagt, hefðd samt átt að setja fram þá hugmynd við þá, að komið yrði til móts við óskir þeirra um aukin veiðisvæði á djúpmiðum, þar sem fullþroska fiskurinn heldur sig meir, gegn því, að þeir samþykki, að skipum þeirra verði aigjörlega bannað að veiða ókynþroska fisk, eða umidr 5 ára aldri og við héldum fullikomnum rétti til þess að hafa eftiiiit með þessu, og þeir tækju þátt í kostn aði við eftirlitið og veittu því stuðning, með þvi að banna al- gjörlega löndun á siíkum afla, og beittu háum sektum gegn þeim togurum, sem korna með ókyn- þroska fisk að landi. Ég tel, að þessar ráðstafanir þurfi ekki við aðra þorsikfiska, svo sem löngu, keffiu o. þ.h. Ég viðurkenind það, að það er mikið vandamál, hvernig heppi- legast er að haga sér i samskipt um eftir átökin við þær þjóðir, sem við erum i mestum árekstr um við. Það er sjálfsögð ráðstöfun og gott, að rikisstjórnin hafði mikla samstöðu um að bera ábyrgð á því, að leyfa v/s Ægd að skjóta á b/v Everton, miðað við þær að stæður, sem þar mynduðust. Einn ig var það heppilegt og til sæmd ar skipherranum og skipshöfn hans, að gera þær aðgerðir, með jafngóðum árangri, án þess að setja mannslíf í hættu, og einnig að komast af með hinar takmörk uðu skemmdir á skipinu, en samt veitti þessi aðgjörð Bretum þann ugg, að nú verða togarar þeirra að vera í þéttum hnapp. Hins vegar geta Bretar ekki leyft sér að láta herskip sin siigla á varð- báta okkar. Hvaðan hafa brezkar herflugvélar heimild til að fljúga í islenzkri loftheligi til að leið- beina herskipuim sínum og veiði skipum við ísland? Þær staðhæfingar ýmissa tals maima Breta, að þorskurinn verði ellidauður við Island eru fjarstæða, þegar tekið er tillit til þeirrar dauðatölu fyrir þorsk, sem allir heiðarlegir visindamenn bæði islenzkir og erlendir eru al gjörlega sammála um. Úr því að við höfum hervemd á annað borð, verður Atlantshafs bandalagið, eða Bandarikjamehn fyrir þess hönd, að sjá til þess, að alþjóðasamninigar séu ekki brotn ir á okkur í þessari deilu. Siglinga lögin eru t.d. afdráttarlaus og al þjóðleg og má ekki iáta Bretum liðast að brjóta þau gegndar- laust. Nú líður að því að aftur verði samið við Atlantshafs- bandalagið um endurskoðun eða væmtanlegt framhald herverndar og verður þá að sjá til þess, að réttur okkar sé tryggður að al- þjóðalögum og ekki níðst á okk- ur af bandalagsþjóðunum. Þótt Bandaríkjamenn viðurkenni ekki enn 50 málurnar, ber þeim skylda til, ásamt öðrum Atlantshafs- bandalagsþjóðum, að tryggja fullan rétt okkar að alþjóðalög um og alþ j óðasamni ngam. Má þar nefna samþykktir fiskveiði- nefndar Norðaustur-Atlamtshafs- inis um möskvastærð í botnvörpu, sem mikið virðast brotnar, þó gaignslitlar séu. Þrjú grundvallaratriði éigum við kröflu á að séu varin af þeim, sem taka að sér vemd okkar, það eru 12 mílna fiskveiðimörkin, al þjóðiegar siglingareglur og al- þjóðlegar samþykktir í fiskveiði málum. Þetta hlýtur að vera skil yrðislaust, og verður að tryggja, ef áframhaldandi samningar verða gerðir um hervermd. v* Framh. á bis. 15

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.