Morgunblaðið - 23.08.1973, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.08.1973, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐI©, _ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 1973 Gosið í réttu ljósi? Samtal vi5 Árna Gunnarsson uin bók hans Fyrsta bókin um gosið í Vestmannaeyjum heitir „Vol- cano Ordeal by fire iin Iceliand’s Westmann Islands" og er í útgáfu Iceland Rewiev. Texta bókarinnar skrifaSi Árni Gunnarsson, fréttamaður út- varpsins. Þarna er mikill fjöldi hriikalegra mynda, sem flestar eru litprentaðar — og bókin hefur selzt mjög vel að sögn bóksala. Þótti Morgunblaðinu viðeigandi að inna Áma Gunnarsson nánar eftiir ritsmíð hans. — Það tók furðu skamman tima að gefa þessa bók út? — Já, ég held að það hafi tekizt bæði fljótt og vel, og ef þess er gætt hve stór hún er og allur frágangur vandaður. Ætlunin var samt að hún kæmi út fyrr. En breytingamar í Eyjum urðu svo örar, að bókin hefði ekki haft nema takmarkað gildi, ef henni hefði verið lokið fyrr. Eins er hætt við að það hefði bitnað á gæðunum — og útgáfan er kunn af öðru en því að kasta hönd- unum til slikra verka. — Hvemig var útgáfan undirbúin? — Þeir Haraldur J. Ham- ar og Heimir Hannesson höfðu samband við mig nokkrum dögum eftir að gosið hófst og báðu mig að skrifa texta Ámi Gunnarsson, fréttamaður. í bóltiina, sem var skipulögð þegar í stað þótt gosið væri þá rétt hafið og allt í óvissu um framhaldið. Fyrirspurnir um náttúmhamfarimar voru þegar farnar að berast frá lesendum Iceland Review er- lendis og útgefendur tóku ákvörðun um að hafa snögg handtök. — Ég var með ann- an fótirnn í Eyjum en gat strax farið að skrifa fyrsta hluta bókarinnar —- þ. e. a. s. skrifa um Eyjar eins og þær voru áður — söguna líf- ið og náttúruna. Auglýsinga- stofa Gisla B. Björnssonar var fengin til að annast upp- setningu og útlit bókarininar og þegar var farið að safna myndum. Voru þeir Heimir og Haraldur í sambandi við yfir tuttugu ljósmyndara og fengu að velja úr myndum þeirra jafnóðum — eftir hverja ferð til Eyja. Þannig fóru í gegn um hendur þeirra þúsundir mynda og ég held, að þar hafi ég séð eitt mesta mynda- úrval frá Vestmannaeyjagos- inu á eitnum stað. Ég fékk kunningja minn, Karl Grönvold, jarðfræðing, til liðs við mig og safnaði að mér flestum þeim heimildum, sem ritaðar hafa verið um Vestmannaeyjar til þess að styðjast við i fyrsta kaflanum, en auðvitað þelckti ég Eyjar sjálfur frá ferðalögum. Síð- an vann ég úr þeim fréttum, sem ég hafði sjálfur sent frá Eyjum fyrstu daga gossins og leitaði til ýmissa manna um ná'kvæmar upplýsingar í sam bandi við atriði, sem gátu orkað tvímæl'is. Ég varð auð vitað að hafa í huga að þessd bók átti að koma út á ensku og tiltaka ýmis atriði tdl frekari glöggvunar, sem ekki hefði verið beinliniis þörí á að gera fyrir íslenzka lesendur. Þó er þessi bók í fullu giidi fyrir Islendinga sem heimiidarrit, bæði mál og myndir. Þar að auki efast ég um að annað eins litmynda- úrval frá Eyjum verði gefið út, þótt fleiri bækur eigi e. t. v. eftir að koma út um gos- ið. Mér skilst á öðrum út- gefendum að þessi bók sé ótrúlega rausinarleg í lit. Annars er útgáfa bókar sem þessarar margþætt fyrir tæki, ekki sízt þegar hún er unnin á jafnskömmum tíma og raun ber vitni. Texti minn var sendur í þremur hlutum til þýðingar í New York, en það verk unnu þau hjónin May og Hallberg Hallmunds- son. Myndatextar voru ekki unnir fyrr en á síðustu stundu þegar uppsetningu var endanlega lokið — og þeir Haraldur og Sigurður A. Magnússon sáu um það í sam einingu. Textinn var svo settur hér, en bókin prentuð í Hollandi. Allt gekk þetta með lygílegum hraða, enda eru þeir útgefendurnir van- ir að fást við slíkar fram- kvæmdir, sem krefjast sam- starfs margra aðila heima og erlendis. — En af hverju var bókin ekki líka gefim út á íslenzku? — Um það verðið þið að spyrja útgefendur sjálfa. Ég held að ástæðan hljóti öðr- um þræði að vera sú, að mjög dýrt er að gefa slika bók út, öll þessi litprentun er mjög dýr — og markaður- imn fremur takmarkaður hér á fslandi. Líka að útgáfu- starfsemi Iceland Review beinist að útlöndum. Útgáf- an hefur fyrst og fremst tekið sér fyrir hendur að fræða umheimimn um ísland og það sem hér gerist. Hins vegar sé ég ekkeirt því til fyrirstöðu að gefa þessa bók út með islenzkum texta, þá eiltthvað breyttum. Myndaúr- valið er hins vegar í fullu gildi fyrir alla hvert svo sem málið er. En spurningunni verða útgefendur að svara. — Finnst þér þessi bók koma tiil skila réttri mynd af því, sem gerðist í Vestmann- eyjum? — Ég held, að þessi bók geri það, eins og hægt er i bók. Mjög mikils virði er að gregða upp myndum af Eyj- um, eins og þær voru áður. Það er bakgruranur sjálfs goss ins og afleiðimga þess. Bók- in kom út sama daginn og eimhver var svo hugaður að lýsa því yfir opihberlega að gosinu væri lokið — og mynd irnar aftast í bókinni sýna það siðasta umtalsverða sem gerðist í sambandi við elds- umbrotin sjálf. — Hefur bókin fengið góðar viðtökur? — Já, ég held að ég megi fuliyrða það, þótt ég fylgist ekki nákvæmlega með söl- unrai. Þetta er ekki „jólabók", þótt hún eigi sjálfsagt lika eftir að séljast vel í jóla- bókaflóðinu. Þessi bók er allt annars eðlis og verður að líkindum flett ár eftir ár. Bóndinn i Húsey heimsóttur; „Samgöngur slæmar, en selveiðar hlunnindi — sem gera búsetu hér lífvænlega (Ljósm. Mbl.: Rafn.) Hvert síkinm er neglt á fleka og fara um 120 n.aiglar í hvert skinn. Fyrst, eftir að ég byrj aði að Skafa skinn, tók það mig átta klukkutíma að skafa það, en raú er óg um 40 mánút ur með hvert. VARGUR f TÚNUM Hver eru svo önnur hlunm- indi jarðarinnar? — Gæsin er hér í stórum hópum og eggjatimsla gæti ver ið arðsöm, ein við höfuim ekki stundað þá iðju rraikið, a.m.k. ekkil eran sem komið er. Gæsirn ar eru óttalegir vargar í tún- inu og sturadum hefur komið fyrir, að ég hef getað skotið þær út um eldhúsglugganm hjá mér, þegar þær hafa verið að rifa i sig grasið. Gal'linn við þetta er sá, að þegar hægt er að skjóta gæsina, þá er það bannað. — Oft hef óg orðið var við mienn, sem hafa verið á gæsaskyttiríi hér urn frið- uraartímanin og þegar ég gtewg um móana, hef ég furadið dauð ar gæsir eða særðar, sem þess ir skotglöðu meran hafa skilið eftir. Eirau simni tók ég kveikj'uihamar úr bíl hjá ein um af þessum lögbrjótum. — Þegar maðurinn hafði full- Framhald á bls. 15 UM LANGAN aldur hafa nokkrir bændur á Héraðinu og í Jökulsárhlíð stundað sel- veiðar og þykja þær mikil hlunnindi á þessum jörðum. Einn þessara bæja er Húsey, sem er yzti bær i Hróarstungru á Héraði. Bóndinn þar, Örn Þorleifsson, fær árlega um 100 seli í sinn hlut. Einnig eru önn ur hlunnindi þarna, s.s. eggja- taka, en þau hafa ekki verið nýtt neitt að ráði. Blaðamað- ur Morgunbiaðsins var fyrir skömmu á ferð á Héraði og hitti þá öm að máli. SELVEIÐARNAR —Hvenær hefjast selveið- arnar hérn-a? — Við byrjum að garaga við seliran um 20. maí, en aðal- veiðitíminri er frá svoraa 17. júní og fram í fyrstu vikuna í júlí. Eru selveiðar ekki fremur ó- geðlfelld virana? — Jú, þvi er ekki hægt að neita. Við veiðum kópana að vísu ekki fyrr en kæpumar hafa yfirgefið þá og suma kópa veiðum við, sem hafa villzt frá mæðrum síraum. Það giera þeir, þegar þaranig stend ur á, að þeir liigigja sofandi á leiruraum, og litið er í fljót- iniu. Á kvöldin sraöggvex í því og flæðir þá yfir leirumar og þeir fljóta burt, en hafa ekki Fjölskyidan í Húsey. Örn Þorleifsson ásamt konu sinni, Elsu Árnadóttur og börnum. Þau eru frá vinstri: Árný Vaka, Anna Heiða og Kristján. Séð heim að Húsey. En er ekki mikil vinna sam fara selveiðunum? — Við þurfum að skafa skinnira og þurrka þau. — nægan kraft til að syrada á móti straumraum. Svo er skúm uriran hérraa, þótt það standi í raáttúrufræðibókum, að hann verpi eiraungis á Breiðamerk- ursandi, og haran drepur sel inn miskuinraarlaust. Ef þessi hlumnindi væru ekk myndi ég ekki búa hérna; ég hef eragin efrai á að missa þau.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.