Morgunblaðið - 16.09.1973, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ — SU'NNUDAGUR 16. SEPTEMBER 1973
velvakandi
Velvakandi svarar í síma
10100 frá máuiudegi til
föstudags kl. 14—15.
• Leyfið frjálsan
innflutning á hundum
— hætta á því, að
smyglaðir hundar beri
með sér sjúkdóma
Borizt hefur eftirfarandi
bréf frá Jean Lanning, en hún
var dómari á hundasýningunni,
sem haldin var í Hveragerði á
dögunum:
Hundurinn er bezti vinur
mannsins. Þetta er viðurkennd
ur sannleikur í öllum löndum
heims, nema á ísiandi. Það var
sögulegur viðburður þegar í
fyrsta sinn var haldin hunda-
sýning á fslandi. Ég hef það
starf að vera dómari á slík-
um sýningum víða um lönd,
og það var mér mi'kill heiður
að vera boðið að segja álit
miitt á hundum hér.
fslendingar geta verið
hreyknir af þvi að eiga eitt
elzta hreinræktaða hundakyn
í heimi, og þetta er vissulega
ein elzta og verðmætasta arf-
leifð ykkar. íslenzki hundur-
inn er einstaklega gáfaður, og
ljúfgeðja gagnvart eigendum
sinum, hverra líf hann er reiðu
búinn að verja ef nauðsyn
krefst.
Ég varð djúpt snortin aá
þeim áhuga, sem hinir mörgu
sýningargestir létu í ljós, og
mikill áhugi virtist vera fyrir
hendi hjá ungu fóiki á hunda-
rækt. Þegar þessi áhugi er nú
vaknaður, ætti að hvetja til
þess, að hér verði leyfður
frjáls innflutninigur hunda.
Mér hefur verið sagt, að
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður Éyf
HJÚKRUNARKONUR óskast til starfa við VÍFILS-
STAÐASPÍTALA á dagvaktir og fastar næturvaktir.
Einnig óskast SJÚKRALIÐAR til starfa á sama stað.
Dagheimili er starfrækt í sambandi við spítalann.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukonan, sími 42800.
STARFSSTÚLKUR óskaát til starfa við KÓPAVOGS-
HÆLIÐ. Upplýsingar veittar í síma 41500.
STARFSSTÚLKUR óskast til starfa í eldhúsi
KLEPPSSPÍTALANS. Upplýsingar veitir matráðs-
konan, sími 38160.
bannað sé að flytja hingað
hunda frá öðrum löndum,
nema sérstakar ástæður séu
fyrir hendi. Þannig er ísland
eina landið í heiminum, sem
leyfir ekki slíkan innflutning.
Þetta hlýtur að hafa þær af-
leiðingar, að hundum er smygl
að til landsins, og geta allir
séð hvers konar afleiðingar
það getur haft. Svo tekið sé
dæmi um það versta, sem gerzt
getur, þá gætu hundar, sem
þannig eru fluttir inn með ó-
löglegum hætti o,g eftirlits-
laust, borið með sér hunda-
æði, en það er sjúkdómur, sem
er ekki síður hættulegur mönn
um en hundum.
Væri leyfður innflutningur
á hundum til Islands og eftir-
lit með honum, þá væri þessi
hætta ekki lengur fyrir hendi.
Eftirlit væri haft með þvi, að
hundar hefðu heilbrigðiisvott-
orð, gefið út af dýralækni í
því landi, sem þeir kæmu frá.
ísland gæti haft mikiivægu
hlutverki að gegna í hunda-
rækt. I>etta getur þó þvi að-
einis orðið að veruleika, ef
gamlir og úreltir fordómar
verða ekki látnir ráða ferðinni
í þessum málum framvegis.
Jean Lanning.“
0 Aðgangur
að vínveitingahúsum
Guðlaugnr Einarsson, hrl.
hringdi. Hann hafði farið á
bingókvöld, sem Karlakór
Reykjavlkur hélt að Hótel
Sögu nýverið, í fyigd með
kunningjakonu sinni og 10
ára bami hennar. Við inngang-
inn var þeim tjáð, að bamið
fengi ekki að fara inn með
þeim, þar sem um vínveitinga-
hús væri að ræða, og þar
mætti enginn fara inn, sem
væri undir 18 ára aldri.
0 Strætisvagnaferðir
um Austurstræti verði
ekkilagðar niður
Kæri Velvakandá!
H. Hjálmarsdóttir skrifar á
þessa leið:
Mig langar til að taka und-
ir orð Péturs Urbancic í pistl-
um þínum 14. þ.m. um nauð-
syn þess, að strætisvagnar
þeinr, sem ekið hafa um Aust-
urstræti, haldi þvi áfram, þó
að strætið sé að öðru leyti lok-
að bílaumferð.
Eins og Pétur bendir á er
hér um að ræða mikla þjón-
ustu við almenning, sem þarf
að hafa greiðan aðgang að al-
menningsvögnum á þessum
stað í miðborginni. Mikil óþæg-
indi munu hljótast af ef breyt-
ing verður á þessu nú.
Tiíraunin með Austurstræti
er vel þess virði að hún sé
gerð, en má þó ekki verða til
þess að strætið verði lagt í
eyði, en það getur hæglega orð
ið ef fáir eiga þangað erindi.
Það er eindregin áskorun
mín, að strætisvagnaferðum
um Austurstræti verði ekki
hætt, heldur verði þessi þjón-
usta við almenning óskert —
þar fer saman hagur atonenn-
ings og Austurstrætis.
H. Hjálmarsdóttir,
Suðuirgötu 13.“
1 framhaldi af þessu hafði
Velvakandi samband við S.V.R-
og spurðist fyrir um leiðir
vagnanna, sem ekið hafa um
Austurstræti, en umferð þeirra
þar legigst niður frá og með
morgundeginum. Um er að
ræða leiðir nr. 2, 3, 4 og 6.
Leið 2 mun nú aka um Lækj-
argötu, Vonarstræti, Suður-
götu og Aðalstræti, en leiðir 3,
4 og 6 aka um Lækjargötu,
Vonarstræti, Suðurgötu og
Túngötu. Þannig fara ailir
þessir strætisvagnar mjög ná-
lægt Austurstræti, og verður
því ekki séð, að breytingin
þurfi að koma sér neitt illa
fyrir þá, sem erindi eiga á
þessar slóðir.
Bezta auglýsingablaöiö
SÍMI í MÍMI er 10004 1
Fjölbreytt og skemmtílegt tungumálanám J
Frá Ítalíu
Skyrtublússurnar eru komnar.
STARFSFÓLK óskast að UPPTOKUHEIMILI RÍKIS-
INS, Kópavogi. Stúdentspróf eða hliðstæð menntun
æskileg. Upplýsingar veitir forstöðumaðurinn, sími
41725.
Reykjavík, 14. september 1973.
SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765
I ljós kom, að dyravörður-
inn haíði rangt fyrir sér, þar
sem ákvæði um þetta í áfeng-
iislöggjöf frá 1969 hljóða svo:
„Ungmennum yngri en 18 ára
er óheimil dvöl eftir klukkan
8 að kvöldi á veitingastað þar
sem vínveitingar eru leyfðar,
nema i fylgd með foreldrum
sínum eða maka.“
Hins vegar er vert að benda
á í þessu sambandi, að óheim-
ilt er að veita vín þeim, sem
eru undir 20 ára aldri, þó svo
að þeir eigi aðgang að vínveit-
ingastöðum með þessum skil-
yrðum.
f DODGE DART 1974~1
Dodge Dart’74 er bíll
hinna vandlátu. Dodge
Dart'74 er glæsilegur,
vandaður og á betra verði
en flestir aðrir sambæri-
legir bílar.
Nýjar sendingar á leiðinni
Kynnið yður verð
og kjör strax í dag.
DART SWINGER
DART CUSTOM
VOKULL HF.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVlK
SlMI 84366
GLUGGINN,
Laugavegi 49.
STARFSSTÚLKNAFÉLAGIÐ SOKN
Félagsfundur
veröur haldinn þriöjudaginn 18. sept-
ember 1973 kl. 8,30 e. h. í Alþýðuhús-
inu viö Hverfisgötu.
FUNDAREFNI: 1. Uppsögn samninga.
2. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Starfsstúlknafélagið Sókn.
5PÓNN
fyrirliggjandi í miklu úrvali.
FINELINE: Hnota, palisander, teak, birki.
Eik, fura, koto, gullálmur (einnig 2,8 mm.),
palisander, teak, wenge og askur (einnig 1,5 mm.)
Mahogni og Oregon pine væntanlegt.
PÁLL ÞORGEIRSSON & CO.,
Ármúla 27.
Símar 86-100 og 34-000.