Morgunblaðið - 13.10.1973, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
230. tbl. 60. árg. LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
son tekur við
Jóhann Hafstein sagði af sér formennsku Sjálfstæðis-
flokksins í gær. Hann tilkynnti þessa óvæntu ákvörðun á
fundi miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins, er hófst kl. 15.00
f gær. I bréfi til miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins sagði
Jóhann Hafstein, að af heilsufarsástæðum hefði hann
ekki yfir að búa óskertri starfsorku og þvf segði hann af
sér.
Kæru vinir og samherjar.
Ég hef þurft að taka erfiða
ákvörðun, sem ég vil hér með tjá
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.
Eg hef notið þess trausts, að vera
kosinn formaður Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundum hans. Ég
met þetta traust með þakklátum
huga.
Reynslan hefur kennt mér, að
formaður flokksins þarf að búa
yfir óskertri starfsorku og vel
það. Af heilsufarsástæðum er
þessu nú ekki til að dreifa hjá
Éramhald á bls . 18
Geir Hallgrímsson hefur nu
tekið við sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Skv. skipulags-
reglum flokksins skal f tilviki sem
þessu kjósa varaformann á fundi
flokksráðs. Miðstjórn hefur
ákveðið að flokksráðsfundur
verði haldinn um miðjan næsta
mánuð, og verður þá kjörinn nýr
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins í stað Geirs Hallgrímssonar.
Bréf Jóhanns Hafstcin
Bréf Jóhanns Hafstein til mið-
stjórnar Sjálfstæðisflokksins er
svohljóðandi:
Jóhann Hafstein:
Styrkleiki Sjálfstæðisflokksins
varðar mestu fyrir þjóðina
„Eins og ætfð áður tel ég
styrkleika Sjálfstæðisflokksins
mestu varða fyrir þjóðina, og
við það er ákvörðun mín mið-
uð,“ sagði Jóhann Hafstein f
viðtali við Morgunblaðið sfð-
degis f gær, er kunnugt varð
um þá ákvörðun hans að segja
af sér formennsku Sjálfstæðis-
flokksins.
Jóhann Hafstein var f upp-
hafi spurður, hvort heilsu hans
hefði hrakað að undanförnu og
hann svaraði: — Nei, sem betur
fer ekki. Ég veit ekki betur en
ég sé á öruggum batavegi, en
frá upphafi sögðu læknar við
mig: þetta tekur sinn tfma. Það
sem mér finnst langur tími f
þvf sambandi finnst þeim stutt-
ur.
— En hvers vegna tókstu
þessa ákvörðun nú f stað þess
að doka við og sjá hversu skjótt
þú næðir fullum bata?
— Það hefur sannarlega ekki
staðið á öðrum að gegna störf-
um fyrir mig, og á ég þá fyrst
og fremst við varaformanninn,
Geir Hallgrfmsson, sem nú tek-
ur við formennskunni. En það
er svo margt framundan á
stjórnmálasviðinu. Nefni ég
fyrst sveitarstjórnakosningar í
vor. Ekki dugar, að formaður
inn þurfi að hlffa sér þar. Al-
þingi mun krefjast mikils af
sérhverjum þingmanni, en eins
og venjulega mæðir mest á
forystunni. Ég ætla að sitja á
Alþingi áfram og vona að mér
endist kraftar, þó ekki væri
nema til þess að vinna þar að
öryggismálum tslands, eins og
ég tel nú brýna þörf, en treysti
þvf miður mörgum of lftið. Eg
mun halda áfram störfum f
landheigisnefnd og utanrfkis-
nefnd, en ótal margt annað
kallar á mikla starfsorku f
störfum Alþingis.
Sjálfstæðisflokkurinn velur
sér nýjan varaformann í næsta
mánuði. Eins og ætfð áður tel
ég styrkleika Sjálfstæðisflokks-
ins mestu varða fyrir þjóðina
og við það er mfn ákvörðun nú
miðuð.
Israelar sækja
enn inn í Sýrland
Tel Aviv, Beirut, Kairó.
Damaskus 12. okt. NTB. AP.
ISRAELSKIR herflokkar héldu
áfram sókn sinni inn í Sýrland, f
Nixon afhendi
hljóðritanir
AFRYJUNARDÓMSTÓLL í
Washington kvað f kvöld upp
þann úrskurð, að Nixon Banda-
rfkjaforseti, sé skyldugur að af-
henda hljóðritanir af samtölum
þeim, sem snerta Watergate-
málið, en öðrum mætti hann
halda eftir.
Gerald Ford
varaforseti
Washington, 13. okt. AP.
RICHARD Nixon, Bandarfkja-
forseti, sagði f sjónvarpsræðu
til þjóðar sinnar kl. 1 f nótt að
fsl. tfma, að liann hefði ákveð-
ið að tilnefna Gerald Ford sem
varaforseta og eftirmann
Spiros Agnew.
Fyrr á föstudag hafði verið
frá þvf skýrt, að forsetinn
hefði ákveðið varaforsetann,
en ckki var látið uppskátt um,
hver hefði orðið fyrir valinu.
Forsetinn lét þau orð falla f
samtali við Hugh Scott, leið-
toga repúblikana f öldunga-
deildinni, að hann væri ekki f
vafa um, að þingið myndi sam-
þykkja þann, sem hann hefði
augastað á, og hann væri
einnig sannfærður um, að út-
nefningin kæmí mörgum á
óvart.
áttina til Damaskus f gærkvöldi,
og virtist þeim miða hægt, en
sfgandi. Leyniþjónusta Banda-
rfkjastjórnar telur, að þeir muni
stöðva sókn sfna inn f Sýrland um
helgina og svo virðist, sem tsrael-
ar hafi náð öllum þeim stöðvum á
Golanhæðum, er þeir misstu f
upphafi, aftur á sitt vald. Irakskir
hermenn berjast við hlið Sýrlend-
inga. Talsmaður Israelshers
sagði, að 26 sýrlenzkar vélar
hefðu verið skotnar niður yfir
Golanhæðum f dag.
A vfgstöðvunum við Sinai var
tiltölulega rólegt f kvöld. I yfir-
lýsingu egypzku herstjórnarinnar
sagði, að egypzkar fótgönguliðs-
sveitir sem nytu aðstoðar flug-
hersins, ættu í bardaga við fsra-
elskar skriðdrekasveitir, og
nefndir voru allmargir skriðdrek-
ar og brynvagnar, sem Egyptar
kváðust hafa eyðilagt.
Að þvf er stjórnmálafréttaritar-
ar segja, var orðalag yfirlýsingar
Egypta það varfærnislegt, að ýms-
ir eru þeirrar skoðunar, að þeim
hafi ekki miðað eins vel og
undanfarna daga.
— I kvöld átti Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna að koma saman
enn einu sinni, en áreiðanlegar
heimildir f New York töldu ein-
sýnt, að af þeim fundi yrði enginn
árangur, frekar en fyrr. Henry
Kissinger, utanrfkisráðherra
Bandarfkjanna, hefur tjáð mönn-
um þá skoðun sfna, að ástandið sé
hið alvarlegasta og hvatti allar
friðelskandi þjóðir til að beita
áhrifum sfnum til að styrjöldin
yrði til lykta leidd.
Þegar stríðsaðilar gefa út
skýrslur um þann usla, sem lið
þeirra hafi gert í dag, eru þær
Framhald á bls. 18
Jóhann Hafstein segir af sér
formennsku Sj álfstæðisflokks
Geir Hallgríms-