Morgunblaðið - 13.10.1973, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. OKTÖBER 1973
Borgarstjórn:
Samkeppni um
Eiðsgranda
Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkti nýverið að efna til sam-
keppni um gerð fjölbýiishúsa og
keðjuhúsa við Eiðsgranda, þó inn-
an þeirra marka sem réðust af
samþykktu gatnakerfi.
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri fjallaði um þetta mál
og sagði m.a.: 1 skipulagi er gert
ráð fyrir svonefndum keðjuhús-
um á þessu svæði ásamt fjölbýlis-
húsum og einbýlishúsum.
Birgir Isl. Gunnarsson
Þessar húsagerðir munu fara
mjög vel saman á Eiðsgranda-
svæðinu. Ég er sammála því, sem
hér hefur verið rætt um áður, að
æskilegt væri, að e.t.v. gæti sam-
keppnin um gerð húsanna verið
nokkru víðtækari en gert er ráð
fyrir í samþykkt borgarráðs. Ef
fyrri ákvörðunum verður hins
vegar breytt verulega, er hætta á,
að framkvæmdir dragist að
minnsta kosti um hálft ár, og til
þess má ekki koma. Á þessu svæði
munu m.a. Félag einstæðra for-
eldra og Félag ellilaunþega fá ióð-
ir og þessum félögum liggur á
sínum lóðum. Ég get hins vegar
fallist á eftirfarandi breytingu á
samþykkt borgarráðs:
„I reglum um samkeppni varð-
andi gerð fjölbýlishúsa og keðju-
húsa við Eiðsgranda komi ákvæði
þess efnis, að þátttakendur í sam-
keppninni hafi frjálsar hendur
um tillögur að breyttu skipulagi á
svæðinu frá þeirri skipulagstil-
lögu, sem hér liggur fyrir, ef þeir
telja það betur henta lausn sinni.
Það er þá skilyrði-að gatnakerfi
þeirrar skipulagstillögu, sem
fram var lögð í borgarráði, verði
lagt til grundvallar.““
Tillaga þessi var síðan sam-
þykkt samhljóða.
Ljósabúnaði
reiðhjóla
ábótavant
Á ÞESSU ári hafa fleiri hjóla-
reiðamenn, einkum börn og
unglingar, lent í umferðarslysum
í Reykjavík en undanfarin ár. Er
nú framundan sá tími ársins, sem
slysatíðni er hvað mest. Lögregl-
an hefur orðið þess vör á eftirlits-
ferðum, að búnaði margra reið-
hjóla í umferðinni er ábótavant,
sérstaklega ljósabúnaði. Vill
lögreglan brýna alvarlega fyrir
öllum hjólreiðamönnum að full-
nægja settum reglum um búnað á
reiðhjólum sínum og mælist til
þess við foreldra, að þeir líti til
með börnum sínum, hvað þetta
snertir.
Samkvæmt umferðarlögum
skal á hverju reiðhjóli vera:
Hæfilega traustur hemill,
ljósker, sem sýni hvítt eða dauf-
gult ljós í hæfilegri fjarlægð
framan frá, þegar reiðhjólið er
notað á ljósatima, rauðlitað glit-
auga eða ljósker aftan á reiðhjól-
inu, lás og bjalla. Ekki má nota
annað hljóðmerkjatæki en bjöllu
á reiðhjóli.
Framvegis mega hjólreiðamann
búast við þvi að verða stöðvaðir af
lögreglunni og reiðhjól þeirra
tekin úr umferð, ef búnaði þeirra
er ábótavant.
(Ur fréttatilkynningu frá lögregl-
unni).
Enn meðvitundariaus
STARFSMAÐUR Isaga, sem
höfuðkúpubrotnaði í vinnuslysi í
fyrrakvöld, var enn meðvitundar-
laus á gjörgæzludeild f gær.
ASÍ um kjaramál:
35.000 króna
lágmarkslaun?
KJARAMÁLARAÐSTEFNA ai-
þýðusambands Islands var haldin
á Hótel Loftleiðum í gær, en þar
var rætt um kröfugerð í komandi
kjarasamningum. Miklar um-
ræður urðu um skatta- og kjara-
mál, og einnig var rætt um
húsnæðismál. 1 umræðum manna
kom m.a. fram, að krefjast bæri
35 þúsund króna lágmarkslauna
verkafólks og er þá vísitala talin
með í þeim launum.
Ráðstefnunni var ekki lokið í
gærkvöldi, er Mbl. fór í prentun,
en ákveðið var að henni lyki engu
að síður í gærkvöldi. — Myndin
var tekin á ráðstefnunni i gær-
dag.
Þensluhraðinn
hefur tvöf aldast 1
tíð vinstri stjómar
FRÓÐLEGT er að athuga,
hvernig niðurstöðutölur fjár-
laga hafa breytzt á sfðustu ár-
um. Morgunblaðið aflaði sér
upplýsinga um það hjá fjár-
laga- og: hagsýslustofnun,
hverjar niðurstöðutölur
fjárlaganna hafa verið allt frá
árinu 1957. Birtist hér línurit,
scm Morgunblaðið gerði á
grundvelli þessara upplýsinga.
Lfnuritið skýrir sig að mestu
leyti sjálft, en þó verður að taka
fram nokkur atriði til skýringa.
Arið 1968 er gerð fjárl. breytt
þannig að inn i lögin voru
teknar svokallaðar markaðar
tekjur og þau gjöld, sem þeim
tilheyra. Fjárhæð laganna fyrir
og eftir þann tíma er því ekki
fyllilega sambærileg. Við
útreikninginn á því, hver upp-
hæð fjárlagafrumvarpsins
verður orðin, eftir að það hefur
hlotið meðferð þingsins, er lögð
til grundvallar samsvarandi
hækkun og varð á fjárlaga-
frumvarpi þessa árs í með-
förum þingsins í fyrra. Það
frumvarp hljóðaði í upphafi
upp á 20,4 milljarða, en var
orðið 22,0 milljarðar, þegar
þingið afgreiddi það sem lög.
Er það 7,8% hækkun. Nú
hljóðar frumvarðið upp á 27,4
milljarða, og sé gert ráð fyrir að
það hækki um 7,8% í með-
förum þingsins, verður niður-
stöðutala þess orðin 29,5
milljarðar, þegar það hlýtur
afgreiðslu.
Niðurstöðutala síðustu fjár-
laga Viðreisnarstjórnarinnar
fyrir árið 1971 var 11,3
milljarðar. Sé gert ráð fyrir, að
fjárlögin fyrir 1974 verði 29,5
milljarðar, er þar um 161%
hækkun á niðurstöðutölunni að
ræða á 3 árum vinstri stjórnar-
innar. Til samanburðar má taka
hækkum, sem varð á jafn löngu
tímabili Viðreisnarstjórnarinn-
ar sfðustu ár hennar, þ.e. á ára-
bilinu 1968 til 1971. Arið 1968
hljóðuðu fjárlögin upp á 6,2
milljarða, en 11,3 milljarða
1971, eins og áður segir. Sú
hækkun nemur 82,2%, svo að
þensluhraðinn er u.þ.b. tvöfalt
meiri hjá vinstri stjórninni.
Víkingur
seldi fyrir
8,5 millj.
TOGARINN Víkingur frá Akra-
nesi seldi 188,3 lestir af fiski í
Bremerhaven i gær fyrir 246.600
mörk, eða 8,5 milljónir kr. Meðal-
verðið hjá Víkingi var því 45,45
kr. Þá seldi Álsey frá Vestmanna-
eyjum 68,2 lestir í Cuxhaven fyrir
88.600 mörk, eða 3,8 millj. kr.
Meðalverðið hjá bátnum var rúm-
ar 45 kr.
Salan hja Víkingi var mjög góð,
því fiskurinn, sem skipið var með,
var mjög blandaður. Álsey var að
mestu með stórufsa, en báturinn
hefur stundað netaveiðar austur
af Vestmannaeyjum.
Háskóla-
rektor leystur
frá störfum
Blaðinu barst í gær eftirfarandi
frétt frá menntamálaráðuneyt-
inu:
Dr. Magnús Már Lárusson, há-
skólarektor, hefur óskað eftir að
verða leystur frá störfum við Há-
skóla Islands. Menntamálaráðu-
neytið hefur i dag veitt honum
ársleyfi frá prófessorsembætti í
heimspekideild frá 1. október
1973 að telja, en jafnframt gert
ráðstafanir til, að kosning nýs há-
skólarektors verði látin fara fram
f samræmi við ákvæði laga um
Háskóla Isalnds.
Norrænni
orgelkeppni
lauk í gær
í GÆRKVÖLDI lauk I Stokk-
hólmi samnorrænni orgelkeppni,
en þessi keppni hefur staðið yfir
síðan 9. október. Aðeins einn Is-
lendingur tók þátt f þessari
keppni, Marteinn Friðriksson
organisti í Háteigskirkju.
Island skipaði tvo dómara til
keppninnar, þá Áma Kristjáns-
son tónlistarstjóra og Ragnar
Björnsson dómorganista. I gær-
kvöldi var ekki vitað hver úrslit
keppninnar urðu.
Lögreglustjóra-
staðan í Hafnar-
hreppilaus
í SlÐASTA Lögbirtingarblaði er
embætti lögreglustjóta i Hafnar-
hreppi í Austur-Skaftafellssýslu
auglýst laus til umsóknar. Um-
sóknarfrestur er til 3. nóvember
1973, og staðan veitist frá 1.
janúar 1974.
Kynna bækur á stærstu
bókasýningu heimsins
Þessa dagana stendur yfir í
Frankfurt í Vestur-Þýzkalandi
heimsins stærsta bókasýning, og
eru þúsundir útgáfufyrirtækja
með sýningarbása þar. Tveir ís-
lenzkir útgefendur taka nú þátt f
þessari sýningu sameiginlega, en
það eru Almenna bókafélagið og
Iceland Review.
Baldvin Tryggvason fram-
kvæmdastjóri AB sagði í samtali
við Morgunblaðið, að sýningar-
básar á þessari bókasýningu væru
um 10 þúsund. Almenna bóka-
félagið sýndi þarna á milli 30 og
40 bækur, og fulltrúi AB á sýning-
unni væri Björn Bjarnason.
Hann sagði, að sýningin hefði
verið opnuð 9. október s.l. og lyki
henni 17. október. Bækurnar, sem
þarna eru sýndar, eru allsstaðar
að úr veröldinni, og eiga sér
þarna stað mikil bókaviðskipti.
AB hefur áður tekið þátt í þessari
bókasýningu, en vegna mikiis
kostnaðar hefur þátttaka AB fall-
ið niður, þar til nú, að Iceland
Review og AB ákváðu að vera
saman með sýningarbás.
Heimir Hannesson hjá Iceland
Review sagði, að þeirra útgáfufyr-
irtæki tæki þátt í sýningunni aðal-
Iega til að kynna tvær bækur.
Annarsvegar íslandsbókina, sem
var gefin út í fyrra, og hins vegar
Vestmannaeyjabókina, sem gefin
var út í vor, og fjallar um
náttúruhamfarirnar í Eyjum.
Kynning þessara bóka er m.a.
gerð með það í huga að gefa þær
út í fleiri löndum og þá i samráði
við útgáfuaðila viðkomandi landa.
22. og 23. október
ySAMNINGAVIÐRÆÐUR við
Vestur-Þjóðverja, sem hefjast í
Reykjavík nú í október, munu
standa dagana 22. og 23. október,
en ekki 23. og 24. október eins og
ranghermt var i frétt Morgun-
blaðsins í gær. Leiðréttist þetta
hér með.